Alþýðublaðið - 04.05.1963, Blaðsíða 10
RitstjM ÖRN BÐSSON
40 þátttakendur
í víðavangshlaupi
Hafnarfjarðar
Keppt var í Víðavangshlaupi í
Ilafnarfirði á sumardaginn fyrsta,
*25. apríl sl. Hófst hlaupið við
Barnaskóla Hafnarfjarðar við
Skólabraut og lauk því þar.
Víðavangshlaup þetta hefur ver-
ið háð 3 ár í röð og á vegum FH.
Veður var allgott og voru áhorf-
endur margir. Lúðrasveit Hafnar-
fjarðar lék nokkur lög áður en
'keppni hófst.
Keppt var í 3 flokkum 17 ára og
eldri, 14—16 ára og 13 ára og
yngri, í 1. flokki var keppt um
Jiikar, er Stefán Jónsson, bæjar-
stjómarforseti gaf. í II. flokki var
keppt um bikar, er BP í Hafnar-
firði gaf. í III. flokki, 13 árá og
yngri, kepptu að þessu sinni bæði
drengir og stúlkur. Drengirnir
ár-
frjáls-
gþróttum
* .
INNANFÉLAGSMÓT hafa verið
haldin á Melavellinum undan-
fama daga og allgóður árangur
náðst. í fyrradag var keppt í nokkr
um greinum á vegum KR. Krist-
leifur Guðbjömsson hljóp 1500 m.
á 4.03,2 min., Agnar Levi á 4.03,4,
Halldór Jóhannesson á 4.11.12 og
Vilhjálmur Björnsson, UHSE á
4.37.0 mín. Einnig var keppt í 800
m. hlaupi. Þar sigraði Valur Guð-
mundsson, KR, 2.04.0, annar varð
Kristleifur Guðbjömsson, 2.04.2,
þriðji Halldór Guðbjörnsson, KR,
2.04.8 og fjórði Vilhj. Bjömsson,
2.11.2 mín.
t Fyrr í vikunni kastaði Björgvin
. Hólm, ÍR spjóti 55.66 m.
Á morgun, sunnudag, kl. 10.30
ætla ÍR-ingar að efna til innanfé-
lagsmóts, en keppt verður í 100,
200, 400 og 800 m.
Happdrætti KR
DREGIÐ hefur verið í happdrætti
K. R. og komu upp þessi nr.:
1. vinningur: nr. 474
i 2. vinningur: nr. 742
' Vinninga má vitja til Gunnars
Sigurðssonar hjá Sameinaða.
kepptu um styttu, er Ragnar og
Bergþór Jónssynir og Ingvar Hall-
steinsson gáfu. Stúlkurnar kepptu
um bikar, er Oliver Steinn gaf.
Sigurvegari í 17 ára og eldri var
Páll Eiríksson á 5.00.9 mín. og er
það mettími í þessu hlaupi í Hafn-
arfirði. Þetta er í 3. sinn, er Páll
fær 1. verðlaun í Víðavangshlaupi
Hafnarfjárðar. Steinar Erlendsson
varð annar á 5.02.0 mín. Páll og
Steinar eru góðir hlauparar og var
keppnin milli þeirra mjög hörð og
fóru báðir á kostum.
Sigurvegari í 2. flokki, 14—16
ára var Kristinn Benediktsson á
5.40.2. Annar var Geir Viðar Guð-
jónsson á 5.46.5.
í 3. flokki, 13 ára og yngri, kom
fyrstur í mark áf drengjum, Ge-
org Gunnarsson, er keppti sem
gestur úr Reykjavik á 4.22.2. En
styttuna hreppti Þórir Jónsson á
4.28.4.
í þessum flokki kepptu og 6
stúlkur og varð sigurvegari Aðal-
heiður Skarphéðinsdóttir á 4.47.5
mín. Önnur varð María Guð-
mundsdóttir á 5.06.2 og þriðja
Jóna Yngvadóttir á 5.06.5. Þátt-
taka stúlknanna í þessu hlaupn
vakti mikla athygli, enda var hlut-
ur þeirra í hlaupinu hinn bezti.
