Alþýðublaðið - 23.07.1963, Blaðsíða 5
KiRKJAN VIGIR OSS TIL MANN
OG ÞEGNSKAPAR
R ■:r-a fnrseía íslands við vígslu Skálholtskirkju
TUTTUGAF' ;n er hin nýja
landnám;:öld s. Á fáum ára-
tugum hefu >■ n reist fleiri,
veglegri og . a >gri byggingar
en dæmi fi , il frá upphafi
íslands bygí, i;7íi í sveit og
bæ. En í þei. >n dróst kiritj-
an aftur úr víð Timbur-
kirkjurnar, v /stu torfkirkj-
urnar af hól i ; að vísu marg
ar laglegar, n :ær hrörnuðu
fljótt. Örfáar . . r voru úr var-
anlegra efnx .jg ær hafa orðið
þjóðinni kærar. Misræmið milli
mannabústaða og guðshúss óx og
varð áhyggjueíni. En hvergi var
þó niðurlægingin meir áberandi
en á hlnum fornhelga stað, Skál-
hoiti, þar sem móðurkirkja og höf-
uðkirkja íslands hafði fyrrum
staðið, énda rúmi’ega háif önnur
öld síðan fjárkláði, móðuharðindi
og önnur áföll höfðu kippt fótun-
um, fjárhagslega, undan stólnum.
Sú raunasaga verður ckki nánar
rakin.
tignarleg, og á þó eftir að íklæð-
ast fullum skrúða. Hún minnir á
dómkirkju Brynjólfs biskups. Hún
helgast af mikilli sögu. Hér er
heilagur, völlur, sami grunnur og
allar eldri Skálholtskirkjur hafa
staðið á. Hér reika svipir margra
hinna ágætustu manna fortíðar-
innar. Kirkjan er nýbyggð og ný-
vígð, og þó finnst mér á þessari
stundu, hún vera aldagömul. Hin
ósýnilega Skálholtskirkja hefur
alltaf fyrir fundist, og stígur nú
fram í allri sinni tign, þegar þok-
unni léttir Móðuharðindum Skál-
holtsstaðar er aflétt, slitinn ör-
lagaþráður knýttur á ný og end-
urvígður. Vér hugsum nú ekki síð-
ur með fögnuði til þeirrar sögu,
sem er framundan en hinnar, sem
er liðin og skráð.
Ég tók áðan nokkuð djúpt í ár-
inni um tímamót í íslenzkri
kirkjusögu. En þá átti ég við, að
þessi hátíð er tvíþætt. Annarsveg-
ar kirkjuvígsla og fyrsta skóflu-
stunga að nýjum Skálholtsskóla,
og hins vegar afhending Skálholts
staðar með meðgjöf í hendur þjóð-
kirkjunni, sem fram fer innan
stundar. Þróunin er skýr. Þjóð-
kirkjan fær vaxandi sjálfstjórn, og
hefur nú þegar meira sjálfstæði
gagnvart ríkisvaldinu en átt hef-
ur sér stað frá siðaskiptum. Þessi
þróun er bæði æskileg og áhættu-
laus. Þjóðkirkjan er engin keppi-
nautur hins veraldlega valds. Henn
ar starf er að efla trú, bæta siði og
styrkja íslenzka þjóðmenning.
Eins og kirkjan hefur nú verið
vígð, á hún aftur að vígja oss til
manndóms og þegnskapar, hjálpa
oss til að rata veginn, nálgast
sannleikann, og bera tilhlýðilega
lotningu fyrir lífinu og tilverunnar
hinstu rökum.
Vér árnum öll, einhuga, þjóð-
kirkju íslands og Skálholtsstað
gæfu og gengis í Guðs nafni.
Hörður Bjarnason, húsameist
ari ríkisins, teiknaði hina nýju
Skálholtskirkju. IVIyndina tók
Ijósm. ú)þbl, isi.þþn^udag- í
Skálhciti. Þetta er Hörður
Bjarnas. en í baks. er kirkjan.
kálholt horfir
aldri fram
Við batnandi hag hafa breyting-
ar orðið í þessu efni. Veglegar
kirkjur hafa risið og eru enn að
rísa víðsvegar um land, úr varan- i
legu efni, sem standast mun tím- j
ans tönn um ókomnar aldir. Það i
er gleðiefni hvað almenningur
hefur sýnt mikinn áhuga og fórn-
fýsi um kirkjubygging, og ekki
síður hitt, hve samtaka fólk er al-
mennt um þessi mál, þó hér sé á
Stundum fleira gert að ágreinings-
efni en nauðsyn ber til. Kirkjan er
einingarafl mcð þjóð vorri. Án
kirkju vilja menn ekki vera,
kirkju, sem setur svip sinn á
byggðarlagið, kirkju, þar sem safn
ast er saman á gleði- og alvöru-
stundum lífsins til tilbeiðslu og
sálubótar.
