Dagsbrún - 13.10.1916, Blaðsíða 1
DAGSBRÚN
BLAÐ JAFNAÐARMANNA
GEFIN CT MEÐ STYRK NOKKURRA IÐNAÐAR- OG VERKMANNAFÉLAGA RITSTJÓRI OG ÁBYRGÐARMAÐGR: ÓLAFCR FRIÐRIKSSON
POLIDEKKI
RANQINDI
FREMJIÐ EKKI
RANGINDI
— -
37. tbl.
Reykjavlk, föstudaginn
1 3. október.
1916.
Stjórn og stefna þjóðarskipsins.
Ef að við værum stödd
nokkur hundruð mílur út á
regin haíi, á skipi, sem við
ættum sjálf, þá mundum við
kjósa nokkra menn til þess að
stjórna skipinu, og stýra því til
lands. En mundum við láta
þá algert ráða til hvaða lands
væri farið? Mundum við láta
þá ráða hvort þeir sigldu okkur
til lands, þar sem við ættum
að vinna fyrir lágu kaupi, en
þó bera þungann af sköttunum,
eða hvort þeir héldu sldpinu
til þess lands, þar sem þeir
borga skattana sem borgað
geta ?
Allir með fullu viti munu
svara: Við ákveðum sjálfir, til
hvaða lands er haldið — hvert
stefna skal — og kjósum þá menn
sem við höfum traust á, til
þess að stýra eftir þeirri stefnu.
En er það nú þessi aðferð
sem við höfum, við sem erum
á íslenzka þjóðarskipinu ? Nei,
síður en svo! Við kjósum menn
til þess að stjórna því, sem ein-
hver Ijómi stendur af eða dýrð,
annaðhvort af því þeir eru
embættismenn eða efnamenn
og látum þá ráða, hvert haldið
er! Og hver er svo árangurinn
af stjórn þessara manna? Hvert
hata þeir stýrt skipinu í þessi
liðlega 40 ár, sem við íslend-
ingar höfum haft sjálfstjórn?
Því er fljótsvarað. Þeir hafa
stýrt því þangað, sem þeim
kom bezt, en almenningi verst.
En nú tekur alþýðan sjálf
stýrisiaumana.
Leiðbeiningar við kosningarnar
I. vetrardag.
Þegar kjósandi kemur inn í
lierbergi kjörstjórnar er honum
fenginn atkvæðisseðill, og er
hann útlits eins og efri mynd-
in í næsta dálki sýnir. Er kjós-
anda þá vísað á kjörklefann,
og fer hann þangað með seðil-
inn. í kjörklefanum stimplar
kjósandinn (með stimpli, sem
þar er) yfir hvíta blettinn
h'aman við nafn þeirra tveggja
hianna, er hann vill kjósa, og
ei' seðillinn eins útlits þegar
atþýðuflokksmaður hefir kosið
eins og neðri myndin sýnir,
stlmplað framan við nöfn
Jörundar og Þorvarðar. Menn
ei'u ámintir um að þerra vel
st'mpilblekið á seðlinum, svo
ekki klessist þegar þeir leggja
hann saman. Sömuleiðis er
Kjörseðillinn, sem kjósanda er afhentur, lítur þannig út:
Jón Magnússon
Jörundur Brynjólfsson
Knud Zimsen
Magnús Th. S. Blöndahl
Sveinn Björnsson
Porvarður Porvarðsson
En þannig þegar Alþýðuflokksmaður hefir kosið (stimplað yfir
hvítu blettina fyrir framan nöfn Jörundar og Þorvarðar):
Jón Magnússon
Jörundur Brynjólfsson
Ivnud Zimsen
Magnús Th. S. Blöndahl
Sveinn Björnsson
Porvarður Borvarðsson
kjósendum bent á, að þeir geta
skilað kjörstjórninni seðlinum
aftur, og fengið annan, ef hann
ónýtist hjá þeim, eða þeir af
vangá slimpla við aðra menn
en þeir ætluðu að kjósa.
Að lokinni kosningu leggur
kjósandi kjörseðilinn aftur í
sama brot og stingur honum
í atkvæðakassann.
Þeir sem þess óska geta fengið
einhvern úr kjörstjörninni til
að aðstoða sig við kosninguna.
Akureyri.
Hver kosinn verður á Akur-
eyri er enn óvíst, en hitt er
hinsvegar áreiðanlegt, að það
verður ekki Sigurður dýralœkn-
ir. Það er þvi bein skylda Sig-
urðar eftir þvi sem nú stend-
ur á, að draga sig í hlé, ef það
er alvara hans að ætla sér að
fylgja flokki óháðra bænda.
Þvi þó sá flokkur, og Alþýðu-
flokkurinn séu í ýmsu andstæð-
ir, þá er þó takmark þeirra
beggja að koma valdinu í hend-
ur almennings, og jafnframt,
að koma á eðlilegri flokkaskifi-
ingu.
Þess vegna:
Sigurður Einarsson dýra-
læknir verður seinni tímans
vegna að draga sig i hlé nú.
En geri hann það ekki verða
þeir sem ætluðu sér að kjósa
hann að taka i taumana.
Peir sem stimpla við nafn
Sigurðar, eins og nú er ástatt,
stuðla að kosningu Magnúsar
Kristjánssonar.
Af sem áður var.
Það var sú tíðin, að Tryggvi
gamli Gunnarsson mátti sín
nokkurs í Heimastjórnarflokkn-
um, en nú má sannarlega segja,
að af sé það, sem áður var. í
35. tbl. Dagsbrúnar var skýrt
frá því, hvernig Tryggvi gamli
á einum fundinum, sem Heima-
stjórnarmenn héldu til þess að
rifast og skammast innbyrðis
um það, hverjir æltu að verða
i boði af þeirra hálfu við þing-
kosningarnar, mólmœlti því ein-
dregið, að það yrðu þeir Jón
Magnússon og Knud Zimsen,
af því hvorugur mætti vera að
þvi. En orð Tryggva gamla
voru ekki metin neins. Hinn
nýi harðvítugi foringi Heima-
stjórnarmanna, Jón Þorláksson
landsverkfræðingur, sem búinn
er að taka ráðin af Hannesi