Frækorn - 30.01.1903, Blaðsíða 1

Frækorn - 30.01.1903, Blaðsíða 1
FRÆKORN. HEIMILISBLAÐ MEÐ MYNDUM -------FF------- RITSTJÓRl: DAVID ÖSTLUND. 4. árgangur. Seyðisfirði, 30. jan. 1903. 2. tölublað. Hin »hærri kritík* Eftir séra Runólf Marteinsson. : .. ; . ■ l . í« II. Að mcnn hafi rétt til ]>ess að rann- saka biblíuna eins og hverja aðra bók, hljótum vér að játa. Þótt vér vildum leyna henni fyrir »rannsóknarréttinum«, gætum vér það ekki. Biblían liggur opin fyrir öllum mönnum, og hverjum manni er frjálst að kveða upt> yfir henni dóm. En sökum þess hún liggur þannig opin fyrir öllum mönnum, af öllum flokk- um og með allskonar hugsunarhætti, verða dómarnir margir ranglátir. Þeir verða margir, sem dæma án þess þeir beri nokkra virðing fyrir hinni helgu bók, margir, sem rangfæra og hártoga, margir, sem tæta í sundur af hégómagirni, halda því fram, sem þeim finnst bezt muni sýna hugsunarafl þeirra sjálfra. Að þetta skuli vera svo, er slæmt, en þó óhjá- kvæmilegt, í heimi þessum hínum ófull- komna og syndspillta, þar semjafnvel hið helgasta er af sumum troðið niður í saurinn. Biblían verður því að sæta sömu kjörum og allt annað. Jafnvel hún verður að þola mótmæli og háð. Sann- leikurinn þarf ekki að vera hræddur við rannsókn, þrátt íyrir það, þótt oft hafi það komi fyrir, á sérstökum timabilum, að hann hafi verið bældur niður. En yfir höfuð má segja, að því ítarlegri sem rannsóknin er, því minni hætta er sann- leikanum búin; og það eitt er vist, að sannleikurinn ber sigur úr býtum að síð- ustu. Fyrir framtíðina höfum vér því ekkert að hræðast frá »hærri kritíkinni*; en fyrir þetta tímabil, sem stendur yfir, getur vel verið hætta, sú nefnilega, að menn aðhyllist lygi, vegna þess hún virðist helzt vera ofan á nú sem stendur. Vér verðum aliir að vara oss á því, að »laga ots eftir öld þesssri«. Þvi sem í dag þykist standa sem sannleikur, verður á morgun ef til vill kastað í eld sem lyg'- Þrátt fyrir allt þetta getum vér ekki lagt fram bann gegn nokkrum manni, sem vill rannsaka. Andi mannsins hlýtur ætið að vera frjáls. Frjálsræðið er mannsins eign frá upphafi, sú eign frá drottni,sem aldrei verður tekin burtu. Guð vildi heldur láta mannkynið allt falla í synd en taka þessa gjöf frá því. Það sem guð ekki gjörði í fyrstu, þa§ megum vér ekki gjöra nú, þó vér sjáum, að einmitt fyrir þetta frjálsræði falla margir í villu. Svo megum vér ekki gleyma þvf, að drottinn stendur á bak við rás viðburð- anna í heiminum, að hann framleiðir gott jafnvel af hinu illa. I hans hendi verður »hærri kritíkin« eflaust til þess að leiða í Ijós einhver sannind', sem áður voru hulin eða fram hjá var geingið. Ekki verður því heldur neitað, að í sambandi við biblíuna er margt, sem nauðsynlegt er að rannsaka, margt sem þarf að skýrast, margt, sem hinn óþreyt- andi mannsandi getur réttilega glímt við. En að þetta sé unnið nær því eingöngu af mönnnm hinnar »hærri kritíkar«, eins og haldið er fram af þeim, sem mælt hafa með þeirri stefnu í'^riti á íslenzku,

x

Frækorn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Frækorn
https://timarit.is/publication/181

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.