Dagsbrún - 15.12.1915, Qupperneq 1

Dagsbrún - 15.12.1915, Qupperneq 1
D AG S B R Ú BLAÐ JAFNAÐARMANNA ÞOLIÐ BKKI RANOINDI ÚTGEFANDI: NOKKUR IÐNAÐAR- OG VERKMANNAFÉLÖG RITSTJÓRI OG ÁRYRGÐARMAÐUR: ÓLAFUR FRIÐRIKSSON 24. tbl. Reykjavik, Miðvikudaginn 15. Desember. 1915. Sólin, jólin og okur auðvaldsins. Margir landar, sem sá, er þetta skrifar hettr átt tal við, heflr þótt ótrulegt að auðvaldið erlendis °kraði á sól-<kininu, en svona er Það nú samt. í stórhýsum með snaá-íbúðum (einskonar Bjarna- borgir . í stórum stíl) eru þær í- búðirnar sem snúa móti sól, seldar 10—20% dýrari en hinar, sem snúa undan sól. Með öðrum orðum, beir fátæku verða að kaupa sól- skinið, sem skín inn um gluggann bjá þeim. t>etta var nú erlendis, en ekki það betra hór hjá okkur, því bér notar auðvaldið sjálf jólin til °kurs og kúgunar. Margir hásetar, Sem 12 aura útgerðin hefir, með Því ag binda þá með löglegum sarnningi, getað haft 3 — 7 hundruð brónur af (af ]>eirra parti hálf- órsettisins) eru um þessar mundir larnir að verða peningaiitlir, og verða fyrir jólin orðnir peninga- laúsir. fetta veit útgerðarmaður- lnn, og lika það, að háeetinn þarf fá peninga til láns fyrir jólin, nú eins og í fyrra, og hugsar því §°tt til glóðarinnar að riota jólin bil þess að kúga með þeim há- Setann til þess að skrifa undir ráðningarsamning svo óhagstæð- atln, að hásetinn verður að gjalda ðO—ioo kr. lán með mörg hundruð króhum. En slíkt okur 'má ekki líðast 7 lengur. Þú háseti, sem átt konu °8 börn, og ert peningalaus orð- lnn fyrir jólin, það er hart að hafa 0bkert til þess að gefa þeim á bátíðinni nema daglegt brauð og biolakaffi, en einmitt konunnar og barnanna vegna máttu ekki ráða k'S upp á sömu ókjörin og i fyrra. Öefirðu reiknað út hve mikið ^beira þú hefðir fengið, ef þú hefðir att hálfdrætti þitt frjálst, og ekki Veriðj neyddur til þess að selja b&ð útgerðarmanninum ? Ef þú ert óvanur útreikningi, þá komdu ^ð viðskiftareikning þinn til rit- stióra þessa blaðs, og hann reiknar bá snöggvast fyrir þig (auðvit.að bkeypis) hvað mikið þú hefðir aít meira upp úr krafsinu, hefð- lrðu fengið gangverð fyrir hálf- ar*ttið þitt. ^ kemst ekki af án þess fá lán, og getur hvergi fengið að nema hjá útgerðarmanninum, á taktu það samt ekki hjá hon- Um- Parðu heldur til borgarstjóra °8 fáðu hjá bænum 50 eða 100 kr. ráðabyrgðalán, sem þú svo borgar aftur í vor. Þú missir engin rétt- 'utli, þó þú takir slíkt lán, og hitt er tífalt meiri skömm fyrir þig sem frjálsborinn íslending, að láta kúga þig til þess að gera þannig lagaðan samning við útgerðar- mann, að þú verðir að borga 4—500 kr. eða kanske meira fyrir 100 krónu lán. Það verður nóg atvinna, þó þú ráðir þig ekki strax; flýttu þér bara að ganga í Hásetafólagið, svo þú verðir ekki álitinn félagsskítur, og láttu ekki auðvaldið komast upp með það, að nota sjálf jólin sem vopn á þig, til þess að geta okrað á þór, og seldu þig ekki fjandanum og út.gerðarmanninum i ár eins og í fyrra; þú varst neyddur til þess þá, en nú, úr því Hasetafélagið er stofnað og oiðið svona öflugt, þarft þú ekki að gera það. Frá hásetum. Einn skipstjóri sagði að það hefðu verið „menn sem ekki hefðu dugað á trolJurum" sem hefðu samið aukalög (=kaup- taxta) Hásetafélagsins. Sjálfsagt ber að skilja orð skipstjórans þannig, að honum finnist kaup- taxtinn svo lágur, að honum þyki það sem Hasetaf. fer fram á i ekki sæmileg borgun fyrir aðia en liðléttinga. 6 Rkpd. soin urðn 2 skpd. Þorsteinn Guðmundsson yfir- fiskimatsmaður biður þess getið, að það sé honum algerlega óvið- komandi hvað undiifiskimatsmenn gera þegar þeir eru í vinnu hjá útgerðarmönnum, eða öðrum og að þetta mál því sé honum al- gerlega óviðkomandi. Er þetta sett hér eingöngu eftir ósk hans, en mun algerlega óþarfi, því eftir því sem „Dagsbrún" hefir frétt um hann, hefir víst engum dottið í hug að hann væri við annað eins mál og þetta riðinn. Endurskoðendakosningin fór þannig að A-listinn fékk 91 atkvæði og B-listinn 104 atkvæði. Kom því sinn listinn hvorum manninum að. Kosnir voru því Pótur Lárusson prentari og Þor- steinn Þorsteinsson hagstofustjóri. Hefir þessi