Ingólfur


Ingólfur - 29.11.1911, Blaðsíða 1

Ingólfur - 29.11.1911, Blaðsíða 1
IX. árg. 48. blaö. iNOÓLFtrn | kemur út elnu sinni í viku að minsta £ kosti; venjulega á þriðjudögura. ^ Árgangurinn kostar 3 kr,, erlend* is 4 kr. Uppsögn skrifleg og bund- in við áramót, og komin til útgef- anda fyrir 1. október, annars ógild. Ritstjóri og ábyrgðarm.: Gunn— ar Egilsson Laugaveg nr. 38. — Má finna á afgreiðslunni frá kl. 11-12. Afgreiðsla og innheimta í Kirkju- strœti 12 kl. 11—12 og 4—5 hjá P. E. J. Halldórssyni, lækni. Um neyslu áfengis. Fyrirlestur haldinn í bæjarstjórn Kristianin. Eftir prófessor dr. N. Wilie. Framb. Af öðrum slíkum örfunarmeðulum fyrir Iíkamann má nefna krydd við mat, sýrur o. fl. í ávöxtum, kaffl. te, o. s. frv. Þeir eru margir, sem fá aukna mat- arlyst við staup með feitum mat eða hálfa flöska af öli með máltíð, og ég get ekki séð neitt athugavert við svo hóflega nautn áfengis fyrir þá, sem þola hana. Eu það skal þó játað, að til eru menn aem hafa svo slæm meltingar- færi, að eitt staup af óblönduðu brenni- víhi hefir skaðlegar verkanir — sjálfur er einn af þeim — og þeir ættu því heilsu hinnar vegna að vera varkárir. Með verkunum sínum á taugakerfíð geta hæfílegir skamtar af áfengi aukið atarfsemi vöðvanna. Auk þess eykur áfengi blóðrásina, Qg getur með því eytt þreytuefnum í vöðvunum. Auðvit- að mun áfengi, sem notað er á þennan hátt, hafa í för með sér efnamiasir, sem aíðar verður að bæta upp. Eu sé þess neytt af líkama, sem er nægilega aterk- ur fyrir, eða hefír tækifæri til að eta nóg og sofa nóg á eftir, þá getur lítill skamtur af áfengi hjálpað til að við- halda starfaeminni, þanníg að komist verði fram hjá „dauða punktunum", og þær krafta-lindir notaðar, sem líkaminn á ráð á. Eg hefi oft séð þesaa dæmi á göngu- förum, en vitanlega verður að nota var- lega slíkt örvunarmeðal, og það er aug- Ijóst að ekki má nota það að ataðaldri, heldur að eina við og við. Enn geta áfengis-skamtar á annan veg haft gagnlegar verkanir fyrir likarn- ann, sem sé þegar ]menn eru nýoðrnir kvefaðir. Stórt *taup eða heitt toddí getur þá varið líkamann gegn yfírvofandi sjúkdómshættu. Yflrleitt er óhætt að *egja það, að tiltölulega litlir og hóflegir áfengi*- skamtar eru líkamanum ekki skaðlegir. Að því er eg be*t veit viðurkenna þetta líka margir bindindiamenn, sem leyfa neyslu þeirra drykkja, er hafa inni að Reykjavík, miðvikudaginn 29. nóvember 1911. halda alt að 1 eða 2 prósent af áfengi, svo sem súr mjólk o. fl. Spurningin verður þá hvar eigi að setja takmörkin, og það fer, eins og áður er sagt, eftir ýmsum atvikum. í andlegu tilliti getur áfengið lika ef þess er neytt í amám skömtum og sjaldan, verið til góðs. Menn halda þvi fram að í andlegu tilliti hafí áfengi þær verkanir, að það rýri skynjuuar-hæfileikana og sljófgi dóm- greindina, sér*taklega dómgreind ein- staklingains um »jálfan sig, hann geri of lítið úr örðugleikunum, og geri of mikið úr kröftum'sjálfs sín. Þessvegna eru rnenn, ein* og Krápelin hefír sýnt fyrir löngu með tilraunum aínum, ver færir um að Jeggja saman talnaraðir eftir ney»lu áfengis, þó munurinn sé lítilfjörlegur, þegar um smáa áfengis- skamta er að ræða. Áfengi veikir íkilninginn og athug- un skynseminnar á utanaðkomandi atvikum, en gerir auðveldara fyrir með önnur hugsunarsambönd, einsog t. d. einföld orðasambönd, upptalning, almenn orðtæki, og sömuleiðis rím, bókstafarím, o. s. frv. Auk þess nem- ur áfengið burtu sorgar- og óþæginda- tilfinningar, og vekur nokkurskouar vel- liðan. Það eru þessir eiginlegleikar — sem eg hef talið hér upp eftir