Baldur - 22.01.1909, Síða 1
STEFNA:
Að efla hreinskilni og eyða
hræsni í hvaða m&li, sem fyrir
Kemur, án tillits til sjerstakra
flokka.
VI. ÁR.
BALDUR.
wtTnuHuunaa¥raunÍTniiHlnii¥fi^nii|ni%nuniQ|
Í 1
AÐFERÐ: |
Að tala opinskátt og vöflu- œ
laust, eins og hæfir því fólki,
§ sem er af n o r r œ n u bergi
| brolið.
GIMLI, MANITOBA, 22. JANÚAR iqo9.
Nr. 33.
ASKORUN.
Það eru vinsamleg tilmæli sveitarráðsins f Bifröst, að allir þeir,
er ekki hafa greitt skatta sfna, gjöri það nú þegar.
Eins og bráðum kcmur fyrir sjónir almennings, voru 1. jan. úti-
standandi af ógreiddum sköttum nær $7,000 (sjö þúsundir).
Mjög lftið af tillðgum til skólanna hafa enn verið greidd og f
gjalddaga er þegar fallin stór upphæð. Bregðist menn ekki við nú
hið bráðasta að löka sínum sköttum, neyðist sveitarráðið til að taka að
minnsta kosti $2,000 lán, til að mæta áföllnum skuldum. Hver doll-
ar sem lána þarf, kostar gjaldendur vissa upphæð, sem þeir ekki
þyrfti að borga ef þeir stæðu vel í skilum, og borguðu sfna skatta á
rjettum tfma. Jeg vil nú minna alla á, að við alla þá skatta sem ó-
borgaðir eru 1. marz, er bætt 10 centum á hvern doilar. Alls vegna
er þvf bezt fyrir alia að borga nú þcgar.
Hnausum, 13. jan. 1909.
í umboði og eftir skipun ráðsins.
B. MARTEINSSON,
skrifari.
UMBODSMADUR FYRIR
LONDON MUTUAL Fire Insurance Co.
MONTREAL-CANADA Fire Insurance Co.
ANGLO-AMERICAN Fire Insurance Co.
EQUITY Fire Insurance Co.
*
■» *
Tryggið hús og eignir yðar gegn cldsvoða, f einhverju af þess-
um fjelögum, setn eru sterk og áreiðanleg.
# W W
Þegar yður vantar sleða, vagna, sláttuvjelar, hrffur og önnur
jarðyrkjuverkfæri, þá sjáið mig þvf viðvíkjandi.
Verkfærin eru góð.
Verðið sanngjarnt.
Skilmálar fyrirtak.
G. P. MAGNUSSON.
GIMLI. MAN.
24. jan;
það er að segja næstkomandi
sunnudag, verður messað á Gimli,
kl. 2 e. hád.
J. P. SóLMUNDSSON.
KAUPENDUR BALDURS.
Gætið sóma ykkar f þvf, þegar
þið flytjið úr einum stað í annan,
að halda ekki heimilisfangi ykkar
leyndu. Að vfsu má allt af
kenna gieymskunni um, en það
kemur leiðinlega fyrir sjónir.
Ekki lýsir það heldur nægilegri
vandfýsni við sjálfan sig, að gjöra
blaðið sitt nokkurntfma afturreka
á pósthúsinu, ef maður er ekki
skuldlaus við það. í svoleiðis til-
felli verða prentsmiðjurnar að hlýða
aðvörunum pósthúsanna, en skuld
áskrifandans heldur eins áfram að
vaxa fyrir þvf, þangað til hún er
borguð upp. Að þvf leyti er sama
látið ganga j fi ■ p entsmiðjurnar
eins og gestgjafahúsin, þar sem
gesturinn verður að borga fyrir
sig á meðan hann lætur nafn sitt
standa ókvittað á skránni, hvort
sem hann færir sjer máltíðirnar f
nyt ellegar ekki.
Gleymið hvorugu þessu atriði.
Ykkar eiginn sómi græðir mest á
því.
Nói.
