Alþýðublaðið - 06.04.1963, Blaðsíða 3

Alþýðublaðið - 06.04.1963, Blaðsíða 3
WWWWWWHWWWWMWHWWWtWWWHWHWWW SJÓMADUR f 40 ÁR SJOTUGUR varð í gær Sig- livatur Bessason. Hann er fædd ur á Brekkubotni í Breiðdal 4. apríl 1893, og er sonur lijón- anna Bcssa Sighvatssonar bónda og Helgu Magnúsdóttur, sem þá bjuggu þar. Þegar Sig- livatur var aðeins tveggja ára gamall, dó faðir hans, og var honum þá komið' í fóstur hjá hjónunum Páli Benedsktssyni á Gilsá og konu hans Ragnliildi Stefánsdóttur. Árið .1911 fluttist Sighvatur til Fáskrúðsfjarðar, þar sem hann hóf að stunda sjó- mennsku. Reri hann á mótor- bátum frá Fáskrúðsfirði í rúm 40 ár óslitið. Sjómannsævi hans var hin farsælasta, aldrei urðu mannskaðar á bátum hans, og einu sinni varð liann til þess að bjarga fjórum skipverjum af bát, sem hét Géysir og sökk út á rúmsjó fyrir nokkrum ára- tugum. Sighvatur hefur verið tví- giftur, en hefur misst báðar konur sínar. Fyrri kona hans liét Þórstína Þórunn Stefáns- dóttir, cn seinni Anna Sigfús- dóttir. Hann á eina dóttur, Ilelgu, og auk þess ól hann upp einn fósturson, Aoalstein Þórð arson, sem nú er búsettur í Ilafnarfirði. Sighvatur hefur alla sína ævi verið trúr hugsjónum verka lýðsins, og var hann m. a. einn af stofnendum Alþýðuflokksfé- Iags Fáskrúðsfjarðar. Hann var formaður Verkalýðs- og sjó- mannafélags Fáskrúðsfjarðar í fjöldamörg ár, og sæti átti hann í hreppsnefnd fyrir Al- þýð'uflokkinn í tæpan áratug. Sighvatur var fátækur sjó- maður, og öll þessi félagsmála- störf hafa án efa bakað honum mikið' erfiði. En kannske er það' mesta gleði hans nú, að mörg þau mál, sem hann barð'- ist fyrir á sínum yngri árum hafa náð' fram að ganga. AI- þýðuflokkurinn vill þakka hon- um fyrir traust og óbilgjarnt starf í þágu verkalýðsins, og óskar honum til liamingju með afmælið. (HWWWWWHWHWWWWWWWWWWWWWWW 2 Bretar urðu af Neptúnusi leyfislausir í Reykjavík J>EGAR togarinn Neptúnus var í Bretlandi síðast, voru fimm brezk- ir menn ráðnir til starfa á skip- inu. Togarinn kom hér við' og skruppu þá útlcndingarnir í land til þess m. a. að verzla á íslandi. Tveir urðu of seinir til skips, er togarinn sigldi kl. 4,30 I fyrradag. Þessir tveir hásetar, sem eru frá Grimsby og Ilull, vilja helzt kom- ast sem fyrst heim aftur og fara þeir utan flugleiðis n.k. mánudag. Þær upnlvsingnr fengust hjá út- lendingaeftirlitinu í gær, að ekki hefði verið sótt um atvinnuleyfi fyrir þessa fimm menn, en togar- inn fór beint á veiðar- frá Bret- landi. - ■ nir he/fðu ekki nein vegabréf óg hefðu því komið með ólognjn ínn i landið. Brezka sendiráði^ ( Reykjavík tók mennina að sér og dveljast þeir á vegum þess til mánudags. ^vvw iWWWtWWMWWWWW ALÞÝÐUBLADIÐ sn»- til Tryggva Ófeigssonar, út- gerðarmanns, til þess að spyrja hann um málavöxtu er það fréttist, að tveir brezkir afvinnulaúsir og ve<g i þétfslatliir pjómenn hcfðu orðið hér eftir af Neptúnusi. Samtalið við Út- gerðarmanninn fer hér á eftir: — (Útgerðarmaðurinn svaraði sjálfur í símann). — Tryggvi Ófeigsson? — Þetta. — Góðan daginn. Þetta er á Alþýðublaðinu, — (síðan kvnnti fréttamaður sig). ^á skellti útgerðarmað- -vmwwwwwwww FRÉTTIR í ; STUTTU