Dagsbrún - 26.09.1916, Page 3
DAGSBRÚN
111
sem varð að hætta við að heim-
sækja Júlíus læknir, þegar hann
heyrði að hann bjó í Mjóstræti.
»Hver þeirra?« sagði ég aftur.
»Er fleiri en einn svo nefnd-
ur?« »Ja, ég er nú ekki guð-
fræðingur«, sagði maðurinn og
néri á sér bringuna, »en ég
skal spyrja hann Grauslund að
því á morgun. Ég þarf hvort
eð ei’ að finna hann, til þess
að fá hjá honum siðasta nú-
merið af »Herópinu«; ég held
því sem sé saman, og »ísafold«,
og læt binda hvorttveggja inn.
Éetta er svarta myrkrið!« Eg
jánkaði þessu síðasta, án þess
að vita hvort hann átti við
»ísafold« eða götumyrkrið. »Er
þetta nú ekki óþarfa hræðsla
hjá borgarstjóra«, segi ég, »að
láta ekki brenna ljós á götun-
um?« »Eg veit ekki; þér sjáið
sjálfur, að hann verður að
spara fyrir bæinn, ef ekki á að
hækka útsvörin á efnaðri borg-
urunum — kjósendum hans, —
því varla þora þeir að hækka
útsvörin á vinnukonunum, þó
þá ef til vill langi til þess. En
þér áttuð nú máske við, hvort
nokkur ástæða væri til þess
að hafa slökt vegna Zeppelíns-
árása, og því vil ég hiklaust
svara neitandi. Þjóðverjar
mundu aldrei, þó þeir færu í
stríð við Dani, senda hingað
loftför; og af hverju? Af því
þeir eru drengir góðir, og
mundu aldrei senda smáþjóð
sem vorri meira en eina plágu
í senn. — Og nú er Guðbrand-
ur kominn«.
»Þér talið óvarlega, maður«,
sagði ég, »þér megið búast við
að Guðbrandur bannfæri yður
i nýja blaðinu«. »Ég gef hon-
Um dauðann og djöfulinn«,
ansaði hinn, en ég svaraði
engu, því ég var þeirrar skoð-
unar, að það væri ólöglegt að
gefa það sem maður ætti ekki,
en allir vita hvað það er sem
Mr. Gook á Akureyri, Sálu-
hjálparherinn og innri missi-
onin eigi í sameiningu. Ég fór
nú að verða forvitinn hver það
væri sem ég væri að ræða við,
og fór að leita að málbandi í
vösum mínum, og bölvaði sár-
an þeirri heimsku minni að
ég skyldi ekki hafa stungið á
mig 5 álna mælistöng sem ég
um morguninn sá í reiðuleysi
suður á melum. Hefði ég haft
hana, hefði ég getað mælt ná-
Ungann og svoleiðis að líkind-
Um komist að því hver hann
var. Hefði hann t. d. verið 3
álnir og 1 þuml. hefði það
vérið Gunnar frá Selalæk, hefði
hann verið 3 álnir og 3 þuml.
hefði það verið kóngurinn, og
hefði hann verið 7 álnir, þá
hefði það verið sjálfur Golíat,
e^a þá Eyjólfur rakari á »stylt-
um«.
Mér flaug sem snöggvast í
hug hvorl maðurinn væri ekki
einn af þessum fjórum heima-
stjórnarmönnum sem bjóða
sig fram i Eyjafjarðarsýslu, og
ætlaði að þreifa á honum lil
þess að íinna hvort hann væri
ekki í Gefjunartaui, en vegna
níðamyrkursins tókst mér svo
bölvanlega, að ég káfaði í and-
litið á einni yngismeyjunni sem
fram hjá gekk. Brást hún
reið við, og kvaðst óvön því
að það væri káfað beint fram-
an í sig. Varð mér þá á að
hlægja, en sá ókunnugi, sem
auðsjáanlega þekti mig, sagði:
»Þér eruð kátur og góðmenni,
Jón minn, ekki tryði ég því
þó Pétur segði mér um yður
að þér þægjuð 50 króna mútur
á mánuði frá bæjarfógetanum,
fyrir að skamma hann ekki í
»Dagsbrún«. Og með þessum
orðum þaut hann í burtu í
mesta flýti, eins og hann væri
hræddur um að ég ætlaði að
fara að gefa sér einhverja Bók-
mentafélagsbókina.
