Breiðablik - 01.11.1913, Blaðsíða 9

Breiðablik - 01.11.1913, Blaðsíða 9
BREIÐABLIK 89 ,,guS var í Kristi“, svo al-vióurkend sem hún er af öllum, frá Lúter og Me- lanchton til Schleiermacher og frá Schleiermacher til Harnacks, Her- manns og R.Seebergs. Og þó hann hefSi ekki nema nasasjón af helztu upp- byggilegum ritum evangeliskra kenni- manna frá Lúter til vorra tíma, þá hefSi hann getaS vitaS, aS þar var um algenga trúarlega hugmynd að ræða, jafn-vel eina af uppáhalds-hugmynd- um allra góóra guSsorSabóka, svo margfalt aSgengilegri sem sú hugsun er trúartilfinningu alls almennings, en hinar flóknu forngrísku útlistanir Kal- cedon-játningarinnar á eSli guSmanns- ins. Hann mundi þá hafa vitaS, aS það er ekkert annaS en fífldirfska fá- fræSinnar sem mótmælir annari eins hugmynd og þessari ,,guS var í Kristi“, eSa dirfist aS segja á prenti aS meS henni sé ,, nauSsynlega “ hafnaS guS- legu eSli og uppruna frelsarans. Hve fítonsandi forsetans gegn nýju guSfræSinni er bersýnilega meSfram sprottinn af þekkingarleysi á gömlu guSfræSinni, sést ekki síSur á því hversu orSin : „Jesús var hér í heimi þaS sem vér vonum aS verSa annars heims“ hafa hneykslaS hann. Þessa setningu er aS finna hér um bil orS- rétta hjá höfuSleiðtoga gömlu stefn- unnar hér í álfu á vorum dögum, hjá prófessor Seeberg, í riti hans ,,Die Grundwahrheiten der christlichen Re- ligion“ (Leipzig 1910); „Þessi maSur [o: Jesús] var í þessum heimi þaS sem vér vonum að verSa í öSrum heimi : meSal guSs og verkfæri guSs óskoraS, undursamlegt og ótakmarkaS“. Mér er þaS engin launung, aS einmitt þessi ummæli Seebergs vöktu fyrir mér, er eg ritaSi þau ummæli mín, sem forset- inn hefir hneykslast á og eiga eftir skoSun hans aS bera þaS greinilega meS sér, aS „Jesús sé ekki guS“ eftir minni skoSun. En þeir verSa fleiri meS mér í fordæmingu forsetans en Seeberg prófessor. í „kristilegri siS- fræSi“ sinni hefir föSur mínum sál. „orSiS þaS á“ að komast svo aS orSi um Jesúm (á bls. 162): „Hann er þaS af náttúrunni, sem ve> eigum ab veröa fyrir náSina“. HingaS til hafa menn sízt vænt hann ný-guðfræSilegra villu- kenninga, er „nauSsynlega11 leiddu til höfnunar á guSlegu eSli og uppruna frelsarans. En nú hefir hann einnig fengiS sinn dóm, og þaS hjá sjálfum forseta kirkjufélagsins vestur-íslenzka. F ramh. Jón Helgason. SKÁLDSÖGUR EINARS HJÖRLEIFSSONAR. T~**LESTIR íslendingar munu við það * kannast, að skáldsögur Einars Hjör- eifssonar bera langt af öllu því, sem bók- mentir vorar hafa til brunns að bera á því sviði. Þeir sem kunnugir eru bókment- um heimsins, munu líka lúka upp einum munni um, að þær eru í ætt við það allra bezta, sem samtímis er að birtast í bók- mentum stórþjóðanna. En þá fyrst getum vér borið höfuðið hátt, þegar vér sann- færumst um, að íslenzk skáld og rithöf- undar standa þeim nokkurn veginn jafn- fætis, sem fremstir eru taldir með hinum stærri þjóðum. Einkum hlýtur það að vekja fögnuð í brjósti, er vér sjáum, að hin andlegu viðfangsefni þeirra eru hin sömu, og líkar hugsanir að brjótast um í sálum þeirra og samtímismanna vorra, í hópi skáldanna. Því þá skilst oss að þjóð vor, þó afskekt sé, er samferða í

x

Breiðablik

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Breiðablik
https://timarit.is/publication/168

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.