Alþýðublaðið - 23.07.1963, Blaðsíða 5

Alþýðublaðið - 23.07.1963, Blaðsíða 5
KiRKJAN VIGIR OSS TIL MANN OG ÞEGNSKAPAR R ■:r-a fnrseía íslands við vígslu Skálholtskirkju TUTTUGAF' ;n er hin nýja landnám;:öld s. Á fáum ára- tugum hefu >■ n reist fleiri, veglegri og . a >gri byggingar en dæmi fi , il frá upphafi íslands bygí, i;7íi í sveit og bæ. En í þei. >n dróst kiritj- an aftur úr víð Timbur- kirkjurnar, v /stu torfkirkj- urnar af hól i ; að vísu marg ar laglegar, n :ær hrörnuðu fljótt. Örfáar . . r voru úr var- anlegra efnx .jg ær hafa orðið þjóðinni kærar. Misræmið milli mannabústaða og guðshúss óx og varð áhyggjueíni. En hvergi var þó niðurlægingin meir áberandi en á hlnum fornhelga stað, Skál- hoiti, þar sem móðurkirkja og höf- uðkirkja íslands hafði fyrrum staðið, énda rúmi’ega háif önnur öld síðan fjárkláði, móðuharðindi og önnur áföll höfðu kippt fótun- um, fjárhagslega, undan stólnum. Sú raunasaga verður ckki nánar rakin. tignarleg, og á þó eftir að íklæð- ast fullum skrúða. Hún minnir á dómkirkju Brynjólfs biskups. Hún helgast af mikilli sögu. Hér er heilagur, völlur, sami grunnur og allar eldri Skálholtskirkjur hafa staðið á. Hér reika svipir margra hinna ágætustu manna fortíðar- innar. Kirkjan er nýbyggð og ný- vígð, og þó finnst mér á þessari stundu, hún vera aldagömul. Hin ósýnilega Skálholtskirkja hefur alltaf fyrir fundist, og stígur nú fram í allri sinni tign, þegar þok- unni léttir Móðuharðindum Skál- holtsstaðar er aflétt, slitinn ör- lagaþráður knýttur á ný og end- urvígður. Vér hugsum nú ekki síð- ur með fögnuði til þeirrar sögu, sem er framundan en hinnar, sem er liðin og skráð. Ég tók áðan nokkuð djúpt í ár- inni um tímamót í íslenzkri kirkjusögu. En þá átti ég við, að þessi hátíð er tvíþætt. Annarsveg- ar kirkjuvígsla og fyrsta skóflu- stunga að nýjum Skálholtsskóla, og hins vegar afhending Skálholts staðar með meðgjöf í hendur þjóð- kirkjunni, sem fram fer innan stundar. Þróunin er skýr. Þjóð- kirkjan fær vaxandi sjálfstjórn, og hefur nú þegar meira sjálfstæði gagnvart ríkisvaldinu en átt hef- ur sér stað frá siðaskiptum. Þessi þróun er bæði æskileg og áhættu- laus. Þjóðkirkjan er engin keppi- nautur hins veraldlega valds. Henn ar starf er að efla trú, bæta siði og styrkja íslenzka þjóðmenning. Eins og kirkjan hefur nú verið vígð, á hún aftur að vígja oss til manndóms og þegnskapar, hjálpa oss til að rata veginn, nálgast sannleikann, og bera tilhlýðilega lotningu fyrir lífinu og tilverunnar hinstu rökum. Vér árnum öll, einhuga, þjóð- kirkju íslands og Skálholtsstað gæfu og gengis í Guðs nafni. Hörður Bjarnason, húsameist ari ríkisins, teiknaði hina nýju Skálholtskirkju. IVIyndina tók Ijósm. ú)þbl, isi.þþn^udag- í Skálhciti. Þetta er Hörður Bjarnas. en í baks. er kirkjan. kálholt horfir aldri fram Við batnandi hag hafa breyting- ar orðið í þessu efni. Veglegar kirkjur hafa risið og eru enn að rísa víðsvegar um land, úr varan- i legu efni, sem standast mun tím- j ans tönn um ókomnar aldir. Það i er gleðiefni hvað almenningur hefur sýnt mikinn áhuga og fórn- fýsi um kirkjubygging, og ekki síður hitt, hve samtaka fólk er al- mennt um þessi mál, þó hér sé á Stundum fleira gert að ágreinings- efni en nauðsyn ber til. Kirkjan er einingarafl mcð þjóð vorri. Án kirkju vilja