Alþýðublaðið - 21.06.1963, Blaðsíða 13
Nyjar
um
tó af Habsburg
DEILUR hafa enn risið upp í
Aust'urríjki um Ottó erkijier-
toga af Ilabsburg. Margir eru
mjög andvígir |>ví, að erkiher-
toginn fái Ieyfi tli að ferðast
til landsins.
Þótt dómstólarnir hafi fellt
úr gildi ákvörðunina um, að
vísa Habsborgurum úr landi, en
hún er frá því á árunum eftir
heimsstyrjöldina 1914-18, fær
erkihertoginn samt sem áður
ekki að fara til Austurríkis.
Jafnaðarmenn hafa ekkl
viljað fallast á þennan úrskurð
dómstólanna og ekki er langt
síðan að umræðt^r voru um
máfíð í austnrríska Þjóðarráð-
inu og voru þær síður en svo
friðsamlegar.
Þjóðarflokkurinn tclur, að við
urkenna beri ákvörðun dómstól-
anna, en stjórnarflokkarnir eru
ekki sammála um álit dóm-
stólanna.
Þingmenn jafnaðarmanna töl-
uðu um „stjórnarskrárbrot“.
Það tclst varla furðulegt, að
þingmenn í Vínarborg vilji
helzt, að erkihertoginn láti sér
úrskurð dómstólanna nægja án
þess að snúa aftur til landsins.
Nokkur félagssamtök, sem
tengd eru verkalýðshreyflng-
unni og austurríska Jafnaðar
mannaflokknum, hafa hótað
verkfalli og mótmælaaðgerðum
ef Ottó fær leyfi til þess að ferð
ast til landsins.
Það eru jafnaðarmenn, ser.t
stjórna innanríkis- og utanrík-
is'ráðuneytunum. Þau hafa á
kveðið, að á vegabréfi Ottós
skuli standa áfram, að það gildi
ekki í Austurríki.
Franz Josef Ottó erkihertogi
elzti sonur Karls keisara I.
dvaldist aö mestu leyti í Banda-
ríkjunum á heimsstyrjaldarárun
um síðari, en seinna kom hann
aftur til Austurríkis. Þegar
Rússar kröfðust þess síðan, að
hann færi úr landi, settist hann
að í Frakklandi.
Það er móðirin, Zita fyrrver-
andi keisaraynja, sem alið hef-
ur upp erkihertogann. Hann kall
aði sig Ottó af Habsburg, þegar
hann varð myndugur. 1930.
Krafan til konungsdóms í Aust-
urríki og Ungverjalandi vakti
þá meiri áhuga en áður þar sem
aðrir menn af ættinui höfðu
dregið sig í hlé.
Árið 1935 var ákvörðunin um
útlcgð Habsborgara afnumin, og
mikhun hluta eignanna, sem
gerðar höfðu verið upptækar
skilað aftur. Þegar Hitler_sotti
síðan inn í landið hélt Ottó.ein .
dregið í kröfu sína til hásætif- .
ins.
Þetta varð til þess, að; eign~~
ir hans voru gerðar upptækar,
á nýjan leik. Ástæðan var sögð-
„svik við Þriðja r£kið.“
Ottó af Habsburg gekk að
eiga Regínu prinsessu af Sach*..
OTTO af IIABSBURG
— fær ekki að koma „heim“.
sen-Me,Sniingen árið 1951.' Þá*
var talið, að hann gegndi engu
hlutv. lengur í stjórnmálum. En
oft hefur hann orðið tilefni um-
ræðna og deilna, og hann éi---
ennþá „persona non grata“ þ.e.
óæskilcgur í Austurríki.
Þetta stafar ugglaust af tölu-
verðu leyti af fyrri atburðum,
sem hann hefur sjálfur á engan
hátt verið viðriðinn.
Habsborgarar glötuðu öBu í
lieimsstyrjöldinni 1914-18. Þeg
ar Franz Josef keisari lézt 1916
eftir 68 ára stjórnartíð steig
bróðursonur hans, Karl i hásæt-
ið.
Þegar keisararíkið Austur-
ríki-Ungverjaland liðaðist í
sundur hét hann hinum ýmsu
þjóðfiokkum sjálfsstjórn, en ár-
ið -1918 varð hann að gefast
npp, leggja niður völd og flýja
til Sviss.
Tvívegis reyndi Karl að ná
aftur völdunum í Ungverjalandi
en Horthy, sem varð einvaldur
í landinu og kaUaði sig ríkis-
stjóra þar eð Karl, sem var kon
ungur Ungverjalands, hafði fln
ið, svaraði honum með mótmæl-
um og fjandskap.
