Dagsbrún


Dagsbrún - 29.01.1916, Page 4

Dagsbrún - 29.01.1916, Page 4
14 DAGSBRÚN eignir fyrir 300 miljónir kr. Var þar fyrst að telja einn fimta hluta allra lóða í borginni og þar að auki mörg þúsund ekrur af skóglendi og akurlöndum. Það sama ár hafði borgin leigt út 5360 býli utanbæjar, 2400 stór- hýsi fyrir íbúðir og búðír, og 430 vöruhús. Borgin lætur stunda vinyrkju á landi sínu og fram- leiðir árlega um 16,000 lítra af dýru víni. Mjög mikið af því er selt í gildaskála, sem bærinn á sjálfur og lætur starfrækja fyrir eigin reikning. Þá lætur bærinn höggva allmikið af skógi í bæjarlandinu og hafði árið 1912 15,000 kr, í hreinan ágóða af þeim atvinnurekstri einum sam- an. Borgin Ulm í Wúrtemberg á 75°/o af bæjarlóðinni og hefir grætt svo mikið á því, að bæj- arfélagið hefir þrefaldað jarðeign sína á átta árum, og þó grætt þar að auki rúmar 700,000 kr. í reiðupeningum á jarðakaup- unum. Menn geta ímyndað sér hve stórfengleg eru landkaup sumra þýzkra borga, að Stettin (íbúar 236,000) keypti fvrir fá- um árutn 2200 ekrur af landi fyrir 7 miljónir króna. Þó mun Reykvíkingum, sem gefa bæjar- löndin svo fúslega, þykja kyn- legt, að til eru allmörg þýzk bæjartélög, þar sem afgjaldið af landeign bæjanna er nóg í öll bæjargjöld, og meira en það. í bænum Klingenberg fær hver borgari 300 kr. árlega í tekjur úr bæjarsjóði, og í Freudenstadt i Wúrtemberg er um 20,000 ltr. skift árlega milli 1450 borgara í bænum. Það|J er_afgangur af fasteignatekjum.’þegar hann hefir greitt öll nauðsynleg útgjöld, án þess að hafa annan gjaldstofn en landeign sína. Eftir þessu að dæina hefir íslenzki alþýðu- flokkurinn eigi óglæsilegt for- dæmi, þegar til hans kasla kem- ur að bréyta landgjafapólitík undanfarinna ára. Fródi. Úr eigin herbúðum, Endurskoðendur í verkamf. Dagsbrún voru kosnir á aðalfundi: Ottó N. Þorláksson og Jón Þórðarson. Almennan útbreiðslufund hélt verkakvenfélaðið Fram- sókn nú i vikunni í G. T. búsinu. Fundurinn snérist mest um bæjarkosningarnar og var mjög fjörugur eins og alm. fundirnir, sem verkamf. Dagsbrún, og H. R., héldu um daginn. Á eftir almennafund- inum hélt »Framsókn« fund, og gengu þá 26 — tuttugu og sex — hvorki fleiri né færri, í félagíð. Það var fallegur hópur! Verkamannafél. á Seiðisflrði. í því eru nú 120 meðlimir, og er það ekki lítið, miðað við ibúatölu kaupstaðariris. Félagið ætti því að fara að láta til sín taka t. d. koma á peningaborgun fyrir vinnu, og láta ekki brjóla lög á sér lengur. Almennan verkalýðsfund heldur verkamfél. Dagsbrún á morgun Sunnudag kl. 4 e. h. i Bárubúð. Ritstjóri þesa blaðs vill fá fréttir um verkalýðsfélög út um land, hverjir séu í stjórn þeirra, livað meðlimir hafi verið margir á nýári, og hvert sé lágmark félaganna á kaup- gjaldi, og hvort kaupgjaldið sé borgað í peningum. Sömu- leiðis biður hann um að sér sé skrifað um öll áhugamál félaganna. Hásctafélag Reykjavíknr. Svohljóðandi tillaga var sam- þykt á siðusta fundi félagsins: »Frá 1. Marz þ. á. má eng- inn háseti, sein er meðlimur Hásetafélags Reykjavikur fara út með togara, nema hann sé skrásettur samkv. lögum fé- lagsins. Verkamannafélag Aknreyrar. kaus á Sunnudaginn var 5 manna nefnd til þess að und- irbúa alþingiskosningar á Ak- ureyri. Verkfallið heldur áfram i Hafnarfirði. Reykvikingar eru alvarlega á- mintir um að gera skyldu sína gagnvart Hafnfirðingum og vinna enga daglaunavinnu þar; það eru nógar hendur í Hafnarfirði. s5? Fnndur í hásetafcl. Rvíkur á morgun kl. 7 e. h. íjBáru- búð. Himinn og jörð. ltvað eru dýrin lengi ad vaxa? Faö er mjög misjafnt, og eigi víta menn það nákvæmlega um allar dýrategundir þær, er hér