Noe gamli Chcvricr, — franski
fatakaupmaðurinn f Winnipeg,
faðir Hórasar þess, sem var fylkis-
þingmaður fyrir St. Boniface næst-
sfðast, — er nýlega dottinn ofan f
lukkupottinn. Hann hefir aldrei
á ævi sinni starfað að stjórnmálum
neitt sjerstaklega, en nú hefir sam-
bandsstjórnin gjört hann að cfri
deildar þingmanni, og það gildir
ævina út.
Sæti þetta losnaði við fráfall
Berniers, fiiður Jósefs þess, sem
nú er fylkisþingmaður fyrir St.
Boniface.
Þarna má segja, að eins dauði
er annars Iff. Menn skilja að þess-
ir tvennir feðgar hafa ekki allir til-
heyrt sama stjórnmálaflokki.
Annars virðist ekkert út á þessa
embættisveitingu að setja, því
þessi Nói okkar hjerna Manitoba-
mánna, sýnist vera mesti sóma-
karl. j
Og Lauricr lftur prýðilega eftir
þvf, að það gangi ekki af Frökk-
utn, setn þeir hafa einu sinni feng-
ið. Ekki er honum það láandi.
Miklu væri nær að læra af þcirri |
fyrirmynd, að gæta sinnar þjóðar
á sama hátt. \|
Saskatcliewan.
Svo má að orði kveða, að nú
sje það fylki fyrst virkilega í smfð-
um. Það er verið að semja mann-
fjelagið þar að siðum annara
byggðra landa, og koma á fót
hreppastjórn f hjeraði hverju. Er
svo til ætlast að hver sveit verði
9 tshp, er skiftist f 6 deildir, svo
hver meðráðandi situr þá f sveitar-
stjórn fyrir sem svarar S4sect. Þó
á ekki að afnema það fyrirkomu-
lag, sem nú er á vegabótum, held-
ur láta vegabótahjeruðin standa
sem mest heima við hinar væntan-
legu sveitir.
Heil milljón dollara ætlast fylk-
isstjórnin til að sje lögð til að reisa
opinberar byggingar, undir $200.
000 til annara varanlegra umbóta,
og full $300,000 f telefóna.
Á sama tfma sem þetta sfðast-
nefnda þjóðeignaratriði er svona
vel komið á framfæri f þessu unga
fylki, er þar eins og stekkjarjarm-
ur f þingsalnum um að gefa prfvat-
fjelögum peninga fylkisins til járn-
brautabygginga út um allar jarðir.
Lýðurinn
f þessu landi er rækilega farinn að
vakna til meðvitundar um það, að
hann þurfi og eigi að skifta sjer af
hlutunum.
I Saskatchewan sitja akuryrkju-
bændurnir á þingi f Regina, til
þess að fhuga sfn sjerstöku velferð-
armál, og með hverjum hættl þeir
geti haft áhrif á, að þeim verði
sem bezt borgið.
Sama er uppi á teningnum hjer
f Manitoba. Kornyrkjumannafje-
lagið siturásfnu 7. ársþingi f Bran-
don, og frjettir berast af miklum
viðgangi þess fjelagsskapar ár frá
ári, svo stjórnmálagörpunum er
ekki farið að verða um sel.
Þegar fylkisþingið kernur sam-
an, 7. n. m., þá stendur til að
bindindismenn gjfiri þeim enn þá
svæsnari aðsúg heldur en nokkurn
tfma fyr, og heimti nú afnám vfn-
sölunnar á gestgjafahúsunum.
Sambandsþingið settist á lagg-
irnar f fyrradag, og ekki ólfklegt
að ýmislegt verði Ifka þar f sukki.
Verða Jiskimálin með /
Frá fslandi.
BAUNVERSKAN.
Af Rcykjavfkurblöðum Danamá
nú glögglega sjá það, að f þeim
hluta heimsinser búistvið aðþing-
menn svfkist, eftir geðþótta sfnum
þegar á þing er komið, úr þeim
flokki, sem þeir eru kosnir í. Allt
af heyrist eitthvað nýtt. Vfðast
er kvartað unt að menn gangi
lengra í flokksfylginu, heldur en
þeir láti í veðri vaka. Á íslandi
hugga þeir sig við vonir um hið
gagnstæða, sem búnir eru að fá á
baukinn.
