Dagsbrún - 11.06.1916, Qupperneq 2
76
DAGSBRÚN
Rödd Péturs Jóssonar
°g
Mensaldur í Papey.
Það var fyrir nokkrum ár-
um á íslendingafundi í Kaup-
mannahöfn að eg heyrði fyrst
til Péturs Jónssonar og varð
eg þá strax mjög hrifinn af
hinni frjálsuogöfluguröddhans.
Síðan heyrði eg til hans við
og við í Kaupmannahöfn og
eins hér í Reykjavík 1913, og
þótti altaí bæði skemtilegt og
hressandi að hlýða á tóna
hans.
En lang mest hefir Pétri farið
fram síðastliðin 3 ár í Þýzka-
landi, enda er nú hrein unun
á hann að hlýða.
Eg hefi heyrt blíðari raddir
(lyriskari), eins og t. d. rödd
Herolds, sem. aftur á móti var
ekki nærri eins mikil og karl-
mannleg. Eg heíi líka heyrt
einstöku raddir, sem kanske
eru eins miklar, en aftur vanta
fegurð á við Péturs rödd.
Mér hefir löngum þótt góðar
(barytan) raddir einna skemti-
legastar, þvi að þær hafa oft-
ast meiri karlmenskukraft í sér
fólgnar heldur en háraddir (ten-
órraddir), en þessa saknar mað-
ur ekki hjá Pétri Jónssyni.
Eg mun hafa heyrt til flestra
af hinum helztu Norðurlanda-
söngmönnum, en enginn þeirra
finst mér hafa jafn margt af
því sem nauðsynlegt er, sam-
einað í rödd sinni eins og Pét-
ur Jónsson. Söngrödd hans er
með þeim allra mestu, sem eg
hefi heyrt og hún er líka fög-
ur og karlmannleg.
Söngur Péturs kemur manni
1 gott skap, getur jafnvel vakið
viðkvæmni, en aðallega er það
eldur og viljakraftur, sem sindr-
ar úr söng Péturs og maður
fær ímyndaða vængi.
Þá er lika mikils um vert
að Pétur hefir fallega og prúð-
mannlega framkomu og fram-
burður orðanna orðinn miklu
betri en áður var.
Eg ætla í þessu sambandi
að skrifa eitthvað af því sem
eg heyrði í barnæsku minni
um einn af forfeðrum Péturs
Jónssonar, Mensaídur, sem bjó
í Papey fyrir löngu, líklega
um 1800. Hann var langmestur
söngmaður er menn höfðu
heyrt til, þar um slóðir, og
það jafnvel svo framúrskarandi
að ýmsar sögur mynduðust um
söng hans og róm og sumar
miður trúlegar, eins og verða
vill. Átti hann t. d. að hafa
sungið svo að heyrðist úr Pap-
ey til lands, og kallað ferju
yfir Beruljörð.
Á »lönguföstu«, söng hann
3 passíusálma á hverju kvöldi
2 fyrir og 1 eftir lestur, og svo
vel að fólk syfjaði ekki, en svo
hefir þó oft viljað verða undir
venjulegum sálmasöng þó
minna hafi verið sungið.
Þó eru enn æfintýralegri
sögurnar um hafmeyjarnar, er
Mensaldur átti að hafa seytt að
landi með söng sinum, og
söng hann fyrir þær, undir
björgum eyjarinnar.
Þó var það ein af hafmevj-
unum, sem átti innilegast
samband við Mensaldur, fyrir
hana eina söng hann á sunnu-
dögum þegar gott var veður,
undir hömrum nokkrum aust-
anvert á eynni.
Þetta vissu menn nú ein-
hvernveginn, en enginn vissi
fyrir vist hvernig það hafði
komst upp, og þýðingarlaust
var að grenslast um hagi Mens-
aldurs undir Papeyjarbjörgum
því að hann átti huliðhjálms-
stein úr Búlandsárgljúfrum,
er hann notaði við lík tæki-
færi.
