Fréttir

Tölublað

Fréttir - 02.09.1918, Blaðsíða 3

Fréttir - 02.09.1918, Blaðsíða 3
FRETTIR 3 Símfréttir. Opinberar símskýrslur. I. Loítskeyti frá París. 31. ágúst kl. 15. Hernaðaraðstaðan á vígstöðvum Frakka: í nótt var áköf stór- skotahríð við Canal du Nord fyrir norðan Noyon og milli Aillette og Aisne. Stór gagnáhlaup Þjóðverja í Champagne hafa ekki borið neinn árangur. 1. sept. kl. 0.05. í gær hélt orrustu áfram með afskaplegu mannfalli i grend við Canal du Nord og fyrir norðan Soissons. Hersveitir Frakka hafa sótt á smátt og smátt og tekið stöðvar hverja á fætur annari, er Þjóðverjar hafa varið með mestu hreysti. Frakkar háfa haldið áfram sókninni í Champagne á bökkunum við skurðinn. Áhlaup Pjóðverja hafa verið sérstaklega grimmúðug hjá Chevilly-þorpi, sem nú er loks algerlega á voru valdi, eftir að Þjóð- verjar hafa tekið það aftur tvisvar. Frakkar hafa tekið 200 fanga. Frakkar hafa enn af nýju tekið svæði af Þjóðverjum fyrir norðan Happlincoðrt og Morlincourt. — Fyrir norðan Soissons hafa Frakkar tekið Juvigny og Crouy, og ráðist á Lisieres fyrir vestan Leury. II. Loftskeyti frá Berlín. 31. ágúst kl. 23. Fyrir sunnan Arras hafa áhlaup Breta mishepnast. Barist er fyrir norðan Somme. Beggjamegin við Noyon og milli Oise og Aisne hafa Frakkar hafið áhlaup síðdegis í gær eftir hina grimmustu stórskotahríð. Opinber símskýrsla frá Wien s. d. segir: í Judicarien á itölsku vígstöðvunum hafa njósnarliðssveitir vorar unnið vel á. Majo-fjall fyrir austan Tasubio var í gær um tíma á valdi óvin- anna. Varnarlið vort varð að hörfa fyrir meira en tveggja klukku- stunda stórskotahrið og skotgrafaeldi og tókst ítölum þannig að kom- ast í skotgraflr vorar. Kom oss þá ýmiskonar liðstyrkur, svo vér gátum rekið óvinina aftur af höndum oss eftir harða viðureign. Féllu þar 200 manns af ítölum, en um 100 voru teknir höndum. Frá Albaníu ekkert nýtt að frétta. Fréttir. Kosta 5 anra eintakið i lausasölu. Fyrir fasta kaupendur 1 kr. á mánnði, Auglýsingaverð: 50 aura hver centimeter í dálki, miðað við Qórdálka blaðsíður. Algreiðsla í Austur- Stræti 18, sími 316. Yið anglýsingnm er tekið á af- greiðsinnni og í prentsm. Gntenberg. Útgefandi: Félag í Reykjavtk. Ritstjóri: Guðm. Gnðmundsson, slltilcí. Sími 448. Pósthólf 286. Viðtalstími venjulega kl. 4—5 virka daga á Óðinsg. 8 B uppi á lofti. (Framhald af 1. siðu.) Alþingis, og móti því komi trygg- ing gegn álögum yfirvofandi skatta- löggjafar. Að öðru leyti hafa smám saman fyrirætlanir þessar vaxið mjög. Svo sem fyrr er sagt, á að leggja ýmsar járnbrautir, t. d. frá Reykja- vík til Þingvallavatns, þar sem afl- stöðin á að standa, og aðra járn- braut norður. Viðsvegar á að setja aflstöðvar, sem ýmist eiga að fram- leiða strauma til þess að nota sem aflgjafa í saltpétursverksmiðju fé- lagsins, eða veita aflstraum til ýmissra íslenzkra fyrirtækja, eða lýsa og hita íslenzka bæi. Elds- neytisskortur vofir þar mjög ýfir, og á því meini á að reyna að ráða bót með rafmagni; getur það orðið óvenjulega þ5rðingarmikið fyrir ísland í mörgu tilliti að raf- magn verði notað þar. Undirbúnings er þegar tekið til og í sumar verður honum senni- lega lokið.