Svo er íyrir þakkandi, að Skál-
holt hefur ekki orðið útundan.
Kristnisagan hefur kallað á fram-
kvæmdir. Að vísu getum vér ekki
byggt upp hvern sögustað. En
Skálholt er í kirkjusögunni sam-
bærilegt við Þingvelli í stjórn-
málasögunni, og þannig í sveit
sett, að staðurinn getur jafnt
þjónað riútíð og framtíð sem for-
tíðinni. Staðurinn er miðsveitis
milli heiða og jökla, fjalls og fjöru,
í breiðasta héraði landsins, sem á
mikla og örugga framtíð fyrir
höndum. Til Skálholts liggur greið
kirkjugata. En viðfangsefnið var
ofviða öðrum en þjóðinni í tieild.
Eíkisstjórnir, Alþingi og allur al-
menningur, með tilstyrk einstakra
manna og frændþjóða vorra á
Norðurlöndum, hafa laggst á eitt
um að gera þá veglegu kirkju,
sem biskup landsins hefur nú vígt
fyrir stundu. Vér erum hér saman
komin til að fagna miklum at-
burði, jafnvel tímamótum í sögu
fslenzkrar þjóðkirkju.
Skálholtskirkja var og verður
dómkirkja. Minna nafn hæfir
henni ekki. Hún er nú veglegasta
kirkja á voru íandi, svo sem áður
var.. Kirkjusmíðin hefur tekizt
með ágætum. Kirkjan er fögur og
Ræöð biskups
í Jesaja spádómsbók, 52. kap.,
segir svo: Hefjið gleðisöng,
hrópið fagnaðaróp allar í einu,
þér eyðirústir, því að Drott-
inn huggar lýð sinn, leysir
Jerúsalem.
Og Haggai spámaður segir í
2. kap.: Ég mun fylla hús þetta
dýrð, segir Drottinn allsherjar.
Mitt er silfrið og mitt er gull-
ið. Hin síðari dýrð þessa must-
eris mun verða meiri en hin
fyrri var, segir Drottinn allx-
herjar, og ég mim veita heiU
á þessum stað.
Eyðirústir skulu hefja gleði-
söngva og hrópa fagnaðaróp,
því Drottinn reisir hið fallna
og leysir úr álögum, segir spá-
maðurinn, og það, sem hann
boðar, er að rætast hér og nú.
Á helgustum grunni vors lands,
sem áður var eyddur að kalla
um sinn, er risið musteri, lol-
gjörð í sjálfu sér, þar sem það
lyftir ásýnd sinni yfir staðinn
og í dag er hafinn upp lof-
söngur í þessu húsi, sem berg-
málar um allt ísland. Skálho.t
fagnar, Skálholt skín að nýju.
Að vísu hefur þetta helga nafn
aldrei misst ljóma sinn. Hús
gátu hrunið, gersemar glatast,
ákvæði gleymzt, allt horfið af
staðnum, sem auga sér, en það
var meira eftir en allt, sem
héðan hvarf. Skálholt var auð-
ugra í auðn og örbirgð en hver
staður annar á landi hér. Þú
komst hér fyrr og gekkst um
eyðirústir, þú stóðst á forna-
etöðli, í Kirkjukinn, við Þor-
láksbúð, og blæjan grænna
stráa sviptist frá, þögnin fór að
tala. Tóftin, sigin í jörð, steinn
inn úr gamalli hleðslu, það voru
rammar rúnir í þessum sprek-
um, sem flutu uppi í gleymsk-
unnar hyl. Þú skynjaðir harm-
inn í þessu hljóða máli, treg-
ann, sársaukann, sem var í ætt
við stefið um íslands óham-
ingju. En meira bjó í máli rúst-
anna því Skálholt er etærra en
staðurinn, minningin meiri en
afdrif hans. Skálholt sögunnar
er ekki bundið stað né stundum,
það var og er alls staðar, um
allt ísland, í hverjum íslenzk-
um barmi. Hvar sem sporin
voru rakin um farna vegu kyn-
slóðanna var skammt til Skál-
holts, hvenær, sem um var lit-
ast, bar þennan hátind við him-
in, Skálholtsstað. Hann varð
ekki dulinn. gat ekki hrunið,
aldrei gleymst. Og meira enn
er Skálholt, stærra en sagan.
