Gjallarhorn - 18.11.1911, Síða 1
Gjallarhorn.
Ritstjóri: Jón Stefansson.
W W W W w — --
V. 43. •
Freistið gœfunnar!
Jólagjafir gefins.
Auglýsing sú, sem stendur
hér á síðustu síðu í blaðinu
mun verða lesin með eftirtekt
frá upphafi til enda þegar menn
hafa rent augunum yfir fyrstu
línurnar. — Það er lítt þekt
hér á landi að gefa mönnum
tækifæri til »að spila« í þess-
háttar „lotteríi“ þar sem eng-
in áhætta fylgir og engin útgjöld,
ekki um
annað að gera
en að
VINNA
eða í öllu falli
að verða skaðlaus.
En til þess að sem flestir reym
þetta, skal það útskýrt nánar
fyrir mönnum.
Glas það sem hneturnar eru
í, er búið út og innsiglað af
lögreglunni, enginn veit hvað
margar hnetur voru látnar í glas-
ið, svo allir renna þar »blint í
sjóinn«. Innsiglin á glasinu standa
óhreyfð þangað til 15. desbr
næstk. í>á verður glasið opnað
undir eftirliti lögreglunnar, hnet-
urnar taldar og verðlaununum
útbýtt eins og segir í auglýs-
ingunni. Alt þetta fer fram undir
eftirliti lögreglunnar
til þess að öll vélabrögð séu
útilokuð og vissa sé fyrir, að
allir standi jafnt að vígi, til þess
að verða gæfunnar aðnjótandi.
Penna tíma, til 15. desbr.
nœstk., geta því allir reynt lán
sitt, með því að kaupa fyrir
tvœr krónur í »Edinborg« og
geta svo upp á hve margar
hnetur séu í glasinu, láta skrá-
setja nöfn sín og tilgátu og
muna sjálfir tilgátuna þangað
til búið er að telja úr glasinu.
Sá sem kaupir fyrir 4 kr. má
geta 2 sinnum, sá sem kaupir
fyrir 10 kr., fimm sinnum o.
S. frv, Ef tveir hafa getið upp
••••••••••••••••••••
Akureyri 18.
á sömu tölu, hlýtur sá fyrri
verðlaunin, sem fyr gat til.
Menn ættu að hugsa til að
þetta er ekkert skrum, heldur
fullvissa sig um, að hér er tæki-
færi til að eignast fyrir ekk-
ert fallega og verðmikla jóla-
gjöf frá
Edinborg.
Rjúpur
kaupir
Gránufélagsverzlun
á Oddeyri
hœstu verði.
Neta-
slöngur
fyrir
millisild
fást í
Carl Höepfners
verzlun.
Alþingiskosningar.
Hiinvetningar.
Þórarinn Jónsson bóndi á Hjaita
bakka hiaut 264 og Tryggvi Bjarna-
son bóndi í Kothvammi 245 atkv. —
Hálfdán Guðjónsson prófastur fekk
176 og Björn Sigfússon umboðsmað-
ur 163 atkvæði.
Dalasýsla.
Bjarni Jónsson frá Vogi fekk
132 atkv. og Guðm. G. Bárðarson,
stúdent og óðalsbóndi á Kjörseyri 82
atkvæði.
Norð-Mýlingar.
Kosningu hiutu: Jóhannes. Jó-
hannessorf bæjarfógeti á Seyðisfirði
með 229 og Einar Jónsson prófast-
ur frá Kirkjubæ með 222 atkv. —
Jón á Hvanná fekk 156 og séra Björn
Þorláksson á Dvergasteini 136 atkv
• f t • •
nóvember.
Rjúpur
eru bezt borgaðar í
Carl Hoepfners
verzlun.
Sunn-Mýlingar.
Kosningu hiutu: Jón Jónsson frá
Múla rneð 323 og Jórj Ólafsson
ritstjóri með 299 atkv. — Sveinn Ólafs-
son í Firði fekk 236, séra Magnús í
Vallanesi 193 og Ari á Þverhamri
38 atkv.
Barðstrendingar.
Kosningu hlaut: Björn Jónsson
fyrv. ráðherra með 235 atkv. — Guðm.
Björnsson sýslumaður fekk 120 atkv.
Austur-Skaftfellingar.
Kosningu hlaut: Þorleifur JÓnS-
son f Hólum með 82 atkv. — Jón
Jónsson prófastur í Stafaíelli fekk 68
atkv.
Kaupfélögin íslenzku.
