Frækorn - 01.10.1901, Qupperneq 4

Frækorn - 01.10.1901, Qupperneq 4
148 F R Æ K 0 R N. frumatriðum kenningarinnar vm Krist. „Þess vegna viljum vér sleppa, að útlista fyrsta grundvöll Krists lær- dóms, og halda áfram til þess, sem fullkomnara er, að ekki förum vér aftur að leggja gi undvöllinn til lær- dómsins um afturhvarí frá dauðum verkum, um trúna á guð, um lær- dóm skírnarinnar, handanna uppá- leggingu, upprisu hinna dauðu og hinn eilífa dóm„ (Hebr.6,1.2.). Post- ulinn vill ekki útlista þessi kenning- aratriði nákvæmar hér, því að bræð- urnir, sem bréfið var skrifað til, höfðu haft næg tækifæri til að kynna sér þau áður. Lærdómur skírnarinn- ar er eftir þessu kristilegur lær- dómur, sem allir verða að tileinka sér, engu síður en lærdóminn um afturhvarf og trú. Það er því augljós skylda vor, að kynna oss kenningu ritningarinnar um skírnina, og nota bibliuna, sem hinn eina rétta leiðarvísi til að fara eftir, þegar um ágreining um þetta atriði er að ræða. Postulinn nefnir hér fyrst afturhvarf og trú, því næst skírn og handauppáleggingu, og að siðustu upprisu dauðra og hinn eilífa dóm, og í þessari röð koma þessi atriði stöðugt í biblíunni og hinum fyrstu kristnu söfnuðum. Upprisan og dómurinn geta ekki komið und- an trúnni, og skírnin getur það ekki heldur, eigi hún að vera í samræmí við guðs opinberaða orð. Skírðir til fylqdar við Móses. „Pví eg vil ekki dylja fyrír yður, bræður, að feður vorir voru allir undir ský- inu, og að þeir allir fóru yfir um hafið, og voru til fylgdar við Móses, allir skírðir í skýinu og hafinu“ (1. Kor, 10,1.2.). Hér er skírnin notuð til að útskýra stöðu ísraelsmanna í rauða hafinu, þegar Móses leiddi þá yfir um það. Þeir voru „undir ský- inu“, þegar þeir gengu gegnum hafið; þeir voru þannig umkringdir af vatni á allar hliðar, og eftir að þeir stigu upp úr hafinu fylgdu þeir Móses sem leiðtoga sínum. Pannig á einnig sérhver trúaður maður að stíga upp úr skírnarlauginni til þess að fylgja Kristi. L.eó Tolstoy. Tolstoy greifi er ef til vill merk- asti rithöfundur nútímans, og sem mann má telja hann meðal hinna mestu, sem hafa verið uppi. Hér viijum vér stuttlega minnast ásöguhans. Hannerfæddur28. ág. 1828 og er því fullra 70 ára. Snemma missti hann foreldra sína, en hann ólst upp hjá ættingjum sín- um og fekk góða menntun. Varla hefur nokkrum á yngri árum hans komið til hugar, að hann myndi verða það sem hann varð. Ekki ber

x

Frækorn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Frækorn
https://timarit.is/publication/181

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.