Ingólfur


Ingólfur - 18.07.1911, Síða 1

Ingólfur - 18.07.1911, Síða 1
IX. árg. 29. blað. ■h|íHHHHHHHHHH*«+*MH-MMHHHHHHHÍ|m- I ingólfuR ± í kemur út elnu sinni i viku að minsta * kosti; venjulega á þriðjudðgum. + Árgangurinn kostar 3 kr., erlend- í is 4 kr. Uppsögn skrifleg og bund- ± ;n við áramót, og komin til útgef- * 'anda fyrir 1. október, annars ógild. | Ritstjóri og ábyrgðarm.: Gunn- T ar Egilsson Vesturgðtu 14 B. J (Schou’s-hús). — Má finna á af- j greiðslunni frá kl. 11 — 12. T Afgreiðsla og innheimta i Kirkju- ± stræti 12 kl. 11—12 hjá P. E. J. -jj Halldórssyni, lækni. ♦ ÍHMHHMHHMHMHMMMHMMHHHHHMH*M Störstúkuþingið bannið. Ef'tirtektarrorð yfirlýsing. Blaðið „Templar" akýrir frá því, að á Stórstúkuþinginu á Seyðisfirði í vor hafi í einu hljóði verið samþykt eftir- farandi yfirlýsing: „Stór*túkan Iý*ir yfir, að hverjir þeir templarar, er vinni gegn framkvæmd laga um bann gegn innflutningi áfengia, verði að teljaat sekir um sknldbinding- arbrot." Þessi yfirlý-ing er eftirtektarverð. Stóratúknþingið heíir með þe»su betnr enn áðnr markað atefnu templara, dreg- ið upp eÍDlitan bannfánan; undir því merki eiga þá hér eftir allir templarar að berja*t, og þeim, sem ekki kynnu að vilja það, er þar með gefin vinaamleg og ákveðin bending um það, að þeir verði að víkja burtu úr fylkingunni. Alt þangað til bannmálið kom á dag- skrá hjá þjóðinni, var það almenn akoð- un manna útífrá, að templarsfélagið væri í þeim tilgangi stofnað, ogynni í þeim tilgangi, að efla og anka bindindi, með- al annars með því, að leitast við að fjölga meðlimum aínnm sem mest. Þessi stefnuskrá og þeaai tilgangur félagains var að allra áliti hinn virðingarverðasti og ávann félaginn og starfaemi þess vináttu og virðingu margra góðra manna. Þeasa starfsemi templarafélagsins viðnr- kendi alþingi líka sem góða og þarflega með því, að veita félaginu styrk af landsins fé „til eflingar bindindi“. Yíð því er í rauninni ekkert að segja, og var heldur ekkert sagt, meðan félagið hélt sér við sína upphaflegu lofsverðu stefnn, efling og aukning bindindis með- al landamanna. Fyrirkomulag félagsins var að vísn mjög gallað; það tók það heit af öllnm félögum sínum, að neyta aldrei áfengis það sem eftirsé æflnnar, þó það væri reyndar öllum mönnum ljóst, að fæstir þeirra manna, sem í fé- lagið ganga, geri það í þeim tilgangi, að neyta víns aldrei framar; með þessu ól félagið á virðingarleysi meðlimanna fyrir orðum og eiðum sjálfra síd, eins og áður hefir verið sýnt hér í blaðinu. Ennfremur er innan þessa félagsskapar Reykjavík, þriðjudaginn 18. júlí 1911. blandað saman svo ólíkum og svo óskyld- nm málum, sem templarabindindi og kristindómi; með þessu móti hlaut félagið annaðhvort að fæla burtu frá sérþá menn, sem ekki eru kriatinnartrúar, eða ala einnig á þesau sviði á hræaninni og yflr- drepsskapnnm. Þetta eru hvorttveggja hinir verstu meinbugir, einsog allir menn hljóta að viðurkenna. En alt nm það hafði félagið áunnið sér hylli margra manna, vegna hins lofsamlega tilgangs, eflingar bindindisseminnar. En nú á síðuítu tímum virðist félag- ið hafa tekið miklum stakkaskiftum. Forsprakkar þeas hér á landi virðast nú vera borfnir frá þessari stefnn; þetta prívat-félag, sem hingað til hafði haft það að markmiði að vinna með frjálsum eamtökum að eflingu bindindis í landinu, sneri nú við blaðinu, og þeim megin var alt öðrnvísi nmhorfs. Þeir menn, sem gengið höfðu í félagið í þeirri trú, að það væri privat-féiag, frjálst bindindis- félag, sem að vísu lagði ýmisleg bönd á meðlimi sína, en einskorðaði þau þó aðeins við meðlimina, fóru nú að sjá, að þeim hafði skjátlast. Forvígismenn þessa félagaskapar, hér á landi voru farnir að Ieitast við að koma öðru