Dagsbrún - 12.02.1916, Page 2
20
DAGSBRÚN
jafnaðarmenn ætlist til þess að
rikið eigi framleiðslutækin. Við
ætlumst ekki til þess, heldur til
þess að þau mikilvægustu af
þeim séu opinber eign, en svo
nefnum við, auk ríkiseignar
(landssjóðseignar) eignir sýslu-
hrepps- og bæjarfélaga, og auk
þess eignir samvinnufélaga. l’etta
er mjög skilmerkilega tekið fram
i stefnuskrá »Jafnaðarmanna-
félags Akureyrar«, sem hefir
verið prentuð hér í blaðinu, og
sem er það sem íslenzkir jafn-
aðarmenn haida sér við, þar til
verklj'ðsfélagasambandið hefir
samið stefnuskrá*).
5. firra.
Hr. G. Sv. segir að hinn
fræðilegi »socialismus« þ.
e. hin eiginlega jafnaðar-
stefna, eigi ekkert erindi
hingað til lands, að svo
stöddu.
Framar í grein þessari er sagt
frá því hvað jafnaðarstefnan er,
þ. e. aðferð til þess að koma á
þeirri þjóðfélagsskipun, að eng-
inn þurfi af efnaskorti að fara
á mis við það að þroska það
bezta sem i honum býr. En
eftir orðum hr. G. Sv. álítur
hann auðsjáanlega að slíkt eigi
ekki við hér á landi! Það á þá
líklegast einnig betilr við, t. d.
hér i Rvík, að alt haldist eins
og það er, að mörg börn séu
svöng, og köld af of fáum klæð-
um, eða jafnvel sVo klæðlítil að
þau geti ekki farið út nema
þegar gott er veður (sbr. Morg-
unblaðið 80/i 1916).
6. firran.
Hr. G. Sv. segir að wfátækt
sé hér ekkert svipuð því,
sem á sér stað i öðrum
löndum«.
það er vel y-úlegt að hr. G.
Sv. sé ekki kunnugt um þá fá-
tækt, sem á sér stað bæði á
Akureyri, en þó sérstaklega hér
í Reykjavík, en ekki breytir
það neitt sannleikanum, hvort
hr. G. Sv. er honum kunnur,
eða eigi. En sannleikurinn er
sá, að þó að hér á landi sé
ekki ennþá staðfest það djúp
sem er erlendis milli rikra og
fátækra, þó er þó til hér fátækt
(og er altaf að fara í vöxt) sem
jafnast fyllilega við mestu fá-
tæktina í stórborg eins og
Khöfn (sem er 17. stærsta borg
í heimi). Sem dæmi upp á
hvernig fátæktin er hér í Rvík,
skal hér tilfærður kafli úr grein
sem var nefnd »Samverjinn« og
stóð í »Morgunblaðinu« 80/i þ.
á. Nú er vitanlega sjaldnast á
því að byggja, sem »Mgbl.«
segir, en þessi grein er nokkuð
sérstaks eðlis, því hún ber með
sér, að hún er skrifuð upp eftir
orðum einhvers þess góða manns,
er fyrir Samverjanum stendur,
svo þessi Finsen hefir tæplega
getað komið að neinum ósann-
indum í henni.
*) í stefnuskrá danskra jafnaðar-
manna stendur: »Produktionsmid-
lernes Overgang til Samfundsejen-
dom«.
Hér er tilfært eftir »Mgbl.«:
»En það var annað, sem for-
stöðumennirnir voru áhyggju-
fyllri yfir. Þeir sögðu oss, að
þótt aðsóknin væri mikil, þegar
gott væri veður, og færð, þá
væri þó ástandið svo aumt á
mörgum heimilum, að börnin
hefðu ekki skó á fæturna — og
tæplega föt lieldur — og kæm-
ust því ekki út þegar kalt er
eða blautt. Þessir aumingjar
ganga á beru blóðinu og í
gairðslilnum, þunnum og rifn-
utn klæðum, og er það svo
hörmuleg sjón, að maður má
ekki óklökkvandi á það minnast.