Það skal tekið fram hér, að
maðurinn var áreiðanlega ekki
Þorfinnur ritstjóri Ivristjánsson,
sem er kominn hingað til þess
aó jarða launanefndina, sem
hann er búinn að drepa í
»Suðurlandi«.
Jón Söngur.
Hljómleika
hélt Eggert Stefánsson söngv-
ari í Bárunni á Laugardags-
kvöldið. Söng hann meðal ann-
ars nokkur lög eftir bróður
sinn, Sigvalda Kaldalóns lækni,
og var góður rómur með réttu
gerður bæði að söng Eggerts
og lögum bróður hans. Píanóið
í Bárunni er hneyksli.
Páll ísólfsson hélt hljómleika
í gær í Dómkirkjunni. Ágæt-
lega leikið. Allvel sótt. Páll ís-
ólfsson er því miður nú að
fara utan.
Fyrsta Heimastjórnarlygin.
Fyrsta kosningalygin um
þingmannsefni Alþýðuflokksins
er það, að þeir hafi gefið skrij-
lega yfirlgsingu um það, að vera
ekki með því að fella Einar
Arnórsson úr ráðherrasessi.
Frétt þessi er rakin til aðal-
'sannleikspostula Heimastjórn-
armanna, hr. Péturs Zóphonías-
sonar.
Ferðalag.
Mjög er það að færast í vöxt
að menn fari gangandi í lengri
eða skemmri skemtiferðir, og
er það vel farið, því gangandi
ferðalagið hefir ýmsa kosti
fram yfir hitt, með hesta.
Til skamms tima hefir þótt
skömm að því að fara gang-
andi, og hefir einn reykviksk-
ur göngugarpur sagt þeim er
þetta ritar, ýmsar skrítnar sög-
ur af þvi, hve illa var i fyrstu
tekið á móti íþróttamönnum
héðan úr Rvík, sem fóru gang-
andi út um sveitir, af því
bændur héldu að þeir væru
hálfgerðir flækingar, úr því
þeir voru ekki með hesta. En
nú eru þessir »labbarar« orðn-
ir svo algengir, að menn eru
hættir að halda þá förumenn,
þó þeir séu gangandi.
Blöðin hér í Rvík hafa sagt
frá ýmsum löngum gönguferð-
um er farnar liafa verið í sum-
ar, en engin hefir þó verið
jafn löng og sú er Iíjartan Ó-
lafsson rakari við annan mann
fór í sumar, sem sé austan af
Fáskrúðsfirði og hingað til
Rvíkur.
Þeir félagar voru réttan hálf-
an mánuð á leiðinni, en þar
af voru þeir tvo daga um kyrt
í Breiðdal. Yfir árnar og sand-
ana fengu þeir sér hesta.
Leiðin um Skaftafellssýsl-
urnar eru áreiðanlega þær
bygðir, sem landsmenn þekkja
minst, og er þó mjög margt á
þessari leið sem vert er að sjá,
jöklarnir og skriðjöklarnir og
beljandi jökulárnar sem bruna
fram undan þeim; eyðisand-
arnir, og hinsvegar einnig mjög
grösug og falleg lönd, til dæmis
á Síðunni og undir Eyjafjöll-
um. Einkennilega fallegt sagði
Kjartan að væri í Svínafelli og
Skaftafelli i Öræfum — að ó-
gleymdum Bæjarstaðaskógi.
Munu í þeim skógi vera stærst
og fegurst tré hér á landi, því
fjöldi þeirra er 14—15 álnir á
hæð. (Bæjarstaðaskógur er rétt
austan við Skeiðarárjökul).