í síðara skiptið var Karl hand
tekinn og vikið löglega frá
völdum. Því næst var hann ænd
ur ásamt konu sinni til Madeira,
þar sem hann lézt skömmu síð
ár. Þau eignuöust 5 syni og 3
dætur.
Fyrir skömmu lézt í Vínar-
borg dóttir Rúdolfs krónprins
(sopar Franz Josefs), María El-
í§abet.
Nafn licnnar í-hinu borgara-
legu lífi var frú Petzek. Hún
var virkur áróðursmaður fyrir
austurríska jafnaðarmenn.
Hugsanlegt er, að hún hafi tek
ið Ieyndardóminn um harmleik
inn í Mayerling með sér í gröf-
ina.
Árið 1889 fannst Rudolf lát-
inn I veiðihöllinni Mayerling á-
samt Marié Vetsera barónsessu.
Þetta var einn harmleikurinn
af mörgum, sem Franz Josef
varð fyrir um ævina. Bróðir
hans, Maximilian, var tekinn
til fanga og skotinn árið 1867,
en hann hefði verið gerður keis
ari í Mexíkó. Kona hans, Elísa-
bet, var myrt í Genf 1898.
Árið 1945 úrskurðaði skipta-
rétturinn í Björgvin, Noregi, að
steinprentarinn (litograf) Henry
Köhler væri sami maðurinn og
þremenningur Franz Josefs
keisara, Johann Nepumuk Salva
tor.
Köhler lézt í bænum Kristian
sand i Noregi. Hann hafði ver-
ið búsettur í Noregi um árabil.
Johann Nepumuk Salvator
áfsalaði.sér öllum mannvirðing-
um og réttindum árið 1889.
Hann fór í hnattsiglingu, en
sjiipið forst við Góðravonar-
höfða.. Árið 1911 var lýst yfir
að hinn horfni frændi keisar-
ans væri látinn.
Síldarstúlkur -
Undirritaðan vantar síldarstúlkur á RAUFARHÖFN —
VOPNAFJÖRÐ og SEYÐISFJÖRÐ. Á stöðum þcssum voru
saltaðar 35 þúsund tunnur s. I. sumar. — Stúlkurnar yerða
fluítar á milli staða. Upplýsingar á Hótel Borg —
herbergi 301 kl. 10 — 12 og 17 — 19.
Frá starfsemi Tón-
skóla Siglufjardar
Tónskóli Siglufjarðar var sett-
ur 1. október 1962 að Gránugötu 14
Viðstaddir voru nemendur, kenn
arar og formaður skólaráðs, Óskar
Garibaldsson
Kennarar við skólann þetta ár
voru þeir Gerhard Schmidt, sem
kenndi á blásturshljóðfæri og píanó
og skólastjóri, Sigursveinn D. Krist
insson, sem kenndi á fiðlu og pí
anó og auk þess í undirbúnings
deild á blokkflautu og byrjendum
á önnur blásturshljóðfæri. Einnig
kenndi hann tónfræði.
í framhaldsdeild • voru 40 nem-
endur, sem skiptust þannig á hljóð
færi: píanó 11, fiðla 9, trompet 9,
klarinett 5, waldhorn 1, básúna 1,
saxophon 2, sláttarhljóðfæri 1.
Fiðlusveit skólans, sem skipuð
var nemendum á 3.-5. námsári,
hafði samæfingar tvisvar í viku frá
því um miðjan desember.
Námsafrek á
landsprófi
Landprófsdeild Gagnfræðaskóla
Austurbæjar var slitið 13. þ.m.
Miðskólapróf stóðust 44 nemend
ur, þar af 30 með framhaldseink-
unn, 6 og þar yfir í landsprófsgrein
um.
Sex nemendur fengu Ágætiseink
unn, 14 fyrstu einkunn, 10 aðra
einkunn og 14 þriðju einkunn.
Hæstur varð Þórarinn Hjalta-
son, 9,70 og er það hæsta einkunn
sem nokkrum nemanda hefur hlotn
ast á landsprófi miðskóla til þessa.
Auk þess hlutu þessir 5 nemendur
ágætiseinkunn: Stefán Örn Stef-
ánsson 9,54, Kolbrún Haraldsdótt
ir 9,41, Povl Ammendrp 9,36,
Snorri Kjaran 9,31 og Karl
Tryggvason 9.20. Fengu nemendur
þessir bókaverðlaun frá skóla sín-
um fyrir ástundun og ágætan náms
árangur.
Blásarasveit nemenda, skipuð
nemendum á 1. og 2. námsári æfði
saman 3-4 sinnum í viku síðustu
6 vikur skólatímans. Æfingar blás
arasveitarinnar og fiðlusveitarinn.
ar annaðist skólastjóri.
