Alþýðublaðið - 21.06.1963, Blaðsíða 3
Samkomulag um
beint samband
milii K. og K.
Genf, 20. júní. I
NTB-Reuter.
Fulltrúar Bandarikjanna og'
Sovétríkjanna undirrituðu í dag
samning nm beint fjarskiptasam-
band milli Kreml f Moskvu og
Hvíta hússins í Washington. Nota
á fjarskiptasambandið I hugsan-
Iegu hættuástandi, ef nauðsyn-
legt reynist að stórveldin hafi beint
samband sín í milli, ef til vopn-
aðra átaka kemnr.
Samningurinn hefur verið rædd
ur alllengi og hafa formenn sendi
nefnda rikjanna á afvopnunarráð-
stefnunni stjórnað viðræðunum.
Þeir eru Charles Stelle frá Banda
ríkjunum og Semjon Tsarapkin
frá Sovétríkjunum. Samningurinn
er eini haldgóði árangurinn, sem
orðið hefur í afvopnunarviðræð-
unum í Genf.
Bein lína verður milli Moskva
og Washington um London, —
Stokkhólm og Helsingfors. Línan
verður í stöðugri notkun. Jafn
framt verður komið á radíó-rit-
síma sambandi, sem einnig á að
vera hægt að nota allan sólar-
hringinn. Ef nauðsyn krefur á og
að vera möguleiki á símastrengs-
sambandi eftir samkomulagi milli
aðilanna.
Haft var eftir heimildum í
London, að Bretar fögnuðu að
þessu sambandi væri komið á og
teldu möguleika á að geta fengið
að tengjast því síðar. Samning-
urinn sé skref í átt tii takmarkaðr-
ar afvopnunar.
Hrein eign Reykja-
víkur 900 milljónir
VARÐBERGSFUND-
UR UM SÁMVINNU
EVRÓPURÍKJA
VARÐBERG, félag ungra áhuga
manna inn vestræna samvinnu,
efnir til fundar í Þjóðleikhús-
kjallaranum laugardaginn 22.
júní kl. 12 á hádegi. Þar mun
forstöðumaður upplýsingadeildar
Evrópuráðsins, Paul M. G. Levy,
halda erindi um viðhorfin í sam-
vinnu ríkjanna í Vestur-Evrópu
og hlutverk Evrópuráðsins. Eins
og kunnugt er af fréttum er hér
um að ræða tímabært efni. Hafa
ýmsir stjórnmálamenn undanfar-
ið látið í ljós þá skoðun, að eftir
slit viðræðnanna í Briissel um
aðild Breta að EBE sé Evrópu-
ráðið öðrum stofnunum líklegra
til að geta fjallað um vandamál-
in með árangri. Paul M. G. Levy
er Belgiumaður. Hann er staddur
hér á landi í þriggja daga heim-
sókn, og mun hann eiga viðræður
við ýmsa stjórnmálamenn, emb-
ættismenn og blaðamenn.
Innrás
á Kúbu
MIAMI 20.6 (NTB-Reuter) Kú-
banska byltingarráðið í útlegð til-
kynnti í dag að, strandhöggssveitir
þess hefðu gengið á land á Kúbu.
Talsmaður ráðsins gat ekki gefið
nánari upplýsingar, en sagði,, að
l®r^jangan hefiðii verið gerð á
tveimur stöðum. Hann vildi heid
ur ekki segja, hvaðan, innrósfn
liefði hafizt. Tala innrásarmanna
mun vera um 500. Ekki telja
menn í Washington að um „alvöru
<nnrás“ að ræða.
Grikklandi
AÞENU 20.6 (NTB-Reuter).
Miðflokkurinn í Grikklandi, flokka
samsteypa sem hefiu: 79 fulltrúa á
þingi mun reyna að steypa brað
birgðastjórn Panayoitis Pipinelis
og hyggst neita þátttöku í kosn
ingum sem stjórnin kann að efna
til. Leiðtogi Miðflokksins, George
Papandreou, skýrði frá þessu í dag
! Nýja sjórnin var skipuð í gær,
og tók við af stjórn Konstantíns
Karamanlis, sem sagði af sér 11.
júní vegna þess að hann er mótíall
inn fyrirhugaðri heimsókn grísku
konungshjóoianna til Bretlads í
júlí.
REIKNINGUR Reyhjavíkur-
borgar fyrir árið 1962 var lagður
fram í borgarstjóm Reykjavíkur
í gær og tekinn þar til fyrstu um-
ræðu. Samkvæmt honum hafa eign
ir borgarinnar og fyrirtækja henn
ar aukizt um 96.7 mUlj. kr. á sl.
