Dagsbrún - 11.06.1916, Page 1
Fylgiblað Dagsbrúnar.
Pingmálafundur Alfiýöuflokksins.
Alþýðuílokkurinn hélt fund í Báru-
búð í gærkveldi. Samtímis höfðu langs-
um og heimastjórn boðað til funda á
öðrum stöðum, en lítið varð úr þeim.
KI. fú/í sat Jón Þorláksson í sínum
sal með 2—3 tryggar sálir. Á langsum-
fundi hlýddu menn máli Sveins og
Blöndahls, en þegar Yísis-ritstjórinn
sté i stólinn, þurkaðist salurinn. Fund-
ur alþýðunnar gleypti þannig hina
fundina af því að þar voru málefnin
best og áhuginn mestur. Var troðfult
hús allan fundartímann frá 8V2 til 2
eftir miðnætti. Komust færri inn en
vildu. Skipulag og regla var betri en
venjulega á pólitiskum fundum hér í
bænum.
Var auðséð að alþýðan var hér að
fylgja fram áhugamálum sínum með
festu og gætni — háttsemi þess vegna
ólík því, þegar broddborgarar gömlu
flokkanna voru að berjast um vcldin
og aðgöngu að landsjóðnum.
Fyrirspurnir komu til Heimastjórn-
arframbjóðendanna, sem komu fyr á
fundinn heldur en Magnús og Sveinn.
Lutu þær að því, hvernig þeir mundu
snúast við helstu áhugamálum Al-
þýðuflokksins, svo sem einkasölu á
kolum og olíu, afnámi ranglátustu
tollanna (vöru-, kaffi- og sykur-tolls),
um aðstöðu þeirra til útlenda bank-
ans hér, um álit þeirra á hinum óhæfl-
legu vökum á togurunura, um bann-
lagagæsluna hér i bænum o. fl. Bæði
J. M. ogj K. Z. svöruðu með afar-
löngum ræðum. Flutti bæjarfógeti tölu
sína sæmilega og skipulega, þótt hann
reyndist gersamlega mótfallinn öllum
áhugamálum alþýðunnar.
Bæða K. Z. var aftur á móti sund-
urlaus, óáheyrileg og þokukend, enda
átti ræðumaður erfitt með að dylja
andstöðu sína og ótta við Alþýðu-
(lokkinn og málefni hans.
Bæður þeirra voru síðan gerhraktar
•og sannað ótvírætt, að þessir frambjóð-
endur væru eingöngu í samræmi við
þarfir auðvalds og einokunarhring-
anna. Sérstaklega var auðséð að K. Z.
vildi ógjarnan minnast nema sem
minst á Kol og salt og Steinolíufé-
lagið nafntogaða. Auðheyrt var að
fundarmenn, því nær allir, voru mót-
fallnir þessum frambjóðendum og álitu
þá fullkomna andstæðinga sína. Einn
ræðumanna, Jón Sveinsson lögfræðis-
nemi, rakti sundur pólitískan feril J.
M., og sannaði með eigin orðum bæj-
arfógetans stefnuleysi hans og hringl
í skattamálunum, og hve gersamlega
andstætt þingmenskuframboð hans,
sem dómara, er við orð hans sjálfs í
í launamálanefndinni frá í sumar.
Tóku menn eftir því að bæjarfógeta
var órótt undir þeim lestri, enda svar-
aði hann fáu.
Um »langsum«-frambjóðendurna,
Svein og M. Bl. er það að segja, að
sína nauðaómerkilegu ræðuna fluttu
þeir hvor um sig, enda bersýnilegt
algert fylgisleysi þeirra (eins og sagt
mundi á ísafoldar-máli).
Menn voru óvenjulega ánægðir og
rólegir á þessum langa fundi, og var
sýnilegt, að menn fylgdust með málum
alþýðunnar með fullum áhuga og
samúð. Var það allra mál, að alþýðan
gæti sýnilega einkis stuðnings vænt sér
og sinum áhugamálum af frambjóðend-
um »Langsum«- og Heimastjórnarflokk-
anna og að menn festust í þeirri trú
að láta eingöngu menn úr sínum
flokki fara með mál sín á þinginu.
_______ A.
Úr hinum herbúðunum.
f dag var borið út kosningablað frá
ísafold með venjulegu hóli um Svein
og Blöndahl, en staðlausu níði um
frambjóðendur Alþýðuflokksins, eink-
um Jörund. Er ekki ástæða til að
virða þá langloku svars.
í litlum snepli, dags. 19. þ. m., sem
sýnilega var frá Heimastjórnarmönn-
um (undirritað »Nokkrar konur í
Reykjavík«) er verið að telja konum
trú um þá fjarstæðu, að Heimastjórn-
arflokkurinn hafi útvegað konum
kosningarrétt, en það er sú rammasta
haugalýgi, því að sá flokkur stóð ein-
mitt lengst á móti þvi, að veita kon-
um þennan sjálfsagða rétt, og þegar
þeir ekki gátu drepið það alveg, fengu
þeir því laumað inn í stjórnarskrána,
að engin kona skyldi öðlast kosning-
arréttinn yngri en 40 ára.
Er það býsna djarft af Heimastjórn-
arflokknum, að ætla sér þannig að
öðlast atkvæði kvenþjóðarinnar, fyrir
fylgi við mál þeirra, sem hann þó vit-
anlega var andstæður og barðist á
móti í lengstu lög. Og þegar hann
ekki gat slaðið lengur á móti þá reyndi
hann — og tókst — að fleyga málið
með 40 ára aldurstakmarkinu.
Munið
að koma nógu snemma til að kjósa.
Látið það ekki dragast þangað til í
kvöld. Hvarflið ekki frá fyr en þér
hafið kosið, og bíðið með þolinmæði,
þó að þér komist ekki strax að.
Menn, sem eru í vinnu h]á
ödrutn, elga lieimtingu á aö fara
að kjósa hvenær sem þeiinlígt;
og þeim, sem hanna mönnum
aö fara til hosning'arinnar, eöa
reyna aö liefta það. má koma
í marglaida bölvun.
Alþýðuflokknmeim!
Látið ekki blekkjast af leigðum
smölum Heimastjórnarliðsins (Langs-
um má nú telja úr sögunni), sem nú
skjótast hús úr húsi til að telja menn
á að kjósa embættismennina Jón Magn-
ússon bæjarfógeta og Knud Zimsen
borgarstjóra.
Sýnið embættis- og auðvaldinu, sem
nú finst skjaldborg sín skjálfa fyrir
fjörkippum alþýðunnar, að þér getið
lyft Grettistakinu, að taka herskildi
höfuðstað landsins með því að kjósa
þingmenn úr ykkar hóp.
kjósið Jöruud og I’orvarö.
Gutenberg 1916.