Lúðrasveit Siglufjarðar starfaði
í nánum tengslum við skólann og
með henni léku þeir nemendur á
blásturshljóðfæri, sem lengra voru
komnir. Gerhard Schmidt hafði
stjórn lúðrasveitarinnar með hönd
um.
Tónaskólinn og lúðrasveitin
komu í félagi upp músík-kabarett
í marz, undir stjórn Gerhards
Schmidt. Þar var flutt einnar stund
ar prógram af alvarlegri músik,
sameiginlega af fiðlum og blásturs
hljóðfærum og þar á eftir tveggja
stunda prógramm af léttri cnúsik
í formi kabaretts.
Nemendatónleikar voru haldnir
4 sinnum á vetrinum: 1. des., 11.
feb., 27. apríl og lokatónleikar 2.
maí. Þar voru aflient námsvottorð
Einnig voru þá afhentar bókagjaf-
ir til þeirra nemenda, sem sýnt
höfðu sérlega mikla ástundun við
námið. Bækurnar voru gefnar af
Snæbirni Kaldalóns og voru það
verk föður hans, Sigvalda Kalda
lóns, sem gefin voru
Alir tónleilcar skólans voru vel
sóttir. Á lokatónleikunum, s|em
haldnir voru í Alþýðuhúsinu voru
200 manns. Próf fóru fram dagana
27.-30. apríl.
Auk þeirrar skólastarfsemi á
Siglufirði, sem rakin er hér að
framan, voru haldin á Ólafsfirði
2 mánaðarnámskeið á þessu skóla
ári á vegum Tónaskólans og Lúðra
sveitar Ólafsfjarðar. Hið fyrri f
maímánuði, en hið síðara f septem
ber. Á þessum námskeiðum vár
kennt að lesa nótur, leika á biokk
flautur og 20 nemendur lærðu á
málmblásturshljóðfæri.
í lok hvers námskeiðs voru
haldnir nemendatónleikar, har
sem barnakór söng, leikið var á
blokkflautur í dúett, kvartett og
kór og Lúðrasveit Ólafsfjarðar lék
í fyrsta sinn.
BÓKAVERÐLAUN FYRIR
STÆRÐFRÆÐIAFREK
ÍTALSKAR KOSN-
NGARAÐ NÝJU?
Þ. ÁrnascnE
- NTB-Reuter.
Antonio Segni Ítalíuforseti
fóL.-. - Giovanni Leone þingr-
förseta stjórnarmyndun. Leone
hefur beðið Segni um umhugsun-
arfrest og mun skýra Segni trá
ákvöröun sinni hið fyrsta.
Stjórnarkreppa hefur verið á
Ítalíu síðan prófessor Amintore
Fanfani baðst lausnar 16. maí.
íslenzka stærðfræðifélagið hefur
í vor eins og nokkur undanfarin
ár veitt bókaverðlaun fyrir ágæt-
iseinkunn í stærðfræði, eðlisfræði
og efnafræði á stúdentsprófi Að
þessu sinni hlutu verðlaun 8 stú-
dentar alls, 6 frá MR og 2 frá MA
Félagið hefur veitt slík verðlaun
flest ár síðan 1952. Sl. 4 ár hefur
félagið leitað til nokkurra fyrir-
tækja, er ætla mátti að hefðu
þörf fyrir stærðfræðilega menntaða
starfskrafta í framtíðinni, og farið
fram á fjárhagsaðstoð til kaupa á
bókum til þessara verðlauna. Ilef
ur þeirri málaleitan yfirleitt verið
vel tekið. Á þessum 4 árum hafa
eftirtalin fyrirtæki lagt fram skerf
til þessara verðlaunaveitinga: Al-
menna byggingafélagið h.f., Al-
mennar tryggingar h.f., Holtsapó-
tek, íslenzk endurtrygging, Lands-
smiðjan, Líftryggingafélagið And-
vaka, Málning h.f., Samband ís-
lenzkra samvinnufélaga, Samvinnu
tryggingar, Sementsverksmiðja rík
isins, Sjóvátryggingafélag íslands
h.f., Verkfræðistofa Sigurðar Thor
oddsen.
Kann félagið þessum aðilum
beztu þakkir fyrir.
Bylting kæfð
í Argentinu?
(NTB-Reuter).
Fjöldi liðsforingja úr argen-
tínska flughernum var handtek-
inn í dag. Ekki er skýrt frá or-
sökinni, en orðrómur er á kreiki
um að flugherinn hafi undirbúið
byltingu. Tveir ofurstar og tveir
undirofurstar eru meðal hinna
handteknu.
Þá hafa 94 liðsforingjar verið
settir á eftirlaun en þeir munu
hafa verið viðriðnir ýmSar upp-
reisnir að undanförnu.
ALÞÝÐUBLAÐI9 — 21. júní 1963 13