Breiðablik - 02.11.1907, Side 1

Breiðablik - 02.11.1907, Side 1
BREIÐABLIK 97 Avarp. Eg tek þetta tækifæri til aö ávarpa landa mína hér í borginni fáum oröum og tala við þá nokkur augnablik um mál Winnipeg-bæjar. Þér studduö mig góð- fúslega til kosningar árið sem leið og síð- an hefi eg átt sæti i öldurmannaráði bæj- arins og hefi rétt til að sitja þar eitt ár enn. Þann tíma, sem eg hefi verið þar,' hefi eg reynt að mínu leyti að líta eftir velferð bæjarins og breyta svo, að egekki hnekti tiltrú yr'ar, að svo miklu leyti sem mér hefir verið unt. Eitt af þeim málum, sem bæjarráðið hefir haft með höndum árið sem leið, til að ráða fram úr til heppilegra úrslita, er" að nota vatnskraftinn í Winnipeg-ánni, leiða rafmagn inn í bæinn, bæjarbúum til notkunar við lægsta verði, svo þeir að eins greiði nægilega upphæð til borgunar árlegum útgjöldum, vöxtum og $38,000 á ári hverju sem afborgun á höfuðstól; yrði höfuðstóllinn með því móti goldinn að fullu á 40 árum. Winnipeg-bær þarf rafmagn til að lýsa upp strætin, dæla vatn úr brunnum og lýsa upp hús, sem notuð eru til opinberra starfa og borgar þann dag í dag spor- vagnafélaginu fyrir þessa upphæð, sem langt mypdi fara til lúkningar almenpra. útgjalda í sambandi við rafmagnsstöðina. Kostnaðurinn, sem áætlaður var af þaul- æfðum rafmagnsfræðingum, við að fram- leiða rafmagnið var $3,250,000, og eru í þeirri upphæð vextir af höfuðstólyfir þann tíma, sem verið væri að koma stöðinni upp. Bærinn hefir þegar gjört samninga um vinnu að þessu fvrirtæki upþ á $359,- 000 og er þeirri vinnu nú stöðugt haldið áfra Tilboð hafa komió fram um fram- hald fvrirtækisins, vélar og önnur áhöld. Tilboð þessi voru nákvæmlega íhuguð með verkfræðingum bæjarins og varð það þá eindreginn úrskurður meira hluta bæj- arráðsins, að lang-heppilegast yrði að fá fyii tækið í hendur einhverju fullveðja fé- lagi. Tilboð kom fram frá einu slíku fé- lagi á Englandi, er nefnist Anglo- Cana- dian Engineering Company 0/ London, England, um að fullgjöra verkið fyrir hálfa þriðju miljón dollara og ábygrðist félagið, að bæta við öllu, sem kvnni að hafa gleymzt fram að taka í áætlan og í Stuttu máli skuldbatt það sig til að full- gjöra verkið og sjá um, að ratmagnsstöð- in leysti ætlunarverk sitt af hendi i heilt ár, eftir að hún væri fullgjör, með lög- legri trygging af félagsins hálfu. Þar sem nú tilboð þetta er miklu lægra áætl- unum verkfræðinga vorra, höfðum vér ástæðu til að ætla, enda vorum vér sann- færðir um, að upphæð sú, er til var tekin, væri a Is ekki of há fyrir verk þetta,ef vel væri það af hendi leyst. Arið sem leið var borgarstjóri Ashdown kosinn í þeim aðal-tugangi, að hann kæmi lausum skuldum bæjarins í heppi- legt liorf. Lausar skuldir er upphæð sú, sem bæriim sktildar banka sínum og upp- hæðir, sem bankinn hefir útvegart bænum til skamms tíma. F'astar skuldir eru upphæðir, sem bærinn hefir lánað gegn borgunarskuldbinding á 7 til 30 árum frá því láu var teki<\ Þessar borgunarskuld- bindingar eru nefnd handhafa-skulda- bréf (bonds) og bera 4 prósent árlega vöxtu að löguin. Þegar einhverjar um- bætur eru gjörðar í bænum, eru þessar skuldbindingar eða handhafa-skuldabréf gefin út og seld í Lundúnum og þegar hærri vextir eru borgaðir af peningum en 4 prósent, verður að slá af hverjum dollar því ekki er hægt að hækka vöxtu af skuldabréfunum sjálfum. Tilboð kom fram síðastliðíð sumar um 94 cent fyrir hvern dollar, sem orðið hefði 92 cent fyrir hvern dollar að viðbættum sölukostn- aði. Þar sem nú peningar hafa síðan stöðugt hækkað ‘í verði, mega 92 cent fyrir hvern dollar heita fremur ódýrir pen- ingar, því það jafngildir litlu minna en 4j4 prósent vöxtum ár hvert. Þegar tilbofl þetta kom fram frá Anglo- Canadian Enginéering félaginu um að koma upp rafmagnsstöð fyrir hálfa þriðju miljón, sáum vér fram á peningaþörf, ekki að eins í sambandi við stöðina, held- ur einnig til afborgunar skuld vorri við bankann. Báðum vér því félag þetta að gjöra tilboð í skuldabréf vor. Bauðst það þá til að kaupa skuldabréf fyrir 5 miljónir og gefa 92 cent fyrir hvern dollar, og mvndi það nokkurn veginn samsvara \l/2 prósent vöxtum, er bærinn vrði að borga, en aðrir bæir hér á Vesturlandi voru að

x

Breiðablik

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Breiðablik
https://timarit.is/publication/168

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.