Gjallarhorn - 19.04.1911, Side 1
Gjallarhorn.
Ritstjóri: Jón Stefánsson.
i8- ; \
t # •♦••• • • # • • # > > M-
Akureyri 19. apríl.
1911.
Heilsufar
í ýUcureyrarhéraði.*
1910.
Engar lífskæðar farsóttir gengu
þetta ár, en fremur mátti heita kvilla-
samt.
Til mín leituðu rúmlega 1000
sjúklingar, en Valdemar Steffensen
læknir segir að sín hafi leitað 1185
sjúklingar. Auk þessa hefir Sig. lækn-
ir Hjörleifsson haft aðsókn margra
sjúklinga og margir hafa eflaust
leitað hómopata. Af pessu sézt að
kvillasemin hefir verið talsverð, þó
aðgætandi sé reyndar, að margir
sjúklingar hafa farið frá einum lækni
til annars.
Á þessu ári bar óvenjulega mikið
á illkynjuðum bólgumeinum og blóð-
eitrunum. Það eru áraskifti að því
hvað sumar bakteríutegundir þróast
vel, eins og það eru áraskifti um
góða grassprettu og þróun ýmsra
jarðarávaxta.
Af farsóttum voru helztar, kíg-
hósti, skarlatsótt, kvefsóttir og tauga-
veiki.
Kíghósti var að ganga í árslok
1909 og hélt áfram þrjá fyrstu mán-
uði þessa árs, en fór smárénandi,
svo ekkert bar á honum úr apríl-
byrjun. Hann var yfirleitt vægur.
Skarlatsótt gerði vart við sig hér
í bænum fjóra síðustu mánuði árs-
ins, en barst aðeins á fáa bæi út
um sveitir. Hvaðan veikin fluttist
hingað er óvíst; hún var í vægasta
lagi og sýndist vera lítið sóttnæm,
því á sumum heimilum veiktust að-
eins eitt eða tvö börn, þó mörg
fleiri væru fyrir. Eitt barn dó úr ill-
kynjaðri hálsbólgu, sem veikinni
fylgdi.
Kvefsóttir gengu hver af annari
og bar á þeim alla mánuði ársins,
en skæðust var sú kvefsótt, sem
gekk í desembermánuði og kom
mjög hart niður á sumum börnum
og gamalmennum, en þó varð hún
ekki mörgum að bana.
Taugaveiki kom upp í nokkrum
húsum á Oddeyri býsna svæsin, en
varð þó engum að líftjóni. Sjúkling-
arnir voru flestir fluttir á spítalann.
Holdsveiki. Þrír holdsveikir eru
nú í héraðinu og hafa engir nýir
sjúklingar bæzt við á árinu.
Berklaveiki. 20 nýir sjúklingar hafa
bæzt við á árinu, en 15 hafa dáið.
Telst svo til að nú séu um 30 berkla-
veikir menn í héraðinu. í síðustu
ársskýrslu voru miklu fleiri taldir
með berklaveiki, en við nánari at-
hugun hefir sýnt sig að mikill hluti
þeirra, sem skráðir höfðu verið með
berklum, var löngu orðinn albata
og mátti því stryka þá út af skýrsl-
unum.
* Útdráttur úr skýrslu til landlæknis.
Sullaveiki. Á henni bólar lítið,
enda eru hundalækningar í góðu
lagi og þrifnaður og varúð gegn
veikinni í stöðugri framför.
Samrœðissjúkdómar. 27 sjúklingar
leituðu okkar læknanna vegna lek-
anda og af þeim voru 22 íslending-
ar. Aðeins 1 sjúklingur leitaði læknis-
hjálpar vegna syfilis (fransós) en það
var útlendingur. Hin síðarnefnda
veiki virðist, sem betur fer, ætla seint
að ílendast hér, svo vonandi verður
ekki fyrst um sinn brúk fyrir Hata
606.
Slysfarir.
Þessar slysfarir voru helztar:
3 unglingspiltar fóru úr liði, tveir
um olboga en sá þriðji utn axlar-
lið. Vildi það til við glímur í öll
skiftin.
