Ingólfur


Ingólfur - 19.09.1911, Síða 1

Ingólfur - 19.09.1911, Síða 1
IX. árg. 38. blað. Reykjavík, þriðjudaginn 19. september 1911. Kórdnan á yerkið. Alþingisforsetinn smánar Frakka. Eftir að fnlliett yar grein um Rúðu- hneykilíð, sem prentnð er á öðrum stað í blaðinu, barst oss kosningablað hr. Skúla Thoroddsen, „Norður-ísflrðingur“. Alt blaðið er eingöngu um Rúðuhneyksl- ið, og er þar margt sem lesendum vor- um mundi þykja fróðlegt að sjá, en því miður getum vér ekki prentað það alt upp. Eu þar er þó ein grein, sem blað- ið segir að síðar eigi að prenta í „Þjóð- viljanum", og neyðumst vér til að leiða athygli lesenda vorra að henni, og prent- um hér upp kafla úrhenni; leturbreyt- ingar eru gerðar af oss. „-----Pegar ég vistaði mig á einu af allra bestu og dýrustu hótelunum í Rouen, gerandi þá qrein fyrir mér að ég væri alþingisforseti Islendinga — sem og synandi skilríki fyrir því, frá frakk- neska konsúlnum í Beykjavík, í livaða erindum ég var kominn, bjóst ég að vísu við veisluboði; en — það kom aldrei, og stóð mér þá líka hjartanlega á sama um það. Með sjálfum mér lilö eg að sjátfsögðu að frakknesku gestrisninni, sem mér var sýnd, og hugsaði — sem og mun hafa veríð —, að það, sem borgurunum í Rouen hefði reyndar aðallega gengið til þess, að stefna til sín fjölda manna úr öllum áttum, hefði verið það, að ná í pcningana þcirra---------------o. s. frv. Af fyrri hluta þessarar klausu sést það nú enn skýrar en af simskeyti hans til danska blaðsins „Politiken“, að al- þingisforsetinn hefir hvergi sagt frá stöðu sinni nema á Hotel de la Poste, Og að hann heíir þar sýnt skilríki frá frakkneska konsúlnum um hvert erindi hans sé; þetta er auðvitað óheyrilegur naglaskapur af alþingisforsetauum, því hvað í dauðanum varðaði þjónustufólkið á gistihúsinu um það, hvert erindi hans var. Og þá er hitt ekki síður nagla- skapur er bann heldur, að öðruvísi en þetta þyrfti hann ekki að segja til sin, svo muni það óðar berast eins og eldur í sinu um alla Rúðuborg, að alþingis- forseti íslendinga sé þar kominn, og muni slík stórtíðindi ekki vera lengi að berast til hátíðanefndarinnar; ogíþessu trausti situr þá alþingisíorsetinn í heila viku á Hotel de la Poste, og bíður eft- ir veisluboði; en er það kom ekki, „8tóð honum það líka hjartanlega á sama“, þó það væri einmitt til þess, að sita veislurnar, sém hann var þangað kominn. Með öðrum orðum, hér er eig- in játning mansins fyrir, að hann heflr, liklega af einskærum rataskap, hvorki hreyft leggg né lið til að gera sér mögulegt að framkvæma það erindi, sem honum var falið af þinginu og veitt fé til. En þá tekur út yflr alt, þegar al- þingisforsetinn ætlar að reyna að skella skuldinni af naglaakap sínum og rata- skap yflr á frakknesku þjóðina; „eg hló að frakknesku gestrisninni sem mér var sýnd“, segir hann. Hugsið yður aðra eina ósvífni og þetta. Eftir að maður- inn er búinn að hundsa hið vingjarn- lega boð Frakka með því að gera ekki svo mikið sem vart við sig hjá þeim, sem honum buðu, þá bregður hann þeim opinberlega um ógeatrisni. En umboðs- maður vor, alþingisforseti íslendinga lætur sér ekki nægja þetta, heldur bæt- ir hann gráu ofan á svart með því að beina þeim getaökum að þeim, sem hon- um buðu, að þeim hafi reyndar ekki gengið annað til vinaboðsins, en að ná í jxeningana — þessar 60 kr. eða hvað það nú var, aem alþingisforsetinn borg- aði á gistihúsinu! Hvort þykir íslendingum sómi að al- þingisforseta sinum? Þykir mönnum ekki hlýleg aú kveðja sem hann sendir vinaþjóðinni? Þykir mönnum ekki gott til þess að vita, ef þessi vináttuorð ber- ast suður til Frakklands? Hingað til heflr það ekki þótt fallegur siður á íslandi að svívirða þá, sem senda mönn- um kurteis vinaboð; en ef til vill er það ein af þeim nýbreytnum, »em hr. Skúli Thóroddsen hafði hugsað sér að koma í framkvæmd, ef hann hefði orð- ið ráðherra, sbr. þingræðu hans í vetur. „Þeir sem smáir eru, gleymast", seg- ir alþingisforsctinn