Baldur - 13.06.1908, Síða 1
jy j ;,i;j'1 '!.Q’OIfÞt.MfA'V’tHtWMWjU
>~t‘iniirf»Ty*tirT>;É,fc8ym‘>T*WlÉjPiTt‘jtyM‘T Hnc
STEFNA:
Að efla hreinskilni og eyða
hræsni í hvaða m&li, sem fyrir
icemur, án tillits til sjcrstakra
flokka.
w .1 i.jt .Tr.T/rrrm. i ntt rvnn tvrtrt n rtxt rnnt rrnnrisiví nii. 111 i.w......n
BALDUE
&
AÐFERÐ:
É
Að tala opinskátt og vöflu
laust, eins og hæfir því fólki y
sero er *f n o r r œ n u bergi g|
brotið. Bi
VI. ÁR.
GIMLI, MANITOBA, 13. JÚNÍ iqo8.
Nr. 11.
A GIMLI
verður messað kl. 2 e. hád., ann-
an sunnudag, 21. júnf.
J. P. SóLMUNDSSON.
t§C^3C^3C^3C^3C^3C^3cS3§3
t§ FRJETTIR. g>
(§[g3[g3[gl[gl[gltgltgl§l
5. júnf kemur sú fregn frá Ot-
tawa, að stjórnin sje hætt við að
láta byggja Hudsonsflóabraut fyr-
ir þjóðfjelagsins eigin hönd, heldur
ætli hún nú að fá C. N. R. fjelag-
ið til þess að gjöra það. Með
byggingu brautarinnar er talið að
100 milljónir ekra af landi opnist
til ábúðar, en ekki ætlar fjelagið
að taka neitt af þvf upp f styrk-
vcitinguna, heldur á rfkið að á-
byrgjast veðskuldabrjcf fjelagsins
og veita þvf þess utan ‘eitthvað
dálftið meira' en hina vanalegu
$6,400 á mfluna. Vegalengdin
frá The Fas til Fort Churchill er
talin næstum þvf 500 mflur.
9. júnf. í gær voru fylkiskosn-
ingar bæði f Ontario og Quebcc,
“Conservatfvar sópuðu Ontario",
segir Free Press, og má kalla það
stórt til orða tekið f Ifberalblaði.
Qubec vann Ifberalflokkurinn með
miklum meiri hluta, en þó ekki
eins miklum og áður var. Á On-
tarioþingið voru kosnir 87 con-
servatfvar, 18 lfberalar, og 1 ó-
háður,
í Quebec er ekki hnignun líbcr-
ala þvf að þakka, að conservatfvar
hafi unnið neinn sjerstakan sigur.
Meðal annara fjell Leblanc, leið-
togi þeirra f valinn. Ófarirnar,
og þær eru taldar afartilfinnanleg-
ar, eru fólgnar í þvf, að stjórnar-
formaðurinn, Gouin, fjell fyrir
Bourassa f sfnu eigin kjördæmi,
þar sem hann áður hafði verið kos
inn með meiri hluta, sem þúsund-
um atkvæða skiftir. Þykir sigur
Bourassa næstum dæmalaus, með
þvf að Laurierstjórnin skarst svo
opinberlega f Icikinn, að tveir
nafnkunnustu frönsku ráðgjafarnir
frá Ottawa, Brodeur og Lcmieux,
tóku þátt f bardaganum og lýstu
þvf yfir, að sjerhvert atkvæði, sem
Bourassa væri greitt, væri sama
sem greitt á móti Laurierstjórn-
inni. Að vfsu er þó Gouin kos-
inn á þing f þvf kjiirdæmi, sem
hann hafði fyrir varaskeifu, en
Bourassa gjörði líka jafntefli f
varakjördæmi sfnu, og má eðlilega
búast við að hann eignist þaðsæti,
ef atkvæði verða talin upp.
Útkoman er þaunig i Quebec-
fylkinu sú, eins og blöðin komast
að orði, að lciðtogi stjórnarflokks-
3E3I^.3E?,,3?IL353"5r <Sc
ZBÆ^UST^iEai^IISr-
BARRISTERS &
P. O. BOX 223.
WINNIPEG, --------MAN.
* * *
Mr. Bonnar er hinn langsnjall-
asti málafærslumaður, sem nú er f
þessu fylki.
