Alþýðublaðið - 23.07.1963, Qupperneq 3
Keeler telur upp
rekkjunauta sfna
LONDON 22.7 (NTB-Reuter).
í réttarhaldinu yfir htnum fimmt-
ugra tízkuíækni og listmálara Step-
hen Ward, sagði ungfrú Christine
Keeler í dag frá mönnum þeim,
sem lagzt höfðu meö sér, en þver
neitaði, að hún væri vændiskona.
Hin rauðhærða sýningadama var
eina aðalvitnið I málinu, sem kom
fyrir réttinn í dag, en réttarhald-
ið fer fram í hinum fræga sal nr.
21 í glæparéttinum Old Bailey.
Dr. Ward talaði hátt og skýrt,
. er hann lýsti því yfir, að hann væri
saklaus af •öilum fimm ákæruat-
riðunum. Þrjú þessara atriða
fjalla um að hann hafi lifað á tekj
um af vændi, og tvö um, að hann
hafi reynt að verða sér úti um
stúlkur undir 21 árs aldri með það
fyrir augum að hafa við þær ólög-
legar samfarir.
Blaðamenn alls staðar úr heim-
inum og sumt af helztu framá-
mönnum í brezku samkvæmislífi
voru mættir í réttarsalnum, en
mál þetta hefur vakið heimsat-
hygli allt frá því, að samband ung-
frú Keeier við John Profumo varð
til þess í júní sl, að Profumo varð
að segja af sé'- embætti hermála-
ráðherra í stiórn Maemillans.
Eftirvænt'ngarfullir áheyrendur
fengu að heyra yfirlýsingar og
framburð vitna um allt frá eitur-
Handtökur í
New York
NEW YORK 22.1 (NTB-Reuter).
250 manns, mest litaðir, voru hand
teknir í Brooklyn í dag. Ástæðan
til f jöldahandtöku þessarar var sú,
að um 1000 litaðir neituðu að
lireyfa sig á brott af vinnustaö
einum í Brooklyn, þar sem þeir
töl'du, að mönnum væri mism in-
að í vinnu eftir litarhætti. Mót-
mælamenn gerðu enga tilraun til
að hindra verkamenn í að komast
til vinnu sinnar.
Um 200 lögreglumenn voru kall-
aðir til að fjarlægja mótmæla-
mennina. Þeir neituðu að hreyfa
sig og varð lögreglan að bera þá
inn í lögreglubílana. í Manhattan
voru 29 handteknir fyrir að halcia
fund til stuðnings þeirri kröfu, að.
a.m.k. 25% allra þeirra, sem
ráðnir væru til opinberra bygg-
ingaframkvæmda, skyldu vera lit-
aðir.
lyf jum og vændi upp í spegla, sem
horfa mátti gegnum og sjá ailt,
sem fram fór í svefnherbergjum.
Ward sat og starði fram fyrir
sig allan tímann og fylgdist með
öllu, sem fram fór. Við og við
rétti hánn verjanda sínum, Peter
Burge, miða. Burge mótmælti ýms-
um þeim spurningugi, sem sak-
sóknarinn lagði fyrir ungfrú Keel-
er, en dómarinn kvað saksóknara
aðeins vera að reyna að komast
að því með nákvæmum upplýsing-
um frá þeim tíma, er Keeler um-
gekst Ward, að hve miklu leyti
bæri að líta á hana sem vændis-
konu eða ekki.
Ungfrú Keeler notaði þá íæki-
færið og lagði höfuðáherzlu á, að
hún héfði aldrei verið og væri
ekki vændiskona. — Hún skýrði
frá þvi, að hún hefði við og við
Framh. á 13. síðu
Um öryggi á síld-
veiðiskipum
Eftirfarandi umburðarbréf hef- Tilgangur þessarar lúgu er að
Simca kom
á nr. 677
DREGIÐ hefur verið í bíla-
happdrætti Starfsmannafé-
lags Reykjavíkurborgar hinn
15. þessa mánaðar og kom
vinningurinn, bifreið Simca
1000, upp á númer 677. Eigi-
andi þcssa miða getur vitjað
bifreiðarinnar á skrifstofu fé
lagsins að Tjarnargötu 12
(slökkvistöðin).
