Alþýðublaðið - 06.04.1963, Page 9

Alþýðublaðið - 06.04.1963, Page 9
1 PARK HERSHÖÐINGI — stjórn hans hefur mistekizt batt blöðin á nýjan leik. Það var á allra vitorði, að herforingja- stjórnin mundi geta tryggt- sér hagstæð úrslit í þjóðaratkvæðinu. Afstaða USA Greinilegt var, að almenningur vai' mjög andvígur stjórn herfor- ingjanna. Þrátt fyrir bannið við póíitiskri starfsemi efndu hinir ný skipulögðu stjórnmálaflokkar til hópfunda og kom þetta hershöfð- ingjunum óþægilega á óvart. Báð ir aðilar voru varkárir og virt- ust bíða eftir viðbrögðum Banda- ríkjamanna. Herinn þorði ekki að lenda í illdeilum við Bandarík- in, er standa straum af miklum hluta hins gífurlega kostnaðar, sem hernum er samfara. Sendiherra Bandaríkjanna í Seoul skýrði Park hershöfðingja svo frá, að það væri ósk Banda- ríkjamanna, að Kórea fengi borg- aralega stjórn á nýjan leik. Hinn 25. marz gaf bandaríska utanríkis ráðuneytið út yfirlýsingu, þar sem sagði, að ef herforingjastjóm yrði áfram við völd kynni það að fela í sér hættu, sem ógna mundi stöð ugri og dugmikilli stjórn í Suður- Kóreu. Vonandi mundu helztu stjórnmálaflokkarnir og stjórnin í Kóreu koma sér saman um skipan mála, þar til borgaraleg stjórn tæki við völdum. Park hershöfðingi tók þá til sinna ráða og tilkynnti, að stjórn hans mundi fallast á skipun sam- steypustjórnar, er fara mundi með völdin til bráðabirgða, og mundu óbreyttir borgarar skipa mörg ráð berraembættanna í þeirri stjórn. En ekki var ljóst hve þetta „bráða birgðáástand“ mundi standa lengi, sumir hprforingjanna í stjórn Parks nefndu tvö ár en gáfu í skyn að þeir mundu sætta sig við minna. Bandaríkjamenn gegna erfiðu hlutverki í S.-Kóreu, en svo virðist sem þeir muni standa við loíorð sitt um að tryggja myndun borgaralegrar stjórnar. Vonazt er til, að þeim muni takast að tryggja Suður-Kóreu dugmikla stjórn er þjóðin fylki sér um og gerir þeim sjálfum kleift að losna við hlutverk það, er þeir leika í stjórnmálum landsins. Luðrasveitm Svanur heldur opinbera tónleika n.k. sunnudag (pálmasunnud.) í Tjarnarbæ. Stjórnandi sveitarinnar er Jón G. Þórarinsson. Meðal verkefna er flutt verða eru eftir Karl Ó. Runólfsson, Pál ísólfsson, César Franck, Sousa o.fl. Einnig leika þrír félagar úr sveitinni tríó fyrir klarinettu, flautu og fagott eftir Háydn og Hándel. Einleik- ari verður Snæbjörn Jónsson fyrsti cornettleikari sveitarinn- ar. Formaður Lúðrasv.' Svanuv, Þórir Sigurbjörnsson tjáði fréttam. blaðsins, að strangar æfingar hefðu staðið yfir undán farið og mikill áhugi ríkti inh an sveitarinnar og allt benti til þess að þessir hljómleikar myndu takast vel. Sveitina skipa nú 24 virkir meðlimir, sem engir taka laun fyrir starf sitt í þágu sveitarinnar, en þar af eru tvær ungar stúlkur, sem báðar eru flautuleikarar. Myndin hér að ofan er tekinn á æfingu hjá Lúðrasveitinni Svan í Tjarnarbæ. SKÁKÞING ÍSLANDS Skákþing íslands verður haldið dagana 5. til 15 april. Teflt verður í landliðs- og meistaraflokki, I. og II. flokki og unglingaflokki. Fyrsta umferðin í landsliðsflokki fer fram í Snorrasal í dag, — en aðrar umferðir fara fram í Breiðfirðinga búð, svo og í öðrum flokkum. í landsliðsflokki tefla eftirtaldír menn: Björn Þorsteinsson og Ingi R. Jóhannsson, sem báðir hafa rétt indi úr landsliðsflokki frá í fyrra. Þá koma tveir 6igurvegarar úr meistaraflokki frá Skákþinginu í fyrra, þeir Magnús Sólmundarson og Jón Hálfdánarson. Jónas Þor- valdsson teflir með réttindi frá Reykjavíkurmótinu. Eftir er að skera úr hvort Bragi Björnsson eða Sigurður Jónsson tefla, en þeir urðu nr. 2 og 3 á Haustmóti Taflfélags Reykjavíkur. Gunnar Gunnarsson mun ekki nota rétt sinn til að tefla. Freysteinn Þorbergsson mun lík lega tefla með réttindi sem Norð- uríandsmeistajri, en hann hefur ekki