Alþýðublaðið - 04.05.1963, Side 3
WINSTON VILL
ATÓMVARNIR
London, 3. maí
(NTB —Reuter).
SIR WINSTON ChurchiU lýsti því
yfir í dag, að það væri hættuleg;
stefna að taka fyrir Breta að hætta
við að hafa sínar eigin kjarnorku-
varnir undir sinni eigin stjórn. —
Þetta kom fram í ræðu, sem Sir
Winston hélt á fundi íhaldsfélags-
ins Primrose League.
í ræðu sinni sagði hann, að allt
fram á síðustu tíma hefðu allir
þrír stjórnmálaflokkarnir haft
svipaða skoðun á nauðsyn kjarn-
Kozlov
veikur?
Moskva, 3. maí
(NTB-Reuter).
VESTRÆNIR diplómatar í
Moskvu telja, að sovézki
kommúnistaleiðtoginn Frol
Kozlov sé alvarlega veikur.
Kozlov er ritari í flokknum
og er talinn einn af allra
nánustu samstarfsmönnum
Krústjovs forsætisráðherra.
Hefur iðuiega verið talið, að
hann væri líklegur arftaki
Krústjovs.
Kozlov fékk hjartaslag
sumarið 1961. Ilann hefur
ekki sézt í Moskvu í tvo
mánuði. — Orðrómur þessi
hefur hvorki fengizt stað-
festur né ncitað í rússneska
utanríkisráðuneytinu.
orkuvarna. „Þetta var mikill styrk
j ur fyrir alla þjóðina”, sagði hann.
„Án kjarnorkuvarna mundu
varnir Stóra Bretlands vera í hönd
um vina vorra, og rödd vor í sam-
; tökum vestrænna þjóða — sem
i alltaf hefur rödd hófsemdar og
friðar — mun missa þau áhrif, sem
hingað til hafa einkennt hana”.
Sir Winston benti á, að Bretar
hefðu áður gert skyssu að fleygja
frá sér vopnunum. Þeir hefðu síð-
an fengið vopn á neyðarstundu
með miklum harmkvælum, en á
kjarnorkutímum og í kjarnorku-
stríði yrði ekki um neinn frest að
ræða. Ef kjarnorkuvarnir væru nú
; lagðar á hilluna, væri það sama og
að sleppa þeim um alla eilífð,
sagði hann.
ísafirði í gær:
Fjölmennt kveðjusamsæti til
heiðurs Kjartani J. Jóhannssyni
lækni og konu hans Jónu jpgv^i:?-
dóttur og börnum, var haldið í
l. O.G.T. húsinu í gærkvöldi.
Kjartan J. Jóhannsson ér á förum
úr bænum og flytzt til Kópavogs
ásamt fjölskyldu, en hann tók við
^ héraðslæknisembættinu þar 1. þ.
m. Fjölmargar ræður voru fluttar
og sýndu þær glöggt þá miklu
vináttu og hlýhug, sem ísfirðing-
ar bera til þeirra hjóna, svo þá eft-
irsjá og söknuð, sem burtför þoirra
vekur meðal bæjarbúa aimennt,
en hér hafa þau dvalizt í rösk 30
ár, og notið almennra og vaxandi
únsælda og álits enda bæði tvö
miklar mannkostamanneskjur og
hafa tekið virkan þátt í féiags- og
athafnalífi bæjarins og viya hvers.
manns vanda leysa eftir ícngum.
Veizlustjóri var Jón Páll Hail-
dórsson. — B. S.
Báðir aðilar
ræða við Erhard
Stuttgart, 3. maí
(NTB-AFP)
IFULLTRÚAR málmverkamanna
I í Vestur-Þýzkalandi, sem eru í
verkfalli, ákváðu í dag að fallast
á að hitta Ludwig Erhard efna-
hagsmálaráðherra að máli á mánu-
dag ásamt fulltrúum atvinnurek-
enda til þess að reyna að finna
Iausn á mestu vinnudeilu sem orð-
ið hefur í Vestur-Þýzkalandi frá
stríðslokum
! 330 þúsund málmverkamenn voru
1 atvinnulausir í fylkinu Baden-
Wiirtemberg í dag vegna verk-
fallsins og verkbanns atvinnurek-
! enda. Búizt er við, að til viðbótar
verði 80.000 verkamenn án vinnu
í suðurhlutum Wtirtemberg-Holi-
enzollern frá og með Iaugardegi.
í dag var talin hætta. á að verk-
fallið breiddist til fylkisins Nord-
rheim-Westfalen, sem er iðnvædd
asta fylki Vestur-Þýzkalands. —
Blöð í VesturÞýzkalandi sögðu í
dag, að ástandið væri mjög alvar-
legt.
Framkvæmdanefnd Sambands
málmverkamanna ákvað á fundi í
dag að gangast að tilboði Erhards
efnahagsmálaráðherra um verk-
fallsviðræður í Bonn á mánudag.
Jafnframt var ákveðið að fresta til
þriðjudags ákvörðun um hvort
verkfallið skuli einnig ná til
Nordrheim-Wesffalen.
í dag hófust launaviðræður
milli um það bil 40 þús málm-
verkamanna og atvinnurekenda í
Saar og svipaðar viðræður hefj-
ast í Slésvík-Holtsetalandi n. k.
föstudag.
Þetta er fyrsta verkfallið í málm
iðnaðinum síðan 1956 og atvinnu-
rekendur hafa ekki gripið til verk-
banns í Vestur-Þýzkalandi siðan
1928. Ef ekki finnst lausn á deil-
unni innan viku stöðvast. bílaiðn-
aður Vestur-Þýzkalands.
