Alþýðublaðið - 21.06.1963, Page 7
-SMÆLKI-SMÆLKI-SMÆLKI SKÓLAMÁL
KristnifræSikennarinn (í góSum
holdum); GeturSu sagt mér, Bjössi,
hvernig fer fyrir þeim manni, sem
vanrækir sálina en hugsar einung-
is um þarfir líkamans?
Bjössi litli: Hann fitnar.
Það var eðlileg forvitni, þegar
storkunginn spurði móður sína:
— Hvaðan kom ég, mamma-
Kennarinn (gramur): Komdu hing
að, Tommi, og skyrptu því í rusla-
körfuna, sem þú ert með í munn-
inum.
Tommi: Ég get það því miður
ekki, herra kennari. Ég er nefni-
lega með tannkýli.
Hún: Þú hefur sett hattinn öfug-
an á þig.
Hann: Hvernig í ósköpunum
gaztu séð í hvaða átt ég ætlaði að
ganga? |
I SVI&JOÐ er talið, að ár-
ið 1970 muní útskrifast um
27.000 stúdentar, þar af 10.
000 frá vcrzlunarskólum og
tækniskólum. Þetta veldur
fjórföldun stúdentatölunnar
frá 1963. Háskólar og kenn-
araskólar í Svíþjóð útskrifa
árlega 10.000 kandidata, og
mun sú tala hafa hækkað um
160 prósent árið 1970.
Vandamál í
Danmörku
NÝLEGA var lagður hornsteiniij
að nýrri hótelbyggingu í París«
Verður hótel þetta í nágrennii
Eiffel turnsins og mun stærsta
hótelið, sem byggt hefur verið it
París í þrjátíu ár. Hótelíð' mun tlH
búið árið 1965.
150 ÁHUGAMENN um dansmúsik tóku þátt í hljómleikakeppni, sem haldin var hér á dögunum í
Hljómleikaliöllinni í París. Var þar keppt um verðlaunin „Guitare d‘Or“, sem nefna mætti „Gullgítar-
*nn<' — Piltarnir hérna á myndinni urðu hlutskarp astir í keppninni og hlutu verðlaunin. Þeir kalla sig
„Les Victomes“.
NÚ hyggjast New York búar
fara að hefja sínar eigin kvik-
myndahátíðir að hætti margra
frægra borga. Munu Nýju Jórvík-
ingar leggja mesta áherzlu á list-
rænar og vel gerðar myndir, en
engin verðlaun veita. Kvikmynda
hátíð þessi verður væntanlega
haldin í september ár livert, ef úr
hugmyndinni verður.
TVEÍR munu verða urn
livert sæti í enskum háskól-
um næsta vetur. Er þetta
mikið áhyggjuefni enskra
skólayfírvalda og ekki enn
sýnt, hvernig bæta megí úr
því.
Skólayfirvöldin munu að
líkindum sjá síg tilneydd
að neita öðrum hverjum
stúdenti um háskólavist. Þyk
ir mönnum það að vonum all
viðsjárverð þróun.
Forráðamenn nokkurra
nýrra liáskóla í Bretlandi,
sem hefja munu starfsemi
sína næsta haust sjá þegar
fram á það, að þurfa að neita
mörgum um skólavist. Há-
skólinn í York hefur tii dæm
is þegar fengið 1.70U umsókn
ir um 2C0 sæti.
rtWWWWWWWWWWttWWWi
hóte
„EF VIÐ ætlum að fá hugmynd
um menntunarþörf hins iðnvædda
þjóðfélags, verðum við að beina
athyglinni til þeirra Ianda, sem
byrjað hafa kerfisbundnar rann-
sóknir á þessu sviði og á ég þar
einkum við Frakkland og Sví-
þjóð“.
Þannig kemst hinn kunni skóla-
maður Jens Ahm að orði í grein,
sem hann skrifar í danska blaðið
Politiken. Rektorinn hugleiðir
þetta vandamál og kemst að ýms-
um athyglisverðum niðurstöðum.
Meðal annars færir hann rök að
því, að Danir þurfi ekki að óttast
offramleiðslu menntamanna í ná
inni framtíð.
