Dagsbrún - 23.10.1915, Side 2
62
DAGSBRÚN
Verkamenn!
Biðjið kaupmann yðar um Sanitas alkunnu sætsaft.
Ýmsir nothæfir húsmunir
eru teknir daglega til útsölu á
Laugaveg 22 (steinhúsinu).
haldið skeljunum saman; en þegar skelj-
arnar opnast úthverfir krossfiskurinn
maganum og lætur hann siga niður í
kræklinginn, sem hann á þennan hátt
étur.
Þjóðir í ófriðarríkjunum.
í engu þeirra búa minna en
tvær þjóöir. Á Bretlandseyjum eru
nú til dæmis í Wales á aðra
milljón manna, sem mæla á Kym-
risku (sem er keltneskt mál) og
kann ekki ensku. Eins er eitthvað
eftir í írlandi af fólki sem ekki
kann annað en írsku, og í Skot-
landi sem að eins kann Gælisku
(Háskotsku) þó flestir írar og Skot-
ar séu nú búnir að glata þessum
móðurmálum sínum, og taka upp
Enskuna, sem nýtt móðurmál.
Kymriskan, írskan og Gæliskan
ásamt Bretroskunni, sem töluð er
í Bretagne í Frakkiandi, er alt og
sumt, sem eftir er af hinum mikla
keltneska málstofni, sem fyrir lið-
ugt tveimur þúsund árum náði
yfir mikin hluta Vestur-Evrópu.
Keltar voru herskáir, og fóru víða
yfir og stofnuðu ríki. — Lengst
austur á bóginn komust þeir til
Litlu-Asíu; þar stofnuðu þeir ríki,
sem lengi var sjálfstætt, en seinna
komst undir Rómverja. Þeir.héldu
þó tungu sinni um margar aldir.
Þeirra er getið í Nýjatestamentinu,
(Galatíumenn sem Páll postuli skrif-
aði pistilinn til).
Auk Bretonskunnar er í Frakk-
landi af framandi tungum töluð
ítalska í þeim héruðum, sem næst
liggja Ítalíu (og ættu þau því að
tilheyra henni) og Kataionska í
fylkinu Roussilion við landamæri
Spánar. (Katalonska er rómönsk
tunga og er töluð aðallega í fylkj-
unum Katalonia og Valencia á
Spáni, og á Balerisku eyjunum).
Auk málanna sem nefnd voru, er
töluð Provenkalska í öllu Suður-
Frakklandi og telja margir mál-
fræðingar hana ekki mállýsku
(dialekt), heldur sjálfstæða tungu.
Skáldið Fr. Mistral, sem hlaut
Nobelsverðlaunin fyrir skáldskap
hér um árið, ritaði jafnan á
Provenkölsku. (Frh.)
Ljótur siður.
í fyrra kom sú fregn í dönsk-
um blöðum, að íslenzk stúlka
hefði alið barn á farþegjaskipi,
sem var á leið frá íslandi til
Danmerkur. Og það fylgdi sög-
unni, að barnið væri „föðurlaust",
því að stúlkan hefði verið á leið-
inni í „fæðingarstofnun" erlendis.
Þetta mál vakti dálitla alhygli
um stund, af því að þá komst í
hámæli að þessar Bkvennasend-
ingar" væru töluvert algengar írá
íslandi. En ekki iia(a blöðin okkar
minst mikið á þetta, og munu
liggja til þess eðlilegar orsakir.
Blöðin hér á landi eru háð þeim
tveim stéttum, sem helst er
ástæða til að halda að tíðki
þennan íitflutning.
Sjálfsagt verður sumum góðum
mönnum að spyrja: Hversvegna
senda stúlkurnar burtu af landinu?
> Einhvern föður munu þó slík börn
eiga? Og hvað veldur því að feð-
urnir skilja þannig við afkvæmin?
Þessu mun vera hægt að svara
nokkurnveginn þó í stuttu máli
sé. Kvennasendingar þessar eru
erlendur siður, sem einstöku valds-
og efnamenn hér á landi eru að
apa eftir.
