Frækorn - 01.09.1912, Qupperneq 6
54
F R Æ K O R N
Biblíu-tölvísi.
Án tölu er ekki hægt að hugsa
sjer hvorki verk nje orð. »Vegur
guðs erlýtalaus« (Sál. 18,30). »Lög-
mál drottins er lýtalaust® (Sál. 19, 8).
Öll guðs verk eru gjörð, og öll
hans orð töluð og rituð, á rjettan
hátr, á rjettum tíma, í rjettri röð og
í rjettri tölu.
»Hann ákveður tölu stjarnanna*
(Sál. 147,4).
»Hann . . . leiðir út her þeirra
með tö!u«. (Es. 40,26).
»Hann ákvað þunga vindarins«
(Job. 28,25).
í þessari ritgjörð ætlum vjer stutt-
lega dvelja við tölur þær í ritning-
unni sem sjerstaka þýóingu hafa og
kallast mættu »heilagar tölur«. Meðal
þeirra verður fyrst og fremst nefnd
Sjötalan.
Hún mætir oss á fyrstu blaði biblí-
unnar, þar sem sagt er frá sköpun
alls á 6 dögnm, og að hinn 7. er
settur til minningar þessa verks.
Með því að ♦hvíldardagururn erorð-
inn til mannsins vegna,« þá fellur
allur lífstími vor manna inn milli
þessara minnisdaga guðs sköpuna -
verks. Með hvíldardagsboðinu eru
allar skapaðar verur settar í óraskan-
lega afstöðu til hinnar helgu tölu,
sjötölunnar, og þar með til þess guðs,
sem hún minnir um, hins alfullkomna
og heiiaga guðs. Frh.
Orða-skraui.
Á vorum tíma er það alment, að
menn klæða prjedikanir sínar óþörfu
skrauti. Það á að vera svo skáld-
legt og háfleygt, að sannleikurinn,
hinn einfaldi sannleikur, kemst ekki
að
En þjónar drottins hafa annað að
gjöra en að fylgja slíkum sið. Vjer
eigum að standa guði reikningskap
orða vorra, eins vel og gjörða vorra,
og ef vjer höfum myrt sálir, þá
muni það ekki oss til málsbóta, að
vjer höfum gjört það með því að
blanda Iýgi og tögrum skáldskap
saman. Spurgeon.
I einkalífi manna.
Einusinni, þegar hinn mikli stjórn-
málamaður, William Oladstone, hafði
heyrt ágæta prjedikun og var að
fara úr kirkjunni, kom ungur maður
til hans og sagðist vera mjög óánægð-
ur með ræðuna. »Það er sannar-
lega of slæmt, að maður skuli vera
neyddur tíl að hlusta á slíka prje-
dikun. Þessi prjedikari ætlast blátt
áfram til að þess að trúarbrögðin
komi við einkalíf manna.« ftann
hjelt, að Gladstorie mundi vera á
sama máli. En í þessu skjátlaðist
honum. »Þetta er ræða, sem mjer
líkar«, svaradi Gladstone. »Og slíkar
ræður þarf fólk að heyra, en þær
eru sjaldnast á boðstólum.«
»Testamenti hins iög-
lausa.«
Einn vina minna lánaði mjer fyrir
nokkru Nýtt testamenti, sem er eiti-
kennilegt að því leyti, að það er
strykað undir í því víða í Galata-
brjefinu, en hvergi annarstaðar, og
er jeg spurði, hvernig á þessum ein-
kennilegu undirstrykunum stæði, var
mjer svarað, að lesarinn væri Iög-
málsneitandi og hafði lesið á sína
vísu í nýatestamentinu. Vinur minn
bað mig athuga það, sem erundir-
strykað og segja eitthvað um það.
Þetta ætla jeg að gjöra í Frækorn-
um og hugsa, að það geti vakið
umhugsun hjá einhverjum um þetta
mikilsvarðandi málefni.
I.
Fyrsta undirstrykunin var þessi.
»En með því vjer v'tum, að
maðurinn rjettlætist ekki af verkum
lögmálsins, heldur fyrir Jesu trú,
þá liöfum vjer trúað á Jesum Krist,
svo vjer rjettlættumst af trú Jesú
Krists, en ekki verkum lögmálsins,
því enginn maður mun rjettlætast
af verkum lögmálsins.« Gal. 2,16.
Það er alls ekki að hafna lög-
mál guðs, pó maður trúi af öllu
hjarta á Jesúm sjer til rjettlætingar,
Lögmálið sýnir guðs heilaga vilja,
en það getur ekki rjettlætt oss, af
því að vjer höfum brotiö það (sjá
Rórn.3,20). En í Jesú Kristi fáum
vjer af guðs náð eilíft líf (Róm. 6,23)
og það líf verður í fullu samrærni
við guðs heilaga lögrnál. (Sjá Röm.
8, 1—4. ______
Hve lengi á að sofa?
Það er erfitt að segja ákveðið um
þá spurningu. Það er að miklu leyti
komið undir því, hvertiig maðurinn
er að upplagi, og flestir cru sam-
rnála um það, að menn, sem vinna
andlega vinnu og eru taugaveikíaOir,
þurfa lengri svefntíma en þeir, sem
vinna Iíkamiega vinnu. Samt sem
áður eru dæmi af hinum mestu spek-
ingum heimsins sem aðeins þurfa
aö sofa 4 klukkustundir á sólarhringn-
um og eru þó frískir.
Hið almenna mun vera, að börn
og unglingar þurfa 8—10 kl.tíma
svefn og alment munu menn þurfa
að sofa í 7—8 tíma
Það er ekki gott að nota vekjara-
klukkur. Taugakerfið skaðast oft á
því, og það er hægt að vakna eftir
vild, ef maður aðeins æfir sig í því.
Það er mjög óheppiiegt að leggja
sig til, eftir að maöur er vaknaður