kosning sýnt að al- þýðan getur komið að mönnum ef hún vill, og mun kosning þessi verða til þess að ýta stórum undir þátttöku alþýðunnar við bæjarstjórnarkosningarnar sem verða í Janúarmánuði. Úr eigin herbúðum. Atkvæðagreiðsla í Hásetafélag- inu. Á fundi félagsins 12. þ. mán. var samþykt svohljóðandi tillaga: Enginn felagsmaður má sigla út til sjós á togara, (gerðum út héðan) ef utanfélagsháseti er á skipinu. Þar eð þetta er viðbætir við aukalög félagsins þarf að fara fram um hana skrifleg atkvæða- greiðsla, þar ekki voru nógu margir félagsmenn á fundi. At- kvæðagreiðslan fer fram hjá Sjálf- boðaliðinu á skrifstofu „Dagsbrún- ar“ í Gamla Bio. Eru félagsmenn beðnir að fjölmenna á skiifstof- una næstu daga og greiða atkvæði, já eða nei, með eða mót tillög- unni. Ennfremur eru menn beðnir að svara spurningunum: Hvenær ertu fæddur? Ertu giftur? Er konan þín fertug í byrjun Ágúst- mán. næstkomandi? Þessum spurningum eru menn beðnir að svara til þess að félagið geti gengið eftir því að allir meðlimir þess, og konur þeirra, sem hafa kosningarrétt, verði tilfærðir á kjörskrá. A Imenni verkamanniifunduriim sem auglýstur var í síðasta blaði, var haldinn eins og til stóð á Sunnudaginn var, í Bárubúð. Fundur þessi fór mjög vel fram, og var áhugi fundarmanna sýni- legur á því, að fundarmenn — sem munu hafa verið yfir fimm hundruð — sátu kyrrir allan fundartímann út. Útdráttur úr fundargerð, verður ef til vill byrt síðar. Það þarf fleiri svona fundi! Ölvesá. Prentvilla varð í kvæði Hún- fjörðs í síðasta blaði, í 2. v. stóð holar í stað heillar. 2. v. átti því að vera svona: Metinn ei að maklegleikum máttur gulls á klöpp og sandi ónotaður enn af veikum öreigum í feðralandi, kosta-auðugt hafdjúps hjarta heillar strauminn silfurbjarta. Bifreiðarnar. Hvað veldur að bifreiðarstjórar hér í bæ ekki mynda félagsskap til þess að bæta kjör sín eins og aðrir verkamenn? Bifreiðarstjóri. Bókband, óíiýrt en vandað fæst hjá Guðmundi Höskuldssyni. Frakkastíg 24. Fidla, guitar, gramófón, gramófónsplötur, horn, úrval af nótum fyrir Piano og Harmoníum, alt sönglagaverk Jónasar Helga- sonar og fl. til sölu á Langaveg 22 (steinh.). Á sama stað fæst Piano til leigu nú strax. Himinn og jörð. Seint 4 ferð eru sandlóurnar í ár. Þær eru van- ar að fara í Septeraber, en nú undan- farna daga (í miðjnm Désember) er krökt af þeim meðfram allri strand- lengjunni meðfram höfninni hér í Rvík. Auðsjáanlega er mest af þessum fugl- um (og kannske alt) ungar. Sandlóan verpir einkum með sjó fram, en þó nokkuð uppi á heiðum við vötn og tjarnir. Sjálfsagt hefir sandlóan verpt tvisvar á þessu góða ári, eins og marg- ir aðrir fuglar, og munu þetta vera seinni börnin hennar. í sandlóuhópnum sem eru hérna núna, er töluverður slseðingur af sendlingum, sem halda algerlega hóp með lóunum. Sendling- arnir eru alt árið hér við land; á vetr- in við sjó, en á sumrin við vötn uppi á há-heiðum Hvað skyldi verða um þessa sendl- inga, sem fyr voru nefndir, þegar ló- urnar fara? Líklegast skilja þeir ekki við þær, en lenda með þeim á eitt- hvert flakk suður í lönd. Tveir sbipgtjórar! 1 og l eru 2. Jú, það voru ekki nema tveir! valihkunnir(!!) skipstjórar, sem töluðu á móti hinum sanngjörnu og sjálfsögðu launakröfum Hásetafélagsins á fundi í „Öldunni" nýskeð. Allir hásetar vita hverjir það eru, en má ég spyrja, fá þessir — ja, bíddu við, hvað voru þeir margir, skulum sjá; 1 og 1 eru-2. Ja, það er rétt þeir voru — tveir — fá þessir skipstjórar nokkurn mann um borð í sm skip? Ekki skil ég það. Heyrt hefl ég að meðlimir Hásetafélags- ins hafi allir rétt upp hendina þegar þeir voru spurðir að hvort þeir væru ekki með því, að ráðast ekki hjá þessum tveimur valin- kunnufl!) skipstjórum, sízt hjá þeim brosleita — 1 og 1 eru 2, og ekki voru þeir nema tveir. Jónas tvísöngur. Yílhjálmur Vigfússon biður þess get- ið að hann sé ekki höf. greinarinnar um togaraskipstjórana, þó honum finn- ist hún að ýmsu leiti góð.

x

Dagsbrún

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagsbrún
https://timarit.is/publication/173

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.