Ingólfur - 28.10.1911, Side 1
IX. árg.
43. blað a.
USTGÓLFtTR
kemur út elnu sinni í viku að minsta jfc
kosti; venjulega á þriðjudögum. *
Árgangurinn kostar 3 kr., erlend.
is 4 kr. Uppsögn skrifleg og bund-
in við áramót, og komin til útgef-
anda fyrir 1. október, annars ógild.
Ritstjóri og ábyrgðarm.: Gunn-
ar Egilsson Laugaveg nr. 38. —
Má finna á afgreiðslunni frá kl.
11-12.
Afgreiðsla og innheimta í Kirkju-
stræti 12 kl. 11—12 og 4—5 hjá
P. E. J. Halldórssyni, lækni.
Bannmálið og
fjárhagsmálið.
Fögur eru loforð sjálfstæðismanna
og heimastjórnarmanna um meðferð
fjármálanna. „Sjálfstæðismenn vilja leit-
ast við af öllu megni að halda fjárhag
landains og peningamálum í sem beztu
horfl“. Heimastjórnarmenn vilja „að
farið sé vel og ráðvendniílega með al-
almanna fé“. En hvernig kemur þetta
heim 7Íð stefnu þÍDgmannaefna þe«s-
ara flokka í bannmálinn? Báðir eru
með bannlögunum. Þeir vilja ekki við
þeim hreyfa, að minsta kosti ekki fyr
en þau einföldu mannréttindi, sem með
þeim eru brotin, hafa verið borin und-
ir þjóðaratkvæði á ný. Heimastjórnar-
menn vilja fara ráðvendnislega með
almannafé. En féð verður að vera til.
Hvaðan ætla báðir flokkar að taka þær
200000 kr. á ári, sem landssjóðnr miss-
ir við bannlögin? Því svara þeir ekki.
Eu einhversstaðar verður að talca þœr.
Og vér vitum vel hvaðan þessar 200000
kr. verða teknar. Næsta þing verð-
ur, svo framarlega sem bannlögin
standa, að leggja álögur sem þeim svar-
ar & bah alþýðunnar. AuDað hvort
verður enn á ný að hækka kaffl- og
sykurtollinn eða leggja nýja tolla á
aðrar jafnnauðsynlegar eða enn nauð-
synlegri vörur, og það mega Reykvik-
ingar vita, að þeir fá að borga góðan
bróðurpart af þeim álögum. 200000
kr. á ári. verða ekki gripnar upp án
stórvægilegrar breytingar á tolllöggjöf-
inni og þeim dembt einmitt áþá gjald-
endur sem minst hafa goldið af áfeng-
istollinum. Sé það hins vegar tilgang-
urinn að reyna að bana bannlögunum
með þjóðaratkvæði á næstu árum,
hvernig verður það jþá réttlætt að fara
að hringla í tolllöggjöfinni aðein» til
að bíða eftir þjóðaratkvæði um mál,
sem engin siðuð þjóð á að láta vera
komið undir þjóðaratkvæði ? Ekkert
hefir víðtækari áhrif á alla framleiðslu
og öll viðskifti í landinu en einmitt
tolllöggjöfln. Áhrif hennar greinast út
í yztu æsar þjóðlífsins. Og engin
þroikuð þjóð hringlar með slíkt mál í
blindni. Segi því sjálfstæðismenn og
heimastjórnarmenn til: Bvaðan eiga
þessar 200000. hr. á ári að homa? Á
Reykjavík, laugardaginn 28. október 1911.
landssjóður að halda uppteknum hætti
og gefa út 200000 kr. víxil á ári
hverju til þeas að landsmenn drekki
ekki áfengi — nema í laumi? Á
landið að taka til fyrirmyndar þá bind-
indispostula, sem drekka ekki brenni-
vín en ríða vixlum gandreið beint í
gjaldþrot? Þingmannaefni andbann-
inga hafa hreinan akjöld. Þeir vilja
ekki taka 200000 kr. álögur á ári af
herðum útlendinga og þeirra, sem efni
hafa á að kaupa munaðarvöru, og
demba þeim á bah alþýðu manna sem
hefir verið laus við þær áður. Þeir
vilja afnema þrælalögin á næsta þingi.
