Frækorn - 31.12.1903, Page 4

Frækorn - 31.12.1903, Page 4
IrKÆKOKN. LOFSVERT FYRIRTÆKI. l@6 9PEKI DROTTINS. Ágústín kirkjufaðir var einu sinni á gangi á sjávarströndinni í djúpum hugsunum um þrenningarlærdóminn; þá kom hann auga á dáh'tinn drenghnokka í fjörunni, sem var að bera sjó í skel, og helti honum niður í holu, sem hann hafði grafið í sandinn. „Hvers vegna gerirþú þetta, drengur minn?" sagði Ágústfn við dTenginn. „Eg ætla að heffa öllum sjónum niður í hoI<- una þá arna," sagði drengurinn. Ágústín var næstu.m ferinn að segja: Æ, aumingja einfekinmgurinn, en þá ruddi þessi hugsun sér tit rúms í huga hans: „Þú heimskingif Hvað gerir þú? ímyndar þú þér, að þú skiljir eðli ogfullkomleika hinnar eilífu veru?» ■■ (&&<> HVERNLG Á AÐ PRÉDIKA? Dr. Cuyler segir, að frægur málaflutnings- maður og lögfræðingur i Fíladelfíu hafi einu- sinni átt tal við sig á þessa leið: „ Eg geng ekki í kirkju til þess, að sækja mér þangað t-orskilda lærdóma eða heimspeki- legar hugmyndir og rannsóknir, heldur kem eg þangað til þess að finna endumæringu og huggun hjarta mínu og mér til sálubótar. Aðalatriðin eru tvö, sem hver prédikari verð- ur að hafa hugföst; þau eru: ljós og einföld framsetning á sannleika náðarboðskaparins, og að hann sé fluttur af krafti án allrar hálfvelgju. Menn verða að sjá og finna, að prédikarinn lifi samkvæmt kenningn sinni og trúi því, sem hann prédikar." Dr. Cuyler segir ennfremur: „i>ótt þessi orð væri ekki fleiri, voru þau mér samt mjög lærdómsrík og hvöttu mig mikið f starfi rnínu." — „Vezlunarmannafélag Seyðisfjarðar" hefur ný- Iega sett á stofn hér í kaupstaðnum aurasjóð handa börnum og unglingum. Aðallega hefur herra verzlunarm. Marteinn Bjarnason verið hvetjandi til þessa fyrirtækis. Tilgangurinn er „að glæða spamaðarhugsun hjá bömum og unglingum í Seyðisfjarðarkaupstað og grennd." Aurasjóðurinn tekur á móti hve lítilli upphæð sem er og ávaxtar hana með sömu kjörum og sparisfóður Seyðisfjarðarkawpstaðar. Umsjón með sjóðnum hefur verzhinarmannafélagið. Sem jóiagjöf fengu um 100 af börnum bæj- arins aurasjóðsbók með innlagðri einni krónu. Verzlunarmannafélagið og kvennfélagið „Kvik" lögðu ? sameiningu fé þetta fram. ÖLLUM LESENDUM „FRÆKORNA" nær og fjær, þökkum vér fyrir Iiðna árið og alla velvild, sem blaðinu hefur verið sýnd. Upplag blaðsins — 1500 — reyndist ófull- nægjandi. Síðari hluta ársins komu svo margir nýir áskrifendur, að vér urðum að hækka ein- takafjöldann upp í 2000. Þetta gleður oss innilega og hvetur oss til þess að gera blaðið æ betur og betur úr garði. Fyrir aðstoð ýmsra til að rita I blaðið þökkum vér einnig. Vér viljum óska og vona, að hinir góðu kaupendur geri sitt framvegis fyrir útbreiðslu blaðsins. Að lokum eitt innilegt: „Gleðilegtnýár" til allra lesenda og vina blaðsins. Blað þetta, sem nú kemur út við áramótin, hefði átt að koma út fyrir jólin. Ofyrirsjáan- leg atvik öftruðu því, og eru menn beðnir að virða það á betri veg. Utg. Prentsmiðja Seyðisfjarðar'

x

Frækorn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Frækorn
https://timarit.is/publication/181

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.