Frækorn - 31.12.1903, Page 1

Frækorn - 31.12.1903, Page 1
IV, ?$• 31- desember. 1903. V IÐ ÁRAMÓTIN. Spp, upp, þú sól, af svölum straumi og singdu tímans nýja hring; upp, upp, þú sál, af dvala-draumi og dýrðar-ljóð af hjarta syng; upp, upp, af svefni, sérhvert strá, að sólin guðs þér lýsi há! Og fokstrá lífs um foldu kalda, sem feykist laus um hjarn og grjót, því glepjist þér af glaumi alda og gleymið yðar sönnu rót? O, treystið aldrei tímans sjó, en trúið ljóssins helgu ró. En þó er öllu æðri’ og hærri sú andans mikla nýárs-sól, sem birtist enn í skuggsjá skærrt og skrifar „guð“ á tímans hjól. Við hennar sprettur heilög spor, á hjarni tímans eilíft vor. Ei laufblað finnst í lífsins garði, þú Ijósa ljós, sem ei þú sér; ei týnist korn af andans arði og ekkert fokstrá hverfur þér. Pig felur aldrei fold né sær; hver fífill þinn um eilífð grær. Hve fagrir eru fætur þínir, þú friðar-boði, máttug sól! þú strgur fram og kransi krýnir hvert kulda-strá, sem jörðin ól, og himinskarti björtu býrð, hvert blóm er veröld full af dýrð. Stíg hátt, stíg hátt á himinboga, þú heilög sól, af tímans nótt, og láttu andans loga loga, svo lífið fái nýjan þrótt; gjör alla menn að einni hjörð; gjör Eden guðs úr vorri jörð! M. J.

x

Frækorn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Frækorn
https://timarit.is/publication/181

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.