Breiðablik - 01.08.1907, Qupperneq 1

Breiðablik - 01.08.1907, Qupperneq 1
BREIÐABLIK. Mánaöarrit til stuðnings íslenzkri menning. FRIÐRIK J. BERGMANN RITSTJÓRI II. Ár. ÁGÚST 1907. Nr. 3. SAMKVÆMNI OG ÓSAMKVÆMNI. KKERT er almenn- ara en að fram sé komið meðþákröfu, að menn sé sjálf- um sér samkvæmir í öllu. Sú krafa er rétt eða rang-- lát, eftir því sem með er farið. Sjálfsagt er fyrir hvern mann að leitast við að fá eins mikið sam- ræmi í skoðanir sínar og hugsana- líf og honum er unt í hvert skifti. Þó er líklega enginn sá maður til, sem ekki geymi í hugskoti sínu eitthvað af skoðunum, sem honum annaðhvort er öldungis um megn að fá samræmi í, eða hann reynir ekki til að samríma. Fullkomið samræmi í hugsana- lífi nokkurs manns á sér naumast stað á nokkuru skeiði æfinnar. Það er hverjum manni um megn á því stigi tilverunnar, sem vér þekkjum. Og þegar einhver þyk- ist eiga það og stærir sig ef til vill af því, ber það vott um mann, sem ekki er kominn sérlega langt í að þekkja sjálfan sig. En sé það örðugt og manninum um megn að komast svo langt að hafa samrímt allar skoðanir sínar á sama tíma, er hitt enn örðugra að ætla sér að halda sér rígbundn- um við sömu skoðanir í öllu lífi sínu, frá því að þær fyrst myndast og fram á elliár. Væri einhverjum þetta unt, mætti auðvitað tala um samkvæmni í lífi hans. En væri það hrós eða væri það last ? Vér höldum því öldungis af- dráttarlaust fram, að það væri hverjum manni last en ekki hrós. Það sýndi, að hann hefði staðið kyrr eins og steinn, án þess að vera í nokkuru sambandi við lífið. Það hefói blásið um hann. Regn þess og dögg hefði fallið yfir hann.

x

Breiðablik

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Breiðablik
https://timarit.is/publication/168

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.