fyrirsögn ein* hinna best vísindalega mentuðu bindind- ismanna Svía, — sem gera það að verk- um, að áfengið er svo mikilsvarðandi til skemtunar í félagslifi manna inn- byrðis, ef þess er neytl í hófi, en svo óheilladrjúgt ef þess er neytt i óhófi. Margir menn, sem eru of harðir í dómum um sjálfa sig, þora ekki að neyta allrar orku sinnar, eru þurrir á manninn og fúllyndir í umgengni sinni og þora ekki að ganga aðrar leiðir enn þær, sem alment gerast, vegna þe*s að þeir óttast dóma annarra og treysta ekki sjálfum sér, þeir geta orðið kátir og skemtilegir eftir góða máltíð þar sem vín er á borðum, hið sanna eðli þeirra kemur þá fram, og þeir geta þá knýtt þau vináttubönd, sem annars hefðu ver- ið óhugaanleg. Hversu oft er það ekki að amáir skamtar af áfengi vekja blíð- ar og vinalegar tilfinningar í manns- sálinni; menn fer að langa til að sjá aðra jafn glaða sjálfum sér, og oft verða menn samningafúsari enn ella eftir að hafa neytt dálítils af áfengi. Það góða skap og sú bjarta lífsskoð- un, sem menn geta öðlast um stund við hæfilega neyslu áfengis, hlýtur að telj- ast ávinningur, þegar unt er að ná þessu án nokkurs skaða fyrir líkamann. En það vil eg taka fram, að þe»si ávinn- ingur hvefur og annað verra kemur í staðinn ef einstaklingurinn neytir á- fengisins í óhófi. Það er þá eingöngu til skaða. Á seinni tímum hafa menn leitast við að sanna, að áfengisnautn hafi óheilla- vænleg áhrif á afkvœmið. Það á að »ýkja kyDfrumlurnar. Frönsku líffæra- fræðingarnir Bouin og Chr. Gornier hafa reynt að sanna þetta með því móti, að þeir hafa gagmýrt hvítar rottur með áfengi. Þeir komust þá að þeirri nið- urstöðu, að það léki fullorðnar kynfruml- ur mjög illa. En að svo miklu leyti sem mér er kunnugt hafa menn ekki leitt neinar sönnur að því, að þessar spiltu (abnorm) kynfrumlur geti af- kvæmi. Ennfremur þarfnast þær staðhæfing- ar mjög svo grandgæfilegra rannsókna, að óhófleg áfengisnautn hafi í för með *ér erfðasjúkdóma, svo sem áfengissýki (alkoholisme) og geðveiki, af því að slíkar erfðakenningar eru gagnstæð- ar sögulegri reynslu. Á fyrri öld- um var drukkið avo mikið í Norðurálfu, að þesaar þjóðir væru með öllu liðnar undir lok, ef þessar kenningar væru réttar. 1883 var brennivínsnautn í Noregi ekki minni en 16 lítrar á hvern ibúa, þegar reiknað er með 50°/0 af áfengi, þar sem hún var að ein* 3,4 lítrar 1901. Eu sú kynslóð, sem fæddist á voru landi frá 1830 til 1850 heflr ekki verið haldin neinum áfengissjúkdómi, sem hún hefir fengið að erfðum, og ekki heldur geðveíki né flogaveiki (epi- lepsi), þótt áfengisnautnin væri avo mikil á þeim timura. Því er víst þanuig háttað, að það eru ístöðulitlir menn í akapi, sem verða ofdrykkjumenn. Eu reynslan sýnir, að þesskonar ístöðuleysi gengur að erfð um. Og ef siíkt akaplyndi er ekki hert og treyst með góðu uppsldi og sjálfsaga, getur ístöðulítill sonur hæg- lega orðið drykkjumaður, hvort sem faðirinn hefir verið drykkjumaður eða ekki. Það er aannanlegt, að veila á geðsmunum gengur að erfðum, eins og flogaveiki, án þess að áfengianautn þurfi að vera ástæðan til slíks. Eg held því, að erfðunum verðiekki beitt aem röksemdum í áfeDgisdeiIunui. Vér erum fáfróðari um þau efni en svo, að vér getum fullyrt nokkuð um áhrif a’lítórra áfengisskamta, hvað þá heldur um áhrif smáakamta og hóflegrar áfeng- isnautnar, sem vitanlega ern miklu minni. Framh. Landsbankastjórarnir. í 21. tölubl. Iugólfs ritaði eg grein um núverandi Landsbankastjóra, en en ekkert svar birtist frá þeim, enda er það eftir minni meiningu hið skynsam- legaata er þeir geta gert að