Gjallarhorn - 25.10.1911, Side 1
QJALLARHORN.
Ritstjóri: Jón Stefansson.
Akureyri 25. október.
1911.
1 HViTA BUÐIN.
Hin nýbygða sölubúð
f Carl JCöepfners oerzlunar
sem að öllu samtöldu mun vera fegurst allra sölubúða d íslandi, var opnuð
fyrir almenning
21. þ
m.
í tilefni af því hefir verzlunin fengið ógrynni af nýjum vörum, svo hjvergi ljér á
landi, utan höfuðstaðarins, mun vera kostur d jafnmiklu úrvali af góðum og
fallegum vörum.
Pað yrði oflangt mál að telja upp vörutegundirnar, þó að ekki vœri nema þœr
allra helztu, hitt er heppilegra, að fólkið korni sjdlft inn í búðina, eða jafnvel þó
ekki sé nema að gluggunum, og sjdi hvað inni fyrir er. Pað grœðir meira á því
en að lesa auglýsingar, sem nd yfir heilar síður i blöðunum.
Allmikið af vörum úr gömlu búðinni verður innan skamms selt við uppboð, sem
ndnar verður auglýst siðar.
V. 40. •
Til
Sigurðar Hjörleifssonar
frá
Jóni Ólafssyni.
Eins og mörgum er kunnugt gat
J Ó. ekki fengið S. H. til þess að
koma á fundi þá er hann hélt hér í
bænum, en síðan J. Q. fór, hefir S.
H. stöðugt verið að rangfæra orð Jóns
°g vega aftan að honum í »NU. J. Ó.
hefir nú svarað upphafinu af vaðli Sig-
urðar í blaðinu »Reykjavík« og er þetta
niðurlag þar:
»Þetta er alt, sem blaðið hefir að
segja um ræðu mína — auk fáeinna
persónulegra skammarorða um mifr og
víssvitandi álygi, sem eg þykist he’dur
maður að betri að verða fyrir úr þeirri
átt.
En eftirtektavert er eitt:
Eg bar þungar sakir, ákærur, á
þingflokk þann sem ritstj. »Norðurl.«
er í; sýndi fram á, hvert tjón sá ó-
aldarflokkur hefði gert landinu; sýndi
fram á mismuninn á þarfa-framkvæmd-
um heimastj.flokksins á stjórnarárum
Hafsteins og bættan hag landssjóðs á
sama tíma, og svo hins vegar, hversu
óaldarflokkurinn, sem við tók, heíði
nær ekkert gert til þarflegra fram-
kvæmda, en þó bruðlað út lé og fært
landssjóð á gjaldþrotabarm, svo að nú
yrði að »rtða víxlum* til að standast
lögboðin útgjöld, en landinu sökt í
skuldir til eyðslu. Og þetta rökstuddi
eg með tölum.
Þetta í ræðu minni þegir hr. Sig.
Hjörl. um og reynir ekki að hrekja
það.
Lá það ekki nær honumf
Og hvað segja fylgismenn hans um
það, að hann skuli ekki þora að koma
á lund til að bera hönd fyrir höíuð
sér og flokki sínumf
Treysti hann sér ekki til þessf
Gat hann það ekkif
Hitt er létt verk fyrir hann, þegar
eg er íarinn og hvergi nærri, að Ijúga
upp hinu og þessu og eigna mér, og
leika sér svo að því að hrekja sín eigin
ósannindi.
Það sem eg bar á flokk hans, sé
það rétt eítir haft, verður ekki brakið.
Það má alt sanna með órækum skil-
ríkjum.«
Skóla- og kenslu-bœkur,
sem fást í bókaforlagi
Odds Biörnssonar á Akureyri:
Barnagaman Stafrofskver Guðmundar
læknis Hannessonar (fyrsti leiðarvísir í
lestri). 2. útgáfa 0.15.
Stafrofskver Jónasar /ónassonar. Ný, end-
urbætt útg. Með 50 myndum. Bundið 0.50.
Smásögur, nýjar, handa börnum. 0.40
Kvöldúlfur. Barnasögur. Bundinn 0.75.
Úrvals æfinfýri frá ýmsum löndum. r.50.