CHRISTINE KEELER
ur blaðinu borst frá Skipaskoðunar
1 stjóra:
| Skipaskoðun ríkisins hefur und-
1 anfarið, farið fram á að eftirtalin
I atriði verði framkvæmd á öllum
nýjum íslenzkum síldveiðiskipum,
og mælist svo til að verði einnig
gerð á eldri skipum eftir því sem
framkvæmanlegt er.
A. Styrkleikaatriði. (Hér er að
eins getið nokkurra almennra
atriða, önnur eru athuguð á
mótteknum vinnuteikningum).
1. Lyft afturþilfar (þrep í aðal-
þilfari miðskipa) verði ekki í nýj-
um íslenzkum fiskiskipum, vegna
brothættu framan við þrepið, þeg-
| ar um stærri skip er að ræða.
i 2. Bandabil verði að jafnaði
ekki lengra en 500 mm.
3. Bitar séu á hverju bandi,
bæði undir aðalþilfari og báta-
palli.
4. Heilt stálþilfar sé bæði á
aðalþilfari og bátapalli, einnig
þótt tréþilfar sé ofan á.
5. Hæll afturstefnis sé lyftur
aftast minnst 150 mm til að
minnka áhættu á skemmdum stýris
i búnaðar við strand.
6. Plötur á m'ðsíðum séu styrkt
ar vegna bamings við bryggjur.
7. Minnst þrír hálfrúnnir stál-
listar séu rafsoðnir utan á skipið.
Efsti listinn sé með efri brún jafnt
efri brún stálþilfa’s í borði og nái
hann kringum allt skipið. Hinir
tveir séu 400 mm og 800 mm neð-
ar og séu á ca. 80% af lengd
skipsins miðskipa.
B. Öryggisatriði
1. Allt rými undir bátapalli verði
lokað algjörlega vatnsþétt.
2. Allar hurðir á neðri hæð þil-
farshúss (lokaðs rýmis undir báta
palli) og á afturþilfari hvalbaks,
verði vatnsþéttar stálhurðir með
gúmmíþéttingum og spennu-lo:i-
unarbúnaði.
3. Op fyrir línurennu miðskipa
aftast verði lokað með vatnsþétt-
um stállúgum á hjörum, búnar
gúmmíþéttingum og spennu-Iok-
unarbúnaði.
4. Framan við kraftblokkargálg
ann verði á bátapallinum stjórn-
borðsmegin staðsett hringlaga,
vatnsþétt, lág stállúga með loki
á hjörum, þéttað með gúmmí-
pakningum, og spennibúnaði að
neðan til lokunar. Verði þvermál
opsins um 700 mm.
Horfur á samningi
um tilraunabann
MOSKVA 22.7 (NTB-Reuter).
Enn náðist árangur í dag á ráð-
stefnunni um stöðvun tilrauna
með kjarnorkuvopn, sagði í
fréttatilkynningu, sem gefin var
út eftir fundinn í dag. Einnig
voru rædd önnur sameiginleg á-
hugamál. Næsti fundur verður
haldinn á þriðjudag, segir í til-
kynningunni.
Fundurinn í dag var hinn
lengsti, sem haldinn hefur verið
síðan viðræðurnar hófust í byrj-
un síðustu viku. Hann stóð í
þrjá tíma og að honum loknum
áttu aðalful'ltrúarnir þrír, Harri-
man, Hailsham og Gromyko,
fimmtíu mínútna samtal í ein-
rúmi. Þetta er í fyrsta sinn, sem
slíkt gerist I viðræðum þcssum,
en ekki fékkst neitt upplýst um,
hvað þeim hefði farið á milli.