Þeir vilja ekki að landssjóður kaati
200000 kr. á ári í ajóinn til þess eins
að landsmenn geti drukkið ótollað
áfengi — í laumi.
Sjálfstæðismenn!
Dr. Jón Þorkelsson er *vo ósvífinn,
að hann býður aig fram til þings aftur,
og mæliat til að fá atkvæði okkar eftir
að hérumbil 500 af hans eigin hjösendr
um hafa lýst -vantrausti á honum sem
þingmanni.
Athugið vel hvað það er aemmaður-
inn fer fram á.
Hann ætlast til að þið étið ofaní
ykkur aftur, það sem þið sögðuð hon-
um í fyrra vetur. Hann er svo bfræf-
inn, að hann mælist til, að þið kyasið
í dag þann stað, sem þið apörkuðuð í
í fyrravetur. Hann heldur að þið sé-
uð svo miklir hringlandar og dulur,
að þið kjósið hann í dag, þó þið vild-
uð ekkert hafa með hann að gera í
fyrravetur.
Þessa óavífni þolið þið honum ekki.
Burt með hann, og burt með félaga
hans, herra Emm Téhá Ess Blönda/il
með hái — hann heflr víst nóg að gera
að hugsa um silfurbergið sittl Það er
ekki vert að trufla hann.
Sjálfstœðismaður.
Skjaldborgin.
Sjálfstæðismenn tala um að slá skjald-
borg um sjálfstæðiamál íslands , með
því að kjóaa M. Th. S. Blönda/il og dr.
Jón!!!
Þeir þykjast vera hræddir um, að
uppkastinu verði dembt yfir þjóðina, ef
Magnus Th. S. Blöndahl og dr. Jón
Þorkelsson verði ekki kosnir!!
Trúið þeim ekki kjósendur, þeir eru
ekkert hræddir um það, en þeir eru
orðnir hræddir um endann á aér og
ætla að reyna að bregða uppkastinu
fyrir hann.
Sjálfstœðismenn! Dr. Guðm. Finn-
bogason er ykkur þó óhætt að kjósa;
hann er frumvarpaandstæðingur þó hann
vilji ekki soramarka sig flokknum. Og
Halldór Daníelsson er ykkur óhætt að
kjósa, hann hefir lýst því yfir, að hann
mundi af alefli berjast móti því, að sam-
bandsmálið yrði leytt til lykta á næsta
kjörUmabili.
Þesai mótbára „ísaíoldarliðsina" er
því ekkert annað enn sandur, aem reynt
er að strá í augu kjósenda, og þar með
er burtu fallin aú einasta ástæða, sem
gat verið með því að kjóaa fyrv. þing-
menn höfuðstaðarins aftur. Þann eina
host sem M. Th. S. BI. og dr. J. Þork.
hafa, hafa lika Haldór Daníelsson og
dr. Guðm. Finnbogason, og auk þess
ótal marga aðra kosti.
Kjösendur! Áður enn þið farið inn
i klefann til að kjósa Emm Téhá Ess
Blöndahl, spyrjið hann þá hvernig sé
um forkaupsréttinn á silfurbergaréttind-
um hans, sem hann lofaði Páli J. Hal-
dórssyni frá Flateyri, og sem getið er
um í síðasta blaði. Spyrjið hann hvort
hann hafi munað eftir honum, þegar hann
bauð Zeiss í Jena þessi sömu réttindi.
Spyrjið hann hvort þeasi forkaupsrétt
ur Páls hafi aamt ekki verið Jþingles-
ur.
Ef hann getur ekki gefið greinileg
svör við þessu, kjósið hann þá ehhi.
Hvaða tryggingu hafið þið fyrir því
að hann muni frekar eftir loforðunum
til ykkar, kjósenda, þegar á þing kem-
ur, heldur enn loforðum ainum og þing-
lesum skuldbindingum til Páls J. Hal-
dórssonar ?
Sveinbjörn skáldi.
íaafoldarliðið segir að það sé „lýgi“,
að „Sveinbjörn þjóðskáld Björnsson“
hafi ætlað sér að vinna með „brenni-
vínsmönnum“.
