Alþýðublaðið - 23.07.1963, Blaðsíða 2
•jtuear: uMb J. ABtporssor (fib,1 os uenedlKt tironaai.—AOstoOamt»tjcr>
QwwnB UuCmundssoii Fréttastjórl: Slgvaldt Hjélmarsson. - Simar
t* vuu 14 jOJ - 14 003. Auglýslngasiml: 14 906 — ASsetur: AlþýSuhúsi’o
Ten smirja AlþýðublaOs-. ns, Hverfisgötu 8-10 - Askriftargjald kr. 65.00
aaeiuMk * <u.uaiilu kx 4 00 eint. Ctgefandi' AibýSuflokkurltia
BYGGINGAFÉLÖG
í SKÝRSLU norska húsbankast j órans Johans
Hoffmans er bent á marga galla, sem eru á núver-
andi lánafyrirkomulagi til íbúðabygginga hér á
landi. Bendir hann meðal annars á, að hæpið sé að
láta menn sækja um lán fyrir hverja einstaka íbúð,
þegar margar eru í sama húsi. Telur hann, að veita
eigi lán út á húsið í heild, helzt áður en byrjað er
á byggingunni. Telur hann, að fjárhagsáætlun fyr-
ir framkvæmdina ætti að fylgja lánsumsókn og yf-
irvöldin þannig að geta haft áhrif á byggingar
hætti:
í þessu sambandi ræðir Hoffman um bygg-
ingafélög. Hefur hann komið auga á, að samvinnu-
byggingafélög hafa á síðari árum farið inn á hæpn
ar brautir og ekki allskostar gegnt því hlutverki,
sem þeim er ætlað. Menn geta 'gengið í þessi félög
og fengið hlunnindi þeirra, en síðan byggt sína eig-
in íbúð út af fyrir sig, oft með kjallara eða risi til
að leigja. Hins vegar ættu félögin að byggja sjálf
hentugar íbúðir í stórum stíl.
Hoffman telur, að byggingafélög verkamanna
séu skynsamlegast skipulögð af þeim byggingafélög
um, sem nú starfa á íslandi. Þau hafa einmitt starf
að sjálf að byggingum og reist heilar blokkir af
hentugum íbúðum, eins ódýrum og unnt er. Þann-
ig hafa þessi félög eflt þá byggingastarfsemi, sem
nauðsynlegust er.
Vafalaust er nauðsynlegt að endursikoða skipu
lag byggingafélaga hér á landi, og mætti, eins og
Hoffman bendir á, mikið læra af reynslu manna
á hinum Norðurlöndunum í þeim efnum.
KJARNORKUBANN
FREGNIR frá Moskvu benda í vaxandi mæli til
þess, að vænta megi samkomulags um bann við
tilraunum með kjarnorkusprengingar. Mundi það
verða veigamesti árangur, sem náðst hefur í sam-
komulagsátt milli stórveldanna, síðan kalda stríð-
ið hófst.
Bæði Bandaríkin, Bretland og Sovétríkin gera
sér Ijóst, hvílík hætta mundi samfara því, ef marg-
ar fleiri þjóðir kæmu sér uþp kjarnorkuvopnum.
Bann við tilraunum mundi stuðla mjög að því, að
kjarnorkuþjóðum f jölgaði ekki.
Tvenns konar bann kemur til greina. Annað er
takmarkað við sprengingar í háloftum, neðanjarð-
ar og neðansjávar, og munu íslendingar sérstak-
lega fagna því, að sprengingar neðansjávar verða
bannaðar. Hitt er algert bann við hvers konar til-
raunum, og væri mun meira vit í því.
o
ALliUR TILKOSTNAÐUR er
ofsalega hár hér á lanði. Nú kost-
ar fæSi fyrir hjón um sólarhringr-
inn í gististöðmn allt að 400 krón-
um, eða 4000 krónur í tíu daga.
Þetta er ofsalegt verð, en hvað
skal segja. AUt er orðið svo kostn-
aðarsamt, að fólk getur varla átt-
að sig á því. Ég hef talað við menn,
sem segjast ekki kunna orðið að
verðleggja störf sem þeir vihna í
ígripum. Þeir hanga enn í sama
gjaldi og þeir kröfðust fyrir þrem
ur árum.
KONA SAGÐI MÉR, að hún
hefði komið í matvöruverzlun og
séð kálhaus ef haus skyldi kalla.
Hann kostaði 18 krónur. „Hvað
var hann stór?“ spurði ég. „Hann
var svona álíka stór og hnefi á
tveggja ára gömlu barni”, sagði
h;n. — Já, dýrt er drottins orðið,
en grænmeti er alltaf dýrt fyrst
þegar það kemur síðla sumars.
