Gjallarhorn - 08.06.1911, Blaðsíða 1
GJALLARHORN.
Ritstjóri: Jón Stefánsson.
Akureyri 8. júní.
:
1911.
Verzlun
/. Y Havsteens
hefir nú með síðustu skipum fengið
afar miklar birgðir af allskonar vörum.
Skal sérstaklega bent á:
NAUÐSYNJAVÖRUR, allsk.
VEFNAÐARVÖRUR,
stærst úrval í bænum, t. d. karlmannafataefni
kvenkápur, silkitau margskonar, hálslín- og bindi,
ótal tegundir o. fl. o. fl.
VÍNFÖNG og VINDLA
kaupa hygnir menn eigi annarsstaðar.
Verzlunin er orðin þjóðkunn fyrir vöruvöndun
og selur þó með betra verði en annarstaðar hér
í bæ er um að gera.
Ef ykkur vanhagar um eitthvað, þá leitið þess
fyrst í verzlun
J. V. Ha vsteens.
v, 25. •
Botnvörpusektamálið.
Hættir „Valurinn“ strandgæzlu
við Island?
Alþingi neitaði að greiða ríkissjóði
Dana íramvegis 2h hluta af fjársekt-
um þeim, er þeir botnvörpungar gjalda
sem »Valurinn« hremmir í landhelgi.
Það var Sjálfstæðisflokkurinn, sem
kom þessari neitun í gegn, en með
honnm flafektust þó að því starfi þeir
Einar á Geldingalæk og Stefán í Fagra-
skógi, báðir fulltrúar bændastéttarinn-
ar, sem Heiinastjórnatflokkinn prýða á
alþingi.— En Björn Jónsson fyrverandi
ráðherra greiddi atkvæði með Heima-
stjórnarmönnum, og mun því valda,
að hann hefir nú fengið víðtæka þekk-
ingu á málinu.
En nú er að koma í ljós hvernig
Danir ætla að taka í málið.
J. C. Christensen, fyrverandi yfirráð-
herra Dana, sá maður, sem í raun og
veru ræður mestu um stjórnmál þeirra
og athafnir í þeim efnum, um þessar
mundir hefir ritað rækilega um málið í
blað sitt snemma í f. m. Skýrir hann þar
frá gerðum alþingis og segir alla sögu
málsins frá því er Danir létu byggja
»Valinn« 1906 eingöngu handa íslend-
ingum (árlegur kostnaður við útgerð
»Valsins« hér við land er yfir 100 þús-
und kr.). Hafi þótt sanngjarnt að ís-
lendingar létu þessa 2h hluta sektanna
koma í móti, enda hafi ráðherrar íslands
lofað að styðja að því, hver eftir ann-
an, en nú hafi þó útborgun sektanna
verið feld burtu úr fjárlögunum í ann-
að sinn, en ályktunarorð hr. J. C.
Christensens eru á þessa leið:
Pað svar, setti réttast vœri að gefa
íslendingutn við þessu vœri að láta
> Valinn * vera kyrran hér í Danmörku
og að við [Danir] létum okkur ncegja
að senda hernaðarbát til strandvarna
við ísland. Og sennilega verður það
endirinn. Eg vona það verði.
Gufuskipaferðir
milli íslands og Svíþjóðar.
Alþingi veitti 4000 kr. styrk til
gufuskipafélags, sem tæki að sér að
halda uppi ferðum milli Islands og Sví-
þjóðar beina leið án millistöðva.
Sænsk blöð, sem »Gjh.« hafa verið
send, ræða málið af mikilli alvöru og
áhuga og hvetja þess eindregið, að
að ferðirnar komist á. Vilja þau láta
ríkissjóð Svíþjóðar styrkja fyrirtækið
ötullega með fjárveitingu, til þess að
það komist vel á laggirnar í fyrstu og
telja það vænlegra en að vera að smá-
reyta til ferðanna ef illa liti út með
að þær svari kostnaði.
Enginn vafi leikur á því, að mikill
gróði gæti Islendingum orðið ,að því
að gufuskipasamband þetta kæmist á
sem fyrst — og vonandi að það verði
sem bezt og fullkomnast.
Utan úr heimi.