Ummæli L. Zölners.
Biaðið »Austri« á Seyðisfirði segir
frá samtali er ritstjóri þess átti við
konsúl L Zöílner frá Newcastle er
hann var á Seyðisfirði í haust. — Eins
og kunnugt er, hefir Zöllner verið
umboðsmaður flestra íslenzku kaupfé-
laganria og er því mjög kunnugur hag
þeirra. Hér fer á eftir kafli úr sam
tali því er »Austric flytur:
— Hver er skoðun yðar á hinum
íslenzku kaupfélögum ?
»Af öllum hinum mörgu og stóru
félögum, sem eg hefi staðið í sam-
bandi við, sfðan 1885, hafa aðeins
fá unnið sigur á erfiðleikunum; fremst
og öflugast allra félaganna er »Kaup-
félag Þ>ingeyinga«.
— Og hver haldið þér að sé ástæð-
an til þess?
• Stjórnin; án góðrar stjórnar fá
jafnvel hin beztu fytirtæki eigi þrifizt.
»Kaupfélag Þingeyinga* hefi r borið
gæfu til að hafa samvizkusama og dug-
lega stjórnendur; Jón heitinn á Gaut-
löndum og synir hans hafa verið mátt-
arviðir félagsins — haldist það sem
lengstU
-*■ Það heyrist minna um kaup
félagshreyfingar nú heldur en fyrir
nokkrum árum síðan.
»Getur verið, en því verður ekki
neitað, að hreyfing sú hefir haft gagn-
leg áhrif og hefir verið nauðsynlegur
liður í hinni frjálsu, efnalegu fram-
þróun íslands. Það er feykilegur mun-
ur á ástandinu nú og 1 september-
t 1911.
• ••••••••••••••••••
mánuði 1888, þegar faðir yðar (Skapti
rtstjóri Jósefsson) og minn háttvirti
gamli vinur, Tryggvi Gunnarsson, sóttu
mig heim á skipi mínu »Sumatra« á
Eyjafirði.
Sktlli fógeti.
Minningardags- og minningarsjóðs-
málið er nú að komast í allgott horf.
Nefnd úr »Verzlunarmannafélagi
Akureyrar* starfar kappsaml'ega að
framkvæmdum þess hér í bænum og
sýslunni. í nefnd þessari eru: Eggert
Stefánsson, Hallgrímur Davíðsson, Otto
Tulinius, Pétur Pétursson og Ragnar
Ólafsson, en þeir hafa fengið sér til
aðstoðar þá Magnús kaupm. á Grund
og Stetán alþm. í Fagraskógi. Nú
þegar, hefir nokkurt fé safnast, og
yfirleit eru undirtektirnar góðar, sem
vænta mátti. — Nefndin gerir ráð
fyrfr, að öllum sölubúðum verði lokað
á afmælisdegi Skúla (12 des.) í öllu
falli síðari hluta dagsins.
t
Sigurður Jónsson
óðalsbóndi í Baldursheimi í Mý-
vatnssveit andaðist í f. m. eftir langa
vanheilsu. Hann var fæddur og alin
upp í Baldursheimi og bjó par all-
an sinn búskap (milli 20 og 30 ár)
mesta sæmdarbúi. Hann var fjármað-
ur mjög góður og átti eitthvert hið
vænsta sauðfé í Þingeyjarsýslu, er
hið svonefnda „Baldursheims sauð-
fjárkyn frægt um alt Norðurland og
mikil eftirspurn eftir því.
Sigurður sál. mun hafa verið um
sextugt. Hann var kvæntur Sólveigu
Pétursdóttur frá Reykjahlíð, er lifir
mann sinn asamt 2 mannvænlegum
sonum er heita Pórólfur og Jón og
hafa báðir verið hér á gagnfræða-
skólanum.
Or Þinzeyiarsýslu (miðri 15/11).
Kosningarúrshtin um land alt gleðja
alla hér um slóðir. Við þóttumst viss-
ir um að Heimastjórnarmenn mundu
vinna, en að þeir fengju svona mikinn
meiri hluta og svona eindreginn sig-
ur gerðum við okkur tæplega í hug-
arlund. Kosningaúrslitin á Akureyri
þótti öllum mjög vænt um, enda hlaut
það að fara svona þar, eftir alt sem
á undan er gengið. Bara að þið hald-
ið nú áfram í horfið sama . . .«
Verzlunarreikningar
og umslög
meö áprenfuðu firmanafni fást í
prentsmiðju Odds Björnssonar,