Baldur - 07.01.1909, Qupperneq 1
VI. ÁR.
BALDUR.
AÐFERÐ:
Að tala opinskátt og vöflu-
laust, eins og hæfir því fólki,
senu er «f norrœnu bergi
| brotið.
GIMLI, MANITOBA, 7. JANÚAR iqo9.
Nr. 31.
Á GIMLI.
verður messað sunnud. 10. janúar
næstkomandi, kl. 2 e. hád.
Ræða: Síðasta orðið.
J. P. SóLMUNDSSON.
SAFNAÐARFUNDUR
f hinum únftariska Gimlisöfnuði
verður haldinn, að lokinni messu-
gjörð, sunnudaginn, þann 10. jan.
1909.
Allt safnaðarfólk áminnt um að
koma.
J. J. SóLMUNDSSON,
forseti.
FRJETTIR.
Fá kcmur nú sú fregn, að sam-
bandsstjórnin muni vera að láta
Intercolonial járnbrautina afhönd-
um f einstakra manna hendur,
þeirra Mackenzie & Mann, C. N.
R. forsprakkanna.
Sagt er að Taft muni gjöra
Heney þann, sem bezt gengur
fram f mútumálarekstrinum f San
Francisko, að dómsmálastjóra f
Bandarfkjunum, þegar hann er
sjálfur seztur f forsetasætið.
Glöggari frjettir frá jarðskjálfta-
svæðinu á ítalfu segja, að ferða-
menn úr öðrum löndum hafi farist
þar svo hundruðum skifti, og mann-
tjónið f heild sinni muni nemaein-
um 300 þúsundum.
Canada leggur fram $100,000
og Bandarfkin $200,000 til sam-
skotanna, sem þjóðirnar eru að
senda ítalfukonungi til þess að
ráða fram úr vandræðum þeirra
sem eftir Iifa. Konungurinn beit-
ist sjálfur rösklega fyrir öllu eftir-
liti.
Þegar öll von er úti um, að
nokkur sje eftir 4 Iffi f Messina-
borginni, á að láta herskip skjóta
niðurallar rústir ofan yfir leifarnar,
til þess að fyrirbyggja drepsótt,
sem komið gæti af lfkunum. Það
verður væntanlega hin ægilegasta
greftrun, sem nokkurn tfma hefir
sjest.
Hálfum mánuði frá þvf að bore
þessi stóð f fullum blóma, verður
hcnni þanriig bókstaflega sópað
niður f völlinn.
Svo mikið er fólkið að vakna til
meðvitundar um þá ósvinnu, sem
á sjcr stað f mcðhöndlun opinberra
fjármála, að útlit er fyrir að land-
hreinsunarbylgjan ætli að fara að
ná frá einni borg til annarar. Eft-
ir allt, sem á hefir gengið f San
Francisco að undanförnu, er nú
önnur hreðan f vændum f Pitts-
burg. Hinn 21. des. voru sjö
meðlimir úr fjármálanefnd bæjar-
stjórnarinnar teknir fastir, og auk
þeirra forseti og skrifari einsbank-
ans f borginni. Nefndarformað-
urinn varð að gefa $30,000 veð
fyrir sig og einn meðnefndarmað-
ur hans, sem á tveim kærum að
svara, varð að fá $15,000 veð til
að mæta hverri kæru, en hinir
voru látnir lausir gegn $15,000
veði hver. Eins og sjá má af upp-
hæðum þessum, eru mennirnir
sakaðir um fjárglæfra á afarháu
stigi.
Allt er f uppnámi f Venezuela.