Ólympisku leikirnir. Þess er getið
í erlendum blöðum að íslendingar (í-
þróttasamband Reykvíkinga?) hafi sótt
um leyfi til að taka þátt í Ólýmpisku
leikjunum næsta sumar. Var engin
fyrirstaða að fá það leyfi. íslendingar
koma því væntanlega þar fram sem
slíkir, en ekki eins og um árið —
taldir með dönsku hluttakendunum.
Kpiera hefir stungið sér niður í
Pétursborg. Menn gera sér þó von
um að hægt verði að hefta útbreiðslu
hennar.
Forseta-líkneskið. Danska blaðið »Pól-
itiken* flytur mynd af því ásamt lýs-
ingu, nú nýlega. Þykir myndin vel gerð.
Eimreiðarslys varð nýlega í Ameríku.
200 kennarar voru í eimreiðinni er
hún fór út af sporinu og valt niður
mikinn halla. Yfir 100 særðust, marg-
ir af þeim til ólífis.
Minnismerki. í Lundúnum var af-
hjúpað lfkneski til minningar um Victoríu
drotningu 16. f. m. Er það eitthvert
stærsta minnismerki, sem reist hefir
verið. Mikið var um dýrðir við þá at-
höfn
Dýrt bréf. Nýlega var haldið upp-
boð í Leipzig á Þýzkalandi og selt
þar meðal annars bréf með eigin-hand-
arskrift Luthers, skrifað árið 1521,
þann 28. apríl, til Karls keisara fimta.
Það seldist á 102,000 mörk. Kaup-
andinn var miljónamæringurinn Pier-
pont Morgan hinn ameríski.
[ón ísleifsson ratmagnsfræðingur hefir
nýlega unnið fyrstu verðlaun í sam-
kepni, sem háð var í Niðarósi um
fyrirmynd á brúarbyggingu af svo-
nefndri Gerber-tegund.
Roosevelt hefir í hyggju að fara til
Grænlands á þessu ári og skjóta
hvítabirni. Með honum verður í för-
inni norðurfarinn Bartlett.
fakob Vorm Muller norski rithöfund-
urinn, andaðist nýverið, eftir uppskurð.
Hann var aðeins rúmlega fertugur, og
hafði þó unnið sér talsverðan orðstýr.
Móðir hans var hin nafnkunna skáld-
kona Amalía Skram.
Drotningin í Belgíu er hættulega
veik um þessar mundir, talið efasamt
hvort lífs\on sé. Helztu læknar heims-
ins fengnir þangað til hjálpar.
»járnkóngur* Brooklyns, Níels Poul-
sen, sá er kallaður var »járnkóngur«
sökum þess að hann hafði náð nærfelt
allri járnverzlun þeirrar borgar í hend-
ur sér, er nú dáinn 67 ára gamall.
Hann kom til Ameríku 21 árs og var
þá aleiga hans 6 kr. Nú var hann
orðinn miljónamæringur. Hann hefir
látið sérlega margt gott af sér leiða.
Herheimsókn. Vilhjálmur Þýzkalands-
keisari hefir nýverið ritað Taft, for-
setanum ameríkanska, og boðið mikl-
um hluta af sjóherliði Ameríkumanna
að heimsækja herinn þýzka í sumar.
Ætlar keisarinn að veita þeim mót-
töku í Kiel, verður þar á skipi sínu
»Hohenzollern«.
William Scharling prófessor í hag-
fræði og fyrverandi fjármálaráðherra
Dana er látinn.
Vátryggingar. England hefir ætíð
verið frömuður annara landa hvað vá-
trygging snertir. Af íbúum þess voru
nú við síðustu áramót 70% lífsvá-
trygðir. Hvað skyldu það vera mörg
»procent« af íslendingum er hafa fengið
sér lífsábyrgð:
Jónas QuSIausrsson
heldur uppi svörum, fyrir ísland, í
»Riget« móti árásagreinum Knud Ber-
líns. Ferst Jónasi það mjög myndar
lega og óvíst að Berlín beri þar nokk-
urn sigur úr býtum.
Bókmentafélazið.
Góðar horfur eru á að heimflutn-
ingsmálið fái góð málalok, samkomu-
lag náist um heimflutninginn og er
það vel farið. Sýnist meiningarlítið að
aðaldeild félagsins sitji niðri í Khöfn.
Ágœt heilsufrœðisrit:
1. Sundhed,Skönhed, Styrke,
verð 1 kr. 25 a.,
2. Helsebot (tímarit) i.ár, verð 1 kr,
útvegar
bókaverzlunOddsBjörnssonar,