Alþýðublaðið - 06.04.1963, Síða 7
Ökumaðurinn: % var svo sann-1
arlega í fullum rétti, þegar maður
inn hljóp fyrir bílinn, og svo segið
þér að ég hafi verið í órétti.
— Lögregluþjónninn á stáðnum:
það er ofur einfalt. Faðir mannsins,
sem þér keyrðuð á er borgarstjóri
liér, bróðir hans er lögreglustjóri,
og sjálfur er ég trúlofaður systur
hans.
— Er hann góður bílstjóri?
— Það er algjör tilviljun, skal
ég segja þér ef hann og vegurinn
beygja báðir um leið.
★
- Fallega stúlkan: Þér sýnduð mik
ið hugrekki, þogar þér björguðuð
mér úr eldinum.
Slökkviliðsmaðurinn.- Það var nú
ekki það versta, ég þurfti fyrst
að slá þrjá starfsbræður mína nið-
ur, til þess að komast að.
★
— Hvað sagði hanrt að þú vær-
ir?
— Dusilmenni-
— Hvað þýðir það?
— Ég veit það ekki, en ég gaf
honum sitt undir hvorn til örygg-
ís.
ir
— Mikið er hann Gvendur alltat
montinn.
— Hugsaðu þér bara. Á síðasta
afmælisdeginum sínum sendi hann
móður sinni heillaskeyti.
★
Sonurinn: Hvað var stór sá
stærsti, sem þú hefur fengið
pabbi?
Faðirinn: Farðu og spurðu hana
mömmu þína. Ég er búinn aB
gleyma hvað ég sagði henni að
hann hefði verið stór.
★
Jói: Merktirðu staðinn þar sem
við veiddum svo mikið?
Bói: Já, ég setti skoru í borð-
stokkinn á bátnum.
Jói: Bölvaður bjáninn þetta var
þér líkt. Hvað verður nú ef við
fáum ekki sama bátinn?
— Hvers vegna segjast konur
hafa ver’rð úti að verzla, þegar þaer
svo ekki hafa keypt nokkurn skap
aðan hlut?
— Hvérs vegna segja karlmenn,
að þeir hafi verið að veiða, þegar
þeir hafa ekki fengið bröndu?
★
Storksungimv. Mamma, hver kom
með mig?
Iðrandi
ir
FRÁ ÞVÍ var nýlega skýrt í brezk-
um blöðum að fertugur bílstjóri
hefði nýlega stöðvað bifreið sína
á sveitavegi, stokkið út og vaðið út
í á, sem rann skammt frá veginum
og bjargað lambi, sem komið var
að drukknun.
Þegar hann kom aftur að bíl sín
um var búið að stela veskinu hans,
sem í voru tæpar fimm hundruð
krónur. Þrem dögum síðar fékk
hann veskið sitt aftur frá „þrem
iðrandi drengjum", sem höfðu
stolið veskinu og eytt beim pen-
ingum, sem í því voru.
Þegar þeir heyrðu, hvernig í
máiinu lá, seldu þeir loftbyssur
sínar til að fá peninga í stað
þeirra, sem þeir höfðu eýtt.
Bílstjórinn var að sjálfsögðu
harla glaður að fá veskið aftur,
en sagði um leið, að eiginlega
þyrfti hann ekki peninganna við,
þar sem skömmu eftir að veskinu
var stolið hefði hann unnið tæpar
átta þúsund krónur í Bingó spili.
„Rock and Rolí' er íón-
list hinna hamingjulausu
SKORDÝRUM
ÚTRÝMT
ÞAÐ kom fram fyrir skömmu
á ráðstefnu, sem haldin var á veg
um Alþjóða heilbrigðismálastofn-
unarinnar, (WHO), að ný aðferð
hefur verið fundin til að útrýma
fluguin og allskyns skaðlegum
skordýrum.
Þessi aðferð er í því fólgin að
karlflugurnar er látnar verða fyr
ir geislum, sem gera þær ófrjóar.
Einnig er hægt, að blanda vissum
efnum í fæðu, sem sett er fyrir
fiugurnar eða skordýrin og verða
þá áhrifin þau sömu.
Þessi aðferð hefur verið notuð
með mjög góðum árangri á eyj-
unni Curacio í Karabíska hafinu.
SU fræga Mona Lisa er nú kom
in heilu og höldnu til Frakklands
á ný eftir að hafa verið til sýnis
á safni í Bandaríkjunum um skeið.
Málverkið var flutt yfir hafið
með stórskipiHu United States og
frá skipshlið var það flutt í fylgd
fjölmennrar lögreglusveitar til
Louvre safnsins.