Yötnin eru á leið þessari, svo
sem kunnugt er, bæði mörg
og ill, og i sumar hafa allar
jökulár, bæði norðanlands og
sunnan verið sérlega ógreiðar
yfirferðar, valda þvi hinir miklu
liitar sem í sumar hafa verið
um land alt (þó ekki hafi verið
sólskinið hér sunnanlands) sbr.
engin íönn í Henglinum, ein i
Esjunni. Þeir félagar urðu því,
auk Jökulsár á Breiðamerkui’-
sandi, sem altaf er farin á jökli,
að fara Skeiðará á jökli.
Þeir hittu mjög gestrisið fólk
alla leið, sagði Kjartan.
Gátan erfiðari.
Sigríður: Getið þér ráðið
þessa gátu? Hvað er það sem
mjálmar og lepur mjólk, og
heíir vængi á rófunni?
Jón: Eg hefði sagt að það
væri köttur, ef það væri ekki
vængirnir.
Sigriður: Það er lika köttur,
ég lét bara vængina á hann til
þess að gera gátuna erfiðari!
Jón: Nú, einmitt! Segið mér
þá hvað það er, sem ég nota
á hverjum morgni, en stendur
á nóttunni undir rúminu mínu
og er með hanka?
Sigríður: Bölvaður dóni getið
þér verið!
Jón : Dóni? Eg held nú ekki.
Það eru morgunskórnir minir;
ég lét bara hankann á þá til þess
að gera gátuna erfiðari!
Lúther, djöfullinn og
galdrabrennurnar.
Við siðabót Lúthers varð
mikil breyting á því hvernig
menn litu á djöfulinn. Fyrir
daga Lúthers var djöfullinn og
árar hans álitnir heldur lieimsk-
ir, og vandalaust talið að forð-
ast þá; en Lúther kendi að
djöfullinn væri voldugur andi
— fram undir það eins vold-
ugur og guð — og að menn-
irnir væru í sífeldri hættu, er
stafaði af fjandanum sjálfum
og árum hans. Helst þessi
hræðsla við djöfulinn að sumu
leyti enn í dag, en mjög er
hún nú rénuð.
Ein aíleiðing af þessari nýju
skoðun á fjandanum var af-
skapleg hræðsla við galdra, og
leiddu af því aftur galdrabrenn-
urnar illræmdu. Mörg þúsund
manns brendir hér í álfu fyrir
galdra, og voru meira að segja
yfir 20 manns — mest karl-
menn — brendir hér á landi.
Það er auðséð á þjóðsögun-
um um Sæmund fróða og
Ivölska, að þær hafa orðið til
fyrir siðabótina — auðséð á
því, hve auðveldlega Sæmund-
ur er látinn leika á Kölska.
Snjóað í Esjuna.
Um daginn þegar það frétt-
ist, að Heimastjórnarmenn
hefðu Jón Magnússon og Knút
Zimsen í kjöri, snjóaði litið eitt
í Esjuna.
Það var einkennileg tilviljun,
að þeir skyldu byrja báðir á
sömu stundu: sá gamli i Horn-
grýti, að hóa saman sínum
gemlingum, og Pétur Zóphón-
íasson, að smala hinum mörgu
frávillingum Heimastjórnarliðs-
ins i Reykjavík.
Merkilegt verkfæri
er það, sem Þorsteinn Sigurðs-
son í Litlu búðinni selur. Það
er brúkað við gólfþvott og þarf
maður ekki að væta hendurn-
ar ef það er notað. Segir Þor-
steinn, að sú húsmóðir, sem
cigi svona verkfæri, þurfi enga
vinnukonu — já, jafnvel ef
verkfæri þetta verði endurbætt
lítilsháttar, þá þurfi kvenfólks-
ins ekki lengur við — nema
þá til þess að kjósa A-listann
vegna frú Bríetar, og svo bara
til þess að vera upp á »stáss«.
Þorsteinn auglýsir verkfæri
þetta í »Morgunblaðinu« og er
vis til þess að segja, að það sé
það eina læsilega, sem lengi
hafi staðið í því blaði, þrátt
fyrir hinar mörgu góðu grein-
ar, er það blað hefir ílutt um
pollinn á gangstéttinni framan
við Nýja Land og um sliið í
Tjörninni.