Nú er það þvi innileg áskor-
un vor, og allra þeirra, sem unna
Samverjanum vel, og kenna í
brjósti um öreigalýð þessa bæj-
ar, að þeir menn eða þær kon-
ur, sem kynnu að hafa föt eða
skófatnað aflögu, létu það ganga
til Samverjans, þar sem hver
smágjöf verður þakksamlega
þegin. Ekkert er svo litilfjörlegt
að það geti ekki komið að
gagni. Mæður! eigið þið ekki
skó, sokka eða föt, sem börnin
ylckar eru hætt að ganga i, eða
vaxin upp úr? Yér erum vissir
um það að svo er. Dragið þá
þelta fram úr skúmaskotunum
og færið það Samverjanum. Það
kostar ykkur ekki mikið, en
gæti glalt margan fátæklinginn
og sparað heilsu margra barna,
sem nú er hætta búin vegna
fátæktar. Hugsið til barnanna
ykkar og ímyndið ykkur að
þau ættu við sömu kjör að
búa og þessir veslingar gráir í
gegn af matarskorti, hríðskjálf-
andi af kulda, og komast ekki
einu sinni út fyrir hússins dyr
til þess að njóta matgjafa Sam-
verjans, vegna þess að þeir hafa
ekkert á fæturna og engin föt
til að fara í! Ef þið haldið að
vér förum hér með ýkjur og
gerum meira úr bágindum fá-
tæklinganna en vert er, þá skul-
uð þið fara einhvern daginn
heim til Samverjans og líta yfir
hópinn sem þar er«.
Er hr. G. Sv., eftir að hafa
lesið þetla, ennþá á því að fá-
tæktin sé hér á landi ekkert
»svipuð« því sem hún er er-
lendis?
7. og 8. firra.
Hr. G. Sv. segir að hér á
landi, sé ekkert auðvald er
hætta stafi af (7. f.), og
að hér á landi séu llestir
»jafnaðarmenn« (8. f.).
Hvað kallar hr. G. Sv. það,
að H. P. Duus (og fleiri út-
gerðarm.) hafa komist upp með
það, að borga hásetunum á
skipum sínum eina 12 aura
fyrir fiskpundið þó það hafi
verið yfir 20 aura virði, og svo
bætt því ofan á (eins og Duus) að
stela öllum hálfu pundunum af
ílestum hásetunum! Ef aðfarir
Duus bera ekki með sér öll
einkenni auðvalds og auðvalds-
kúgunar, hvað er það þá?
Líklegast álítur hr. G. Sv. þó
ekki breytni H. P. Duus vera
samkv. jafnaðarstefnunni, eða
stjórnendur þessár nú víðfrægu
verzlunar vera jafnaðarmenn?
Hér hafa þá verið taldar upp
nokkrar af firrum hr. G. Sv. í
nefndri grein. En ýmislegt er
fleira í henni, sem er athuga-
vert, og þá sérstaklega það, að
hr. G. Sv., auðvitað algerlega
að ástæðuiausu, svivirðir hina
nýkosnu full|iúa verkamanna í
bæjarstjórn, svo sem lesa má
um á öðrum stað hér í blaðinu.
Að lokum vill »Dagsbrún«
leggja spurningar þær er hér
fara á eftir, fyrir hr. G. Sv., og
stinga upp á því að hann svari
þeim í »ísafold«. Mun ísafoldar-
ritstjórinn feginn, að að einhver
skrifi í blaðið, og þá munu
lesendur þess blaðs eigi síður
fegnir öllu því er gerir blaðið
minna »Ego«-istiskt.
í. spurning.
Hvers vegna er það »furðu-
legt atriði« að ritstjóri þessa
blaðs skuli álíta að jafnaðar-
stefnan eigi við i sveitunum,
eins og í kaupstöðunum? (Sjá
svarið við 5. firru hr. G. Sv.).
2. spurning.
Hvað góðar hugmyndir hafa
erlendis, af jafnaðarmönnum,
verið dregnar niður í sorpið?
3. spurning.
í hvaða löndum (og þá hvaða
menn) hefir það verið, að jafn-
aðarmenn hafa kosið í opinber-
ar stöður »gersamlega ómögu-
lega og óhæfa menn (er ekki
höfðu gelað haft ofan af fyrir
sér með ærlegri vinnu), og orðið
sjálfum sér til skammar og
verkalýðnum til niðurdreps?
— 9 — --
Var það prentvilla?
