Breiðablik - 02.11.1907, Page 1
BREIÐABLIK
97
Avarp.
Eg tek þetta tækifæri til aö ávarpa
landa mína hér í borginni fáum oröum
og tala við þá nokkur augnablik um mál
Winnipeg-bæjar. Þér studduö mig góð-
fúslega til kosningar árið sem leið og síð-
an hefi eg átt sæti i öldurmannaráði bæj-
arins og hefi rétt til að sitja þar eitt ár
enn. Þann tíma, sem eg hefi verið þar,'
hefi eg reynt að mínu leyti að líta eftir
velferð bæjarins og breyta svo, að egekki
hnekti tiltrú yr'ar, að svo miklu leyti sem
mér hefir verið unt.
Eitt af þeim málum, sem bæjarráðið
hefir haft með höndum árið sem leið, til
að ráða fram úr til heppilegra úrslita, er"
að nota vatnskraftinn í Winnipeg-ánni,
leiða rafmagn inn í bæinn, bæjarbúum til
notkunar við lægsta verði, svo þeir að
eins greiði nægilega upphæð til borgunar
árlegum útgjöldum, vöxtum og $38,000
á ári hverju sem afborgun á höfuðstól;
yrði höfuðstóllinn með því móti goldinn
að fullu á 40 árum.
Winnipeg-bær þarf rafmagn til að lýsa
upp strætin, dæla vatn úr brunnum og
lýsa upp hús, sem notuð eru til opinberra
starfa og borgar þann dag í dag spor-
vagnafélaginu fyrir þessa upphæð, sem
langt mypdi fara til lúkningar almenpra.
útgjalda í sambandi við rafmagnsstöðina.
Kostnaðurinn, sem áætlaður var af þaul-
æfðum rafmagnsfræðingum, við að fram-
leiða rafmagnið var $3,250,000, og eru í
þeirri upphæð vextir af höfuðstólyfir þann
tíma, sem verið væri að koma stöðinni
upp. Bærinn hefir þegar gjört samninga
um vinnu að þessu fvrirtæki upþ á $359,-
000 og er þeirri vinnu nú stöðugt haldið
áfra Tilboð hafa komió fram um fram-
hald fvrirtækisins, vélar og önnur áhöld.
Tilboð þessi voru nákvæmlega íhuguð
með verkfræðingum bæjarins og varð það
þá eindreginn úrskurður meira hluta bæj-
arráðsins, að lang-heppilegast yrði að fá
fyii tækið í hendur einhverju fullveðja fé-
lagi. Tilboð kom fram frá einu slíku fé-
lagi á Englandi, er nefnist Anglo- Cana-
dian Engineering Company 0/ London,
England, um að fullgjöra verkið fyrir
hálfa þriðju miljón dollara og ábygrðist
félagið, að bæta við öllu, sem kvnni að
hafa gleymzt fram að taka í áætlan og í
Stuttu máli skuldbatt það sig til að full-
gjöra verkið og sjá um, að ratmagnsstöð-
in leysti ætlunarverk sitt af hendi i heilt
ár, eftir að hún væri fullgjör, með lög-
legri trygging af félagsins hálfu. Þar
sem nú tilboð þetta er miklu lægra áætl-
unum verkfræðinga vorra, höfðum vér
ástæðu til að ætla, enda vorum vér sann-
færðir um, að upphæð sú, er til var tekin,
væri a Is ekki of há fyrir verk þetta,ef vel
væri það af hendi leyst.
Arið sem leið var borgarstjóri Ashdown
kosinn í þeim aðal-tugangi, að hann
kæmi lausum skuldum bæjarins í heppi-
legt liorf. Lausar skuldir er upphæð sú,
sem bæriim sktildar banka sínum og upp-
hæðir, sem bankinn hefir útvegart bænum
til skamms tíma. F'astar skuldir eru
upphæðir, sem bærinn hefir lánað gegn
borgunarskuldbinding á 7 til 30 árum frá
því láu var teki<\ Þessar borgunarskuld-
bindingar eru nefnd handhafa-skulda-
bréf (bonds) og bera 4 prósent árlega
vöxtu að löguin. Þegar einhverjar um-
bætur eru gjörðar í bænum, eru þessar
skuldbindingar eða handhafa-skuldabréf
gefin út og seld í Lundúnum og þegar
hærri vextir eru borgaðir af peningum en
4 prósent, verður að slá af hverjum dollar
því ekki er hægt að hækka vöxtu af
skuldabréfunum sjálfum. Tilboð kom
fram síðastliðíð sumar um 94 cent fyrir
hvern dollar, sem orðið hefði 92 cent
fyrir hvern dollar að viðbættum sölukostn-
aði. Þar sem nú peningar hafa síðan
stöðugt hækkað ‘í verði, mega 92 cent
fyrir hvern dollar heita fremur ódýrir pen-
ingar, því það jafngildir litlu minna en
4j4 prósent vöxtum ár hvert.
Þegar tilbofl þetta kom fram frá Anglo-
Canadian Enginéering félaginu um að
koma upp rafmagnsstöð fyrir hálfa þriðju
miljón, sáum vér fram á peningaþörf,
ekki að eins í sambandi við stöðina, held-
ur einnig til afborgunar skuld vorri við
bankann. Báðum vér því félag þetta að
gjöra tilboð í skuldabréf vor. Bauðst það
þá til að kaupa skuldabréf fyrir 5 miljónir
og gefa 92 cent fyrir hvern dollar, og
mvndi það nokkurn veginn samsvara \l/2
prósent vöxtum, er bærinn vrði að borga,
en aðrir bæir hér á Vesturlandi voru að