ári og nemur hrein eign Reykja-
víkurborgar nú 900.9 miUjónmn
króna. Rekstrargjöld námu á sl.
ári 288.5 millj. en tekjur námu
351.2 mUljónum. Mismunurinn fór
að mestu til framkvæmda samkv.
eignabreytingarreikningi, eða 61.4
millj. kr. en 1.4 millj. gekk tU
afskrifta og eftirgjafa á skuld-
um. t
Borgarstjórinn Geir Hallgríms-
son, gerði greiil fyrir helztu atr-
iðum reikningsins. Fara hér á eft-
ir nokkur atriði úr ræðu hans og
greinargerð þeirri, er fylgir reikn
ingnum.
Til gundvallar gjaldahlið fjár-
hagsáætlunar Reykjavíkur fyrir
árið 1962 voru lögð laun og verð-
lag tímabilsins okt.-des. 1961 að
viðbættri 4% kauphækkun þeirri,
er tók gildi vorið 1962 og fyrir-
sjáanleg var. Sá grundvöllur
breyttist ekki að öðru leyti en því,
að 20. september 1962 var sam- |
þykkt að greiða frá 20. júní sama i
ár 7% uppbót á kaup starfs- \
manna borgarinnar, eins og það
þá var orðið. Jafngildir það 7.28
% hækkun á launaliðiria í 7 mán-
uði eða 4.25% hækkun á ári eða
alls 5.7 millj. kr. hækkun ó rekstr
arútgjöldum.
Rekstrarútgjöldhi voru í fjár-
Fundur með
Hlíf í kvöld
Sáttafundur með Verkamanna
félaginu Hlíf í Hafnarfirði og at-
vinnurekendum fór fram í fyrra-
kvöld og stóð frá kl. 8,30 til 11,30.
Þar ræddust deiluaðilar við en
ekkert gekk saman með þeim. —
Fundur með þessum aðilum hefur
verið boðaður kl. hálf niu í kvöld.
hagsáætluninnl fyrir árið 1962 á-
ætluð 288.2 mUlj. kr. en reynd-
ust 288.4 millj. Tekjur voru á-
ætlaðar 337.4 millj. en reyndust
351.2 milljónir. Útistandandi
skuldir hækkuðu úr 106.1 milljón
í 119.0 millj. kr. Munar þar mestu
að skuldir skuldunauta jukust um
6.9 millj. og skuld Grjótnámsins
um 5.8 millj.
Greiðslujöfnuður varð hag-
stæður um rösklega 1 milljón kr.
Það vekur athygli í reikningn-
um, að Bæjarútgerð Reykjavíkur
skilaði nú hagnaði upp á 392 þús.
en í fyrra var hins vegar fært 9.9
millj. kr. tap. Astæðan fyrir þess-
ari miklu breytingu er sú, að nú
eru Bæjarútgerðinni færðar til
tekna tekjur úr aflatryggingasjóði
sjávarútvegsins. Eru greiðslur
sjóðsins til BÚR, samtals 12.7
millj. kr. færðar útgerðinni til
tekna á reikningi fyrir árið 1962.
Greiðslur þessar úr Aflatrygginga
sjóði eru fyrir árin 1960 og 1961
og 1961. Ef þeir væru færðar á
reikningum þeirra ára mundu
reikningamir breytast sem hér
segir:
1960 tap kr. 7.5 millj. í stað
14 millj. kr. taps.
1961 tap kr. 3.7 millj. í stað
i 9.9 millj. kr. taps.
1962 tap kr. 12.3 millj. í stað
391 þús. kr. hagnaðar.
Vítur samlsykktar
á John D. Protumo
Leone reynir mynd-
un Italíustjórnar
Róm, 20. júní.
(NTB-Reuter).
ítalska forsætisráðherraefnið
Giovanni Leons, átti í dag viðræð-
ur við Palmiro Togliatti og einn
annan kommúnistaieiðtoga í sam-
bandi við stjórnarkreppuna á
Ítalíu.
Leone sem er lögfræðiprófess-
or og hefur verið þingforseti síð-
an 1955, var falin stjórnarmynd-
un í gær. Hann ræddi samdægurs
við háttsetta stjórnmálamenn úr
Kristilega demókrataflokknum og
átti einnig viðræður við kommún-
istaforingja og Nenni, foringja
vinstri sósialista. Flokkur Nenn-
is bað hann í gær að lialda áfram
formennsku, og varð það til þess
að Aldo Moro úr Kristilega demó
krataflokknum gafst upp við til-
raunir sinar til stjórnarmyndunar.