MÁLI GENF, 5. apríl (NTB-Reuter). — Sovétríkin féllust í dag á tillögu Bandaríkjanna á afvopnunarráð- stcfnunni í Genf um að komið verði á beinu síma- eða fjarrita- sambandi milli Hvíta hússins og Kreml til þess að minnka hættuna á því, að styrjöld skelli á. Talið er, að það verði fjarritasamband, en ekki símasamband, sem tekið verði upp. Sagt er af hálfu Bandaríkja- manna, að ekki virðist neitt ósam- komulag milli Bandaríkjamanna og Rússa um hvernig framkvæma skuli hugmyndina um slíkt beint samband. Tillaga Bandaríkjanna var sett fram í fyrra og er liður í tillögú, sem miðar að því að minnka hætt una á kjarnorkustyrjöld, er hlotizt geti af slysni. Ætlunin er, að þess- ar tillögur verði framkvæmdar áð- ur en sjálf afvopnunin hefst. Haft er eftir góðum heimildum í Genf, að ef viðræður Bandaríkja manna og Rússa um hin einstöku atriði gangi snuðrulaust ættu að vera góðar horfur á því að beina sambandið milli Hvíta hússins og Kreml verði fyrsti jákvæði árang- urinn af 13 mánaða samningavið- ræðum um alþjóðlega afvopnun. Af sovézkri hálfu var einnig sagt, að það sem gerðist í dag hafi verið fyrsti raunhæfi árang- urinn af samningaviðræðunum til þessa. Buenos Aires, 5. apríl (NTB —Reuter) ENN var mikil spenna í ástand- j inu í Argentínu í dag þegar upp- reisnarforinginn Eladit Vazquez aðmíráll fór frá hofuðborginni með bráðabirgðaskilyrðin fyrir vopnahléi. Moskva, 5. april (NTB—Reuter) SOVÉZKA tunglflaugin Lunik fjórði var komin i 365.000 kiló- metra fjarlægð frá jörðu eða í 21.240 km fjarlægð frá tunglinu kl. 14.00 eftir ísl. tíma í dag, að sögn Tass. Tass hermir, ^ð öll tæki starfi samkvæmt áætlun. Fjarskiptin við eldflaugina voru góð og tilrauna- mælingarnar, sem fyrirhugaðar voru, héldu áfram. Önnur tilkynn- ing um ferð Luniks verður gefin út á morgun, segir Tass. Áður var frá því skýrt, að Lunik fjórði mundi ekki lenda á mánan- um heldur fara fram hjá honum í lítilli fjarlægð. Af sovézkri hálfu í Moskvu er talið, að eldflaugin muni ekki fara á braut umhverfis tunglið heldur halda áfram ferð sinni út í geiminn. En í Moskvu bollalögðu menn einnig hvort Lunik fjórði mundi senda tæki niður á yfirborð tungls- ins er hann nálgaðist það eða aft- ur til jarðar upplýsingar og mynd- ir af yfirborðinu, sem hafa mundu mikla þýðingu fyrir ferðir til tunglsins í framtíðinni. Frá því er skýrt á rannsóknar- stofunni í Bochum í Vestur-Þýzka- landi, að kallmerkin frá eldflaug- inni hafa orðið greinilegri þegar máninn tók að sjást við sjóndeild- j arhringinn kl. 12.50 eftir ísl. tíma. | Menn drógu því þá ályktun, að Lunik fiórði væri nálægt tunglinu og kröftugara senditæki um borð ^ í honum hefði verið sett í gang. ! Bæjarbíó í Hafnarfirði sýnir nú japanska mynd, sem heitir „Hvíta f jallsbrúnin“. Fékk hún gullverðlaun í Cannes. Þetta er náttúru- mynd og talin með hinum fegurstu sinnar tegundar, sem tekin hefur verið. M. a. er það sýnt, er örn hremmir bjarndýrsunga. Myndin sýnir fjalladýrin og líf þeirra yfir heilt sumar. wwww%wwwwwwwwww%ww»%*wwwwvwtwww%www( „ÓFULLKOMINN -EN VARASAMUR Framh. af 1. síðu 17. apríl næstkomandi eru enn væntanlegir hingað tveir flugmála sérfræðingar