Dagsbrún - 23.04.1916, Blaðsíða 1
IBMJIÐ EKKl'Í O
—Ll U Au O D n
BLAÐ JAFNAÐARMANNA
ÞOLID BKKI
RANQINDI
GEFIN ÚT MEÐ STYRK NOKKURRA IÐNAÐAR- OG VERKMANNAFÉEAGA
RITSTJÓRI OG ÁBYRGÐARMAÐUR: ÓLAFUR FRIÐRIKSSON
9
1 7. tbl.
Reykjavlk, Sunnudaginn 23. Apríl.
1916.
Alþingiskosningarnar
sem fram eiga að fara á þessu
ári munu sína það, að íslenzka
þjóðin sjálf, þ. e. alþýðan, ætlar
sér framvegis, að ráða málum
sínum. Þjóðin er orðin leið á
þvi að kjósa embættismenn, og
aðra atvinnuþingmenn, sem
ýmist koma engu í verk, nema
að bækka laun þeirra’embættis-
manna, sem bezt eru launaðir,
eða lögum, sem eru slík ómynd
að þau væru betur ósamin, af
því að þau tefja fyrir að samin
verði viðunandi lög um sama
efni. Má tilnefna lögin um líf-
tryggingu sjómanna, sem meta
mannslífið tfepplega 400 kr.
Alþýðuflokkurinn hefir nú sett
upp landlista, og er búist við
því, að auk þess verði fram-
bjóðendur frá alþýðunni í æði
mörgum kjördæmum, og er
undirbúningur undir þær kosn-
ingar nú að byrja. Hins vegar
er embættis- og kaupmannaliðið
einnig að týgja sig til kosninga.
Embættismennina grunar, að
eftirlaunin og ýmislegt annað
sé í veði; og kaupmennirnir og
stórútgerðarmennirnir vita, að
verði »heldri« menn ekki í meiri-
hluta á næsta þingi, þá verða
lagðir á þá skattar, sem um
munar, en tollabyrðunum velt af
alþýðunni. Og þeir mega líka
reiða sig á, að það verður gert,
svo fljótt og unt er.
Burt með embættis- og kaup-
mannaokiðl
Tveir moldveðursmenn.
Sveinn Björnsson fyrverandi
þingmaður Reykjavíkur, skrif-
aði í haust grein i »ísafold«,
þar sem hann þóttist vera að
berjast móti rig þeim, milli
sveitamanna og verkamanna,
sem hann sjálfur, og blöð þau
er hann á ítök í, (ísafold, Vísir
og Morgunblaðið) hafði komið
af stað. Auðvitað var hann í
þessari grein, (sem átti að heita
skrifuð móti grein eftir »Borg-
firðing« i Lögréttu) einmitt að
ala á rignum milli sjávarins
og sveitanna, þó hann færi
fimlegar að en hr. Jakob Möller
í sumar, þegar hann var með
úldna silunginn i Vísi (sú
frammistaða öll var samt laun-
uð með bankabitling).
Svo mikið moldveður sem
hr Sv. Bj. gerði, þá er nú
kominn annar maður fram á
sjónarsviðið sem er verri en
Sveínn. Þaður er einhver
blessaðar Jón G. Sigurðsson,
vestur á Snæfellsnesi. Hann
skrifar langa grein í þrjú síð-
ustu, eða næstsíðustu blöðin af
Lögréttu, skammar fyrst Svein
(með réttu), en þyrlar svo
sjálfur upp enn svartara mold-
viðrí en hann, og reynir með
heimskulegu tali að æsa bænd-
ur og sveitamenn upp á móti
kaupstaðarbúum, og verður
ekki annað skilið á grein hans,
en að hann álíti að allir kaup-
staðarmenn lifi í leti og iðju-
leysi, og geri ekki annað en
að taka í nefið, og éta rúsínur.
En sem betur fer, mun lítið
farið eftir skrifum slíkra mold-
veðursmanna.
Af Akureyri,
er skrifað 15. mars.
Verkamannafélagið sendi ný-
lega þá Trausta Reykdal og
Jón Friðfinnsson, til Dalvikur.
Þeir stofnuðu þar verkam.félag
með 30 mönnum. í verkam.fé-
laginu á Hjalteyri eru 27 manns.
Verkamannafélag Akureyrar
hefir 300 meðlimi. Verka-
kvenfélagið »Einíngin« hefir
160 meðlimi.
Trésmíðafélag Akureyrar hef-
ir 28 meðlimi.
Ökumönnafélag Akureyrar
hefir 20 meðlimi.
Verkamannafélag Akureyrar
sýndi hér þrisvar tvo sjónleiki
»Þér eigið dóttir« og »Saklaus
og slægur« eftir Pál Jónsson.
Þar er margt vel sagt t. d.
þessi vísa:
Meta fáir manngildið,
pótt margt um dggð vér skröfum
og œrunnar purfum ekki við,
ef auð vér nógan höfum.
Kauplágmark er hér nú hjá
verkam.fél. '35 aur. á tímann.
Þó mun alment hafa verið
borgað 40 aurar við útbúning
á íiskiskipum, sem nú eru flest
lögð út. Búist við að setja
lágmarkið 40 aura bráðlega.