menn ekki vera, kirkju, sem setur svip sinn á byggðarlagið, kirkju, þar sem safn ast er saman á gleði- og alvöru- stundum lífsins til tilbeiðslu og sálubótar. Svo er íyrir þakkandi, að Skál- holt hefur ekki orðið útundan. Kristnisagan hefur kallað á fram- kvæmdir. Að vísu getum vér ekki byggt upp hvern sögustað. En Skálholt er í kirkjusögunni sam- bærilegt við Þingvelli í stjórn- málasögunni, og þannig í sveit sett, að staðurinn getur jafnt þjónað riútíð og framtíð sem for- tíðinni. Staðurinn er miðsveitis milli heiða og jökla, fjalls og fjöru, í breiðasta héraði landsins, sem á mikla og örugga framtíð fyrir höndum. Til Skálholts liggur greið kirkjugata. En viðfangsefnið var ofviða öðrum en þjóðinni í tieild. Eíkisstjórnir, Alþingi og allur al- menningur, með tilstyrk einstakra manna og frændþjóða vorra á Norðurlöndum, hafa laggst á eitt um að gera þá veglegu kirkju, sem biskup landsins hefur nú vígt fyrir stundu. Vér erum hér saman komin til að fagna miklum at- burði, jafnvel tímamótum í sögu fslenzkrar þjóðkirkju. Skálholtskirkja var og verður dómkirkja. Minna nafn hæfir henni ekki. Hún er nú veglegasta kirkja á voru íandi, svo sem áður var.. Kirkjusmíðin hefur tekizt með ágætum. Kirkjan er fögur og Ræöð biskups í Jesaja spádómsbók, 52. kap., segir svo: Hefjið gleðisöng, hrópið fagnaðaróp allar í einu, þér eyðirústir, því að Drott- inn huggar lýð sinn, leysir Jerúsalem. Og Haggai spámaður segir í 2. kap.: Ég mun fylla hús þetta dýrð, segir Drottinn allsherjar. Mitt er silfrið og mitt er gull- ið. Hin síðari dýrð þessa must- eris mun verða meiri en hin fyrri var, segir Drottinn allx- herjar, og ég mim veita heiU á þessum stað. Eyðirústir skulu hefja gleði- söngva og hrópa fagnaðaróp, því Drottinn reisir hið fallna og leysir úr álögum, segir spá- maðurinn, og það, sem hann boðar, er að rætast hér og nú. Á helgustum grunni vors lands, sem áður var eyddur að kalla um sinn, er risið musteri, lol- gjörð í sjálfu sér, þar sem það lyftir ásýnd sinni yfir staðinn og í dag er hafinn upp lof- söngur í þessu húsi, sem berg- málar um allt ísland. Skálho.t fagnar, Skálholt skín að nýju. Að vísu hefur þetta helga nafn aldrei misst ljóma sinn. Hús gátu hrunið, gersemar glatast, ákvæði gleymzt, allt horfið af staðnum, sem auga sér, en það var meira eftir en allt, sem héðan hvarf. Skálholt var auð- ugra í auðn og örbirgð en hver staður annar á landi hér. Þú komst hér fyrr og gekkst um eyðirústir, þú stóðst á forna- etöðli, í Kirkjukinn, við Þor- láksbúð, og blæjan grænna stráa sviptist frá, þögnin fór að tala. Tóftin, sigin í jörð, steinn inn úr gamalli hleðslu, það voru rammar rúnir í þessum sprek- um, sem flutu uppi í gleymsk- unnar hyl. Þú skynjaðir harm- inn í þessu hljóða máli, treg- ann, sársaukann, sem var í ætt við stefið um íslands óham- ingju. En meira bjó í máli rúst- anna því Skálholt er etærra en staðurinn, minningin meiri en afdrif hans. Skálholt sögunnar er ekki bundið stað né stundum, það var og er alls staðar, um allt ísland, í hverjum íslenzk- um barmi. Hvar sem sporin voru rakin um farna vegu kyn- slóðanna var skammt til Skál- holts, hvenær, sem um var lit- ast, bar þennan hátind við him- in, Skálholtsstað. Hann varð ekki dulinn. gat ekki hrunið, aldrei gleymst. Og meira enn er