Undirnefnd sú, er fæst við
að semja texta samningsins, héit
aftur fund í dag og telja góðar
heimildir, að nefndin hafi svo
gott sem l'okið störfum. Eru
menn þeirrar skoðunar í Mosk /u,
að tilkynning um samkomul g
um stöðvun tilrauna kjarnor ru-
vopna í andrúmsloftinu, geimn-
um og neðansjávar verði birt ein
hvern næstu daga.
,gera auðveldara að nota kraft-
blokkina til að f jarlægja nótina af
bátapallinum og setja hana niður
á aðalþilfar inn í vatnsþétt lok-
aða rúminu undir þegar skipið tr
á siglingu.
Síðan má loka lúgunni vatnsþétt
aftur. Á sama hátt má nota kr ift-
blokkina til að taka nótina íftur
upp á bátapall þegar hún skal nit-
uð.
Með þessu móti færist þyngd
nótarinnar verulega niður þótt að
sjálfsögðu sé enn betra að se ja
hana niður í lest á siglingu.
5. Stöðugleikaútreikninga sk.il
gera á hverju nýju skipi samkv.
umburðarbréfi skipaskoðunarstj.
frá 5. des. 1962
6. Ef bert stálþilfar er á báta-
palli og grindaþilfar ofan á, þá
skal minnst vera 40 mm breiö
rifa sem frá rennsli neðst á skjó-
borði nótakassans.
7. Nótakassi á bátapalli sé alveg
opinn að framan, aðeins með grind
verki, og opnar trégrindur séu
miðskipa.
8. Lagt er til að allt efni í skjól
borðum nótakassa á bátanalli sé
gert úr gataolötum, þétt-settar
minnst 10 mm götum, þannig að
sjór geti runn'ð í gegnum sxjól-
borðin, ofan við nótina.
9. Festipoúar og 3 lokaðir kefnr
séu aftast. ofan á bá+anall'.
10. Á hverju síldarskipi séu
minnst 2 síldarruðningsop á hvorri
hlið og sé gerð þeirra og stærð
samþykkt af Skipaskoðun R lósins.
11. Austurop (lensport) sért ríf-
leg. að stærð, og sé gerð þeirra
samþykkt af Skipaskoðun Ríkis-
ins.
12. Uppstilling á þilfari sé öll
með 2 cm rifu milli borða, svo
sjór renni frjálst að austuropum.
13. Styrkleiki stoða og lestar-
borða sé í samræmi við kröfur í
umburðarbréfi nr. 41 frá Skipa-
skoðunarstjóra.
14. Uppstilling í lest sé þannig
að engin hilluborð séu ínnst í
hverri neðstu hillu, þannig að
síld renni alls staðar undir neðstu
hillur.
Uppstilling í lest nái eins hátt
upp undir þilfar og hægt er.
Til þess er mælzt að engir botn
geymar séu fyrir ballest undir lest,
hvort heldur olía, vatn eða sjór.
Sé svo skal föst ballest miðast
við tóma botngeyma og hlaðið
skip.
17. Ballest skipsins (kjölfesta
sé föst steinsteypa, með járni í
ef þarf, og sé þungi hennar á-
kveðinn eftir útreikningum á
stöðugleika skipsins samkvæmt
kröfum Skipaskoðunarstjóra frá 5.
desember 1962.
18. Vatnsgeymar eða olíugeym-
ar undir vistarverum framan séu
hólfaðir með minnst einu þéttu
langskips þili miðskipa.
19. Öryggiskeðjur séu festar
innan í lestum í boxalok til að
hindra að lokin geti tapazt.
20. Hægt skal að stöðva allar
þilfarsvindur með handtaki í brú.
21. Gúmmíbjörgunarbátar skulu
vera í trékassa af viðurkenndri
gerð, eða í öðrum umbúðum, sem
viðurkenndar eru af Skipaskoðun
Ríkisins og skal örugg festing
vera fyrir línuenda gúmmíbáts-
ins.
Framhald á 13. síðn.
ALÞÝÐUBLAÐIÐ — 23. júlí 1963 3