Gjallarhorn


Gjallarhorn - 30.03.1911, Síða 1

Gjallarhorn - 30.03.1911, Síða 1
Gjallarhorn. Ritstjóri: Jón Stefansson. • • «•••••• •• • •• •• • V, 15. # # # #' # ■■#- Akureyri 30. marz. -#-#•-#-#-#-#- #-#"#-#-#H -#-#-#-# # # # • • #■•#-#-## •-# #-#-#-#-#-#-#• • # ♦ #f# #'#'#H Eftii tektaiveið tíðindi! tPáskaútsalan í, 6dinborg‘ Mánudaginn 10. apríl priðjudaginn 11. apríl, miðvikudaginn 12. apríl og laugar- daginn fyrir páska, 15. apríl, verður stórkostleg útsala í „EDINB0RG“ og par selt með mjög: niöursettu verði mikið af allskonar góðum og vönduðum varningi, sérstaklega vefnaðarvöru, og ennfremur nokkuð af matvöiu. Engin húsmóðir ætti að kaupa vörur eða matvæli til páskanna, nema að hafa áður skoðað vörurnar og kynt sér verðlagið á páskaúfsolunni i ,EDINB0RG.‘ Nánari auglýsing síðar. ♦ -# # # • -#■■•# ■#■-#-< l 1911. -#-•-•-#-•-#-#-# ■•-# # # #-### # # Utan úr heimi. yUþingi. enn áfram störfum. Skýrsla frá henni varla væntanleg fyr en undir þing- lokin. Rvík 30/3 kl. 4. # Stjórnarskrármálið var af- greitt í gær til efri deildar frá neðri deild eftir 2 umræður þar. Önnur umræða varð mjög löng, náði yfir 5 þingfundi. — Ráðherrar eiga að verða þrir eftir frumvarpinu, land- ritaraembættið ekki afnumið. Til efri deildar skai kosið 4. hvert ár, 5 menn í hvert skifti, og þangað hafa ekki kjörgengi yngri menn en 40 ára. Konum veittur kosningarréttur, ef þær fullnægja sömu skilyrðum og karlmenn til þess. Ákvæðið um 21 árs lögaldur felt, en þó ráðgert að því megi breyta tneð sérstökum lög- um síðar, ef menn vilja og kosn- ingarrétturinn verði þá jafnframt rýmkaður með niðurfærslu lögaldurs. Fjárlögin. Önnur umræða um þau er í neðri deild í dag. Svo er sagt, að ef þingið samþykti þær fjár- beiðnir, sem komnar eru til þess, mundi verða um 7 — 800 þúsund kr. tekjuhalli. Efri deild hefir haft ýms smá- mál til meðferðar síðustu dagana. Tekur nú til við stjórnarskrármálið á morgun eða laugardaginn. Rannsóknarnefndin heldur Ráðherra Islands í dönskum blöðum; Einar Hjörleiísson símar tíðindi héð- an aí landi til »Politiken«. Hann sím- ar til blaðsins 15. þ. m., að útnefning Kr. Jónssonar veki mikla eftirtekt hér á landi, að »■ Sjálfstæðisflokkurinn < (»Selvstændighedspartiet«) hafi rekið Kr. J. úr flokknum og telji útnefning hans sem ráðherra brot á þingræðinu. Nú sé lögð fram vantraustsyfirlýsing til hans í neðri deild. Sama blað flytur síðar grein um Kr. Jónsson, er sýnist vera skrifuð fyrir blaðið af einhverjum kunnugum ís- lendingi í Kaupmannahöfn. Þar er sagt frá helztu æfiatriðum Kr. J. blátt áfram og hlutdrægnislaust. Um hann sjálfan er komist svo að orði, að hann sé kyrlátur maður, yfirlætislaus, er láti jafnan lítið yfir sér og hafi starfað mest í kyrþey. Hann hafi lengi verið formaður fátækranefndarinnar í Reykjavík og þar liggi mikið starf eftir hann. Hermálaráðherra Frakka, Brun, and- aðist siðast í f. m., varð bráðkvaddur. Strax og það fréttist til þingsins, hélt forsætisráðherrann hjartnæma ræðu um •hann og sleit svo þingfundinum. — Brun hafði unnið margt hernum til bóta, eftir að hann tók við