Dagsbrún - 22.01.1916, Page 4
10
DAGSBRÚN
enginn geta sagt fyrirfram, hve
mörg kílógrömm góður mokari
ætti að taka á rekuna í bvert
sinn, til þess að afkasta sem
mestu, hvort þau ættu að vera
5, 10, 15, 20 eða hvað. Slíku
verður ekki svarað nema með til-
raunum. Taylor hagaði þeim svo:
Hann valdi eina tvo beztu mok-
arana úr, og borgaði þeim há
laun til að leggja sig vel fram
víð tilraunirnar. Voru þeir nú
látnir moka, þunganum á rek-
unni smámsaman breytt, og allar
aðstæður við starfið athugaðar
nákvæmlega af vönum mönnum
vikurn saman. Varð sú reyndin
á, að góður mokari afkastaði
mestu dagsverki með því að hafa
9,5 kg. á rekunni. Voru því
hafðar 10 tegundir af rekum til
skifta, eftir því hvaða efni var
mokað, svo að þunginn yrði æ
hinn sami. Þá voru og gerðar
tilraunir um það, hve lengi mok-
arinn væri að fylla hverja rek-
una, eftir því hvort hann stakk
henni inn í haug eða mokaði af
sléttu, eftir því hvernig undir
henni var o. s. frv. Þá var at-
hugað hve lengi væri verið að
kasta af rekunni i tiltekna fjar-
lægð og hæð. Þegar öllum þess-
um ránnsóknum var lokið og
búið að ákveða hvíldina eftir
vinnuþolinu, voru mokararnir
látnir fylgja settum reglum, og
niðurstaðan varð þessi eftir þrjú
ár (við Betlehem stálverksmiðj-
una, þar sem tilraunirnar voru
gerðar):
Það sem 500 menn að meðal-
tali, mokuðu með garnla laginu
mokuðu 140 með því nvja. Áður
mokaði hver maður að meðal-
tali 16 smálestir á dag, nú 59.
Meðal-dagkaup manns var áður
1.15 doll., nú 1.88. Moksturs-
kostnaður við hverja smálest var
áður 0.072 doll., nú 0.033, og í
þessum lága kostnaði við mokst-
urinn á hverri smálest var þó
falínn allur aukakostnaður við
verkfæri, umsjón, tilraunir o. s.
frv., sem þetta nýja fyrirkomu-
lag hafði í för með sér. Og um
leið blómgaðist hagur verka-
mannanna í öllum efnum, langt
fram yfir það sem áður var«.
Himinn og jörð.
Frjósamar ær.
Mjög er algengt að ær séu tví-
lembdar hér á landi, einkum við
sjó, en sjaldan er það, að þær eiga
fleiri lömb í einu en tvö. í Kína er
sauðfjártegund sem nefnd er Ongti-
sauðféð, og er þáð mjög frjósamt.
Ongti-ærnar eiga lömb tvisvar á
ári, og 3 til 5 í hvert skifti.
Þorsknrinn
fæst svo sem kunnugt er kring
um alt tsland, en eigi brygnir hann
nema við suður og vestur landið,
og altaf á minna en 70 faðma dýpi.
Við Faxaflóa og við Vestmanneyjar
hefst hrj'gningartími hans í miðjum
Marz, og varir nálega tvo mánuði.
Nyrst hrygnir þorskurinn hér við
ísafjarðardjúp, en þar byrjar hrygn-
ingartíminn ekki fyr en í miðjum
Apríl. Þorskurinn hrygnir i fyrsta
sinn þegar hann er 4 til 5 ára gam-
all, og urn það bil alin á lengd.
Nýja tímaritið
Réttur
faest í Bókabúöinni
Laugaveg 22.
Til
formann3 verkakvennafelagsins Framsókn.
Við hefðjum allar höfuð vor,
sem hæðst að marki settu
og viljum feta farsæl spor
með fótataki léttu.
Og þú sem gengur undan oss
með öra lund og djarfa
við teljum þig í hópnum hnoss
til heilla, liðs og þarfa.
Þú veist að þörfin einmitt er
vorn eigin hlut að rétta,
já, hjattans mál er þetta þér
og það er markið setta
er konur loksins frelsið fá
skal frelsi í öllum greinum
með fullan rétt þeim ríkja hjá
en reyrt ei böndum neinum.
Og frægð er oss að íylgja þér
nú fast við hlið, og standa
við sérhvert verk sem arðsamt er
oss unnið hér til handa.
Við fmnum að þú fullvel sér
hvað færsælt reynast megi
og sér það ljós sem byrtu ber
af betri og fegri degi.
Og heill sé þeim sem hafa dáð
að hefja sigurmérki,
og heill sé þeim sem hafa ráð
°g hýggni í orði og verki.
Og heill sé þér sem hrós það átt
og hiklaust fram vilt ganga,
til vegs þig drottinn hefji hátt
og heilla, æfi langa.
Jóhanna Bjarnadóttir.
Meðlimir í verkamannafélögum
1912.