í Danmörku hefur lengi vel ver
ið talið, að árið 1965 muni verða
orðin offramleiðsla danskra
menntamanna, þannig að þeir geti
ekki fengið vinnu við sitt hæfi.
„Þessi skoðun er á misskilningi
byggð — eða kannski aðeins röng
ályktun“, segir rektorinn. Til
sönnunar þessari fullyrðingu sinni
nefnir hann dæmi úr frönsku skóla
lífi, sem heimfæra má upp á Ban-
mörk og fleiri lönd.
GJÖF DANA TIL KENYA:
HÓPUR Dana í Nairobi hefur í
hyggju, að festa kaup á húsi
danska rithöfundarins Karen Blix
en, en hún var sem kunnugt er
lengi búsett þar. Danirnir hyggj-
ast gefa stjórn Kenya húsið, þeg
ar landið verour sjálfstætt ríki
iim næstu jól. Blixens húsið skal
uotað í framtíðinni sem skóli og
þá helzt einhvers konar kvenna-
skóli.
Hús Karenar Blixen er í útjaðri
Nairobi og nefnist „Hús Karen-
ar“v Nágrenni hússins cr nefnt
„Karen“, og gatan, sem húsið
stendur við nefnist „Karenarveg-
ur“. Af þessari upptalningu sést,
að íbúar Nairobi hafa nafn Kar-
enar Blixen í heiðri og eru stolt-
ir af því að hún var þar svo lengi
búsett.
Bandaríkjamaður einn er nú eig
andi að „Húsi Karenar“ en hann
kveðst vera reiðubúin að selja
það, ef viðunanlegt tilboð fæst.
Hann hefur að vísu nefnt nokkuð
háa upphæð sem væntanlegt sölu
vcrð en allar líkur eru til að það
muni fást lækkað nokkuð.
Hugmyndinni að kaupum á
,,-Húsi Karenar“ hefur verið vel
tekið af Dönum en enn sem kom
ið er skortir noklcurt fé til að
Itrinda þessu í framkvæmd. Enn-
þá hafa dönsk stjórnarvöld ekki
heitið neinum styrk til þessa mál
efnis og verður því að treysta á
framlög einstaklinga. Forystu-
menn um málið láta í ljós óskir
um að það nái fram að ganga áð-
ur en þ'að verður um seinan, þar
sem hér sé um að ræða hús, sem
sé sögulega merkilegt bæði fyr-
ir Dani og Afríkumenn.
Föstudagur 21. júní
8.00 Morgunútvarp (Bæn. — 8.05 Tónleikar. — 8.30 Fréttir. —■»
8.35 Tónleikar. — 10.00 Yeðurfregnir).
12.00 Hádegisútvarp (Tónleikar. — 12.25 Fréttir og tilkynningar).
13.00. „Við vinnuna“: Tónleikar.
15.00 Síðdegisútvarp (Fréttir og tilk. — Tónleikar. — 16.30 Veðui>
fregnir. — Tónleikar. 17.00 Fréttir. — Endurt. tónlistarefni).
18.30 Harmonikulög. — 18.50 Tilkynningar.
19.20 Veðurfregnir. — 19.30 Fréttir.
20.00 Efst á baugi (Björgvin Guðmundsson og Tómas Karlsson).
20.30 Píanómúsik: Vladimir Horowitz leikur lög eftir Chopin.
20.45 í ljóði: Dagur og nótt, — þáttur í umsjá Baldurs Pálmasonai-,
Lesarar: Finnborg Örnólfsdóttir og Bjarni Guðmundsson.
21.10 Tónleikar: Hornkonsert nr. 4 í Es-dvir (K-495) eftir Mozarfe
(Dennis Brain og hljómsveitin Philharmonía í Lúndúnunt
leika; Herbert von Karajan stjórnar).'
21.30 Útvarpssagan: „Albert og Jakob“ eftir Coru Sandel; VIII.
(Hannes Sigfússon).
22.00 Fréttir og veðurfregnir.
22.10 Kvöldsagan: „Keisarinn í Alaska" eftir Peter Croma; II.
(Hersteinn Pálsson).
22.30 Á síðkvöldi: Létt-klassísk tónlist.
23.15 Dagskrárlok.