Frækorn - 31.12.1903, Page 1

Frækorn - 31.12.1903, Page 1
FRÆKORN. HEIIVULISBLAÐ MEÐ MYNDUM RITSTJÓRI: DAVID ÖSTLUND. 4. ársansfur. Seyðisfirði 31. des. 1903. 24. tölublað. Sáttamál. Sbr. »Fridsröster« eftir Esaias Tegnér. ^AA/A/vv- ,P i ínnir þú í heimsíns háttum . hroka, metnað, svik og prett, sjáir þú í öllum áttum aflið fella lög og rétt; bruggi þræll í búri sínu banaráð og fólskusið; gjörðu borg í brjósti þínu, bjóð svo öllum heimi grið. Þú, sem boðar hefnd af hæðum, himins skaltu forðast nafn, hann er fullur friðargæðum, faðmar hann ei lífsins safn? nefn ei Drottins háðargrunna, náðin Guðs er þér of há; eilíf djúp hans ástarbrunna engin speki veit né sá. Þegar sólin ijúfa lauga lög og storð með gulli fer, gleymdu hatri, hlýrnis auga hjartarætur þínar sér. Og er fögur aftanstjarna ofan stafar frið og trú, allri gremju aðgangs varna eins og vondum nætursúg. Hvað mun þýða, hvað menn kalla, hann, sem föður nefnum vér ? tímans hlutföll hljóta’ að falla, hitt, ’ið æðsta, stöðugt er. Munu vitrings frægðar-fræði, föstum rökum sett og tryggð, bjóða hærri himna gæði heimskingjanna trú og dyggð? Dæm ei fljótt þinn fallna bróður, fyr en allt hans mál cr sagt, vertú jafnan veikum góður, veiztu hvað á hann er lagt? veiztu hvað hans vörnum líður? varði’ hann aldrei sæmd og dyggð ? veiztu hvaða böl hann bíður, blygð og angur, smán og styggð ? Send oss, góði Guð og faðir, gæðin, sem oss hefur dreymt; lít í náð á lýða raðir, lýs þeim, er þér hafa gleymt. Skýrðu fögru friðarorðin — full er jörðin enn með blóð - : dýrð sé Guði, gleðjist storðin, góður vilji hverri þjóð!

x

Frækorn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Frækorn
https://timarit.is/publication/181

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.