Ingólfur

Ataaseq assigiiaat ilaat

Ingólfur - 26.01.1911, Qupperneq 1

Ingólfur - 26.01.1911, Qupperneq 1
INGÖLFUR IX. árg. Reykjavík, flmtudaginn 26. janúar 1911. 4. blaö. Ajj '.l»l»«tl»l il.l.l.l ll»ll«lU : : .. iiiiuuuiákuiii X X X :: :: :: :: :: X X IKTGÓLFUR kemur út einu sinni i viku að minsta kosti; venjulega á fimtudögum. Árgangurinn kostar 3 kr., erlend. is 4 kr. Uppsögn skrifleg og bund- in við óramót, og komin til útgef- anda fyrir 1. október, annars ógild. Eigandi: h/f „Sjálfstjórn“. Ritstjóri og ábyrgðarm.: Gunn- ar Egilsson Vesturgötu 14 B. (Schou’s hús). — Heima kl. 4—5. Afgreiðsla og innlieimta í Kirkju- stræti 12 kl. 11—12 hjá fröken Thoru Friðriksson. -HÍ Í-HHH H Útlewdar fréttir. Holland. Stjórnin leggur til að veittar verði hér nm bil 68x/2 miljón króna til að gera virki á »tröndum Hollands. Þewar tillögur stjórnarinnar hafa mætt mikilli mótapyrnu af hálfu þjóðarinnar, og talið er víst að meiri hluti þingsins muni einnig vera þeim andvígur, enda yrði slík ráðatöfun sem þessi tæplega skilin á annan veg enn þann, að Hol- land vildi fjandskapast við England. Sumir geta sér þess til, að stjórnin hafi borið fram þessar tillögur að undirlagi Þýskalands, en stjórnin neitar því, að hér sé höfð fyrir augum pokkur ívilnun við nokkurt sérstakt ríki, og telur Holland vera jafn vinveitt bæði Þýska- landi og Englandi. Svíþjóð. Nefnd sú, sem skipuð var í septem- ber 1907 til að íhuga landvarnarmál Svíþjóðar, leggnr til að veittar aéu hér um bil 93 miliónir á 8 árum til landvarna, til að byggja fyrir 4 stór herskip og 4 minni skip og til strand- varna. Andrew Carnegie ameríaki auðmaðnrinn, hefir gefið 10 miljónir dollara (h. u. b. 36 miljónir króna) og akuli rentunum varið til „að flýta fyrir að hernaður verði lagður niður.“ John D. Rockefeller olíukonungurinn, hefir nýlega gefið há- skólanum í Chicsgo 36 miljónir króna, en áður hafði hann gefið sömu stofnun 90 miljónir. Mauritania annað hinna geysi-stóru skipa Cunard- linunnar, þeirra, er fara milli Englands og New York, vann um daginn það þrekvirki að fara fram og aftur þessa leið á 12 dögum, og stóð þó við 36 kl.tíma í New York. Þetta er lang- fljótasta ferð, sem farin hefir verið nokkru sinni milli Englands og Ameríku. Eosningarnar á Englandi fóru svo, einsog kunnugt er, að stjórnin •igraði. Atkvæðamagn flokkanna á þingi er eftir kosningarnar mjög líkt og áður var. Stjórnin hefir nú alls 398 atkv., en af þeim eru 272 af frjáls- lynda flokknum (Liberals), 42 af verk- manna og jafnaðarmanna flokknum, 74 af Redmonds-flokknum írska, og 10 af O’Brien-flokknum. En andstæðingar stjórnarinnar (Unionistar) eru 272. Má nú telja víst að endurbætur á lávarða- deildinni og heimastjórn írlands nái fram að ganga. Áætlað er að kosningarnar hafi kostað landið um 1.750,000 pund sterling. í rústum Pompejiborgar var nýlega verið að grafa og fanstþar lík af kvennmanni, sem hélt á mörgum og dýrmætum gimsteinum í hendinni? og mun hún hafa ætlað að forða sér undan gotinu með þá. Líkið er að mestu óskaddað. Portúgal. Stjórn Dýja lýðveldisins á þar erfiða daga. Bæði landherinn og flotinn eru óánægðir, og í Lissabon eru verkamenn alltaf við og við að gera verkfall. Flokkur er að myndast í landinu er vinnur að því að fá þjóðina til að kalla Manuel fyrverandi konung aftur til ríkis. í Lissabon hefir verið svo óróa- samt, að sagt er að enski