3 manneskjur brutu á sér fram-
handlegg og 2 upphandlegg. Or-
sakaðist það af byltum, þó ekki væri
í glímu og í tveim tilfellum varð
það við fall af hestbaki.
2 viðbeinsbrot komu fyrir.
Maður sem var við vinnu niður
í lestarrúmi á skipi varð fyrir mikl-
um bjálka, sem ofan á hann datt.
Brotnuðu í honum tvö rif, en rif-
brotin rákust inn í lungað og blés
upp hliðin af lofti sem þrýstist út í
holdið úr lunganu. Hann var flutt-
ur á sjúkrahúsið.
Öll þessi meiðsli sem nú eru tal-
in, gréru vel. En versta slysið kom
fyrir við útskipun við bryggju. Síld-
artunna slóst í höfuð á manni, svo
hann féll við. Sprakk við það æð í
heilanum og beið maðurinn bana
eftir stuttan tíma.
Slæmt brunatilfelli kom fyrir á bæ
einum í Hörgárdal. 6 ára gömul
stúlka, sem send var út í eldhús,
kom of nærri hlóðunum svo eldur
komst í föt hennar og mætti fólk
henni eins og eldstólpa í göngun-
um. Hún brendist ákaflega, bæði í
andliti, brjósti, holinu og öllum lim-
um, og liggur enn á sjúkrahúsinu,
en á góðum batavegi. Sum sárin
gróa þó ekki nema með því að flá
skinn af einhverjum og græða á
hana.
Konur i barnsnauð.
9 sinnum var mín vitjað við fæð-
ingar og varð í 6 tilfellum að hjálpa
fóstrinu fram með tangartaki eða
handbrögðum. Ein af konunum var
dáin áður en til mín næðist að hjálpa
henni. Það atvikaðist þannig að fóstr-
ið hafði dáið nokkrum tíma áður
en fæðing byrjaði og því næst hafði
hlaupið mögnuð rotnun í það, sem
veiklaði legið og sprengdi það skyndi-
lega í sundur og olli með því bráð-
um bana konunnar. Hinar konurnar
allar fengu góða heilsu. Eitt barn
kom liðið.
Ennfremur hefir Sigurður læknir
Hjörleifsson tvívegis og Valdimar
Steffensen einu sinni hjálpað konum
með verkfærum. Gekk það vel.
Sjukrahúsið.
Aðsókn sjúklinga var allmikil.
Sjúklingar urðu 120 og legudagar
þeirra 4083.
Af sjúklingunum voru 42 frá Akur-
eyri, 30 úr Eyjafjarðarsýslu utan kaup-
staðarins, 11 úr Suður-Þingeyjarsýslu,
14 úr öðrum sýslum og 14 frá út-
löndum.
18 af sjúklingunum dóu, þar af 9
úr berklavéiki, 3 úr heilabólgu, 2 úr
krabbameinum, 1 úr blóðeitrun, 1
úr sullaveiki, 1 úr lungnabólgu og
1 úr blóðleysi, eftir sprungið mein
í kviðarholi.
52 óperatiónir voru gerðar, af þeim
gerði Andrés Fjeldsteð 3. Af sjúk-
lingum þeim, er skornir voru upp,
dóu 5, þaraf 2 úr heilabólgu upp úr
ígerðum á höfðinu, einn úr blóð-
eitrun, einn úr berklum í bakinu,
og 1 úr sullaveiki.
Flesir af þeim sjúklingum sem
dóu, voru svo illa haldnir, þegar
þeir komu á spítalann, að fyrirsjáan-
íegt var, að þeim yrði ekki bjargað.
Vill það því miður of oft brenna
við, að sjúklingar eru ekki fluttir á
sjúkrahúsið fyr en í ótíma er komið.
Af helztu óperatiónum sem gerð-
ar voru, má helzt geta þessara: einn
botnlangaskurður, skorið burt leg
með krabbameini, skorið burt eggja-
stokksmein, gert við kviðsliti í sjálf-
heldu, sullskurður, tekin út blind
augu, teknar af allar tær eftir kal á
báðum fótum, skorin burt mein úr
brjósti og úr öðrum líkamahlutum
fjórum sinnum, gert við kreptan fót
o. s. frv.