Vegalengdin hjá 1. og 2. flokki
er 1700—1800 m., en hjá 3. flokkl
nokkuð skemmri eða um 1200 m.
Þátttakendur í mótinu voru um
400.
Islandsmót í
badminton fer
fram um
helgina
MEISTARAMÓT íslands í bad-
minton fer fram í KR-húsinu við
Kaplaskjól í dag og á morgun
— hefst kl. 14 báða dagana. Kepp-
endur eru um 40, allir úr TBR að
þessu sinni.
Forseti ÍSÍ, Gísli Halldórsson,
setur mótið með ræðu í dag og
verða leiknir 24 leikir. Á morg-
un fara svo fram 6 úrslitaleikir.
Keppt er bæði í meistaraflokki og
1. flokki.
Agætur
angur í
10 4. maí 1963 — ALÞÝ0UBLAÐI9
Mi !
r
LEIKUR KR og ÞrótUr í
Reykjavíkurmótinu var hinn
fjörugastL KR-ingar sigruðu
örugglega eða með 5 mörk-
um gegn 2. Á myndinni sézt
Gunnar Felixsson skora
fimmta mark KR í leiknum,
en hann skoraði einnig
fyrsta markið. Ljósm.: Sv.
Þorm.
illlli
' ■ ' ' . c .
.
KR átti góoan leik
og sigrabi Þrótt 5-2
ÞRÓTTUR átti lélegan fyrri hálf-
leik gegn KR á fimmtudagskvöld
ið. KR-ingar keyrðu Þróttara í
kútinn á fyrstu 15 mínútunum,
skoruðu þá hjá þeim þrjú mörk
og bættu síðan einu við, rétt fyr-
ir leikhlé. Þrótti tókst aldrei að
rétta hlut sinn í þessum hálfleik,
sem lauk með 4 mörkum gegn
engu. Þessi frammistaða Þróttar
í hálfleiknum kom eiginlega á ó-
vart, eips og frammistaða Þrótt-
aranna hafði þegar í byrjun móts
ins, komið á óvart. Þarna gersigr-
uðu þeir íslandsmeistarana, XI.
deildar liðið, og gerðu síðan jafn-
tefli við Val. En þessi tvö lið,
Fram og Valur börðust sem kunn-
ugt er, um íslandsmeist.tignina á
sl. hausti. Þó slíkt megi nú kannske
teljast til duttlunga knattspyrn-
unnar, er það þó staðreynd, að við
þessi tvö „toppfélög" etur Þróttur
kappi við með þeim árangri, að
hann sigrar annað með stóryfir-
burðum og gerir síðan jafntefli við
hitt, eftir skemmtilegasta, fjörug-
asta og jafnasta leik mótsins, til
þessa. — En þessum leik — fyrri
hálfleiknum — var hins vegar
sem allan þrótt hefði úr Þrótti
dregið. Vörnin var tvístígandi. —
Hinn hraði samleikur KR-sóknar-
innar með tíðum og öruggum
skiptingum, sem Gunnar Guð-
mannsson átti hvað mestan þátt í,
var henni ofurefli. Bezti maður
varnarinnar var markvörðurinn,
en hann. mátti sín ekki einn gegn
ofureflinu. Ósamstæð og aftur-
þung sóknarlína Þróttar dugði held
ur ekki til að jafna metin í þess-
um hálfleik. Tókst heldur ekki að
skapa sér neina möguleika, sem að
gagni máttu koma.
KR skorar þrívegis á 15. mín.
Það voru þeir Gunnar Felixsson,
Sigþór Jakobsson og Sveinn Jóns
son, sem ráku cndahnútana á KR-
mörkin þrjú, þessar fyrstu 15 min.
leiksíns. Mark sitt gerði Gunnar
með ágætri spyrnu úr loftsend-
ingu. Sigþór skallaði inn úr fyrir-
sendingu frá Erni Steinsen og
Sveinn skoraði eftir hornspyrnu.