Og sjálfur ráðherrann gjörirokk-
ur nú þá þjóðarskömm, að láta
menn heyra það á sjer úti f Kaup-
mannahöfn, að hann sje ekki úr-
kula vonar um að svoleiðis kunni
að fara eftir þingsetningu. Þess
heyrist aldrei getið að flokksfor-
ingi hjá nokkurri siðaðri þjóð búist
við öðru eins. Það liggur f þvf að-
dróttun, sem að eins mundi þykja
boðleg Indfánum og öðrum villi-
mönnum, sem hræra má í með
mútum og brennivfnh
Annars er harla ósennilegt, að
Hannesi sje rjett borin sagati frá
Höfn, þvf hvorugu getur maður
fengið sig til að trúa að hann sje,
flón eða dóni.
Hátt mætti skrfllinn standa hjá
þeirri þjóð, sem ekki ætti til tvær
tylftir af úrvalsmönnum á hærra
stigi en þetta.
ANDATRÚARSTYRJÖLDIN
erenn einu sinni komin f algleym-
ing á íslandi. Merkilega eftir-
tektavert dæmi má finna f ritdómi
nokkrwm, sem einhver Snorri skrif-
ar f “Rvík1' fyrir stuttu. Hann er
aff tala um siigu eftir Marfu Jó-
hannsdóttur, “Systurnar frá Græn-
adal“, og fer um hana meðal ann-
ars svona orðum :
"Sum orðatiltæki notar höf. svo
oft, að manni leiðast þau og þykir
þau óviðfeldin ; t. d. ‘dreymandi
augtiaráð1, scm kemur fyrir oft og
víða f sögunni. Höf. minnist lfka
svo oft á ‘guð kærleikans*, að varla
er hægt að verjast þeirri hugsun,
að þar kenni áhrifa frá 'Brjefum
Júlfu‘ “
Við höfum lengi sagt að aldrei
væri góð vfsa of oft kveðin, en nú
er loks uppi maður með íslending-
um, sem þykir guð of oft nefndur.
Ekki er þó vert að brígsla mann-
garminum utn að hann vilji með
þessu svívirða “guð kærleikans“
sjálfur, en hitt er ljóst, að honum
er ami í þvf, að áhrif frá ‘Brjefum
Júlfu', skuli hafa fest þessa guðs-
hugsun svona rfkt f sálarlfti þessar-
ar Marfu, sem söguna hefir skrifað.
Fyr má nú rota en dauðrota.
Einar Hjörleifssoti þýddi ‘Brjef-
in‘, og allir vita hvar hann stend-
ur. Snorri þessi skrifar f ‘Rvík‘,
°g það sýnir hvernig honum er
háttað.
Þeir finna nú orðið, bardaga-
mennirnir á Islandi, óbragð að
sama guðsnafninu, sem andstæð-
ingarnir taka sjer f munn, hvað þá
öðru.
Það er næstum þvf verra en það
hefir nokkurntfma orðið hjá okkur
hjerna vestan hafs f kyrkjumálun-
um ; — og erum við þó ekki allt f
sómanum. Þvf er nú ver.
En þessi Júlfubrjef ættu annars
ekki að vera sem verst, ef áhrif
þeirra eru ekki verri en að tarna.
ARTÐANDI SPOR.
Það er ekki eingöngu f dansin-
um, að fótabragð þitt sýnir sig.
Daglega, heima eða á strætum
kemur það f Ijós. Kaupirðu skó
hjer, þarftu ekki að kosta til
meiru en þú ættir að gjöra, til að
fá |)á skó er þú ættir að nota.
KJORKAUP.
GULLSTÁSS. — 30 proc. af-.
sláttur. Brjóstnálar, Nisti,
Skyrtuhnappar, Festar, Úr etc.
Ábyrgð 6 vörunum.
Allskonar aðgjörðir
fljótt og vel.
Ch. Goldstein.
Boot ít Shoe Dealer.
695 Welliugton Ave. Winnipeg.