Guðfræðingurinn ,Hjalti‘ sem
auðgaði almenning með anda-
gift sinni í dagblaðinu »Visir«
nú fyrir kosningarnar, talaði
í einni af greinum sínum um
»allar siðaðar stéttir«, en ekki
voru verkamenn taldir með
þar. Daginn eftir kom leiðrétt-
ing á þessu í »Visir«, og stóð
þar, að það hefði átt að standa
»allar aðrar stéttir«. Var þetta
prentvilla (svona ótrúleg) eða
kom þarna óvart fram fyrir-
litning guðfræðingsins á al-
þýðunni, sem hann, eða vinir
hans, álitu nauðsynlegt á eftir,
að breiða yfir?
Vinsamlegast!
f opinberum skýrslum stend-
ur, að hér á landi sé hver
maður lœs, nema hálfvitar
(idiótar). í »Vísir« þ. 30 f. m.
er smágrein eilir ritstjórann,
sem heitir »Englar i bæjar-
stjórn« og hljóðar hún þannig:
»Af ummælum Dagsbrúnar
virðist mega ráða það, að á
C-listanum sé að minsta kosti
einn engill. Allir þeir, sem eru
á þeim lista, eru sagðir því
fylgjandi, að bærinn láti byggja
íbúðarhús, en fullyrt, að eng-
inn húseigandi fylgi þvi máli,
nema engill sé. — En efsti mað-
urinn á C-listanum er húseig-
andi og ætti þvi að vera engilí
— þó hann segi sjálfur frá«.
Með greinarstúf þessum fær-
ir ritstjóri »Vísis« fullar sann-
anir fyrir þvi, að hann sé ekki
læs, þvi það hefir aldrei stað-
ið hér í blaðinu, að húseig-
endur, sem væru því fylgjandi
að bærinn bygði íhúðarhús,
hlytu að vera englar; en hitt
stóð þar, svo sem allir lœsir
menn vita, að þeir menn hlytu
að vera englar, sem gætu greitt
atkvæði því, sem hefði í för
með sér, að margar þúsundir
króna rynnu úr þeirra vasa.
Það má læra margt á opin—
berum skýrslum!
Hér um daginn var sagt frá
því hér í blaðinu, að farið væri
að gefa út nýtt blað hér í Rvík,
er nefndist »Landið«, og var
sagt, að aðalútgefandi þess væri
hr. B. Kr. bankastjóri. Þetta
tekur »Landið« mjög illa upp,
en ber þó hvorki til baka að
hr. B. Kr. eigi í blaðinu, né
að hann leggi þvi fé. Að vísu
segir blaðið: »Sannleikurinn
er sá, að bankastjórinn á ekki
einn eyrir í blaðinu«. En það
má skilja orð þessi á tvo vegu:
að hr. B. Kr. eigi ekkert i
blaðinu, eða að hann eigi ekki
í því 1 eyri, heldur -t. d. fv
þús. kr. Að það eru fleiri en
»Dagsbrún«, sem hafa haldið,
að hr. B. Kr. væri útgefandi,
má sjá á 3. tbl. »íslendings«.
Að andi hr. B. Kr. — »and-
inn«, sem bankastjórinn sagði
í þingræðu í sumar að ráðherra
gæti ekki skaðað — svifi yfir
blaðinu, virðist mörgum, en
auðvitað er það engin sönnun
fyrir því, að hr. B. Kr. eigi í
þvl, eða leggi því fé, en virðist
þó benda í þá átt.
Annars virðist felast einhver
— »óttalegur leyndardómur« í
þvi, hver útgefandi sé blaðs-
ins, því auðsjáanlega veit blað-
ið sjálft ekki, hver er útgef-
andi þess. í fyrsta tölubl. þess
stóð, að það væri »Hlutafélagið
Reykjavik«, i öðru tbl. að það
væri »Félag í Reykjavík«, en
ekki hefir »Dgsbr.« athugað,
hvort blaðið hefur oftar skift
um útgefanda.
Félögin eru fimm
sem fylgdust að við kosningu
verklýðslistans um daginn, s. s.
Prentarafélagið, Bókbandssveina-
félagið, Hásetafélagið, verka-
'kv.fél. »Framsókn« og verkam.-
fél. »Dagsbrún«. Er þetta sett
hér af þvi félögin voru ekki
talin nema þrjú, f einhverju af
blöðum ójafnaðarmanna.