Gjallarhorn - 27.10.1911, Blaðsíða 1
GJALLARHORN.
Ritstjóri: Jón Stefansson.
Akureyri 27. október. * Í9U.
V. 41. f
é
Til kaupenda •!!
W Gjallarhorns.
ÞiðsemflyíjiðáAkureyri!
Til solu er :
1. (búðarhús tvílyft með kjallara 14X10 ál. alt vel innréttað uppi og
niðri járnklætt á norðurstafni og með nýju járnþaki.
2. Qeymsluhús rétt við, 14x^8 ál. mjög vei bygt og hentugt að inn-
rétta til íbúðar eða verzlunar eftir þvf sem vera vill.
3. Skúr fast við 12x6 ál. og er í honum 2 kúa fjós, 3 hesta hesthús
og heyhlaða er tekur um 80 hesta af heyi.
4. Lóð undir öllum húsunum og umhverfis þau 1344 Q ál. að stærð _
Vatnsleiðsla er í íbúðarhúsinu uppi og niðri og mjög þægt að leggja hana í
hin húsin ef þarf. Eignin liggur á góðum stað, og mjög þægilegum að öllu leyti.
Kaupverðið fyrir alf þetta er að eins 4000 kr. Borgunarskiimáiar svo
góðir sem hugsast má Lítil peningaútborgun eftir samkomulagi og eignin svo
arðberandi að hún borgar sig sjálf á fám árum.
Ritstj. vísar á seljanda.
Gjalddagi „Gjh." var 1. júlí síð-
astl. og biður útgef. kaupendurna
að gera sér þann greiða, að hugsa
eftir því nú í haustkauptíðinni. And-
virði blaðsins (3 kr.) rrunar hvern
einstakan litlu, en „safnast þegar
saman kemur" hjá blaðinu, og því
er örðugt um að eiga margar 3
kr. útistandandi, vegna þess að því
veitir ekki af sínu.
Næsta ár flytur „Ghj.'1 myndir af
mörgum merkum mönnum íslenzk-
um eins og síðar verður sagt nán-
ar frá.
Andvirði „Gjh." má borga í flest-
ar hinar stærr: verzlanir hér nyiðra
og eystra.
/tlvarlegur
atburður
verður alþíngiskosningin sem fram
á að fara hér í bænum á morgun.
Kjósendur bæjarins —höfuðstaðar
og hjarta Norðurlands —eiga þá að
skera úr því, hvort þeir eru sam-
þykkir þeim sorglega skrípaleik, sem
leikinn hefir verið með velferðarmál
þessa lands og þessarar þjóðar,
síðan slysið mikla henti hana haust-
ið 1908, er frumvarpi milliríkjanefnd-
arinnar var offrað.
Atburðirnir, sem gerst hafa, frá
þeim tíma og fram að þessum, eru
öllum kunnir. Óhappaverk óaldar-
flokksins eru þjóðinni svo dýr, að
þau eru flestum í fersku minni. —
Menn muna eftir fleðulátum og
skriðdýrshætti foringja flokksins,
þegar hann var í Danmörku, þrátt
fyrir alt gambrið um Dana kúgun
og Danaveldi, hér heima á íslandi.
— Sigurður Hjörleifsson hafði
aldrei neitt við þau að athuga.
Hann flatmagaði einungis enn flat-
ar fyrir foringja sínum og pólitísk-
um húsbónda, á eftir.
Menn þekkja Landsbankahneyksl-
ið. Retta illræmda svívirðingamál,
þegar ráðherra landsins réðist á
aðalpeningastofnun þess, svívirti þá
menn, er alþingi hafði kosið til þess
að gæta hennar, tróð fótum lög og
rétt, veikti álit bankans utanlands
og innan og sigaði sporhundum
sínum á hann, til þess að gera sem
mest veður af því, hvað hann væri
hugaður.
— Öllu þessu athæfi var Sig.Hjörl.
samþykkur og samdóma. Hann varð
fyrstur af öllum tilberum óaldar-
hokksins til þess að votta nðherra
hokksins þakkir fyrir skipun »rann.
sóknarnefndarinnar« svonefndu og
samþykkja traustsyfirlýsing líKhans
fyrir. Og síðan hefir hann varið alt
það athæfi svo freklega, að jafnvel
ýmsum svæsnum flokksbræðrum
hans hefir ofboðið.
