Breiðablik - 01.06.1907, Qupperneq 1
g
BREIÐABLIK.
Mánaöarrit til stuönings íslenzkri menning.
FRIÐRIK J. BERGMANN
RITSTJÓRI
II. Ár.
JÚNÍ 1907.
Nr. 1.
SJÁLFSTÆÐISKRÖFUR ÍSLANDS.
LDREI hefir sjálf-
stæSis-þráin verið
eins sterk með þjóð
vorri og nú. Aldrei
hefir hún brunnið af
þorsta jafn-miklum eftir að standa
á eigán fótum, ráða sér sjálf og fá
að njóta frelsis og" fullkominna
mannréttinda.
Og aldrei hafa sjálfstæðiskröf-
urnar verið jafn-ljósar í huga henn-
ar. Aldrei hafa þær komið jafn-
ljóst og" ákveðið fram og" þetta síð-
ast-liðna ár. En nú er eftir að
vita, hver þrótturinn verður til að
fylgja þeim fram.
Vestur-íslending'ar eru auðvitað
komnir inn í annað þjóðlíf. Mun
ýmsum þess vegfna finnast, að
frelsisbaráttan á fósturjörðu vorri
koma oss lítið við. Sumir álíta
réttast að hlæja að henni og- hafa
hana í skimping'um. íslenzk
stjórnarbarátta sé þýðing'arlaust
barnag'ling'ur, sem bræður vorir á
þar heima hafi sér til dægrastytt-
ing"ar. En hún sé vonlaust Sísyf-
usar-strit. Steinninn velti jafn-
harðan niður aftur, þó hann hafi
komist upp í brúnina.
En þeg'ar vér förum að hug-sa
um, hvað unnist hefir, verður ann-
að upp á tening í huga vorum.
Vér getum eigi látið vera að kann-
ast við, að árangurinn er þegar
orðinn mikill, þrátt fyrir alt ofur-
efli, sem þjóð vor hefir átt við
að etja.
Eitt sinn grúfði verzlunareinok-
anin yfir henni. Henni fylgdi ein
sú gífurlegasta skerðing mannrétt-
inda, sem unt er að hugsa sér.
Aldrei hefir nein þjóð verið harð-
ara leikin, né átakanlegar svift
frelsi sínu en íslendingar voru þá.
Nú er íslenzk verzlan frjáls og