í skeyti sínu til „Politiken". Eitthvað mun vera til í þessu; og það kann að vera, að þessi smánar og svívirðingarorð í garð Frakka gleymist, vegna þess að vér erum svo smáir; ef vér værum stærri mundi sví- virðing forsetans á Frökkum lenda á allri þjóð vorri, og vér mundum hljóta að bjóða fyrir það bætur opinberlega. Eu illa situr á hverjum manni, og þá ekki best á alþingisforseta lands vors, að skáka 1 þvi skjólinu, að vér séum svo smáir og svo aurnir, að óhætt sé að svívirða og smána hvern sem er, vegna þess að enginn muni telja það ómaksins vert að sparka í oss. Sér þessi maður nú ekki svo sóma sinn, að hann vilji nú eftir alt þetta draga sig út úr íslenskri pólitík af frjálsum vilja? Kða þykir honum hann enn ekki hafa hneykslað nóg? Það má þá verða meir en lítil yfirsjón, sem rek- ur hr. Skúla Thóroddsen óneyddan út úr alþingishúsi íslendinga. Hátíðahöldin í Kristjaníu. Þess hefir áður verið getið hér í blað- inu, að rektor við hinn nýstofnaða há skóla vorn, próf. B. M. OJsen, fór til Kristjaníu nú í haust, til þess &ð færa þar háskóla Norðmanna heillaóskir i til- efni af að 100 ár voru liðin síðan hann var stofnaður. Próf. Olsen hafði með- ferðis skrautrituð ávörp annað frá há- skóla vornm oghitt frá bókmentafélaginu. Var mikið um dýrðir í Kristjaníu um þessar mundir, og höfum vér nú séð frásögn norskra blaða um hátíðahöldin þar. Þar voru samankomnir umboðs- menn allra helstu háskóla, úr öllum heimsálfum, og var það hinn mesti fjöldi. Við aðalhátíðina, sem haldiu var í þjóðarleikbúsi Norðmanna, áttu um- boðsmenn háskólanna að bera fram kveðjur sínar; en tíminn vanst ekki til að láta þá alla tala, og hafði hátíðar- nefndin norska því raðað öllum um- boðsmönnum háskólanna í flokka, og átti hver flokkurinn að kjósa sér mann, sem orð akyldi hafa fyrir þeim. í fyrsta flokki var danski háskólinn og íslenski háskólinn; í öðrum flokki voru sænsku háskólarnir; í einum flokki voru allir Austur-Evrópu háskólarnir, og saman í flokki voru ennfremur allir frakkneskir, svissneskir, belgískir, hollenskir, ítalsk- ir og spánskir háskólar, o. s. frv. Sá flokkurinn, sem rektor háskóla vors lenti í, kaus sér próf. Kr. Erslev, rektor við Kaupmannahafnarháskóla til að hafa orð fyrir sér, og fekk því um- boðsmaður vor ekki tækifæri til að bera þar munnlega fram kveðiusendingu vora. Norska stórblaðið „Verdens Gang“ unir því illa, að hátíðanefndin norska skyldi hafa bagað því svo, að íslenditgnum gafst ekki færi á, að talá þar; „það er Islendingum að þakka, að vér getum haldið þetta hundrað ára afmæli“ segir blaðið. í öllum skýrslum blaðanna er minst með mjög hlýlegum orðum á háskóla vorn og háskólarektor sérBtaklega, og var þar þó vitanlega viðstaddur hinn mesti sægur af öðrum frægum og vel- metnum prófessorum frá gömlum og þektum háskólum, sem blöðin töldu sig ekki hafa pláss til að minnast á. Að lokum var háskólarektor var gerður að heiðursdoktor, ásamt 101 öðrum fræg- um vísindamönnum, en viðstaddir voru aðeins 16 þeirra, og er þetta oss því hinn mesti heiður. B!öð Sjálfstæðisflokksins fluttu um daginn þá fregn, að próf. Erslev hafi við þessi hátíðahöld flutt kveðju frá „Kaupmannahafnarháskóla og lýðháskóla Reykjavíkur“ og hafi próf. Olsen þagað við þessu. Blöðin fóru mjög þungum orðum um próf. Olsen, fyrat og fremst fyrir það, að hann skyldi hafa „látið“ próf. Erslev hafa þarna orð fyrir há- skóla vorum, og þvínæst fyrir það, að próf. Olsen skyldi ekki mótmæla, er oss var sýnd sú háðung, að háskóli vor var kallaður „lýðháskóli." Þá þegar var tekið fram hér í blaðiuu, að ekki væri rétt að leggja neinn dóm á framkomu próf. Olsen að svo komnu, áður en ná- kvæmar fregnir lægju fyrir um þetta mál. Nú höfum vér fengíð af því ná- kvæmar fregnir, og nú vitum vér það, að próf. Olsen gat ekki að því gert, að Erslev var látinn flytja kveðju háskóla vors; þvi hafði norska háskólanefndin svo fyrir komið, með þvi að setja Is- land og Danmörku í flokk