Skálholt, stærra en sagan. í sögu Þorláks biskups helga segir frá því, að prestur einn fyrir norðan kom út á skír- dagskvöld og sá sýn, hann sá Skálholt, Skálholtskirkju, og ljós mikið fyrir kirkjunni, svo að trautt mátti sjá kirkjuna fyr- ir ljósinu. Sú tign, sem var, er stöfuð geislum, eem ekkert jarðneskt getur tendrað, og auðnin, sem á eftir kom, er sveipuð skini, sem ekkert jarð- neskt getur slökkt. Á fjóspalli hér á staðnum voru útlögð á vort móðurmál þau orð, sem helgust eru á hverri tungu, og þótt hér yrði hljótt og myrkt, voru þau orð ljósið á vegum þúsundanna, vígðu hvert alt- ari og hverja sál á landi hér. Þegar öll ytri vegsemd þessa staðar var fallin, „allt eins og blómstrið eina,“ flutti sálmur- inn, sem hér var sunginn fyrst yfir látins moldum, sigurorð lífs ins við hverja gröf á íslandi kynslóð eftir kynslóð. Þegar litla, snauða kirkjan, hin síð- asta hér, riðaði gisin og fúin á grunni sínum, geymdi hún undir gólfi letur á steini, ritn- inguna, sem Jón Vídalín lét kiappa á legstein sinn:: „Guðs heilaga ott® stendur stöðugt eilíflega. Grasið visnar, blóm- in fölna, svo hverfur heimsins prýði, en Guðs heilaga orð stendur stöðugt eilíflega." Og meðan grösin spruttu og féllu á eyðirústum Skálholtsstaðar var bókin hans í hverju húsi á íslandi og orð hans á vörum almúgans, greypt í hjarta þjóð- arinnar. Skálholt er meira en minningin, hærra en sagan. Þar var höfuðstaður þjóðar, sem nálega var fallin sjálf, og þá eyddist hann, én ljósið fyr- ir kirkjunni gat ekki horfið sýnum meðan nokkurt íslenzkt auga var heilt. Vér sáum hing- að marga nótt og ljósið bað um líf, nýja kveil^i, nýjan vita handa sér, handa þjóðinni, á helgum, föllnum höfuðstað. Og stundin er komin. Skálholt er að sigra. Hefjið gleðisöng, hróp- ið fagnaðaróp allar í einu, þér eyðirústir. Heilög Péturskirkja í Skálholti er endurreist, veg- samleg álitum, og mun fram- vegis lofa sinn meistara og alla, sem að henni hafa unnið og liana sæmt með ágætum gjof- um. Ekki- metumst vér við aðra um vegsemd mannlegra verka. Hér voru fyrr meiri kirkjur og meira búnar en þessi er, þótt í sjálfri þessari byggingu og meðal nýrra muna hér séu fágætir dýrgripir. Án alls sam- anburðar er óhætt að segja, að vor kynslóð hefur hækkað sína vegsemd, lífs og liðin, með þessu verki. Svo taka aðrar kynslóðir við. Skálliolt horfir í aldir fram. Og enn er það ljósið fyrir kirkjunni, sem c-r auður þessa staðar. Ég m>M fylla hús þetta dýrð, segir Drottinn. Hin síðari dýrð þessa musteris mun meiri verða en hin fyrri var. Vér þiggjum þetta fyrirheit í auðmjúkri tilbeiðslu. Og allar eyðirústir á Skálholtsstað taka undir allt, sem andleg móðir allra vígðra húsa á íslandi hefur af sér fætt tekur undir. Vér erum gæfumenn að hafa mátt hefja það verk hér, sem ókomnar ald- ir munu fram halda. Og Drott- inn, sem fyrirheitið gefur, hann er sá, sem alltaf ætlar oss meira en vér sjáum fyrir, allt- af á meira að gefa en vér höf- um þegið eða kunnum að vona. Hin síðari dýrð þjóðarhelgi- dómsins mun meiri verða en hin fyrri var. í þessu morgun- skini stendur Skálholt í dag. Og vér lútum helgri fortíð og blessum heilaga framtíð, sem Drottinn gefur. Og heilög heic Framh. á 14. síðu w ALÞÝÐUBLAÐIÐ — 23. júl( 1963 $

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.