Menn vita um skuldasúpuna, sem
landið er komið í. Alt er þar á sökkv-
andi leið. Norður og niður, »niður
fyrir allar hellur.« Flest framfara-
fyrirtæki þjóðarinnar eru látin hvíla
sig. Vegagerð er nær hætt. Ar eru
ekki brúaðar, sem búið var að ákveða
fast. Alt stendur kyrt — eða er í aftur-
för. En á sama tíma er fé landsins
ausið með óhemju ofbeldi í ymsa
glorhungraða brauðbíti óaldarflokks-
ins. Síðasti peningur landsins er ét-
inn af þeim, í sömu andránni sem
landsstjórnin er að fá sér víxillán
til þess að greiða með nauðsynleg-
ustu útgjöld Iandsins.
— Öllum bitlingum var Sig. Hjörl.
samþykkur, öllum austrinum í hít
óaldarflokksins. Bjarni frá Vogi er
búinn að fá (og fær) upp undir 50
þúsund. Hann er éfstur á blaði af
öllum bitlingasugunum. EnAriJóns-
son, Björn Jónsson, Björn Kristjáns-
son, Magnús Blöndahl, Karl Einars-
son, Einar Hjörleifsson og Sigurð-
ur Hjörleifsson, hafa einnig trygt
sér þúsundir króna hver, með tóm-
um bitlingum, næstu árin. Það er
þeirra innbyrðis lífsábyrgðarfélag!
Og með öllu gaf Sig. Hjörl. at-
kvæði. Gef þú mér, þá gef eg þér!
Svo mætti lengi telja. En það er
óþarfi, því kjósendum á Akureyri
er allur ferillinn kunnur.
Peir vita að Sig. Hjörl. hefir ver-
ið samþykkur öllum ofbeldisverkum
flokksins, að hann er flokknum því
samsekur um allar hinar meiri höfuð-
syndir hans.
Og nú geta þeir valið um hvað
þeir gera, hvort þeir segja »hingað
og ekki lengra,« eða þeir styrkja
óaldarflokkinn til þess að halda
áfram athæfi sínu, með því að kjósa
Sigurð Hjörleifsson.
Pað verður fróðlegt að sjá úrslit-
in annað kvöld. Pauúrslit mun Saga
geyma um hríð, því þau verða sá
mælikvarði á þroska kjósenda þessa
kjördæmis, að betri verður ekki fáan-
legur.
„Brestur enn“------!
»Sjálfstæðis-« stjórnin í Rvík skoraði á
séra Sigurð í Vigur að hætta við fram-
boð sitt, þegar »liðið« heyrði að honum
væri það alvara. Hann svaraði um hæl
aftur, kvaðst ekki vera undir þeirra stjórn
á neinn hátt, kvaðst mundi ráða gerðum
sínum sjálfur, kvaðst ætla að bjóða sig
fram hvað sem þeir segðu og sagði sig
svo úr Sjálfstæðisflokknum og ætlar ekki
í hann næsta dag, þó hann verði grátbænd-
ur um það.
Hvern á nú þingflokkur >Sjálfstæðisins«
eftir, sem frambærilegt ráðherraefni, ef á
þyrfti að halda? Hugsa sér annars hvað
þeir félagar eru nú annars orðnir samvald-
ir allir og svipaðir!
Frá Vestur-íslendirjgum.
>Kongur vii sig/a — en byr hlýtur
að ráða.« »Heimskr.« segir frá að
fimmtíu vesturfarar hafi komið til Winni-
peg 8. ág. s. 1. og nafgreinir þá alla.