Stjórnmálamenn í Bonn og Stutt
gart gáfu í skyn í dag, að ef verk-
fallið breiddist út mundi það hafa
í för með sér endalok hins svokall-
aða „efnahagsundurs” í Vestur-
Þýzkalandi eftir heimsstyrjöldina
síðari.
FRETTASYRPA
VlíhíTIANE, 3. maí (NTB-AFP).
Tvær þyrlur alþjóðlegu eftirlits-
nefndarinnar í Laos urðu fyrir
skothríð í dag yfir Phonasavan í
Laos. Með annarri þeirra var
Kanadamaðurinn Paul Briddle,
sem er starfsmaður eftirlitsnefnd
arinnar, og særðist hann alvarlcga.
ALGEIRSBORG: Fidel Castro
kemur í heimsókn til Algier, áður
en hann fer heim til Havana aftur
: úr heimsókn sinni til Sovétríkj-
anna.
FRANKFURT: 24 fyrrverandi naz-
istum verður stefnt fyrir rétt sak-
aðir um að hafa tekið þátt í f jölda-
morðum í Auschwitz-fangabúðun-
um. Búizt er við, að málarekstur-
inn standi í fimm mánuði. 250
vitni alls staðar að úr heiminum
verða kölluð. Meðal ákærðra er
SS-foringinn Richard Baer, sem
var síðasti yfirmaður búðanna.
VÍN: Diplómatar hér segja, að 1.
maí hafi komið til mótmælaað-
gerða gegn kommúnisma í Prag,
svipað og gerðist sama dag í fyrra.
Nú voru þó engir handteknir, held
ur aðeins yfirheyrðir.
BERLÍN Þrír austur-þýzkir ung-
lingar sluppu til Vestur-Berlínar í
dag. Tveir syntu yfir skurð til her-
námssvæðis USA, en einn komst
yfir gaddavírsgirðingu inn á
brezka svæðið.
KAUPMANNAHÖFN: Benzín-
sprengju — svokölluðum Molotov-
kokkteil — var í dag kastað inn
um glugga ferðaskrifstofu, sem
hefur ferðalög til Spánar að sér-
grein sinni.
ORLOF
SV
Stokkhólmi, 3. maí,
(NTB).
SÆNSKI ríkisdagurinn sam-
þykkti í dag nýju orlofslög-
in, sem veita öllum sænskum
vinnuþegum lögfestan rétt til
fjögurra viltna sumarleyfis
frá og með árinu 1965.
Hægrimenn og bændaflokk
urinn vildu, að vinnuveitend-
um yrði leyft að skipta frí-
inu, en það var fellt. Hins
vegar mega vinnuveitendur,
með nokkrum takmörkunum,
ákveða hvenær fríið verður
tekiðj en það skal vera ó-
skipt.
VEI6AMIKIAR
VIDRÆÐUR A
nægjanleg. EBE vill því enn hærri
tpllalækkánir,,gn þessu cru.Banda
ríkjamenn mótfallnir enn sem
komið er.
í Brtissel er almennt talið, að
viðræður þær, sem standa fyrir
dyrum, verði örlagaríkar, ekki að-
eins fyrir EBE, heldur einnig hvað
snertir afstöðu Bandaríkjanna
gagnvart umheiminum. Enn er ótt-
azt, að Frakkar muni enn cinu
sinni beita neitunarvaldi gegn á-
rangri í viðræðunum, og bæði
Ilollendingar og Belgar telja, að
EBE muni ekki geta lifað slikt
neitunarvald af.
Árangurslausar viðræður geta
einnig leitt til þess, að möguleik-
arnir á stækkun EBE þurrkist út
og Bandaríkin verði að hætta við
tilraunir sínar til þess að koma á
friálslyndri stefnu í heimsverzlun-
inni.
Brtissel, 3. maí
(Frá fréttaritara'-NTB) ,
EFNAHAGSBANDALAGIÐ er við-
búið löngum og mjög erfiðum við-
ræðum við Bandaríkin og önnur
ríki um stórfelldar, gagnkvæmar
tollalækkanir. Þetta kom þegar í
Ijós þegar 2 af meðlimum EBE-
ncfndarinnar fóru til Washington
nýlega.
Hér verður um að ræða viðræð-
ur um mörg grundvallaratriði, en
raunhæfar viðræður munu vart
hefjast fyrr en í ársbyrjun 1964.
Ráðherranefnd EBE á að taka
ákvörðun um þátttöku í viðræðun-
um eftir nokkra daga, og þar með
geta fyrstu umræðumar í alþjóða
tolla- og viðskiptamálanefndinni
(GATT) hafizt. Viðræðurnar hefj-
ast í Genf 16. maí.
Undanfarnar vikur hafa margar
nefndir setið á fundum og komið
hefur í ljós að EBE og Bandarík-
in æru-ekki-alveg* á einu máli um
málsmeðferðina. Bretar og Japan-
ir eru heldur ekki sammála, en
þessi ríki munu gegna mikilvæg-
um hlutverkum í viðræðunum.
Ný bandarísk viðskiptalög gera
kleift að halda þessar viðræður.
Lögin heimila Kennedy forseta að
lækka núverandi tolla um allt að
50%. í nokkrum tilvikum getur
hann afnumið þá alveg.
Bandaríkjamenn hafa tekið
skýrt fram í undirbúningsviðræð-
unum í Genf að þeir vilji eins ein-
falda aðferð og mögulegt er. Þeir
eru helzt hlynntir því að fram-
kvæma grundvallaratriðið um tolla
lækkanir á miklum hluta iðnaðar-
vöru um 50%.
EBE telur hins vegar að nokkr-
ir bandarískir tollar séu svo háir,
að jafnvel helmingslækkun sé ekki
ALÞÝÐUBLAÐIÐ — 4. maí 1963 3