sendiherrann hafi símað til London og beðið um að sent væri tafarlaust enskt herskip þangað suður. ítalska ráðaneytið hefir gefið út fyrirskipun um það, að öll fólksflutningaskip, er fara með far- þega milli ítaliu og annara landa. skuli hafa meðferðis loftskeyta-áhöld. Jarðskjálfti geysimikill varð í Mið-Asíu kringum nýiárið, og mun þsð h&fa verið einhver mesti jarðskjálfti, er sögur fara af. Fréttir eru óJjósar, en svo er sagt, að heil borg ein í Turkestan hafi sokkið með öllum íbúúm, er hafi verið um 10.000. Annar bær þar í greudinni hefir einnig gjör eyðilagat, og hefir þar farist fjöldi manns. Jarðskjálfti í Skotlandi. Um miðjan desembermánuð varð vart við talsvert snöggan jarðskjálftakipp í Glasgow og þar í grendinni. Gasæðar fóru úr skorðum nokkuð víða, en ann- ars urðu engar verulegar skemdir. Á sama svæði varð vart við jarðskjálfta árið 1888. París — sjóborg. Það hefir komið til umræðu í franska þinginu, að fé skyldi veitt til að grafa skurð, eða dýpka Seinefljótið milli Rouen og París svo, að skip geti farið þar um. Mundi þá áin verða skipgeng alla leið frá París og út í »jó. Kostnaður við þetta er áætlaður 216 miljónir króna. Mælt er að 227 þingmenn séu þessu fylgjandi enn sem komið er. Slys í kolanámu. í Lancashire í Englandi varð kring- um 20. desember f. á. voðalegt námu- slys. Nálægt 700 manns.voru að vinnu niðri í námunni þegar geysimikil spreng- ing varð þar í nánd við námnopið. Síð- an kom eldur upp í námunni og þá mynduðust ýmsar skæðar gastegundir, sem lagði ina eftir öllum göngum þar niðri. Hér um bil 350 manns gátu eftir nokkurn tíma bjargað sér upp, en 341 menn og drengir voru við vinnu síua í einu af útúrgöngunum, og reyndist ómögulegt að bjarga þeim, þrátt fyrir ítrekaðar tilraunir. — Þetta er stærsta námuslysið, sem orðið hefir í Bretlandi síðan 1866. Þýskaland og England. Tveir enskir sjóliðsforingjar hafa verið teknir fastir í Þýskalandi og kærðir sem spæjarar, tsakaðir um að hafa verið að forvitnast um fyrirkomu- lag strandvarna Þýskalands við Norður- sjóinn. Þeir voru dæmdir til 4 ára varðhalds í virki einu. Stjúrnleysingjar í London. í hverfi því í London, er Houndsditch heitir, höfðu 4 erlendir glæpamenn leigt sér hús. Að baki þessa húss var múr- veggur, en hinum megin við hann var gimsteinabúð. Bófarnir höfðu hugsað sér það ráð til að stela gimsteinum þaðan, að þeir grófu göng undir múr- vegginn og ætluðu þann veg að komast inn í búðina. Bu meðan þeir voru að vinnunni, varð lögreglan vör við þá, og 5 lögregluþjónar brutust inn í húsið. Bófarnir snerust þegar á móti þeim, skutu á þá með skammbyssum og feldu þá alla en kornust undan sjálfir, nema einn þeirra, er stallbræður hans skutu óvart. Þrír af lögregluþjónunum döu þegar, en hinir komust lífs af. Lögreglan *komst nú að, að sá bóf- anna sem féll, var Rússi og gat hún fundið hvar hann hafði átt heima, i húsi einu í Stepney, einu af hverfum Lundúnaborgar. Þegar farið var að rannsaka það hús, fannst þar allmikið af skotfærum og auk þess ýmisleg tæki og efni, sem notnð eru til að búa til sprengikúlur. Lögreglan fékk síðan vitneskju um að í þessu húsi höfðu nokkuð margir stjórnleysingjar (anar- kistar) haft aðsetur sitt og svarist í bandalsg um að búa til sprengikúlur. Houudsditch-þjófarnir voru með í því bandalagi og höfðu þeir og félagar þeirra tekið saman ráð sín um að stela úr gimsteinabúðinni i þeim tilgangi að afla sér fjár til að kaupa fyrir sprengi- efui og annað slíkt. Þegar lögreglan hafði orðið alls þessa visari, hóf hún nú leit á þessum félögum. 