Lágmarkskaup trésmiðafél-
agsins er frá í vetur 50 aur. í
verkstæðisvinnu og 60 aurar i
útivinnu.
Lágmarkskaup ökumannafé-
lagsins er 75 aurar á tímann.
Lágmarkskaup verkakvenna-
félagsins nýákveðið 60 aura á
síldartunnu og 35 aura á tím-
ann i síldarvinnu (ápökkun
o. s. frv.). Kaup við fiskverk-
un er enn eigi ákveðið.
Mikil eftirspurn er hér nú
þegar eftir vinnufólki, til sum-
arsins. Útlend félög hafa boðið
stúlkum hér 20 krónur á mán-
uði í fœðispeninga, frítt hús-
nœði, kol og oliu, og 60 anra
á síldartunnuna, sum jafnvel
meira. Þeir vita af reynslunni
að það borgar sig vel fyrir þá
að gjalda þolanlegt kaup.
Jón.
Jón Þorláksíon er að rembast við
að gera Heimstjórnarflokkinn að
framsóknarflokki í fortíð og fram-
tíð.
Skyldi framsóknin sú ekki verða
svipuð og hjá manninum, sem valt
ofan alla Bröttubrekku og sagði:
»Petta held eg að eg hafi verið
fljótastur á fæti«.
a ))SuðurIand«.
Fallið úr.
Greinin í 14. tbl. eftir »Leigjanda«
átti að enda pannig: »Hvað lengi
á þetta svona til að ganga, þar tíl
sagt verður til þeirra, sem lögunum
eiga að stjórna: Mene mene tekel
ufarsin«. En síðustu orðin höfðu
fallið úr.
Borgarstjóri segir að menn eigi
að koma og kæra það fyrir sér, ef
illa er gergið frá eldstæðum, eins
og t. d. er skýrt frá í grein leigj-
anda.
Slys við Vestmannaeyjar.
Þau eru sorglega tíð slysin
um þessar mundir. Núna í
f. viku hefir orðið njTtt slys:
Vélbáturinn HalTari fórst við
Heimaey í Vestmannaeyjum, og
druknuðu þar þrír menn, en
tveir björguðu sér á sundi til
lands.
Ekki er þess getið hvort hinir,
sem druknuðu, kunnu að synda,
eða hvort það mundi hafa
bjargað lífi þeirra.
Frá hásetum.
Altaf er að bætast við tölu
félagsmanna í Hásetafélagi
Rvíkur; eru félagsmenn nú
579 að tölu. Vilhjálmur Vig-
fússon (á Sigurfara), kom með
11 nýja félagsmenn um dag-
inn, og Ólafur Árnason (á
Skarphéðni), kom með fimm.
Á mörgum togurum eru allir
hásetarnir félagsmenn, t. d. á
Ingólfi Arnarsyni. Bátsmað-
urinn þar um borð, Guðm.
Halldórsson, kom með þá 4
síðustu núna i vikunni.
★ ★
¥
Það slys vildi til á »Maí«,
nú í vikuni, að Sigurður Gríms-
son, Hlíðarhúsum. fótbrotnaði.
Úr Stykkishólmi
er skrifað:
Nýlega hefir verkamannafé-
lagið sett það ákvæði í lög sín
að öll vinna sem félagsmenn
taka þátt í, skuli greidd í pen-
ingum. Lítur helst út fyrir að
mönnum ætli að veitast það
erfitt að fá því framgengt, og
er það mest fyrir roluhátt sumra
félagsmanna. Það er erfitt að
koma á nokkrum félagsskap til
umbóta, þar sem jafnmargir eru
bundnir á skuldaklafann hjá
kaupmönnum, og hér er.
Lágmark félagsins á vinnu-
launum er:
Frá 1. Okt, til 1. Apríl, karla,
30 aura, kvenna, 25 aura, Frá
1. Apríl til 1. Okt. karla, 35
aura og kvenna, 30 aura. Eft-
irvinna 5 aurum hærri bæði
thnabilin.
Næturvinna að vetrinum, karla,
40 aura, kvenna, 35 aura. Næt-
urvinna að sumrinu, karla, 50
aura, kvenna, 40 aura. Sunnu-
dagavinna karla 65 aura kvenna
45 aura.
Til vina blaðsins.
Prentun og pappír hefir stígið
svo í verði að það kostar nú
50 kr. að prenta hvert blað.
Þeir' sem .hafa gleymt að borga
blaðið eru því vinsamlegast
beðnir um að borga það straks
þegar þeir verða krafðir.
Þeir sem geta og vilja, eru
beðnir að borga fyrirfram tvo
eða fjóra árganga blaðsins með
5 eða 10 krónum. Finnið Ólaf
Friðriksson upp á þetta í skrif-
stofunni í Gamla Bio, eða í
Suðurgötu 14.
Borgað 4 árganga
»Dagsbrúnar fyrirfram með 10
krónum hver:
Jónas Snorrason Þverá Lax-
árdal, Glúmur Hólmgeirsson
Vallakoti, Sigurgeir Friðriksson
Skógaseli.
Úr eigin herbúðum,
Ný 8fjórn í PrentarafélaginiL
Einar Hermannsson formaður,
Einar Sigurðsson ritari og Jón
Sigurjónsson gjaldkeri.