eru taldar: Fílar 20—24 ár. Mann-apar 8—12 — Aörir apar 3— 6 — Ljón og tígrisdýr 3— 5 — Leópardar og ganpur 17»— 3 — Birnir 5— 6 — Ilvítabirnir 6- 7 — Selir 4 —? Otrar, hreysikettir (her- melín) og merðir 10 mán. Gíraffar 6-7 ár. Nashyrningar 7-8 — Flóöhestar 5-6 — Tapírar 1-2 — Hérar 15 mán. Rottur 6 — Broddgeltir V/,—2 ár. Hundar 1—2 — Bréf frá borgarstjóra sem ritstj. var búinn að lofa að kæmi í þessu blaði ef hægt væri, er ómögulegt að láta koma nú, — kemur i næsta blaði. Efni þess er það, að kjörstjórnin (borgarstj., Sig- hvatur bankastj., og Sv. Bj. alþm.) eigi enga sök á því að m Steinolíal mm Þeir sem i haust gátu ekki byrgt sig upp af steinolíu nema um stuttan tima, geta nú nálægt miðjum Janúar fengið aftur hina ágætu ainerlslíu steinolíu, sem verður seld mjög ódýrt í stærri stil hjá Jéh. ðgm. Oððssynt, taugaveg 63. G-amlar og- nýjar sög'u- og- fræðibækur, innlendar og erlendar, fást með 10°/o—76°'o afslættl í gákabúðmni á Caugaveg 22. Þeir sem þurfa að spara vegna dýrtíðarinnar, græða á því að verzla við Bókabúðina. Fataefni, saum og til fata hvergi ódýrara. BJá fataefni nýkomin. — 10—20. kr. spara- aður á hverjum klæðnaði hjá uðm. Sig’urðssyni, Laugaveg 10. jfokkrir sjémenn geta fengið góða atvinnu á mótorbátum við Skjálfandaflóa frá 1. Júní til 1. Október þ. á. Allar upplýsingar gefur undir- ritaður. Jésop S. Húnfjörð. Laugaveg 121. Jóní Bach hafi ekki verið kom- ið á kjörskrá, hún hafi viljað gera sitt til þess að hann gæti notið kosningaréttarins. Jafnaðarstefnu-molar, Við jafnaðarmenn viljum koma skipulagi á framleiðsluna, í stað þess skipulagsleysis sem nú er. Fyr á tímum voru vegirnir víðasthvar í álfunni, einstakra manna eign, og tóku eigend- urnir gjald af vegfarendum fyrir notkun þeirra. Og þó voru veg- irnir svo að segja ófærir, hjá því sem þeir urðu seinna, þegar þeir voru orðnir opinber eign, og umferð um þá ókeypis. Líkt var um myntsláttuna. Meðan einstakir inenn (smáhöfðingjar, veraldlegir og andlegir) höfðu rétt til þess að slá mynt, varð almenningur að viðhafa hina mestu varúð, af því fjöldi var gefinn út af ónýtum peninguin. Nú er myntsláttan opinbert fyrirtæki, þess vegna tökum við móti peningum án þess að at- huga hvern þeirra sérstaklega. Nú kemur þeim sem þetta ritar til hugar járnbrautirnar í Danmörku. Flestar járnbrautir þar í landi eru ríkiseign, en þó eru undantekningar. En engum sem um Danmörku hefir ferðast, og þá þurft að fara einhvern spotta með járnbraut, sem var eign einstaks manns eða félags, hefir dulist hve mikið var verra að ferðast á þeim, en hinum er voru opinber eign. Enda er slíkt skiljanlegt; markmið ríkis- brautanna er að bæta úr sam- gönguþörfinni, hinna að græða fé til handa eigendunum. Lifandi myndir. M a 11 h í a s Ó1 a f s s’o n al- þingism. erindreki Fisldfélags íslands, hittist á skrifstofu fé- lagsins í Lækjargötu alla virka daga kl. 12—2 e. hád. þegar hann er ekki á ferðalagi. Jón Jónsson beykir, Laugavegi 1 kaupir steinolíu- tunnur hæðsta verði. Á L i n d a r g ö t u 14 er saltþorskur og steinbítur til sölu. Gullhringur fanst um daginn. Réttur eigandi vitji hans á Laugaveg 51 niðri. H v í t h æ n a með svörtu bandi á öðrum fætí, fór um daginn út að spáséra og lcom ekki heim aftur. Mæti einhver henni, er hann heðin að fylgja henni heim til sín, í hænsna- hqsið við hús no. 55 á'Laug- arvegi. Raupcndur blaðsins, sem ekki fá blaðið skilvíslega eru beðnir að láta ritstjórann vita. Prentsmiöjan Gutenberg.

x

Dagsbrún

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagsbrún
https://timarit.is/publication/173

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.