Sagan er altaf hin sama: Laus-
látur „heldri maður" ginnir um-
komulitla stúlku, og hún verður
þunguð af hans völdum. En hann
hefir ekki óskað eftir erflngja. Ef
til vill er faðirinn giftur stúlku af
háum stigum, og „frúin" má ekki
komast að því sem gerst hefir.
Eða ef maðurinn er ógiftur, þá
ætli hann að giftast vel, fá
„heldri manns" dóttir, og heiman-
mund. Og þá er betra að hafa
ekki umkomulausa stúlku og barn
hennar í eftirdragi. Hvort sem er
heldur, er faðirinn of fínn, of
háttsettur til að geta gengist við
barninu sínu. Vegna hans verður
að senda móður og barn í fjar-
lægð, ef til vill yfir um _landa-
merkin, þangað sem enginn snýr
aftur.
Þetta er nú sá siður sem
„heldri menn" Islands, sumir
hverir eru að gera hér landlægan.
Og þeir gera það með svo mikl-
um dugnaði að það vekur sér-
staka eftirtekt, jafnvel í útlöndum.
Dæmi af þessu tagi virðast vera
nokkuð algeng upp á síðkastið,
einkum í Reykjavík. Venjulega
verður „faðirinn" þess var, á
hverju hann á von, áður en kjafta-
kindurnar eru komnar á snoðir
um barnsvonina. Hann sér að góð
ráð eru dýr. Og fremur en að verða
höfuðpersóna í opinberu hneikslis-
máli kýs hann að bera verulegt
fjártjón. Hann blekkir stúlkuna í
annað sinn, sýnir henni fram á,
að ef almenningur viti, að hún
hefir alið barn í lausa leik, þá
muni hún ekki giftast, eða bara
fá aumingja fyrir mann. Það sé
mest í hennar þágu að losna við
barnið í kyrþey. Og blessuðum
barnaunganum muni sízt verra að
vera alið upp suður í .Danmörku
heldur en hér út á íslandi. Stúlkan
er umkomulaus, oft aðkomin í
bæinn og þekkir engan, sem hún
þorir að snúa sér til. Og svo
finnur hún að vegna fína, kjól-
klædda mannsins, sem biður hana
svo vel, verður hún að þegja.
Hann hefir líka svo oft sagt
henni, að hann eJskaði hana;
hann bara gæti ekki gifst henni
strax. En ef til vill síðar. Hann
er þó altaf svo yndislegur, og svo
hátt sefctur, og svo fínn. Og svo
ætlar hann að fá henni mikla
peninga til að sigJa til annara
landa. Og hún fer út yflr pollinn.
Hún elur barnið. Faðirinn borgar
fóstúr þess í einu, fyrirfram. Það
er mikil upphæð, en „heiður"
heiðursmannsins er dýr. Hann
verður ætíð að sitja í fyrirrúmi.
Enginn veit hve margar íslenzk-
ar stúlkur hafa farið suður yfir
pollinnn á kostnað háttsettra vina,
en hitt er á almanna vitorði að
þær eru margar. Sumum þeirra
skolar aftur heim og orðrómurinn
um sigJinguna fylgir þeim eins og
skuggi. Á þeim lendir öll sorgin
og minkunnin. En hitt fer lægra
hver valdur er að ógæfunni. Sjálf-
sagt er reynt að láta börnunum
Jíða vel. En sögur ganga um það
að í sumum stórborgum verði
þau börn skammlíf í fóstrinu, þar
sem goldið hefir verið í einu fyrir
alt uppeldið. Og þó barnið deyi
slær „föðurhjartað" engu örara.
Heiðrinum er eilíflega borgið.
Almúgamaöur.
Hásetafélag
er verið að stofna hér í Rvík.
Einn undirbúningsfundur hefir
verið haldinn og var þar kosin
nefnd til þess að gera uppkast að
lögum. Næsti fundur veiður hald-
inn Laugardaginn 23. þ. m. kl.
81/* e. h., í Bárubúð. Allir há-
setar beðnir mæta.
Svohljóðandi bréf hefir ritstjóranum
borist:
Gróusaga.
Herra ritstjóri!