frá alþjóða flugmála stofnuninni, sem munu rannsaka þessi mál alveg frá grunni og á sama hátt og hinir erlendu fyrir- rennarar þeirra hafa gert. Flugmálastjóri sagði, er talið barst að flugvöllum úti á landi, að flug til flestra staða á þessu landi væri mjög frumstætt. Hann sagði, að sökum fjárskorts hefði ekki tek izt að koma upp neinum tækjum á hinum ýmsu smávöllum hér og þar á landinu, sem raunar væru eins konar sjúkra- eða neyðarvellir. En með þvi fjármagni, sem flugmála- stjórnin hefði yfir að ráða ár hvert væri ekkert unnt að gera til bóta í þessu máli. Er talið barst að hugsanlegum flugvelli á Álftanesi, sagði flug- málastjóri, að hann yrði fyrstur manna til að gleðjast yfir því, ef að fyrirsjáanlegt væri, að það gæti komizt til framkvæmda, en hann sagðist ekki sjá, að unnt væri að ímynda sér eins og málin stæðu nú. Flugmálastjóri taldi ekki, að heppilegt væri að íslenzku flugfé- lögin flyttu starfsemi sina til Kefiavíkur, enda hefðu hinir er- lendu sérfræðingar ekki verið hlynntir því. Þeir hefðu bent á, // hve starfsemi félganna yrði þá miklum mun erfiðari og dýrari. Flugmálastjóri var í lok funddr spurður um persónulega skoðun hans á því, hvað gera þyrfti til áð koma íslenzkum flugmálum í æski legt horf. Svar flugmálastjóra var þetta: „Fyrsta, annað og þriðja atriði: Það verður að eiga sér stað einhver stefnubreyting í fjárveitingum til flugmála. Það er vonlaust að halda svona áfram“. Nýjar bækur... Framh. af 16. siðu um deilum. Sýnir höfundur fram á, hvað raunverulega standi að baki hinum ólíku sjónarmiðum og leggur dóm á misjafna hollustu þeirra við íslenzka hagsmimi. „Hvíta Níl“ er eftir hinn við- kunna ástralsk-enska rithöfund Alan Moorehead. Hún fjallar um könnun Mið-Afríku, einhverja við burðarrikustu og örðugustu land- könnun, sem- sögur fara af. Fjallar hún einnig um leitina að upptök- um Nílar. Er þar getið hinna helztu landkönnuða, erfiðleikanna og þrenginganna, sem þeir áttu við að striða. 1.2 MILLJÓN... Frh, af 16. síðu. og mun það verða til sýnis nú um helgina frá kl. 2—8 í dag og á sama tíma á sunnudag. Einnig mun þessi mjög svo glæsilegi „vinningur" verða til sýnis alla hátíðis- og helgidaga þennan mán uð. Á þessu nýja starfsári Happ- drættis Dvalarheimilis aldraðra sjómanna, mun vinningum verða fjölgað úr 1200 í 1800 á ári. Tala útgefinna miða mun eigi að siður haldast óbreytt. Af heildarveltu munu um 60% vera greidd aftur sem vinningar til kaupenda. Happ- drættið er,tekjuskattfrjálst. Vinn ingum að verðmæti 5—10 þúsund krónur, þar sem velja má um hús- gögn mun fjölga mest. Heildar,- verömæti vinninga verður nú 23.468.000.00, eða meira en nokkru sinni áður. Það er í dag, sem sala hefst á lausamiðum en endurnýjun árs- miða og flokksmiða hefst 18. apríl nk. Er vissara fyrir menn að kaupa miða hið fyrsta, þar sem lausamið ar hafa jafnan selst upp fyrstu söludagana. Mánaðarverð hvers miða er kr. 50, ársmiðinn kr. 600. Útgefnir miðar eru 65 þúsund talp ins, eða jafnmargir og undanfarin starfsár. - Framkvæmdastjóri happdrættis DAS er Baldvin Jónsson. ALÞÝÐUBLAÐIÐ 6 ap f! 1963 3

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.