sér; frá danska háskólanum voru þarna viðstadd- ir 5 prófessorar, en aðeins 1 frá oss, og er það því sýnilegt, að Danir höfðu þar afl atkvæða er kjósa skyldi fram- sögumann. Það var ilt að próf. Erslev skyldi verða fyrir kjörinu, hann hefir áður gert tilraun til að smána háskóla vorn; en við því varð nú ekki gert. Hitt er ilt, að hvorugur þeirra ís- lendinga, er í Kristianiu voru staddir á þessum tíma, próf. Olsen eða Bjarni Jónsson viðskift&ráðunautur, skyldu verða til þess, að mótmæla þeirri ósvífni sem háskóla vorum var sýnd að hálfu Danans. Oss er það að sönnu fyllilega Ijóst, að það hefði ekki aukið veg vorn, þó þeir hefðu þá þegar í hátíðasalnum risið upp til mótmæla; sá blettur, sem Daninn reyndi að klína á oss, varð ekki þveginn af með veisluspjöllum. Vér höfum líka heyrt það sagt, að próf. 01- sen hafi á eftir einslega átalið þetta við próf. Erslev, og hafi hann sagt, að það hafi einu^e'is verið af misgáningi hjá sér, er luu;; kallaði háskóla vorn „lýðháskóla“; en þetta erekkinóg. Að vorri hyggju hefði það verið réttast, ef annarhvor þeirra, haskólarektorsins eða viðskiftaráðunautsins, sem báðir höfðu stöðu sinnar vegna ekyldu til að bera af oss blak, hefðu fengið próf. Erslev til að gefa opinbera yfirlýsingu um, að þetta hafi verið misgáningur; e/'Erslev hefðí færst undan því, þá hefðu hvaða meðöl _sem er, verið leyfileg til að átelja ókurteisi hans í vorn garð. Hinar hrottalegu árásir fyrnefndra blaða á próf. Olsen virðist oss þó keyra fram úr öllu hófi. Og það er víst, að hin ókurteisa framkoma Danans í vorn garð verður honum og hans þjóð til meiri skammar en oss; Dorsk blöð hafa gert þetta mál að umtalsefni, og falla allar átölur þeirra á Danann — og Norðmenn, sem óviljandi urðu orsök til þessarar ókurteisi í vorn garð — en ekki á íslendinginn. Rúðuhueykslið. Yíirlit yfir aðfarir alþingisforsetans. Þetta hneykslismál virðist nú loksins Jiggja nokkurnveginn Ijóst fyrir í öllum einstökum atriðum, og skulum vér því hér gefa nokkurskonar yfirlit yfir það helsta, svo að menn alment geti áttað sig á því. —-------- Alþingisforseti Skúli Thóroddsen fær í vetur, meðaD á þingi stóð, bréf frá forstöðunefnd 1000 ára hátíðar Norman- dís, og er honum í því bréfi boðið að vera viðstaddur þ&u hátíðahöld, sem fram eigi að fara í Paris tvo nánar tillekna daga. Alþingisforsetinn var ekki ófús á að fara þessa för, en af alþektri hæ- versku sinni vildi hann ekki sjálfur sækja um styrk til fararinnar, heldur urðu nokkrir af flokksbræðrum hans til að bera það npp sem breytingartillögu við fjárlögÍD, að alþingisforsetanum yrðu veittar 1200 krónur til að sækja hátíð- ina. Breytingartillaga þessi var feld í neðri deild. — En hinn hæverski al- þingisforseti var þó ekki af baki dott- inn fyrir það; nú var þessum lið kom- ið að sem breytingartillögu við fjárauka- lögin, við einustu og síðustu umræðu þeirra í sameinuðu þingi. Þetta var greinilegt brot á þingsköpunum, en hr. Skúli Thóroddsen var þar sjálfur for- seti og hann úrskurðaði tillöguna rétti- lega framborna. Var nú ferðastyrkur- inn samþyktur. Síðan mun alþingisforsetinn hafa skrif- að hátíðanefndinni héðan að heiman, og tilkynt henni, að hann ætlaði sér að koma til Eúðuborgar; eins og áður er sagt var alþingisforsetanum boðið til Parísar, og er það því nokkuð óljóst af hvaða ástæðu hann hefir ákveðið sér að fara til Eúðu, því þangað hafi hon- um ekki verið boðið, að þvi er séð verð- ur af boðsbréfinu. Mag. Guðmundur Finnbogason fékk líka styrk af landsfé til að sækja 1000 ára hátíð Normandís; hann fór af stað nokkru á undan alþingisforsetynum; en áður enn hann fór, bað alþingisforset- inn hann að vera sér innan handar þegar til Frakklans kæmi, bað hann að skrifa sér leiðbeiningar til Leith, og gaf honum utanáskrift sína til Leith.

x

Ingólfur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ingólfur
https://timarit.is/publication/189

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.