í Englandi 3,813,973
- Frakklandi 1,012,938
- Belgiu 231,805
- Danmörku 139,012
- Sviþjóð 121,866
- Noregi 60,975
- Finnlandi 23,839
- Þýzkalandi 3,317,271
- Austurríki 534,811
- Ungverjaland 111,966
- Serbíu 5,000
- Rúmeníu 9,708
- Sviss 86,313
- Ítalíu 860,502
- Bandarikjunum 2,496,000
Árið 1911 voru 8,337 í fé-
lögunum í Serbíu, en árið eft-
ir ekki nema 5 þús. Olli því
Balkanstríðið.
Kveðjur.
H. Erkes Köln.
Ritstjórinn þakkar kveðjurnar og
blöðin. Þau tbl. sem yður vantar
skulu verða send.
Gamlar og nýjar sögn- óg
fræðibækur,
innlendar og erlendar, fást með 10°/o—75°/o afslættí í
jjikabúðinni á íangaveg 22.
Þeir sem þurfa að spara vegna dýrtíðarinnar, græða á því
að verzla við Bókabúðina.
Stelnolíal
Þeir sem í haust gátu ekki byrgt sig upp af steinolíu
nema um stuttan tima, geta nú nálægt miðjum Janúar fengið
aftur hina ágætu
amerísku steinolíu,
sem verður seld mjög ódýrt i stærri stil bjá
]ih. 0gm. Oððssyni,
Langaveg 63.
Fataefni,
saum og til fata hvergi ódýrara.
Blá fataefni nýkomin. — 10—20. kr. sparn-
aður á hverjum klæðnaði hjá
Gruðm. Sigurðssyni,
Laugaveg 10.
Bækur um jafnaðarstefnuna.
Mjög tilfinnanlegt er hve
bækur um jafnaðarstefnuna
vanta hér á landi, eigi einung-
is bækur á íslenzku, sem enn-
þá vanta alveg, heldur einnig
bækur á erlendum málum,
sem bæði vanta á söfnin og í
bókaverzlanirnar. Eftir beiðni
jafnaðarmanna hefir nú ein
bókaverzlun hér í bænum
(Sigf, Eym.) pantað nokkrar
bækur um jafnaðarst., og verða
þær komnar til verzlunarinn-
ar í byrjun næsta mánaðar.
Bækurnar eru þessar:
W. Sombart: Socialismen.
H. G. Wells: Nye Verdener.
A. Bebel: Ivvinden og Social-
ismen.
J. London: Afgrundens Folk.
Nokkrar uppfundingar.
Kompásinn (Gioja) 1302
Prentlistin (Gutenberg) 1440
Vasaúrið (Hele) 1500
Kíkirinn (Galilei) 1609
Hitamælirinn (Drebbel) 1638
Loftvogin (Torticelli) 1643
Rafmagnsvélin (Guericke) 1650
Pianóið (Christofoli) 1711
Þrumuleiðarinn (Franklín) 1753
Gufuvélin (Watt) 1768
Spunavélin (Arkwright) 1769
Saumavélin (Ilowe og Hender-
. son) 1804
Gufuskipið (Fulton) 1807
Hrað-prentvéliu (König) 1810
Eimreiðin (Stephenson) 1812
Skrúfuskipið (Ressel) 1829
Eldspíturnar (Kammerer) 1833
Ritsiminn (Morse) 1837
Rafljós notuð á götum i París 1841
Rafgeimirinn (Armstrong) 1843
Talsiminn (Bell) 1860
Fónograíinn (Edison) 1883
Röntgentsgeisla (Röntgen) 1896
i
Þráðlaus firðritun (Marconi) 1897
Radínm (Curie og kona hans) 1898
Zeppelínloftfarið (Zeppelin) 1907
Flugvélin (Wright) 1907
Þetta og hitt.
Lifancli inyndir.
Landbúnaðarráöaneytið í Banda-
ríkjunum rekur verksmiðju sem
búnar eru til í lifandi myndir. Eru'
það alt myndir, sem eiga að kenna
þeim, sem á horfa, rétta hirðingu
á skepnum, nýjar og arðsamar
ræktunaraðferðir, rétta meðhöndl-
un á afurðunum o. s. frv. Þessar
myndir hafa svo fyrirlesarar með
sér á ferðalögum, sem stjórnin
sendir þá á um þvert og endilangt
landið, og þykir ágætur áraugur af
myndasýningum þessum. t
Brnni,
afar mikill, varð í Bergen 16. þ.
m. Skaðinn er áætlaður 100 millj.
kr., og þetta talinn mesti bruni er
orðið hafi á Norðurlöndum.
Herskyldn
er nú búið að lögleiða á Bret-
landi. Giftir mcnn eru þó eigi her-
skyldir.
í lausasölu í Rvík
er »Dagsbrún seld á 5 og 3
aura, eftir þvi hvort bláðið er
heilt eða hálft. Fyrir að selja
5 aura blöðin er borgaður V-jt
eyrir fyrir hvert blað, og 2 au.
af hverju blaði fá þeir, sem
selja 25 blöð. Fyrir 3ja aura
blöðin er drengjum borgað 1
eyrir, en U/2 eyrir af hverju
blaði, ef þeir selja 25 blöð.
Blöðum sem ekki ganga út,
má skila aftur. Þeir sem vilja
selja blaðið komi í Bókabúð-
ina á I.augaveg 22 eða á afgr.
blaðsins i Gamla Bio.
Prentsraiöjan Gutenberg.
/
/