Það er margsannanlegt, að hann
bauðst til að vinna að kosningu Haldórs
Daníelssonar.
Hann sagðist þó ekki vilja gera það
fyrir minna en 200 krónur. Þessu vildu
fylgismenn Haldórs Daníelasonar ekki
ainna, þeir vildu ekki kaupa kjósendur.
Nokkrum dögum seinna brá svo við,
að „Sveinbjörn þjóðskáld“ fór að vinna
af alefli með dr. Jóni og Emm Téhá
Ess Blönda/il.
Ekki vitum vér hvort hann hefir
gefið þeim „afslátt".
Kjósendur!
Gætið yðar fyrir falskennendum,
er segja að kjósendum komi það ekk-
vert við, þó einföldustu mannréttindi séu
brotin og landssjóður sviftur með því
miklum og hagkvæmum tekjum.
Gætið yðar fyrir póltískum hall-
inkjömmum.
Gætið yðar fyrir þeim, erhrækja
út úr sér nafnbótarvínum með fyrirlitn-
ingu, en eru þó til altaris hjá bann-
mönnum.
Gætið yðar fyrir þeim sem dorga
atkvæði með því að þykjaat fylgja þvi
máli er þeir vilja feigt og fyrirlita, því
þeir eru hræsnarar.
Gætið yðar fyrir þeim er segja að
flokkafylgið eitt eigi að ráða, hversu
„meingölluð" sem þingmannaefnin ern,
því þeir hugsa meir um flokkshag en
um þjóðarhag
Gætið yðar fyrir þeim er vilja
soramarka hvern hættulegan keppinaut
undlr fiokksmark er þeir telja óvinsælt,
því þeir tala gegn betri vitund.
Gætið yðar fyrir þeim er aegjaað
fáir fylgi andbanningum, því kosning-
arnar munu aýna hið gagnstæða.
Gætið yðar fyrir þeim er telja
hvert atkvæði ónýtt er ekki á sér sig-
ur vísan fyrirfram, því ekkert at-
kvæði er ónýtt, sem fylgir réttu
máli.
*
,Meingölluð þingmannaefni'.
Á fundi Sjálfstæðiamanna um daginn
skoraði Björn Jónsson fyrverandi á flokk
sinn, að kjósa þingmannaefni flokksins,
Emm Téhá Eas Blöndahl og dr. Jón —
„þó meingallaðir séu“, bætti hann
við.
Eru Sjálfstæðismenn þær dulur og
druslur, að þeir láti hóa sér til að
kjósa menn á þing, sem þeir sjálfir, og
jafnvel formaður flokksins, kannast við
að séu — meingallaðir?
Reykvíkingar! Munið eftir framkomu
fyrverandi þingmannaefna kjördæmisins
á siðasta þingi! Magnús Blöndahl var
með í því að undirbúa vantraustsyfir-
lýsinguna til Björns gamla Jónsaonar
en greiddi svo atkvœði á móti þeirri
sömu vantraustsyfirlýsingu. Dr. Jón
þorði ekki að greiða atkvæði um
vantraustsyíirlýsinguna.
Dr. Jón greiddi einn daginn atkvœði
með liáskölanum, en annan daginn á
móti.
Magnús og dr. Jón greiddu atkvæðí
á móti stjómarakrárbreytingunni á síð-
asta þingi en sögðu á þingmálafundin-
um ab þeir vœru snúnir með henni nú.
Magnús Blöndahl greiddi atkvæði
með farmgjaldi á síðasta þingi, en sagð-
iat á þingmálafundinum vera snúinn á
móti því.
Sannarlega aagði Björn Jónsson ekki
ósatt, Magnús Blöndahl og dr. Jón eru
„meingölluð þingmannaefni11.
Burt með þá!
Kosningafylgið.
Það er sagt, að á Framfundi í gær
hafi verið samþykt að dreifa því útum
bæinn, að Haldór Daníelsson og Guð-
mnndur Finnbogason ætli að draga sig
tíl baka.
Það er sagt, að Heimaatjórnarmenn
telji