haga sér eins og góðu börnin, er þau hafa gert af sér óknyttabrögð, sem sé fela aig og akamm- ast sín í kyrþey. Að vísu birtist eitthvað sem svar uppá grein mina í Þjóðólfi eftirtíjörn Gíslason; sé það svar þeirra félaga, virðist mér ritháttur og stjórnsemi hvað hæfa öðru. Nú fyrir skömmu hófust Landsbanka- stjórarnir handa með fjárnám hjá mér útaf skuldum við bankann, og nú fyrst vaknar hjá mér hugmynd um tilgang þeirra herra með því að neita mér um að setja tryggingu fyrir sömu víxlum og þeir nú krefjast fjárnáms eftir; sem sé alt bendir til þess að þetta hafi átt að vera einn liður. í hinu dásamlega á- formi bankastjóranna, því að gera mig gjaldþrota manD, fyrst alveg að ástæðu- lausu að avifta mig starfi fyrir bankann eða að gera mér allar framkvæmdir í þvi atarfi ómögulegar, með því sum- part að semja við óviðkomandi menn í fjærveru minni meðan eg var að starfi minu fyrir bankann. — sem eg álít, þar sem bændur vestra buðu 10,000 kr. borgun en sem bankastjórarnir settu niður í 7000 kr. borgun, hafi bakað bankanum minst 3000 kr. tap. Næsta stig vóru skipin hér á höfninni. Banka- stjórunum var kunnugt um 7000 kr. tilboð í annað skipið, og tóku þeir ekki þannig framfyrir höndur Björna Gísla- sonar. er þeir afhentu okkur skjölin er þeir kliftu neðan af eða létu klippa, að þeir gerðu honum ófært að koma skip- unum austur, þar sem þeir eftir að hafa svikið orð aín og gerðir við Björn kröfð- ust af honum þeirrar tryggingar, er ekki var uppr. til ætlast. og einnig eins og á stóð illfært að ná sér í peninga til vátryggingar skipunum. Bankastjór- arnir gátu ekki búist við því að eg, sem var valinn af hinni eldri stjórn til þessa starfa, gerðist leppur þeirrs, eða horfði rólegur á það að eignir, sem mér var trúað fyrir, yrðu að engu í höndum mínum, og vildi eg taka fyrir það að nokkuð félli á mig út af þeim gjörð- um, er mér vóru þvert um geð, en sem eg þó sem umboðsmaður hefði verið lát- inn bera ábyrgð á. Útaf þes»u risu málaferlin. Næsta stig var þvínæst neitun á því að greiða mér umsamda borgun fyrir starfið. Á fundi þeim er bsnkastjórarnir boðuðu mig á í júní áður en eg fór vestur, vóru ekki aðrir en bankastjórnin og eg, sem sé báðir gæsluatjórar líka. Þar aem allur ágrein- ingur var jafnaður milli mín og Björna Kristjánssonar, er aðeina vildi fá mig til að ákveða innköllunargjaldið í vissum procentum, varaðist eg ekki að taka skrifiegt af stjórn bankans um þetta atriði, enda sent þetta skriflegt til þeirra áður en eg fór veatur, hver mín skil- yrði væru, og munu gæslustjórarnir kannast við að engum úr stjórninni á fundinum hafi þótt það of hátt reikn- að. í máli minu við bankann er mér svo neituð fyrir undirrétinum að leiða gæslustjórana aem vitni. Þegar svo bankastjórarnir neita öllu og alt er gert ómögulegt fyrir mér um upplýs- ingar, gat eg ekkí stuð*t við annað en bréf mitt er eg aendi áður en eg fór, og samkvæmt því tildæmdi undirréttur- inn mér vissa upphæð. En þá var nú yfirrétturinn eítir. Hann fann það út að Björn Kristjánsson hafði um veturinn áður en samningar tókust milli okkar, hótað mér með því að taka fyrir öll viðskifti við mig ef eg héldi fram lög- mætum umboðum af lögmætri atjórn bankans. Málafæralumaður bankans gat ekki rekið augun i þýðinguna, sem lá í þessum orðum, því hann lýsir þau til- hæfulaus, og bæjarfógetanum yfirsást þar líka, og þá var ekki undarlegt að mér skyldist sú skynsamlega hugsun

x

Ingólfur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Ingólfur
https://timarit.is/publication/189

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.