ákveðið hvort hann verður með. Þá teflir Helgi Ólafsson, en hann varð annar á Suðurnesjamót inu og Braga Kristjánssyni ungl- ingameistara Norðurlands hefur verið boðin þáttaka í landsliðs- flokki. Eitt sæti er óákveðið. í meistaraflokki eru skráðir 25 keppendur og 21 í I. ög II. flokki. Átta keppendur eru skráðir í ungl ingaflokki. Góð vertíð hjá Afli Grindavíkurbáta frá ára- mótum til mánaðamóta síðustu var 11 þúsund 489 tonn og 980 kg. í ríkjunum, og þessi skýring sý.nöi því glögglega hin slæmu samskipíi kommúnistaríkjanna innbyrðis. Hinn 5. desember barst önnur orðsending til Peking frá Prag. Þar var því harðlega mótmælt, að fjölda tékkneskra sérfræðinga og fjölskyldum þeirra var meinað að fara úr landi. í orðsendingunni sagði, að hér væri um 1600 Tékka að ræða. Tékkneska stjórnin varaði Pek- ingstjórnina við að halda áfram á þessari braut. Pekingstjórnin bjó sig undir að gera frekari ráðstaf- anir ef tékknesku ríkisborgurunum yrði ekki leyft að snúa aftur til Tékkóslóvakíu fyrir árslok 1962. En að því er bezt verður séð er 1600 tékkneskum,1 ríkisborgurum enn haldið eftir í Kommúnista- Kfna.; Enginn þeiýra hefur féngið ieyfi til þess að snúa heim. Hinn 17. desember tilkynr tékkneska stjórnin síðan sendifull- trúa Pekingstjórnarinnar í Prag, að ,,að allri sendingu iðnaðarvöru til Kínverska alþýðulýðvéldisins, að nokkrum landbúnaðarvélum und anteknum, væri hætt, þar eð kin- verska lýðveldið skaðaði hagsmuni tékkneska sósíalistalýðveldisins í andsósíaliskum anda.“ í janúar sendi tékkneska stjórnin því næst mótmælaorðsendingu til Peking. Þair var því enn haldið fram að enginn hinna tékknesku sérfræðinga og engin fjölskylda þeirra væri komin aftur til Tékkó slóvakíu. Og að þessu sinni var jví bætt við, að vitað væri að nokkr- ir þeirra hefðu verið flutir nanð ugir til „héraða í Kína, sem ó- kleift væri að komast til.“ Sumir fréttamenn telja, að kin- verskum námsmönnum í Tékkó- slóvakíu verði nú haldið í gislingu til þess að tryggja heimkomu Tékkanna frá Kína. Pekingstjórnin heldur Tékkunum í gislingu svo að staðið verði við verzlunarsamn inginn og-til þess að neyða Tékka til þess að afhenda iðnaðarvöru þá sem varð eftir þegar kommúnista- ríki Évrópu settu verzlunarbann að nokkru leyti á Kommúnista- Kína vegna árásarinnar á Indland. En margir efast um, að tékk- neska stjórnin muni beita sömu fjárkúgunaraðferðinni og Kín- verjar beita nú með gislum síhum. Önnur og beinni ástseða til þess að Kommúnista-Kína heldur öll- um þessum tékknesku sérfræðing- um og tæknifræðingum eftir, kann að vera sú, að Pekingstjórnina vantar mjög tilfinnanlega tækni- CHOU EN-LAI — hefur neitað 1600 Tékkum um heimfararleyfi í marga mánuði. lega sérfræðinga síðan sovézku sér fræðíngarnir voru kallaðir heim. Pekingstjórnina skortir menritaða menn í vígbúnaðarframleiðsluna og ér því ófús til að láta þessa hæfu Tékka fara úr landi. En allt þetta mál sýnir, hve bitur sambúðin er milli nokkurra komm- únistastjórna innbyrðis. (Ajoy Mahlanobish.) 1302 róffrum samtals. í vetur eru gerðir út 34 bátar stórir og smáir, frá Grindavík, og er afli þeirra frá áramótum sem hér segir (talið er í tonnum): Guðjón Einarsson 344 Hafrenningur 323 Máni G.K. 448 Sigfús Bergmann 344 Arnfirðingur 381 Sigurbjörg 311 Sigurfari 374 Pétur Ingjalds 75 Vörður 419 Áskell 471 Sæfaxi 532 Sigurður 477 Hrafn Sveinbjarnarson 544 Hrafn II. 53» Ársæll Sigurðsson 545 Þorbjörn 675 Þorkatla 613 Von V.E. 412 Baldvin Þorvaldsson 431 Fjarðarklettur 393 Flóaklettur 238 Fróðaklettur 366 Gísli Lóðs 323 Faxaborg 316 Vísir 204 Hrefna 274 Hafþór Guðjónsson 73 Húni 220 Helga Björg 202 Súðafell SU 118 Björgvin 314 Máni HÚ 7 Ólafur 160 Sigurvon 7 ,! ALÞÝÐUBLAÐIÐ — 6. apríl f 63 g

x

Alþýðublaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.