Helst söng Mensaldur þar
sem að björgin hvefldust fram
yfir sig, veittu margir sér á-
nægju stundir með því að læð-
ast fram á hamrana og hlusta
á og þótti þeim þá oft sem
bergin nötruðu er hann tók á
rödd sinni með fullum krafti,
en líka kunni hann að syngja
angurblítt, og sérstaklega um
sólarlagsbil.
Oft söng hann lög sem engir
höfðu heyrt fögur og áhrifamik-
il, en sjaldan nema einusinni
hvert og höfðu menn það fyr-
ir satt að hann byggi þau til
um leið og hann söng. Sumt
af þessu mun fólki finnast ó-
trúlegt, en það sýnir hvað mik-
ið mönnum þótti til raddar hans
koma. Og ef Mensaldur í Pap-
ey hefir sungið nokkuð líkt
Pétri Jónssyni,sem ekki er ólík-
legt, get eg t. d. vel trúað sög-
unni um hafmeyjarnar.
Ríkarður Jónsson.
Hvaða flokknr?
Hvaða flokkur vill afnema tollana
og aðra skattabyrði, sera nú hvíla
á alþýðunni, og leggja nauðsynleg
útgjöld þjóðfélagsins á þá sem aura-
ráðin hafa, þ. e. láta verðhækkun-
arskatt og hækkandi eigna- og tekju-
skatt koma í staðinn? Svar: Al-
þýðuflokkurinn.
Ekki batnar -- --
í »Morgunblaðinu« 8. Júní er
sagt írá því að róðrarbátar sem
fari vestur á Svið, fái 10—30
fiska í hlut. »En það þykir
einkennilegt«, segir þetta mál-
gagn skarpskygninnar, »að fisk-
urinn tekur ekki beitu, og veiða
menn því alt á bera öngla«.
Pessi klausa í Mbl. er mjög
eftirtektarverð. Allir vita, að
þegar fiskurínn er í síli, tekur
hann ekki beitu, (nema síli) og
fæst því ekki nema með því að
krækja hann (á beran öngul-
inn). Þetta mun varla neinum
þykja merkilegt, nema ritstj.
»Mgbl.« Hann kemur því ó-
mögulega fyrir sig, að þorskur
elti öngul, nema það sé beita á
honum!
En hvað segir hinn blessaður
ritstjórinn — hann Jakob Möll-
er, með bankaráðsbitlinginn í
lúkunum, og bankastjórann í
vömbinni, um þetta beituatriði?
Þetta og hitt.
Ný ættarnöfu
Peim fjölgar nú öðum sem taka
sér ættarnöfn.
Einar Hjörleiísson skáld, börn
hans, bræður hans og þeirra börn
hafa látið lögskrá sér nafnið Kvaran.
Svavar Sigurbjarnarson verlzunar-
fulltrúi hefir tekið sér nafnið Svav-
ars.
Sigvaldi Stefánsson læknir (bróð-
ir Eggerts söngmanns) hefir tekið
sér nafniö Kaldalóns.
Börn sira Haraldar Níelssonar
prófessors, hafa tekið nafnið Haralz.
Bjarní Jónsson frá Vogi, hefir ekki
tekið sér ættarnafn enn þá, ekki
heldur Bogi Ólafsson né Árni Páls-
son.
Fiselier Petersen.
Ungi stjörnufræðingurinn J. Fisch-
er Petersen mag. scint. sem margir
landar kannast við, og bróðir hans
Jóhannes Petersen kaupmaður hafa
látið lögskrá sér ættarnafnið Fisch-
er-Petersen.
»Vendsyssel«
skip Sam.fél, rakst 10. mai á ensk-
an kafbát, og kom að því nokkur
leki. Kafbáturinn ætlaði að stinga
sér undir »Vendsyssel« en varð of
seinn. Eitt skrúfublaðið af »V.« sat
fast í þilfari kafbátsins og brotnaði af.
Um Hólmn
í Reyðarfirði er sagt að sæki Stef-
án Björnsson fríkirkjuprestur á Fá-
skrúðsfirði, Pétur Porsteinsson prest-
ur að Eydölum og Ólafur Stephen-
sen prestur i Grundarfirði(?)