ROKKIÐ er fyrst og fremst tón
list æskunnar. Rokkið gefur börn
um, sem eiga við erfiðleika að
etja, vonir um að betra taki við.
Þetta segir bandarískur próf-
essor, sem rannsakað hefur þetta
furðufyrirbæri í tvö ár. Við að
hlusta á einhverja nýfræga rokk-
stjörnu, sem skyndilega hefur
birzt á himni dægurlaga tónlist-
arinnar vaknar von hjá fjölða
unglinga um að öðlast slíka frægð
í skjótri svipan.
Alveg eins og ævintýri Grimms
bræðra og æviníýri H. C. And-
ersens voru byggð á vandamálum
þeirra tíma, þá byggist rokkið á
vandamálum þeim sem nú á dög
um blasa við ungu fólki. Óttinn
viö einmanaleika, og að verða út
undan á þar stóran þátt í. í æv-
intýrunum, sem og í rokkinu,
verður lausn vandamálsins oft
undir tilviljuninni komin.
Það hefur komið í ljós við rartn
sóknir, eins og flestir bjuggust
reyndar við, að það voru léleg-
ustu nemendurnir í skólunum,
sem mest hlustuðu á rokkmúsife.
Þeir sem gátu setið og hlustað
á rokk tónlist klukkustundum sam
an reyndust flestir einmana og ó-
hamingjusamir og komnir úr hin-
um svokölluðu neðri stéttum
þjóðfélagsins, og mörgum þess-
ara unglinga finnst, að þeir séu
eltki til neins nýtir.
Rannsóknir bandaríska próf-
essorsins sýndu ennfremur að við
19 ára aldur hættu flestir ungl-
ingar að hlusta á rokk, og álitu
þáð þá vera barnalegt. Könnuð var
einnig afstaða 25 ára gamals fólks
til rokksins og kom í ljós að næst
um engir úr þeim aldursflokki
hlustuðu á þessa tcgund tónlist-
ar.
BOSUN, heitir hann þessi
hundur, og tók nýlega þátt
í hundasýningu í Englaudi,
þar sem voru samankomnir
hvorki meira né minna en
átta þúsund hundar af öll-
um stærðum og tegundum.
Því miður er okkur ekki
kunnugt um hvort þessi
heiðurshundur hreppti þar
verðiaun eður ei, en vissu-
lega ætti hann það skilið, þó
ekki væri nema eyrnanna
vegna, sem sannarlega eru
tignarleg.
Laugardagur 6. apríl
8.00 Morgunútvarp (Bæn. — 8.05 Morgunleikfimi. ______ 8.15 Tónl. —
8,30 Fréttir. — Tón.---9.10 Vfr. — 9.20 Tónl).
12.00 Hádegisútvarp (Tónleikar. — 12.25 Fiéttir og tilkynningar).
13.00 Óskalög sjúklinga (Ragnheiður Ásta Pétursdóttir).
15.00 Fréttir. — Laugardagslögin. — (16.00 Veöurfregnir).
16.30 Danskennsla (Heiðar Ástvaldsson).
17.00 Fréttir. — Þetta vil ég heyra: Þórarinn Kristjónssn símritari
velur sér hljómplötur.
18.00 Útvarpssaga barnanna: „Bömin í FögruMið" eftir Havor
Floden! VI (Sigurður Gunnarsson).
18.20 Veðurfregnir.
18.30 Tómstundaþáttur barna og unglinga (Jón Pálsson).
18.55 Tilkynningar. — 19.30 Fréttir.
20.00 Persónumagnetismi Jóa Péturs", smásaga eftir OTIenry. Giss-
ur Ó. Erlingsson þýðir og les.
20.20 Atriði úr söngleiknum „Carousel“ (Hringekjan) — eftir Ric-
hard Rodgers og Oscar Hammerstein II. Alfred Drakc, Roberí>
Peters o.fl. syngja með kór og hljómsveít undir stjórn Jay
Blackton. — Magnús Bjarnfreðsson kynnir.
21.10 Leikrit: „Gálgamaðurinn" eftir Runar Schidt, í þýðingu sér»
Sigurjóns Guðjónssonar. — Leikstjóri: Helgi Skúlason.
22.20 Danslög — þ.á.m. leikur Flamingokvintettinn. — Söngvari:
Þór Nielsen.
23.10 Dagskrárlok.
H9M SJCAfi | ,Jtí •
ALÞÝÐUBLAÐIÐ — 6. apríl 1963 J