Castro forseti er yfir f Evrópu að
leita sjer styrks gegn innanlands-
uppreistinni, sem þjóðin hefirgjört
móti honum. Erfiðast gjörir
hann þýzkum stjórnmálamönnum
að sýnast hreinir f augum annara
þjóða, því hergagnasmiðir þar vilja
gjarnan eiga vingott við hann, til
þess að selja honum vopn og skot-
færi. Heima í Venezuela hefir á
meðan verið gjörð tilraun til að
myrða þann, sem f fjarveru Castros
gegnir forsetastörfum fyrir hönd
uppreistarmanna, og er Castro
kennt um að vera f vitorði með
þetta. En það sem helzt lítur út
fyrir að verði honum til láns, er
yfirgangur Hollendinga. Þeir
hafa gjört sjer lftið fyrir að láta
taka fast strandvarnarskip Vene-
zuelamanna, og gefa þá útskýringu,
að það sje ekki nein móðgun við
þjóðina heldur löðrungur á Castró
forseta, fyrir vont viðmót af hans
hendi f garð Hollendinga. Vafa-
samt þykir að Bandamenn geti þó
látið það athæfi afskiftalaust, vegna
Monroe-reglunnar, og rödd hefir
heyrst í þft átt, að erfiðleikar Cast-
rós stafi mest af þvf, hvað lítið
hann leggur lag sitt við asfalt-sam-
steypuna og önnur gróðafjelög f
landi sfnu ; — þess vegna sje nú
komið fyrir honum eins og er
komið.
Vertu ORðHELDINN. Meðöðr-
um orðum: vertu áreiðanlegur,
vertu þannig, að aðrir geti reittsig
á þig, efndu ávallt orð þfn. Vertu
húsbóndi ótöluðu orðanna, en þjónn
hinna töluðu.
Áreiðanlegur maður ávinnur sjer
virðingu, við hvaða kringumstæður
sem hann býr, en sá sem scgir
annað en það sem hann meinar, á-
vinnur sjer fyrirlitningu annara.
Hugsaðu áður en þú talar, og
athugaðu áður en þú lofar.
‘Þú hefir þrenn gleraugu'.
Jeg brúka ein inni, önnur
úti og hin þriðju til að finna hin
tvenn.
UM EITUR.
(Sbr, “The Wolf Bounty Act“).
m
Samkvæmt aðsendum tilmælum
er hjer prentuð þýðing af tveirrur
greinum úr úlfalögum fylkisins.
176. kapftuli, Rev. Stat. of
Man..
5. gr. “Engum manni skal leyfi-
legt að drepa úlfa á eitri eða eitr-
uðu efni, eða beraúteða látanokk-
urstaðar eitraða beitu eða eitur eða
eitrað efni í þeim tilgangi að drepa
úlfa með þvf“.
6, gr. “Hver sá sem brýtur á-
kvæði þessarar sfðustu greinar, má
sektast fyrir hvert brot, og má sú
sekt ekki fara yfir $50, nje vera
minni en $20, fyrir hvert einstakt
brot, ásamt öllum kostnaði sem
málssóknin leiðiraf sjer, og efhinn
seki ekki getur borgað slfka sekt
strax, skal hann flytjast f og vera
í haldi f fangahúsi þess dómhjer-
aðs sem hann er dæmdur f, um
tfmabil sem ekki sje meira en (3)
þrfr mánuðir“.
Lfkindi eru til að Baldur hafi
verið beðinn fyrir greinar þessar
af þvf, að menn sje hræddir um
að ekki sje svo gætilega farið með
eitur úti á víðavangi, sem vera
skyldi.
Ekki er heldur ómögulegt, að
einhh^frjir íslendingar gjöri sig f
grannleysi seka f þessu efni, því
sumir halda því fram að leyfilegt
sje að bera út eitur, og bera fyrir
sig, þvf til sönnunar, svör, sem
einu sinni stóðu f Lögbergi upp á
spurningar um þetta efni.
Af ofanprentaðri þýðingu þess
lagastafs, sem um þetta hljóðar,
getur hver maður sjeð sjálfur hvað
Iandslögin hafa um þetta að segja.
Menn ættu þar að auki, hvað
sem öllum Iögum Ifður, að hafaþað
hugfast hvað af slfku gæti hlotist
þar sem fólk er á berjamó á sumr-
in, sftyggjandi hitt og þetta, sem
á jörðunni sprettur, bæði berja og
jurtategundir, eins og t. d. pipar-
grasið. Að lffsháski gæti stafað
af þessu fyrir fólk er alls ekki ólfk-
legt, svo tftt sem það er nú farið
að verða að skepnur verða bráð-
dauðar úti á vfðavangi, og oftast
fleiri en ein á þeim stöðvum, sem
þetta hefir helzt komið fyrir.