Nýjasfa barnagullið. Örfá eintök óseld. 1.25
ReikningsbókJónasarJónassonar. I. Önnur
endurbætt útgáfa. Bundin 1.50. II. 1.00
Ryrsfa reikningsbók barna. I. Eftir Jðnas
( Jðnasson. Kom út 18. þ. m. 0.15,
•slenzk málfræði. Eftir Jónas Jðnasson.
2. endurbætt útgáfa. Bundin 1.25.
Fyrsti
póstskipherra íslenzkur.
Júlíus Júliníusson,
er stýrt hefir strandferðaskipinu ,Austra‘
í tvö sumur, hefir gert þjóð sinni
sæmd með dugnaði sínum í þeirri
stöðu. »Austri« er hið eina af skip-
um »Thore«-félagsins, sem hingað
koma, er ávalt heldur áætlun, og
hamlar honum hvorki þokan fyrir
Austurlandi, sem öllum sæfarendum
er hvimleið, né annar ófögnuður.
Júlíus heldur ferð sinni á »Austra«
áfram gegnum brim og boða, og
kemst alt af í rétta höfn á ákveðn-
um tíma.
Júlíus er barn þessa bæjar, fæddur
hér og uppalinn, fór héðan í sjó-
ferðir, og hér býr faðir hans enn.
Ýmsum borgurum Akureyrar þótti
því eiga vel við, að halda honum
samsæti, er hann hætti strandferðum
hér í þetta sinn, og var það haldið
á »Hótel Akureyri« á miðvikudags-
kvöldið. Fór það vel fram að öllu
og var hinn bezti mannfagnaður.
Etazráð J. V. Havsteen leiddi heið-
ursgestinn til borðs og mælti síðan
fyrir minni hans. Benti á að hann
hefði farið héðan unglingur með tvær
höndur tómar, og engan átt að er
hefði stutt hann. En hann hefði
farið með ákveðið mark fyrir auguin
og alt af verið því marki trúr. Öfl-
ugur, einbeittur vilji væri ávalt -sig-
ursæll, og svo hefði einnig reynst
með Júlíus. Hann hefði náð marki
sínu bæði fljótt og vel að heita
mátti. Óskaði að hann héldi vel á-
fram, eins og hann hefði byrjað, og
bað menn hrópa húrra fyrir að hann
mætti lengi lifa. Þá þakkaði Júlíus
með vel völdum orðum, kvaðst
engan blett þekkja fegurri en Akur-
eyri, og bað menn drekka skál Akur-
eyrar. Síðan voru mörg full signd.
O. C. Thorarensen lyfsali mælti fyrir
húsfrú og heimili heiðursgestsins
(hann er giftur danskri konu og á
heima í Danmörku), ritstjóri þessa
blaðs fyrir Thor. E. Tulinius, Stefán
skólameistari fyrir konsúl Otto Tuli-
nius, er síðari árin væri mestur at-
vinnuveitandi f innbænum, Otto Tuli-
nius fyrir íslandi, Björn Jónsson rit-
stjóri fyrir verzlunarstéttinni íslenzku,
og vék skálinni til kauptnanna, er
samsætið sátu, o. s. frv. — Samsætið
varaði langt yfir miðnætti, og að
lokum fylgdu menn heiðursgestinum
fram að »Austra«, er lá við hafnar-
bryggjuna, ferðbúinn að leggja á
stað með morgni.
Til kjósenda í Eyjafirði.
Yfirlýsing.
í tilefni af orðasveim sem mér er
sagt að sé breiddur út um mig, um
að eg sé í kosninga-makki við „Sjálf-
stæðis“-menn, sérstaklega frambjóð-
andann Jóhannes Þorkelsson og að
eg mæli með honum sem þing-
mannsefni, lýsi eg hér með yfir að
það eru ósvífin, tilhæfulaus ósann-
indi, sem eg vona að enginn flokks-
bróðir minn trúi né taki mark á.
p. t. Akureyri, 14. október 1911.
Stefán Stefánsson,
frá Fagraskógi.
Hreppstjórar
eru nýlega skipaðir þeir Davíð Sig-
urðsson á Hámundarstöðum og Stefán
Bergsson á Þverá.