BTTD
er nýopnuð til verzlunarviðskifta,
næst fyrir norðan Lakeview Ho-
tel, Gimli.
Eigandinn er
Dr. S, Dunn.
ins kemur til baka úr þessum leið-
angri með illilega blátt auga, en
leiðtogi hins flokksins hefir algjör-
lega verið barinn til jarðar. Aft-
ur á móti á nú leiðtogi hins nýja
flokks, Nationalistanna og hinna
óháðu, hinum frægasta sigri að
hrósa, þótt hann sje í minni hluta
þegar á þing er komið.
10. júnf. Kornyrkjumannafje-
lagið hjer f fylkinu situr nú áþingi
f Brandon. Sagt er að þar hafi
því verið lýst yfir með öllum at-
kvæðum, að fjelagið sje sátt með
frumvarp það, sem nú liggur fyrir
Ottawaþinginu viðvfkjandi lagfær-
ingu á meðhöndlun kornflutning-
anna og eftirlitsins við þá.
— Hin árlegu þing ýmsra
kyrkjudeilda hjer vestra standa nú
yfir eða cru f nánd. í Alberta og
Saskatchewan standa yfir þing
meþódista, og hjcr f Manitoba
þing presbyteriana. Á þvf þingi
hefir atkvæðagreiðsla farið fram
viðvfkjandi samciningu aðalkyrkju-
deildanna evangelisku hjer í Ca-
nada, og fór hún svo, eftir langar
og strangar umræður, að 158 voru
með sameiningunni en 32 á móti.
Á þingi þessu hjelt prestur einn,
Dr. Pringle, ógurlega uppljóstrun-
arræðu um aðfarir stjórnarembætt-
ismannanna f Yukon.
— Loksins er nú Ottawastjórn-
in farin að fá fjársamþykktum
framgengt f þinginu f nokkurnveg-
inn vanalegum stfl. Til járnbrauta-
máladeildarinnar voru f gær veittar
$8,250,000, svo að helzt er svoað
sjá sem tafirnar hafi að einhverju
lcyti staðið f sambandi við kosn-
ingarnar, semnú eru rjett um garð
gengnar f stærstu og þýðingar-
mestu fylkjunum þar eystra.
Frá Islandi.
#
HÓLAR
eru losnaðir úr Hornafjarðarósi
og komnir til Eskifjarðar. Skipið
er sagt óskemmt.
REYKJAVÍKIN SOKKIN.
Sú frjett barst hingað á föstu-
dagskvöldið að gufubáturinn
“Reykjavfk“ væri sokkin nálægt
Skógarnesi í Hnappadalssýslu.
Báturinn átti að fara milli hafna á
Breiðafirði og Faxaflóa f sumar og
var þegar byrjaður þessar ferðir.
Margt hafði verið farþega á bátn-
um og björguðust þeir allir ásamt
skipshöfninni, en mikið týndist af
farangri mannaogöðrum flutningi.
Skipið liggur á mararbotni, svo
að siglutopparnir einir standa
upp úr.
VJELARBÁTUR Á HVÍTÁ.
Nokkrir bændur f Borgarfirð!
og Mýrasýslu hafa keypt vjelar
bát, er þeir ætla að láta flytja fólk
og varning eftir Hvftá, allt upp
undir Kláffors. Hafa þeir f því
skyni látið sprengja klappir úr
ánni og varið til þess allmikiili
fyrirhöfn. í vikunni sem leið
reyndi báturinn f fyrsta sinn að
fara upp cftir ánni, en komst ekki
lengra en upp hjá Ferjukoti sakir
grynninga. Spaðarnir urguðust f
botni og skemmdust, svo að bátur-
inn er nú f lamasessi f Borgarnesi.
Mun reynt til þrautar þegar að-
gerð er fengin á spöðunum, þótt
svona illa tækist til f upphafi.
“INGÓLFUR“,
Faxaflóabáturinn nýi, er nú tek-
inn við ferðum hjer um flóann.