3. janúar fékk lögreglan vitneskju um, að 2 menn, sem haldið var að hefðu verið með í Houndsditsh-morðinu, hefðu sést fara inn í hús eítt i Sidney- street,Stepney. Þetta var um kl. 11 um kvöldið. En kl. 12 á miðnætti var settur vörður um húsið, og kl. 3 um nóttina komu 300 lögregluþjónar, sem skyldu gæta hússins og vera á verði í öllum strætum, sem þar voru nærri. Þvínæst var öllu fólki í húsunum sem þar voru nálæg gert aðvart og fólkið í húsinu sjálfu var komið út; en á meðan sváfu bófarnir. Svo leið nóttin og þeir gerðu ekkert vart við sig; en kl. 7 um morguninn fór umferðin um göturnar að vitxa, og þá sáu umsátursmennirnir, að svo búið mátti ekki standa, og 3 lögregluþjónar voguðu sér þá yfir göt- una að húsinu og köstuðu ateini innum gluggann þar sem bófarnir sváfu, og hlupu síðan aftur til sinna manna. En bófarnir voru fljótir til, skutu á þá úr skammbyssum, og særðu einn þeirra. Nú byrjaði bardaginn fyrir alvöru. Lögreglan skaut á húsið úr öllum átt- um, frá húsunum hinum megin við göt- úna, frá húsaþökum og víðsvegar að. Eu hinir svöruðu skothríðinni hraust- lega og þorði enginn að hætta sér út á götuna. Hélt bardaganum þannig áfram frameftir deginum og lögreglan vann ekkert á. Voru þá sóttar fallbyssur og loks var þarna saman komið kringum 1000—1500 manns, sem allir reyndu til að vinna á þessum tveim mönnum. Fréttin um Stepney-bardagann var nú komin út um alla London og múgur og margmenDÍ streymdi að í námunda við Sidney-street, og særðust sumir af áhorf- endunum bæði af skotum bófanna og lögreglunnar. Loksins þegar klukkan var um 1 e. h., tók lögregluliðið eftir því, að reyk íór að leggja út um gluggana á húsinn, og sást þá að kviknað var í. Skothríð- inni var þó enu haldið áfram um stund, og var nú helst búist við að bófarnir mundu hlaupast útúr húsinu og reyna til að bjarga sér á þann hátt. Eu brátt hættu þeir þó að skjóta, og hafði þá oruatan staðið í fulla 6 klukkutíma. Horfði nú allur múgurinn á húsið brenna, þangaðtil örugt þótti um, að nú mundi glæpamennirnir vera dauðir og því hættulaust að ráða til inngöngu í húsið, og kom þá slökkviliðið að og slökkti eldiun. Þegar upp var komið, fundust líkin af báðum mönnuuum, og sást þá að þeir höfðu báðir ráðið sér bana með byssukúlu. Þannig lyktaði þá þessari orustu; eldinum hafði loks tekist að vinna það þrekvirki, sem 1000—1500 manns hafði í marga klukkutíma reynt árangurs- laust: að vinna á einum tveim mönnum. Járnbrautarslys. Á Þorláksmessukvöld varð sorglegt járnbrautarslys á brautinni milli bæj- anna Leeds og Carlisle 1 Englandi. Hraðlestin, sem fer milli London og Edinborgar rakst á aðra farþegalest, báðar á leið norður og brunnu 10 manns til bana, áður en hægt væri að bjarga Ungbarn, 6 mánaða gamalt brann þar ÍDni í einum klefanum fyrir augunum á foreldrum sínum. Albertí var nýlega fluttur yfir í hegningarhúsið í Horsens, þar sem hann nú á að vera í 6 ár. Hann var hinn kátasti á leið- inni, sagði fylgdarmönnum sinum skrítl- ur, mælti fyrir minni þeirra, og þar fram eftir götunum.

x

Ingólfur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ingólfur
https://timarit.is/publication/189

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.