Alþjóðafnndnr Good-Templara
sem halda átti í Minneapolis 1917,
er nú ráðgert að halda í Khöfn. eða
Árósum 1918.
Ákafar vorleysingar
urðu í byrjun maí bæði í Noregi
og Svíþjóð. Uxu ár og fljót svo á-
kaft að mikill skaði varð af vatna-
vöxtum.
Er mælt að vorleysingarnar hafi
ekki verið jafn ákafar í þessum lönd-
um i 200 ár.
Góðnr hlutnr.
Magnús Kjartansson úr Patreks-
firði (nú til heimilis i Noregi) er á
norsku síldveiða-gufuskipi er stund-
að hefir hér reknetaveiðar. Eftir
viku veiðar var hásetahlutur á ship-
inu um 800 kr. Kjörin voru 32°/o af
aflanum, án fæðis.
Himinn og jörð.
Hreiðnr. Dagsbrún hvatti menn
i vor til þess að setja upp »hreiður-
kassa« handa þröstum (og öðrum
smáfuglum), en enginn mun hafa
orðið við þcim tilmælum. Samthafa
nokkrir þrestir bygt hreiður sin hér
í borginni. Ein þrastarhjón t. d. í
þakrennuenda á fískþurkunarhúsi
Duus-verzlunar (beint á móti skrif-
stofugluggum Dagsbrúnar). Önnur
þrastarhjón hafa gert sér hreiður
skamt frá — í þakrennu á húsi B.
H. Bjarnason kaupm.
1 góðum árum unga þrestir tvisv-
ar út.
Miinna mnnnr.
Meðan stóð á verkfalli háseta
gengu úr félagi þeirra milli 30 og
40, en í það nálega 50. Félagsmönn-
um fjölgaði því við verkfallið.
Pvilíkur munur á þeim mönnum
sem ganga úr félagsskapnum á erv-
iðum timum, og þeim, sem ganga
í félagsskapinn pál
Kræk-í-berið.
Heyrst befir að Jakob Möller
geri sér von um að verða banka-
stjórj.
Einhver stakk upp á þvi að
breyta nafninu á dagbl. »Vísir«
og kalla það »Grænjaxlinn«.
En væri ekki réttara (eftir þess-
ar fréttir) að »Visir« breytti
nafni og yrði nefndur »Kræk-
í-berið« ?
Litla blaðið
kom út núna í vikunnni. Það
stóð ekkert í því um stríðið,
en það var fult af góðum
fréttum um það, hvað kaupa
megi ódýrt í Litlu búðinni.
Þeir, sem efast um að blaðið
hafi sagt allan sannleika um
Litlu búðina, geta farið þangað.
fengið ókeypis i nefið og látið
sannfœrast.
Bökabúðin á £augav. 4
— ,Antikvarisk‘ bókaverzlnn —
Mikill afsláttur af brúkuðum
: : bókum. : :
Xlæðaverzlun
og
sanmastoja
Guðm. Sigurðssonar
Laugaveg 10
selur ódýrt íataeíni
ekta litir. lA'ljót af-
g,r*eiOsia — Vönduð
viima. Ný íataeíni
með Ixverju skipi, Sparið
peninga.
Maijurtarfræ - filómfræ
Blómlaukar
flestar teg-imclír og það
besta. Nú er sáðtími
og fögur glugga-
blóna er besta híbýla-
prýði, er selt í (klæða-
verzlun Guðm. Sigurðs-
sonar) Laug'aveg ÍO
Svanl. Benediktsdóttir.
„Suðurland“.
Afgreiðslu þess, hér í Rvík.
hefir hr. Ólafur Gíslason verzl-
unarmaður í Liverpool. Tekur
einnig við auglýsingum í blaðið.
Auglýsingnm í Dagsbrún
veitt móttaka í Bókabúðinni,
Langavegi 4.
Prentsmiðjan Gutenberg.