Hann er sjálegt og vandað skip,
nýsmfðaður í Noregi og kostaði
66 þúsundir króna. Hann er al-
innlend eign. í fyrsta og öðru
farrými má vera nær hundrað
manna, en þá er þó áskipað að
fullu. En á þiljum getur verið
margt fólk. Fjöldi manna hefir
þegar notað bátinn og lætur vel
yfir. í fyrstu ferð sinni flutti hann
á 4. hundrað manna sunnan úr
Keflavfk. Báturinn kom hingað
úr hafi á fyrra laugardag og var þá
fjölda bæjarmanna boðið út í hann
til þess að skoða hann. — Skips-
höfnin er öll fslenzk, nema vjela-
maður norskur. Skipstjóri er Sig-
urjón Pjetur Jónsson frá Eyrar-
bakka og stýrimaður Sigurður
Pjetursson frá Hrólfsskála.
BQRGARSTJÓRI reykjavIk-
UR er kosinn af bæjarstjórn
Páll sýslumaður Einarsson f Hafn-
arfirði með 10 atkvæðum.
— Ingólfur, 17. maf.
Hæstmóöins orge*l og
píanó.
Hinireinu umboðsmenn fyrir
Heintzman & Co. pfanó.
J. J. H. McLean & Co. Ltd,
528 Main St. Winnipeg.
Samræður við vini okkar um
orgel og pfanó eru okkar ánægju-
efni, því okkur cr óhætt að ábyrgj-
ast hvaða hljóðfæri, sem valið er
úr okkar búð. Þær tegundir, sem
við höfum á boðstólum, eru allar
reyndar að þvf, að standa fremstar
allra þeirra hljóðfæra, sem seld eru
hjer í landi.
Heimafrjettir.
#
Mishermt er óviljandi í jíðasta
blaði um einn manninn í Islend-
ingadagsnefndinni hjer. Hr. P.
Magnússon var margútnefndur, en
tók ekki kosningunni. Tólfti mað-
urinn f nefndinni, sem ekki var áð-
ur talinn, er hr. Guðmundur Er-
Iendsson.
Únítarisku söfnuðirnir hjer hafa
að undanförnu verið að halda fundi
til undirbúnings fyrir kyrkjuþingið,
sem nú stendur yfir í Winnipeg.
Þessir voru kjörnir til þingsins
hjeðan úr nýlendunni • Bjarni Jó-
hannsson frá Geysir; Jón B,
Snæfeld frá Hnausa; Þorvaldur
Þorvaldsson og Jón Mclsted frá
Árnesi; og Jóhannes Sigurðsson,
Júlfus J. Sólmundsson, Einar S.
Jónasson, og Stefán Eldjárnsson
frá Gimli. Auk þessara manna
munu svo fleiri hafa slegist f förina.
Að kvöldi hins 9. þ. m. kom hr-
Albert E. Kristjánsson hingað aust.
an frá Meadville, og kona hans og
börn með honum. Hann ætlar að
gegna prjedikunarstörfum hjer
vestra nú yfir sumarið þangað til
skóli byrjar aftur,
, Þá fregn flytur hann af hr. Guð-
mundi Árnasyni, skólabróður sfn-
um, sem nú tók burtfararprófið frá
prestaskólanum f Meadville, að
hann hafi hlotið þetta árið vcrð-
launastjmk þann, (Crufts’ Fellow-
ship) um $800, sem veittur cr til
j Evrópufarar þeim, sem fram úr
skarar. Sjálfur hefir hann einnig
hlotið hæsta verðlaunastyrk, sem
um getur verið að ræða rr.eðan
j námið stendur yfir þar í skólanum.
Dr. S. Dunn
GIMLI.
Næstu dyr við
LAKEVIEW HOTEL.
ÁRIÐANDÍ SPOR.
Það er ekki eingöngu f dansin-
um, að fótabragð þitt sýnir sig.
Daglega, heima eða á strætum
kemur það í Ijós. Kaupirðu skó
hjer, þarftu ekki að kosta til
meiru en þú ættir að gjöra, til að
fá þá skó er þú ættir að nota.
KJORKAUP.
GULLSTÁSS. — 30 proc. af-
•sláttur. Brjóstnálar, Nisti,
Skyrtuhnappar, Festar, Úr etc.
Ábyrgð á vörunum,
Allskonar aðg.jörðir
lljótt og vel.
Ch. Goldstein.
Boot & Shoe Dealer.
695 Wellington Ave. Winnipeg,