Frækorn - 25.05.1908, Page 1

Frækorn - 25.05.1908, Page 1
HEIMÍLISBLAÓ MEÐ MYNDUM RITSTJORI: DAVID OSTLUND 9. arðangur. Reykjaník 25. maí 190$. 12. tölublað. F5ií — á síðan. Talmage. xPví að nú sjáum vér gegnum gler, í ráðgátu, en á síðan augliti til auglitis.« 1. Kor. 13, 12. Furðulegust allra bóka er bókin guðs. Hún getur veitt friðlausu hjarta mínu livíld og frið, eins og vögguljóð geta huggað barnið, sem grætur. Hún er eins beitt eins og tvíeggjað sverð og eins kraftmikil og reiðarslag, og hún er við allra hæfi — gamalla og ungra. Hún er dásamleg bók. Ekkert æsir þessvegna tilfinning- ar vorar eins og ef einhver lítils- virðir biblíuna. Hún hefir verið oss svo óendanlega dýrrnæt á lið- inni æfi vorri, og hún mun verða oss enn dýrmætari á ókomnum stundum. Eg finn, að eg mundi vilja gjöra sama við biblíuna mína og eg sá mann nýlega gjöra við biblíuna sína í járnbrautarvagni. Pá er hann var seztur niður, tók hann hana upp úr vasa sínum og fór að lesa í henni. Eftir stundarlest- Ur lét liann hana aftur, kysti hana og iét hana svo gætilega i vasa sinn. Mig furðaði alls ekkert á því, að hann skyldi kyssa jafnmik- j inn dýrgrip. Til eru menn þús- undum saman er við umhugsun alls þess, sem biblían hefir verið þeim og sagt þeim um dýrð ann- ars lífs, mundu vilja þrýsta henni að vörum sínum og hjarta sínu. »En nú sjáum vér gegnum gler, í ráðgátu, en á síðan augliti til aug- litis.« F*etta er sannleikur að því er hugsanir vorar um guð snertir. Vér gjörum oss hugmynd um hann, vér hugsum um hann; en hve ó- ljósar og ófullkomnar eru hugsan- ir vorar og hugmyndir um hann í sambandi við hina miklu og sælu veru. Pað er ef til vill mynd á veggn- um hjá þér, sem á að tákna vor- morgun. Ef þú skoðar myndina, þegar þoka er og kuldanepja, þá hressist þú af því. Skýjaslæðurn- ar, grængresið með glitrandi dagg- ardropunum, skógurinn og vatnið — alt þetta hefir góð og fjörgandi á- hrif á þig. Litmyndin er fögur og vel máluð. En morguninn eft- ir fer þú snemma á fætur; þú gengur út og fer upp á hæð, til að njóta sólaruppkomunnar. En sú sjón. Sólin steypir gullnu geisla- dýrðinni sinni yfir láð og lög, yfir fjöll og dali. Hrifinn af öllu því, er fyrir augu þín ber, heldur þú svo heimleiðis. Daggarperlurnar glitra í grasinu og í skógunum og annarstaðar syngja fuglarnir hóp- um saman skaparanum lof og dýrð. Pú gengur inn í herbergi þitt og gáir að litmyndinni á veggnum. »Detta er góð mynd«, segir þú; »það er ágæt líking eftir vormorgni, en hvað er hún á við það, sem eg sá áðan.« í biblíunni eigum vér, ef svo mætti að orði komast, mynd af guði. Vér höfum yndi af að horfa á hana, því að hún gleður hjarta vort. En er vér stöndum frammi fyrir honum á hitnnum, þá mun- um vér segja: »Vér áttum mynd af honum á jörðunni; en nú sjá- um vér hann sjálfan, augliti til auglitis.« Petta er einnig sannleikur að því er snertir þekkingu vora á drotni vorum Jesú Kristi og endurlausn- arverki lians. Vér tölum um kær- leik hans, líkn hans, ástúð hans, píslir hans, dauða hans, upprisu hans og endurkomu. En hve lítið þekkjutn vér hann þó í samanburði við það, sem verða mun, er vér sjáum hann í allri dýrð hans — »augliti til auglitis.«

x

Frækorn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Frækorn
https://timarit.is/publication/181

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.