skipu- lagi á hann, snúa honum frá því að vera prívat-félag uppí það að verða landsmálafélag, félag sem berst. fyrir einni ákveðinDÍ stefcu í lardamálum, og sem þarafleiðandi reynir til að hafa áhrif á koaningar til alþingia, í atuttu máli, reyna að gera Templarafélagið, sem eðli sinu og tilgangi samkvæmt, átti að vera landsmálaskoðanalaus prí- vat-félagssk»pur, að pólitísku stórveldi. Lengi vel var þessu þó engu skeytt af þeim mönnum innan Goodtemplara- reglunnar, sem töldu þetta landamála- vaatur félagaakapnum sem slíkum óvið- komandi, og það er fullknnnugt *ð með- al Goodtemplara eru margir, bæði menn og konnr, sem mótfallnir ern bauninu og enn fleiri sem láta sig það engu skifta. Þessir menn og konur eru þó í félaginu, margir hverjir hinir ákveðn- Uitn bindindisvinir, vegna þess að þeir hafa þá skoðun að félaðið sé fyrst og fremat Mndindisfélag, og þann félagsskap vilja þeir styðja. En nú kemur þessi yfirlýsing, þetta valdboð, sem i rauninni merkir hvorki meira ué minna enn það, að allir þeir templarar, sem telja bannstefnuna at- hugaverða, skuli verða félagsrækir. Ef ég vil snúa frá villu míns vegar, ger- ast Templar, og lofa að neyta aldrei framar áfengis, þá fœ ég það ekki nema ég sé þeirrar skoðunar í bannmálinu, sem þeir háu herrar í Störstúkunni vilja vera láta. Templarar þykjast hafa bjarg- að mörgnm manni frá „eyðileggingu of- drykkjunnar“; nú neitar Störstúkan þeim mönnum u m nhjálp“, sem ekki eru sömu skoðunar og hún uni bannmálið. Og þá félagsbræður sína, sem ekki vilja beygja kné sín í auðmýkt fyrir vald- boði þeirra, viljaþessir Stórstúkuherrar reka úr félagsskapnum, eigandi þ»ð á hættu, samkvæmt hngsunargangi þeirra, að þessir frávillingar verði aftur að bráð áfengisnautnarinnar. Er þetta nú besta ráðið til að „eíh bindindi“ í landinu og hjálpa þeim mönn- uro, sem veikir eru fyrir? Er þetta ráðið með aukning og eíling bindíndis fyrir augnm? Nei, og þúsnnd siunum nei. Með þessari yfirlýsingu, með þessu valdboði er enn betur enn áðnr slegið föstnm þeim sannleika, sem oft heflr verið bent á hér í blaðinu, að forsprakkar templ- ara eru nú farnir að láta bindindisefl- inguna sita algerlega á hakanum fyrir bannofsa sínum. Því fer reyndar fjarri að vér andbanningar láum þeim að þeir berjist fyrir að þvinga öllum landsmönn- um til að fara í bindi, ef það er sann- færing þeira, að það sé rétt og gott. Yér mundnm ekki lá þeim þótt þeir sendu alla menn til djöfulains, ef þeir telja það heillavænlegt, því hver maður á auðvitað að fara eftir sannfæringu sinni og engu öðru, enda- áskiljum vér oss líka réttinn til að spyrna á móti, samkvæmt vorri sannfæringu! En það Iáum vér þessum Stórstúku- herrum, er þeir bölsótast með þessi bann- lög sín í nafni bindindisins, því það er tvent ólíkt, eins og þessi síðasta yfir. lýaing aýnir best. Og ef þeir Templar- ar, sem er það alvörumál að vilja efla bindindið, rísa nú ekki upp sem einn maðnr og mótmæla þessar valdboðsyfir- lýsingu, og ef Stórstúkuþinginu á Seyð- isfirði tekst þesai tilraun til að gera templarafélagið að bannsfélagi, þá er það sjálfsögð skylda félagsina að kann- aat við lit ainn, og viðurkenna það nú, að það sé horfið frá stefnu sinni, viður- kenna að bindindistal þess sé að eins hræsni og yflrvarp, viðnrkenna að það sé úlfnr i sauðargæru, bannfélagí bind- indiafötum, svo að landsmenn viti við hverja er að eiga. Hin íslenska iðnsýning, NWurl. Þar er ennfremur einkar fagurt, vel og mjög haglega gert, rósagreipt (incru- sté), spónlagt. og fínpólerað saumaborð eftir trésmíðameistara Bjarna Jónsson, — einn af félagsbræðrum þeirra tré- smíðameistara: Jóns Halldórisonar, Jóns Ólafssonar og Kolbeins Þorsteinssonar, Enn má nefna eitt af mestu