Bæði Nenni • og Togliatti sögðu
eftir viðræðurnar við Leone að
þeir vildu ekki bráðabirgðastjórn.
Skólaskipib
Sæbjörg
í hringferð
Skólaskipið Sæbjörg, skip Slysa
varnafélags íslands, sem gert er
út á vegum Æskulýðsráðs Rey a
víkur og er ó hringferð í krW?
um landið, kom inn til Eskif jarð ir
í gær. Drengirnir voru bæði frísk
legir og fjörugir og létu vel af
högum sínum, þótt veiði hafi verið
heldur treg enn sem komið er.
Nú mun vera vika eftir að / "V
liuguðum tíma drengjanna í bess
ari veáð*ferð. Á Espt'fSrði bíða
drengirnir eftir veiðiveðri, en þar
var í gær bæði þoka og bræla og
engin merkl sjáanleg, að þar færi
að birta til.
LONDON 20. júní (NTB-Reuter-
AFP) Neðri málstofan samþykkti
einróma í dag yfirlýsingu þar sem
segir að John Profumo, fyrrum
hermálaráðherra hafi gerzt sekur
um að :f/na Neðri máistofunni
mikla lítUsvirðingu er hann gaf
skýringu hinn 22. marz, sem hann
varð seinna að játa að hafi veríð
ósönn. Forlngi þingflokks íhalds-
manna, Iain Macleod, bar fram til
löguna og þingmenn Verkamanna-
flokksins studdu hana.
Harold Macmillan forsætisráð-
herra ræddi í dag við Harold Wil
son foringja Verkamannaflokksins
um tilhögun rannsóknarinnar á ör
yggishliðum Profumo-málsins. Góð
ar heimildir herma, að þeir hafi
verið ósammála en muni hittast
bráðlega aftur. Áður mun Macmilk
an ráðfæra sig við ráðherrana í
stjóminni.
Verkamannaflokkurinn hefur
krafizt þess að sett verði nefnd
á laggirnar er fái heimUd til að
kalla alla fyrir sig, sem hún óski,
einnig forsætisráðherrann sjálfan
og yfirheyra þá varðandi það
sem þeir hlutu að vita um gerðir
hins fyrrverandi hermálaráðherra.
R.A. Butler varaforsætisráð-
herra var skyndilega kallaður fyr
ir Macmillan síðdegis í dag og er
talið að um hafi verið að ræða
ósamkomulagið við Wilson. Þegar
vitað var um ósamkomulagið var
spurt um það í neðri málstofunni,
hvort skynsamlegt væri, eins og
ástandið væri nú, að halda fast
við heimsókn Kennedys forseta til
Bretlands. Hefur Verkamanna-
flokkurinn haldið því fram að rétt
sé að fresta heimsókninni.
laka Frakkar
flota undan
NATO - stjórn?
PARÍS 20.6 (NTB-Reutcr)
Frakkar munu krefjast þess,
að Atlantshafsfloti peirra
verði leystur undan yfirstjórn
NATQ segja góðar heimild
ir, er nærri standa frönsku
stjórninni í dag. Er búizt við,
að ráðherranefnd NATO
verði tilkynnt um þessa á-
kvörðun á fundi sínum á mið-
vikudag.
FANGELSANIR
ISAVANNAH
Savannah, Georgia, 20. júní.
NTB-Reuter.
UM 250 manns voru sett í fang-
elsi í Savannah i dag eftir að lög-
reglan hafði þurft að beita tára-
gasi til að dreifa hörnndsdökkum
mönniun, er safnast höfðu sam-
an til að mótmæla kynþáttaað-
skilnaði. Lögreglan upplýsti, að
137 fuUorðnir karlar, um 100 ungl
ingar og óviss fjöldi kvenna, —
kannski allt að 100, hefðu verið
handtekin.
Fjórir menn særðust í aðgerð-
unum. Lögreglan reyndi fyrst að
dreifa mannfjöldanum með
slökkvidælum, en þegar það ekki
gekk, beitti hún táragasi.
í Gadsden í Alabama var lög-
regla og herlið undir allt búin í
dag, þar eð búizt var við nýjum
mótmælaaðgerðum. Höfðu leiðtog-
ar negra boðað mótmælagöngu
j vegna þess að nálega 400 negrar
voru handteknir í bænum í fyrra
! dag. Var búizt við, að hvítir mundu
blanda sér í það mál.
ALÞÝÐUBLA9IÐ — 21. júní 1963 $