Hver sem kynni f trássi við öll
lög að vera að pukra með eitur til
úlfadráps, ætti samvizku sinnar
vegna að varast að fara ógætilega
með það.
Það er nógu illt að verða sekur
við sfna eigin samvizku um laga-
brot, þótt það bætist ekki á að
verða sekur um skepnufellir, og
kannske mannsmorð, ef ólánið er
mcð.
UMBODSMADUR FYRIR
LONDON MUTUAL Fire Insurance Co.
MONTREAL-CANADA Fire Insurance Co.
ANGLO-AMERICAN Fire Insurance Co.
EQUITY Fire Insurance Co.
*
* *
Tryggið hús og eignir yðar gegn eldsvoða, f einhverju af þe*s-
um fjelögum, sem eru sterk og áreiðanleg.
Þegar yður vantar sleða, vagna, sláttuvjelar, hrífur og önnur
jarðyrkjuverkfæri, þá sjáið mig þvf viðvíkjandi.
Verkfærin eru góð.
Verðið sanngjarnt.
Skilmálar fyrirtak.
G. P. MAGNUSSON.
GIMLI. MAN.
THE LIVERPOOL & LONDON &
GLOBE INSURANCE CO.
at » *
Eitt sterkasta og áreiðanlegasta lífsábyrgðarfjelag f h«imi.
Tryggir hús fyrir eldsvoða, bæði f Gimlibæ og grenndinni.
& * «
G. THORSTEINSSON, agent.
Gimli. --------Man.
HANN SÁ LEIKINN.
Eftirfylgjandi viðburður er sagð-
ur af lækni nokkrum, sem var
heppinn og duglegur og hafði mik-
ið að starfa, en honum þótti gott f
staupinu og kom oft drukkinn
heim. Einhverju sinni hallaði
hann sjer út af f legubekknum eft-
ir miðdagsverð, f sömustofunni og
báðir litlu drengirnir hans ljeku.
Hann var ekki sofnaður en lá með
aftur augun þegar drengirnir fóru
að tala saman svo hann heyrði.
Yngri drengurinn segir:
‘Komdu, við skulum látast vera
drukknir og skjögra eins og pabbi,
þegar hann kemur heim‘.
Eldri drengurinn byrjaði þegar
á leiknum, skjögraði um herbergið,
hallaði undir flatt á vfxl, var hás f
málrómnum og talaði óskiljanlega,
alveg eins og faðir hans, þegar
hann kom drukkinn heim.
Fiiður þeirra vöknaði um augu
að heyra þetta.
‘Er það mögulegt', sagði hann
við sjálfan sig, ‘að jeg, sem er
menntaður og vel upp aiinn, og
hefi þess utan ábyrgðarmikla stiiðu
Fundinn uxi.
Hjer með auglýsist að uxi, lfk-
lega á fjórða vetur, er hjer í van-
skilum ; horntekinn, rauður að lit
með hvítan flekk öðrumegin á möl-
um, hvítskrámóttur f krúnu og á
kvið. Rjettur eigandi getur vitjað
hans ti! mín gegn því að borga
allan áfallinn kostnað.
ÓLAFUR ÁRNAfiON.
Icel. River P.O.,-—Man.
f mannfjelaginu, skuli hafa getað
hagað mjer þannig gagnvart ætt-
ingjutn mfnum og vinum. Dreng-
irnir mfnir skulu aldrei oftar sjá
migdrukkinn. Jeg skal aldrei á-
fengi smakka hjeðan af'.
Hann efndi loforð sitt. Dreng-
irnir gátu vakið eftirtekt hans á
þeirri svívirðingu sem ofdrykkju
fylgir.
Kaupendur góðir.
Tryggið nú Baldri gleðilegt ár
með góðri skilsemi.
“Margt smátt gjörir eitt stórt“,
og þcss vegna er biðin crfið.