hugvits- smiðum, er sendar hafa verið á sýningu þessa, og það er fyrst og fremst véla- skrá sú hin mikla eftir Magnús Þórar- insson, og bendir hennar vélalögmáls- bundna vinnuverksvið á fádæma um- hugsun og nákvæma yfirvegun möguleg* leikanna. Þar er dúnhreinaunarvél eftir sama. í gjálfu sér er vélin einföld og óbrotin, en samt sem áður virðist hún fela í sér svo víðtæka og viðeigandi hugsun, er nægi til þess að leysa dún- hrælingar-ráðgátuna, þ. e.: hvernig yfir- leitt fljótast, best og ódýrast sé auðið að hreinsa dún. Yél þessi á óefað mikla framtíð fyrir sér hjá dúntekjumönnum íslands og máske víðar. Þó sýning þessi, i daglegu máli, — alment nefniit iðnaýning, þá er alls ekki svo að skilja, að þangað eigi og megi að eins senda sanna iðnaðarmuni, er gerðir séu eingöngu aflærðum iðnaðar- mönnum, heldar þvert á móti. Áallar almennar og samskonar sýningar og þessa má genda alt það, sem mannleg hönd og hyggja getur framleitt, hamið og handsamað, hverju nafni sem nefn- ist, því öll iðja er bundin arSs við von; þar sem um sannan arð og afrakstur er að ræða »f vinnunni, þar með er mögullegleika skilyrðið fyrir hendi til úrlansnar lífsþarfanna, og þykir þá björn- inn oft vel unninn, þegar sá hnútur er leystur. — Eins og mönnum mun, nú um stundir, yflrleitt kunnugt nm, þá heflr þýðing sýninga mjög stofnsterka, víðtæka og djúpstæða rót til að standa á til eflÍDg- ar fyrir hagamuni, ekki að eins hvers einstaklings út af fyrir sig, heldur og einnig fyrir hagsmnni hinna sönnu fram- fara þjóðanna. Sýningar eru í heild sinni einskonar sameiginlegur alþjóða- markaðnr, er einn og sérhver má sækja og leggja þar fram til skoðunar það úr atvinnu- og iðjugrein sinni, er honum kann að vera hugleikið um, að verði sem best og víðast þekt, og að lokum fá þar uppkveðinn réttmætan og hlut- drægnislausan dóm yfir hinn sanna gagni og gildi hlutarins. Þetta vekur beinlínis og óbeinlínis kapp og vandvirkniahug meðal manna; allir vilja auðvitað hafa sem mestan arð og heiður af iðju sinni. Á þennan hátt verður mannsandinn alveg ósjálfrátt knúður áfram til atorku og fylgis, og til úrlausnar þarfanna, þrantanna og ráðgátanna; með þeasu myndsst aftur smátt og smátt sannnr manndómur, þrek, djörfang og áiæði til til nýrrar atlögu og framsóknar, o: afl andans sigrar að lókum allar þrantir. — Af þessu afarstutta yfirliti yflr verk- svið og algildis-þjóðþýðingu sýninga, má nokkurnveginn geta sér til hversu af- armikið framtíðar verkefni felst í gunn- stæðishugtakinu sýning fyrir hinn fram- sækjandi mannsanda og fyrir hina iðj- andi bönd, bæði hinnar núverandi kyn- slóðar og hinna komandi kynslóða jarð- búanna. — Sökum þess að sýning þessi er svo feiknafjölbreytt að mnnum, þá útheimt- ist auðvitað jafnmargar dómnefndir og iðjugreinarnar eru, sem sýnismunirnir eru sendir frá til umsagnar og álits, — þarf því helst einar og alstœðar, stuttar og laggóðar verksviðsreglur fyrir allar dómnefndirnar til að byggja dóma sína á og ætti sýningarnefndin sjálf að út- búa þær reglur og láta prenta þær, og því næst. að afhenda hverri dómnefnd 1 eintak, áður enn verulega er gengið til úrslitadóma í nefndunum. Með þess- um hætti fengist nær því óyggjandi trygging fyrir samstæðum samræmisdómi gegnum allar dómnefndirnar, o: öll dóms- ákvæðin yrðu samróma og hlutfallsleg. Þegar allir verðlaunadómarnir eru fallnir, ætti einna best við að verðlauna• ákvæðið væri sett við hvern hlut, er verðlaunaður kynni að verða, svo jafnt eigendum sem skoðendum geflst opin- berlega kostur á að sjá hvernig umhorfs er. —

x

Ingólfur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ingólfur
https://timarit.is/publication/189

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.