í 15. tbl. Dagsbrúnar, 16. okt.
er sagt frá því, að sú saga gangi
um bæinn, að hjá einhverju
„Sláturfélagi“ sé blóðinu helt
niður þegar slátrið gangi ekki út.
Ef hér er átt við „Sláturfélag
Suðurlands" (sem óvíst er) þá
hefir við sláturhús þess hér 1
Reykjavík engu Uóði verið helt
niður í haust, og þessi Gróusaga
blaðsins því tilhæfulaus ósannindi.
— Dagsbrún, og sum önnur blöð,
hafa einnig mikið gert úr þeirri
litlu verðhækkun sem orðið hefir
á slátri í haust, og jafnvel gefið í
skyn að slátrið gangi ekki út
(sbr. siðustu Dagsbr.), því finst
mér rétt að geta þess að við
sláturhús SJáturfélags Suðurlands
hefir verið miklu meiri eftirspurn
að slátri, en hægt hefiir verið að
sinna, og fellur því um sjálfa sig
frásaga blaðsins um „blóðsúthell-
ingarnar" og að slátrið gangi
ekki út.
Betra að vita betur, gamla
Gróu-tetur!
Rvlk 20. okt. 1916.
Ouðm. Þorláksson.
Blaðinu þykir vænt um að
heyra því lýst yfir, að sagan um
„blóðsúthellingarnar* sé ósönn, því
líklegast ber að skilja svo orð hr.
G. Þ. »engu blóði verið holt niður
í haust", að alls engu blóði hafi
í þessari sláturtíð verið helt niður
hjá Sláturfélaginu. Hr. G. Þ.
hefði, í stað þess að vera svona
mein-fyndinn í bréfi sínu, heldur
átt að lýsa því yfir þar, að það
væri ósatt að Sláturfélagið borg-
aði kvenfólkinu, sem vinnur hjá
því, ekki nema 18 aura um tím-
ann. — Dagsbrún býður með
óþreyju eftir því að fá annað við-
líka fyndið bréf og þetta, frá hr.
G. Þ., þar sem svarað sé því er
„Spurull" spyr að í 14. tbl., um
kaupgjald það er Sláturfélagið
borgi verkakonum.
Ofan af og undan,
úr stríðinu.
Fremur varð lítið úr fréttunum,
sem komu um daginn, af því að
Frakkar og Englendingar hefðu
rofið fylkingar Þjóðverja. Þó virð-
ist svo sem Bandamenn hafl haft
töluverðan framgang á vestri víg-
vellinum, þó óvíst sé að það hafi
nokkra' hernaðarlega þýðingu.
Nánari fréttir eru ókomnar. Af
símskeyti, til dagblaða í Rvík,
má ráða, að Frakkar hafi haft
framgang í Elsass; það hermir
s. s. að þeir séu farnir að skjóta
á hina víggirtu borg Þjóðverja
Metz.
Annars virðist svo sem aðal
blóðvöllurinn sé að færast austur
á bóginn — austur á Balkan.
Búlgarar hafa sagt Serbum stríð á
hendur, en Rússar, Frakkar og
Englendingar hafa sagt sundur
friði við Búlgara.
Þjóðverjar og Austurríkismenn
hafa sent hálfrar milJjónar her
móti Serbum, sem nú eiga í vök
að verjast.
Frakkar og Englendingar hafa
sett lið á land í Saloniki, (en þá
borg eiga Grikkir) og senda það
móti Búlgörum til liðs við Serba.
Ekki hefir heyrst neitt um að
Grikkir hafi gert neitt til þess að
varna Bándamönnum landgöngu í
Saloniki, en fréttst hefir, að þeir.
neiti Serbum liðsveizlu. Er um
kent Konstantin konungi, sem er
mágur Þýzkalandskeisara. Rúm-
enar sitja og hjá, án þess að
hefjast handa.
Vegna anna ritstjórans er
þetta blað aðeins hálft.
ftaupendnr blaösins, sem
ekki fá blaðið skilvíslega eru beðnir
að láta ritstjórann vita.
Ritstjórann er fyrst um sinn
að hitta í Snðurgðtn 14. Sími 401.
Prentsmíðjan Gutenberg.