í sögu Þorláks biskups helga
segir frá því, að prestur einn
fyrir norðan kom út á skír-
dagskvöld og sá sýn, hann sá
Skálholt, Skálholtskirkju, og
ljós mikið fyrir kirkjunni, svo
að trautt mátti sjá kirkjuna fyr-
ir ljósinu. Sú tign, sem var, er
stöfuð geislum, eem ekkert
jarðneskt getur tendrað, og
auðnin, sem á eftir kom, er
sveipuð skini, sem ekkert jarð-
neskt getur slökkt. Á fjóspalli
hér á staðnum voru útlögð á
vort móðurmál þau orð, sem
helgust eru á hverri tungu, og
þótt hér yrði hljótt og myrkt,
voru þau orð ljósið á vegum
þúsundanna, vígðu hvert alt-
ari og hverja sál á landi hér.
Þegar öll ytri vegsemd þessa
staðar var fallin, „allt eins og
blómstrið eina,“ flutti sálmur-
inn, sem hér var sunginn fyrst
yfir látins moldum, sigurorð lífs
ins við hverja gröf á íslandi
kynslóð eftir kynslóð. Þegar
litla, snauða kirkjan, hin síð-
asta hér, riðaði gisin og fúin
á grunni sínum, geymdi hún
undir gólfi letur á steini, ritn-
inguna, sem Jón Vídalín lét
kiappa á legstein sinn:: „Guðs
heilaga ott® stendur stöðugt
eilíflega. Grasið visnar, blóm-
in fölna, svo hverfur heimsins
prýði, en Guðs heilaga orð
stendur stöðugt eilíflega." Og
meðan grösin spruttu og féllu
á eyðirústum Skálholtsstaðar
var bókin hans í hverju húsi á
íslandi og orð hans á vörum
almúgans, greypt í hjarta þjóð-
arinnar. Skálholt er meira en
minningin, hærra en sagan.
Þar var höfuðstaður þjóðar,
sem nálega var fallin sjálf, og
þá eyddist hann, én ljósið fyr-
ir kirkjunni gat ekki horfið
sýnum meðan nokkurt íslenzkt
auga var heilt. Vér sáum hing-
að marga nótt og ljósið bað um
líf, nýja kveil^i, nýjan vita
handa sér, handa þjóðinni, á
helgum, föllnum höfuðstað. Og
stundin er komin. Skálholt er
að sigra. Hefjið gleðisöng, hróp-
ið fagnaðaróp allar í einu, þér
eyðirústir. Heilög Péturskirkja
í Skálholti er endurreist, veg-
samleg álitum, og mun fram-
vegis lofa sinn meistara og alla,
sem að henni hafa unnið og
liana sæmt með ágætum gjof-
um. Ekki- metumst vér við aðra
um vegsemd mannlegra verka.
Hér voru fyrr meiri kirkjur og
meira búnar en þessi er, þótt
í sjálfri þessari byggingu og
meðal nýrra muna hér séu
fágætir dýrgripir. Án alls sam-
anburðar er óhætt að segja,
að vor kynslóð hefur hækkað
sína vegsemd, lífs og liðin, með
þessu verki. Svo taka aðrar
kynslóðir við. Skálliolt horfir
í aldir fram. Og enn er það
ljósið fyrir kirkjunni, sem c-r
auður þessa staðar. Ég m>M
fylla hús þetta dýrð, segir
Drottinn. Hin síðari dýrð þessa
musteris mun meiri verða en
hin fyrri var. Vér þiggjum
þetta fyrirheit í auðmjúkri
tilbeiðslu. Og allar eyðirústir
á Skálholtsstað taka undir allt,
sem andleg móðir allra vígðra
húsa á íslandi hefur af sér
fætt tekur undir. Vér erum
gæfumenn að hafa mátt hefja
það verk hér, sem ókomnar ald-
ir munu fram halda. Og Drott-
inn, sem fyrirheitið gefur, hann
er sá, sem alltaf ætlar oss
meira en vér sjáum fyrir, allt-
af á meira að gefa en vér höf-
um þegið eða kunnum að vona.
Hin síðari dýrð þjóðarhelgi-
dómsins mun meiri verða en
hin fyrri var. í þessu morgun-
skini stendur Skálholt í dag.
Og vér lútum helgri fortíð og
blessum heilaga framtíð, sem
Drottinn gefur. Og heilög heic
Framh. á 14. síðu
w
ALÞÝÐUBLAÐIÐ — 23. júl( 1963 $