Breiðablik - 01.03.1911, Page 5

Breiðablik - 01.03.1911, Page 5
BREIÐABLIK 149 g'arðyrkjuáhöld sín og skógeröar-tól. Til hvorstveggja varði hann miklum tíma. Þjónar voru fáir kring um búgarö hans. Gestkvæmt var þar all-mjög og margur ferðalangur rak sig á, aö gamli maðurinn gráhærði, er hann hafði afhent hestinn sinn, hafði enginn annar verið en hús- bóndinn. Líkamlegt erfiði áleit hann boð- ið í ritningunni. Dálítilli stund að minsta kostí varði hann á hverjum degi til að vrkja akur sinn eða nágrannanna, í sam- vinnu við þá, sem hann efldi á allar lund- ir, eða hann var að bjástra að gyrðingum, gera að vegum og fella tré. Margur gestur revndi að komast eftir, hvernig þetta gengi og spurði frú Tolstoi. ,,Það er ef til vill ekkert að því fyrir hann að vera bóndi”, svaraði hún þá. ,,En fyrir hvern heilan dag, sem hann plægir, liggur hann heila viku í rúmi. Hann væri dáinn fyrir löngu, ef eg hefði ekki reynt að koma í veg fyrir, að hann misbyði heilsu sinni.” — Sagt er frá amerískum ferðamanni, er lét bónda aka sér að sum- arlagi til Jasnaya Poliana. Hann spurði bóndann um skáldið og bóndi sagði alt, sem hann vissi með mikilli lotningu og fjálgleik. Þegar hann var búinn og kunni eigi frá fleira að segja, varp hann öndu og stildraði fram: ,,Já, það er víst um það, hann veit, hvað er í hjörtum okkar allra. ” Síðustu ár hafa verið hörmungar ár í stjórnarfarssögu RússlandS. Eigi hefir á öðru gengið en fjárnámi, skattakröfum, útlegðardómum og alls konar ofsóknum og ofbeldi. Hvað eftir annað sagði Tolstoi stjórninni til synda og er hann þá engum líkari en spámönnum gamla testamentis- ins, því hann lagði ekki fingur milli, en gerði það með öllum þeim ástríðu-ákafa og geðríki, er hann átti til. Hann var eini maðurinn á Rússlandi, sem þorði til fulls að segja meiningu sína. Enda hefði engum haldist uppi nema honum, vegna frægðar hans. Hann var ljósið mikla, sem lýsti upp svartnættið rússneska í augum heimsins. Það vissi keisarinn og ráðgjafar hans. í júlímánuði 1909 reit hann greinarkorn eitt í blaðið Times á Englandi, þriggja dálka langt, sem hann nefnir: Stjórn morð- varganna. Hann lýsir þar fyrst með mik- illi nákvæmni, hvernig menti sé teknir af lífi hrönnum saman á Rússlandi og segir svo: ,,Alt þetta er vandlega fyrirhugað og framkvæmt af lærðum og upplýstum höfðingjum landsins. Þeir haga því svo, að þetta sé gert í dögun, heimullega, á sem fæstra vitund, skifta svo ábyrgðinni fyrir þetta ranglæti með þeim, sem valdir eru að, svo hver þeirra geti smeygt ábyrgð af sér. En eigi þetta að eins, heldur pynd- ingar og ofbeldisverk, sem framin eru í fangelsum, vígjum og glæpamanna stofr,- unum, eigi vegna þess menn sé til þess knúðir af augnabliks ástríðum og æsingi, er stingi svefnþorn allri skynsemi, eins og fyrir kemur í áflogum og hertvaði, held- ur einmitt reknir til þess af skynsemi á- stæðum og alls konar útreikningi, til að svæfa tilfinningar. Þetta er svo skelfi- legt vegna mannvonzkunnar, sem það elur í öllum stéttum rússneskrar þjóðar.” Kjarkurinn var óbilandi að segja það, sem honum fanst. Margt verður á annan veg á Rússlandi, er margir hafa eignast kjark- inn hans. Tolstoi vex mest í augum hamslaus á girndarofsi á Rússlandi, sem stöðugt komi til leiðar aftöku dæmdra fanga, til þess með því móti að sösla undir sig eign- ir þeirra. ,,Hræðileg eru þau morðverk sjálf,” segir hann, ,,en enn þá skelfilegri er siðferðisspillingin, sem berst eins og pestkveikja út í þjóðlífið ’. Stjórnin heldur því fram, að ekkert annað sé unt til bragðs að taka, til að halda uppreistarmönnum í skefjum. Tol- stoi skoðar hryðjuverk þeirra vitfirring eina og óvit á efsta stigi, en sýnir fram á, að stjórnin sjálf geri sig seka í sömu hryðjuverkum í sama rándýrs-tilgangi. „Allar sprengingar uppreistarmanna og

x

Breiðablik

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Breiðablik
https://timarit.is/publication/168

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.