Auk þessara tækifæra, sem nýtt-
ust svo vel, áttu KR-ingar ýmis
önnur, sem að vísu mistókust, en
voru ekki síður girnijeg. Má í oví
sambandi m. a. nefna skot Sig-
þórs yfir slá, eftir að hann hafði
með miklum hraða brotist gegnum
vömina. Hefði hann þá, í stað þess
að skjóta sjálfur, spyrnt út á teig-
inni, til samherja, sem átti miklu
betri aðstöðu en hann, hefði þarna
bæzt eitt mark við, óefað. Þá má
geta um hörkufast skot Gunnars
Guðmannssonar úr fyrirsendingu,
sem tekin var á lofti, og hafnaði
knötturinn í markslá, ennfremur
mjög vel tekna aukaspyrnu frá
vítateigslínu, sem markvörðurinn
hafði nærri misst yfir sig, svo
fast var skotið.
Loks rétt fyrir leikhlé, bættu
svo KR-ingar við fjórða markinu.
Það mark gerði miðherjinn, Óskar
Sigurðsson, eftir að Gunnar Felix
son hafði skotið og markvörður
varið, en misst knöttinn frá Gér.
Hrökk hann til Óskars, scm þegar
sendi hann viðstöðulaust inn.
Þessi hálfleikur hafði verið of
mikill einstefnu akstur til þess að
hann væri eiginlega nokkuð spenn-
andi. En þetta átti eftir að breyt-
ast.
Síðari hálfleikur 2:1
Eftir leikhléið komu Þróttararn-
ir tvíefldir til baráttuntiar. Þó
munaði litlu þegar á 2. mín., að
KR bætti fimmta markinu við, er
Gunnar Felixson komst innfyrir,
en markvörðurinn bjargaði með á-
gætu úthlaupi og lokaði í tíma.
Þróttur skorar.
Er 10 mín. voru af leik skoraði
Þróttur. Framlínan var nú orðin
öll önnur og virkari en áður. Og
kapp og barátiuhugur liðsins í
heild með allt öðrum blæ. Það
var Jens Karlsson, v. innh., sem
skoraði þetta fyrsta mark Þrótt-
ar með fastri og öruggri spyrnu
af um 20 stikna færi. Kom Gísli,
markvörður, hér engum vörnum
við. Og aðeins 5 mín. síðar gerði
Jens annað mark. Skotið hafði
verið í Slá, knöttur-inn hrokk-
ið út og Jens náð til
hans og skallaði mjög laglega og
boltinn lá í netinu. Við þessi næsta
óvæntu tíðindi, tvö mörk svo að
segja í röð, dró niður í KR-i’Jinu
um skeið, en jók að sama skapi
baráttuvilja Þróttar. En þrátt fyr
ir allt, tókst Þrótti þó ekti að
jafna metin, frekar en orðið var,
en hins vegar lókst KR-ingum að
bæta enn einu marki við, ovo að
leiknum lauk eins og fyrr segir
með sigri KR 5:2.
Veður var ágætt og völiurinn
ólíkt betri en í fyrri leikjum. A-
horfendur voru allmargir, enda
flestir búizt við því að þarna myn.Ii
KR-ingar eiga í vök að verjast og
Þróttur koma þeim i opna skjöidu
eins og fleirum í mótinu, en fyrir
það var þegar girt í fyrri hálfKik.
Dómari var Haukur Óskarsson.
E B
Fyrsta keppni
sumarsins
Fyrsti kappleikur sumarsins hjá
GR verður haldinn á Grafarholts-
vellinum laugardaginn 4. maí off
hefst hann kl. 14.00 stundvíslega.
Dregið verður í riöla 5 mín. fyrir
auglýstan tíma. Leikinn verður
höggleíkur.