Svo heldur blaðið áfram:
»Einnig kom með þessum hóp herra
Brynjólfur Þórarinsson, frá Brekku í
Fljótsdal, hafði búið þar 28 ár. Hann
ætlaði að fara með skipinu frá Seyðis
firði til Djúpavogs, — lengra var ferð
hans ekki heitið. En þoka var mikil
um það leyti er skipið átti að koma
til Djúpavogs, svo að skipið gat ekki
komið þar við. Varð því Brynjólfur til
þess neyddur, að ferðast til Skotlands
með skipinu; en með því að maður-
inn er vel þektur og vinsæll, vildu
vesturfarar að hann fylgdist með þeim
vestur um haf, úr því hann hafði orðið
að fara til Skotlands. Hann lét því
tilleiðast og sló í ferðina hingað vest-
ur, þó hann væri alls óundirbúinn og
peningalaus, eða því sem næst. En
svo marga sveitunga og vini mun hann
eiga víðsvegar í bygðum landa vorra
hér vestra, að hann ætti ekki að bresta
þá hjálp, sem hann kann að þarfnast.
Og tilgangur hans mun vera, úr þvf
sem komið er, að ferðast svo mikið
sem honum er unt uin íslenzku ný-
lendurnar hér og íhuga ástandið í
þeim. Maðurinn er sérlega myndarleg-
ur og skýr, og ætti að mega vænta
þess, að fá góðar viðtökur, hvar sem
hann ferðast meðal landa vorra hér.«
Ynarsti hreppsnefndaroddviti
landsins mun vera Steingr. Stefáns-
son búfræðingur á Þverá í Öxnadal.
Hann varð oddviti 25 ára gamall nú
fyrir nokkrum vikum.
Háskólinn.
Frakkneska stjórnin hefir synt oss þann
heiður að bjóða að senda á sinn kostnað
mann er yrði dócent við háskólann í Rvík
Stjórnarráðið þáði auðvitað þetta sæmd-
arboð með þakklæti og nú er þessi frakk-
neski háskólakennari kominn til Rvíkur
fyrir nokkru og tekinn til starfa. Það er
kornungur maður (21 árs gl.) Courmont að
nafni. Auk kenslunnar í hinni frakknesku
tungu ætlar hann að halda fyrirlestra um
frakkneskar bókmentir.
Fyrirlitningin.
Þess hefir áður verið getið hér í
blaðinu, að fyrv. þingmaður Akureyrar
Sig. Hjörl. er ófáanlegur til þess að
koma á fund með kjósendum, hvernig
sem á hann hefir verið skorað með
það.
Flokksmönnum hans mörgum, hefir
mjög ofboðið þetta atferli hans. Þeir
hafa undrast að maðurinn skyldi ekki
gera tilraun til að verja sig og áhuga-
mál sín, jafn-mikið og mönnum hefir
þótt athugavert við opinbera stjórnmála-
þátttöku hans. — Sennilega hefir sá
óánægjuþungi, meðal flokksmanna hans,
neytt hann til þess að gefa einhverja
skýringu á því, hvers vegna hann hag-
aði sér svo, og þá skýringu er að
finna í síðasta laugardagsblaði »Norð-
urlands.«
í svari hans liggur sú aðdróttun,
að hann telji helming kjósenda á Ak-
ureyri eða fleiri, svo mikla »vitfirr-
inga« og svo lítilhæfa menn að hann
vilji ekki sitja fundi með þeim. Og
yfir þessu virðist hann vera fremur
upp með sér og kveðst ekki hugsa
til að breyta áformi sínu í þeim efn-
um!!
Það er ekki svo mikið um, að hann
haldi fundi með >sínum mönnum«
heldur, nema ef til vill einhverja fá-
menna klikkufundi. Og ekki er vfst
verið að hafa fyrir að ræða um lands-
mál á þeim Þar er umtalsefnið aldrei
annað, að scign, en hvernig fara skuli
að því að geta komið Sigurði Hjör-
leifssyni aftur á þing! En þeim flokks-
mönnum sem ekki er haft svo mikið
við, að þeir fái að koma á klikku-
fundina, er ætlað að elta forustusauð-
ina í blindni og skilningslaust. Það
er svo sem óþarfi líka að vera að tala
um málin við þá!!
Þetta atferli gæti lítillega verið
skiljanlegt, af mjög mikilhæfum yfir-
Hreppsgjalda-
og
Sóknargjaldaseðlar
fást í
prentsmiðju Odds Björnssonár.