Annað bréf fékk ég um þetta og
það fer hér á eftir?
NEYTANDI RITAR: „Ég er
sjúklingur og þarf að lifa á sér-
stöku fæði og ein er sú fæðuteg-
und, sem ég held mikið upp á og
eru það tómatarnir. Nú kosta þeir
í smásölu 45 kr. kílóið. Þeir inni-
iiniiinnifM
-Jr Allt hækkar í verði.
Matur á gistihúsum.
Nýtt grænmeti í búðum.
it Margir orðnir algerlega áttaviltir.
• ii ii. .iiini iiiiimiiiiiiiiiiiiitiiiiiiiiiiniiiii»inii»i»»»»i»iniii»i»iiiiiiiiii«iiiin***>,‘,M,',,,,,,,,**,‘'**,«,,i>>ii»iiiiiiiiM
í sumarteyfið
Tjöld
Svefnpokar
Bakpokar
Vindsængur
Suðuáhöld (Gas)
★
VERÐANDI H.F.
halda A-B-C-vitamín og því mjög
holl fæða. Appelsínur kosta nú
30 kr. sama magn og innihalda
líkt af A- B- C-vitamíni, ekki
minna, en auk þess D-vitamín að
auki. Þegar ég fer í búðina og
kaupi 2 kg. af tómötum get ég
keypt 3 kg. af appelsinum fyrir
sömu krónutölu og fengið ekki
• lakari vitamínfæðu.
NÚ SPYR ÉG í mesta sakleysi:
Er verðið á þessari hollu og góðu
fæðu, tómötunum ekki alltof liátt?
Er framleiðslukostnaðurinn virki
lega svona mikill? Er þessi vara
háð verðlagseftirliti? Sé nú það,
hefur þá verðlagseftirlitið gert
skyldu sina? Hvað segja neytenda
samtökin um þetta verðlag?
ÉG KOM TIL KAUPMANNS
fyrir nokkru. Sýndi hann mér 12
til 14 st. tómata, sem við grand-
skoðuðum, nýkomnir í búðina.
Voru aðeins einn eða tveir þeirra
I. fl. var-a, hinir flestir III fl. vara,
og kg. kostaði kr. 45,00. Það var
orðtak vestra: Er þetta hægt
Matthias? Ég held að flestir munu
svara með neii. Hér er verðið
spennt isvo hátt að furðu gegnir.
Hér eftir meðan þetta okurv. er á
tómötum, mun ég hætta að borða
þá, en nota appelsínur í sama til-
gangi og tómatana áður. Ég skal
jafnframt upplýsa að ég hef alla
tíð keypt íslenzka framleiðslu, en
reynt að hafna þeirri erlendu,
enda þótt einhver verðmunur
væri.
EN ÞEGAR VERÐH) er spennt
svona hátt, þá brestur stirengur f
boga þjóðrækni minnar. Ég vil
með línum þessum vekja athygli
á okurverði tómatanna, vitamín
innihaldi þeirra, benda lesendum
blaðsins á að appelsínurnar geta
bætt upp vitamínin og meira en
það, þegar hinir rándýru tómatar
eru lagðir til hliðar, en auk þess
miklu ódýrari vitamíngjafi. Þetta
er leiðinleg saga, en alltaf er- bczt
að segja hverja sögu eins og hún
gengur".
SKIPAllTGeRÖ RIKISINS
Herjólfur
fer til Vestmannaeyja og
Hornafjarðar 24. þ. m. Vörumót-
taka til Hornafjarðar í dag.
Plýlagnlr, kísil-
hreinsun og viðgerðir
Sími 18S22.
Sigurgeir Sigurjónsson
hæstaréttarlögmaður
Málflutníngsskrifstofa
Óðlnsgötu 4. Sfml 11041.
1
1. til 8. september 1963
KAUPSTEFNAN í LEIPZIG
Heimsfræg neyzluvörusýning.
6500 firmu frá 50 löndum sýna í 30
meginflokkum.
Aðalmarkaður viðskipta austurs og vesturs.
Stofnandi og meðlimur
Sambands Alþjóðlegra Kaupstefna.
Upplýsingar og kaupstefnuskírteini:
KAUPSTEFNAN, REYKJAVÍK,
Lækjargötu 6 A ög Pósthússtræti 13.
Skírteini má einnig fá á landamærum Þýzka
Alþýðuiýðveldisins.
£ 23. júlí 1963 — ALÞÝÐUBLAÐIÐ