Ak. '/3 1911.
Steingrímur Matthíasson,
héraðslæknir.
Arsskýrsla
Hins sameinaða gufuskipafélags.
Hún er nýlega komin út, fyrir árið
sem leið. Ekki leynir það sér, að fé-
lag þetta er afar þýðingarmikið fyrir
viðskiftalíf Danmerkur.
Af skýrslunni sést, að félagið á nú
120 gufuskip og 14 þilskip, til sam-
ans 155,952 tons að stærð. Og enn-
fremur á það skip í smfðum.
Hlutafé félagsins er 25,000,000 kr.
í skýrslunni er sagt að reikningsárið
1910 verði að teljast í góðu meðallagi.
Ferðir verið auknar til Suður-Ameríku,
annarstaðar líkt og árið 1909.
Inntektir félagsins á árinu voru
28,000,000 kr., en útgjöldin 22,000,000
kr. Þar af laun starfsmanna félagsins
721,000 kr.
Utan úr heimi.
Rússland og: Kína.
Verður bar ófriður?
Eftir nýjustu blöðum, er hingað hafa
borist, að dæma, lítur alt annað en
friðlega út þar. Utanrfkisráðaneytið
rússneska hefir 23. marz s. 1. skipað
sendiherra sínum í Peking að tilkynna
kfnversku stjórninni, að vegna óákveð-
inna svara, er kínverska stjórnin hafi
gefið viðvfkjandi bréfum rússnesku
stjórnarinnar út af ágreiningsefnum í
sáttmála þjóða þessara, krefjist rúss-
neska stjórnin skýlausra svara fyrir
28.. marz. Verði þessu eigi sint, beri
Kínverjar ábyrðina á því, er af því
muni hlotnast.
Blöðin telja miklar líkur til ófriðar.
Etazráð Chr. Augustinus tóbaksverk-
smiðjueigandi, andaðist 10. marz s. 1.
Dauðamein hjartasjúkdúmur. August-
ínus var að mörgu mætur maður.
Herkostnaður Englands, yfir árið 1911
—1912, er áætlaður 498,420,000 kr.
Þar af á að verja 1,530,000 kr. til
loftskipa og flugvéla.
Fleirkvœni. í Kína hafa konur stofn-
að öflugan félagsskap, er á að vinna
á móti fleirkvæni. Ráðgert að byrja á
að fá keisarann til að fækka konum í
kvennabúri sínu. Blöðin kínversku taka
mjög vel í málið.
Stórbruni varð snemma í marz í
Konstantínopel. 128 hús brunnu til
kaldra kola. Neyðin afskapleg.
Leó Tolstoj. Ráðaneytið í Péturs-
borg hefir samþykt að reisa Tolstoj
minnismerki. Er þegar farið að safna
til þess um alt Rússland.
Sophus Bauditz. Gyldendals bóka-
verzlun gefur út um þessar mundir
öll rit Sophusar Bauditz (ca. 30 hefti
á 50 aura). Verða það eigulegar bækur.
»Grettir.*
íþróttafélagið ,Grettir‘ efndi til verð-
launaglímu hér í bænum 13. þ. m.
Þátttakendur 10, þar af 9 af glímu-
skólanum.
Verðlaun hlutu:
1. verðl. Kári Arngrfmsson, Ljósavatni
10 kr.
2. verðl. Jóh. Laxdal, Tungu, 4 kr.
2. verðl. Sig. Sigurðsson, Öxnhóli, 4 kr.
3. verðl. Kr. Rafnsson,Grýtubakka 3 kr.
Kári Arngrímsson þótti oss glfma
bezt. Kappið nokkuð mikið hjá flestum.
Komu- og fardagar
pósta og póstskipa á Akureyri
frá 20. Marz til ársloka 1911
fást nú í
bókaverzlun
Odds Björnssonar.
(