« Svo mörg eru þau orð! Hvað er í Iréttum? Sterling kom í gærkvöldi. Meðal farþega voru þingmennirnir Björn Kristj- ánsson bankastj., Jón á Hvanná, Þorst. M. Jónsson, Pétur Jónsson, Einar Árnason, Magnús Kristjánss., Björn Stefánsson, Sigurjón Frið- jónsson og Sigurður Jónsson ráð- herra með frú. Enn fremur Kristján Jónsson dómstjóri, Vigfús Einars- son stjórnarráðsfulltrúi og frú, Einar Kvaran rithöf. og frú, Egg- ert Briem frá Viðey, Sigurður Gunnarsson præp. hon. og dóttir hans, Þorsteinn Jónsson kaupm. og frú, Karl Guðmundss. kaupm. Stöðvarfirði, frú Hansen frá Seyð- isfirði, ungfrúrnar Annie Helgason, Snorra Benediktsdóttir, Ásta Sig- bvatsdóttir, Kristjana Pétursdóttir, Aðalbjörg Sigurðardóttir frá Akur- eyri, Louisa NorðQörð og Elín Krisljánsdóttir, frú María kona Hallgr. Kristjánssonar, Ólafur Ó. Lárusson læknir, Sig. Ó. Lárusson cand., Sigurjón Markússon sýslu- maður, Guðm. Vilhjálmsson, Árni óla blaðamaður, Óskar Jónsson Jón Sigurjónsson og Jón Þórðarson prentarar, Pétur Bóasson, Felix Guðinundsson, Kristján Blöndal frá Sauðahvoli, húsfrú Margrét Jónsdóttir frá Höskuldsstöðum og húsfrú Guðlaug Pálsdóttir frá Gils- árstekk, dr. Alexander Jóhannes- son o. m. fi. Síldveiðin er að glæðast á ísafirði. V/b. ísleifur kom í gærmorgun með 150 tn. í herpinót, og 7 bátar smærri og stærri með 30—100 tn. hver úr reknetum. Veiðst hefur í rek- net talsvert undanfarna daga. Nýtt aettarnafn. Páll Guðinundsson stud. med. frá Torfalæk á Kolkumýrum (þ. e. Ásum í Húnavatnss.) hefur fengið stjórnarráðsstaðfestingu á ættar- nafninu Kolka. Alþingi verður sett í dag kl. 1 e. h. Yillemoes fór á laugardaginn áleiðis til Ameríku. Landstjarnan Eigandi hennar kaupm. P. P. J. Gunnarsson hefur beðið blaðið um að geta þess við lesendur sína, til að fyrirbyggja misskilning út af auglýsingu, er blaðið flutti á dög- unum frá téðri verzlun, að ástæðan fyrir því, að verzluninni var visað á dyr, sé þessi: Verzlunin hefur verið rekin á »Hótel ísland« í rúm sex ár og hefur náð óvenju mikilli almenn- ingshylli, hafði sem sagt »komið sér svo vel« við sina viðskiftavini, að hinn nýi meðeigandi Hótel ís- lands, hr. R. P. Levi, lét ekki standa á sér að visa þessum keppi- naut sínum á dyr strax er leigu- samningurinn var úti. t*essi djúpvitra herkænska stétt- arbróðursins verður þó væntanlega „ Hugfró” Laugaveg 34. Sími 739. Selur í fjölbreyttu úrvali: Tóbaksvörur. Sælgæti, fiosdrykki, ÖI, Rey kj arpípur, Tóbakspuiiga, o. m. fl. Verð hvergi lægra. Vörur sendar heim. ekki til þess, að landsljarnan hverfi úr sögunni að sinni. Mjólkin í bænum. Vikuna sem leið hefur mjólkin farið talsvert'minkandi í bænum. Búðirnar hafa hafa haft á boðstól- um sem svarar 1000 lítrum á dag, suma dagana lítið eitt meira og aðra dagana minna. Mjólk kemur nokkur ofan af Kjalarnesi, en sá flutningur er stopull og kemur suma dagana ekkert þaðan. Af- gangur mun hafa orðið dálítill a£ mjólk i fyrstu, en nú er hann orðinn mjög lítill, þegar búið er að kaupa út á seðlana, og stopull er þessi afgangur vegna þess, hvað mjólkurframleiðslan er misjöfn. Síldin. Svo er sagl að á ísafirði hafi komið á land um 17 þús. tunnur af sild í sumar. Bibsberjavöxtur er alveg óvenju mikill í sumar. Eru berjaklasarnir nú sem óðast að roðna og þroskast. Stingur þetta mjög í stúf við gróðurbrestinn á öðrum sviðum á þessu sumri. — Ef til vill mun garðræktin heppn- ast vonun\ fremur, enn ekki er það fullséð enn. Kornvörn- og sybnrseðlnm er nú útbýtt þessa dagana á seðlaskrifstofunni og gilda þeir til ársloka. Steinolíuseðlum er líka úthlutað er gilda í 6 mánuði, þ. e. frá 1. þ. m, til feb/úarloka næsta ár. Gamla brauðseðla má nota á meðan á skiftunum stendur eða þangað til á föstudaginn núna í vikunni, en þann dag skulu menn hafa sótt sér nýja seðla og skilað hinum gömlu.

x

Fréttir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttir
https://timarit.is/publication/179

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.