ráðherra- starfinu. Morðtilraun í réttarsal. í byrjun þ. m. var kona ein í Montbrison fyrir rétti, til að hlýða á dauðadóm sinn fyrir morð. Þegar minst varði kastaði hún slöngvisnöru um háls dómarans og togaði í af öllum mætti. Var hún svo snör í snúningum, að hún hafði nær hengt dómarann, er lögregluþjón- arnir björguðu honum. Gabríele d’ Annunzio. Bókaverzlun Gyldendals hefir nýlega gefið út nýja skáldsögu eftir hann, er heitir »Ef til vill — og ef til vill ekki«, í þýðingu eftir Regitze Vinge, er þýtt hefir mik- ið af skáldverkum hans úr ítölsku á dönsku. — Skáldfrægð Annunzio’s vex stöðugt. Líkamlegt uppeldi. Þess var nýlega getið í »Gjh.«, að halda ætti í sumar alþjóðafund í Odense, er hefði til meðferðar ýms áhugarnál líkamsæfingamanna — 15. marz sl. var valin framkvæmdarstjórn fyrir fundinn, og hlutu þessir kosn- ingu: Forseti: Madsen hérshöfðingi; gjaldkeri: Friedrichsen yfirdómslög- maður; skrifarar: Thomsen justizráð og P. Österbye professor. Aðstoðar- stjórnendur voru þessir valdir: K. A. Knudsen leikfimisstjóri, N. H. Ras- mussen leikfimisstjóri, Hey konsúll, Simony amtmaður og Kjær yfirlæknir. Hvað gera íþróttafélögin fslenzku og ungmennafélögjn? Veðrátta hefir verið hin ágætasta undanfarið, sunn- anátt og þýðviðri, enda mjög snjólítið. AflabrösrO eru nú mjög lítil héi á Eyjafirði. Út á firðinum er þó nokkur hrognkelsaafli. — Hér inn á firðinum segir hinn sívakandi sjósóknari, Árni Væni, að varla verði „lífs vart". Aðeins eitthvað lítilsháttar af síld og upsa. Selveiði hefir og verið með minna móti í vetur. Skipaferðir. Gufuskipið „Perwie" kom í dag frá út- löndum með salt til Carl Höepfners verzl- unar. — Með því kom ekki póstur, en þó fékk „Gjh." nokkur dönsk blöð, er ná til 17. þ. m, „Sápuhúsið Oddeyri" á ný sérverzlun að heita, sem byrjuð verð- ur nú um sumarmálin og hefir leigt sölu- búð í húsi Ragnars Ólafssonar framkvæmd- arstjóra á Oddeyri, er hann hefir látið búa út, eftir nýjustu tízku fyrir þessa verzlun. Eigandi verzlunarinnar er C. Schou verk- smiðjueigandi í Kaupmannahöfn, og hefir hann undanfarin ár látið reka samskonar verzlun í Reykjavík, er hefir rutt sér þar mjög til rúnis. Hann lætur verzla að eins með sápu (ailar tegundir) og hreinlætisvöru, t. d. ilmvötn, svampa, bursta o. s. frv. — Von er hingað á fulltrúa Schous, er Fischer heitir, til þess að sjá um er verzlunin byr- jar. - Verzlunarstýra verður Lára Ólafs- dóttir á Oddeyri. Leikhúsið. Par er verið að æfa „Ofvitann í Odda- sveit" og „Qæfumuninn" og verða þeir sýndir næstkoniandi sunnudag. Þar starfa að beztu leikkraftar bæjárins. „SkautafélaK Akureyrar" hefir starfað mikið að skautahlaupum, sleðaferðum og þessháttar í vetur, og ætlar nú að halda dansleik mikinn bráðlega („Lokaball"). Stjórn félagsins skipa: Gísli J. Ólafsson ritsímastjóri, Einar Gunnarsson kaupmaður og Sigtryggur Jóhannesson kaupmaður. Vinnutöflur og Vinnubækur fást í bókaverzlun Odds Björnssonan

x

Gjallarhorn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Gjallarhorn
https://timarit.is/publication/186

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.